Morgunblaðið - 06.12.1998, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 06.12.1998, Blaðsíða 30
YDDA /SÍA »30 B SUNNUDAGUR 6. DESEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ >í I Skrúði eru borðin hlaðin girnilegum jólamat. Njótið þess að snæða ljúffengan mat á notalegum stað. Feðgarnir Jónas Þórir og Jónas Dagbjartsson flytja ljúfa tónlist. lá > % Okkar vinsælu, straufríu matar- og kaffidúkar eru komnir aftur. 100% polyester. Jaquard ofnir. Litir: Flöskugrænt, kremað, vínrautt, dökkblátt, gult, hvítt og laxableikt. Stærðir: 90x90 sm....... .......399,- 140x180 sm.............1.190,- 150x220 sm.............1.490,- 150x250 sm.............1,690,- 160 sm hringur..........1.190,- Smáratorgl 1 Skeifunni13 Norðurtanga 3 Reykjavíkurvegi 72 Holtagörðum 200 Kópavogi 108Reykjavík 600 Akureyri 220 Hafnarfjörður v/Holtaveg 510 7000 568 7499 462 6662 565 5560 104 Reykjavfk DÆGURTÓNLIST Morgunblaðið/Kristinn KRAFTUR Þröstur og Páll Súrefnismenn. Súrefnisrík danstónlist HLJÓMSVEITIN Súrefni sendi frá sér sína aðra breiðskífu a dögunum sem á er að finna kröftuga danstón- list. Þeir félagar Þröstur og Páll skipa Súrefni, en á skífunni koma fleiri við sögu og reyndar var vinnulag þeirra heldur nýstárlegt að þessu sinni. Súrefhismenn settu plötuna saman í sumar og hófust handa við að semja lög á hana í vor. Þröstur semur lögin og þegar hann var hálfhaður eða þar um bil tók Páll það sem komið var, fór í hljóðver með Arnari trommuleikara og tók upp grunna að lögunum. Þröst- ur hélt áfram að semja á meðan og þeir félagar segja að þessi tilhögun hafi heppnast bráðvel. „Við unnum þetta vitanlega meii-a og minna í sam- einingu," segir Páll og vísar til upptök- unnar. „Þröstur var í svo miklu stuði við að semja að við einbeittum okkur að því að vinna lögin áfram og bæta inm' trommunum og þegar hann var búinn að semja allt koma hann svo að vinnunni með okkur.“ Páll segir að fleiri hafi lagt hönd á plóginn og nefnir sérstaklega þá Didda og Adda 800 sem eiga líka mikið í plötunni, „sér- staklega Addi 800, sem á heiðurinn að hljómnum, en Diddi stakk upp á því að við bættum gítar inm' eitt lagið sem kom afskaplega vel út“. Súrefhi hefur leikið víða undanfarið og þá með trommur og gítar sér til halds og trausts. Þeir félagar segja það vissulega gefa tónlistinni kraft- meira yfirbragð og skemmtilegra að hafa lifandi hþoðfæri með „og svo hef- ur fólk líka eitthvað að horfa á þegar við erum að spila, það er svo leiðinlegt að horfa á einhverja tvo bogra yfir tölvum". Fyrir vikið hafa lög sveitar- innar líka tekið nokkrum breytingum þegar þau eru flutt af sviði; lifandi trommur komnar í öll lög og í flestum bregður fyrir gítar sem gerir þau óneitanlega mun kraftmeiri að sögn þeirra Súrefnismanna. ,Addi [trommari] er náttúriega orðinn eins og partur af hljómsveitinni, búinn að spila með okkur í heilt ár og þegar hann er ekki með þá komum við ekki fram. Hann er þó ekki genginn í Súr- efni, enda er hann að vinna með sinni eigin hljómsveit," segir Páll, en Addi er liðsmaður í hljómsvetinni Stolíu. Súrefni var á sínum tíma fjölmenn hljómsveit með gítar, bassa trommum og öllu tilheyrandi en fyrir ýmsar sak- ir fór svo að þeir voru tveir eftir Þröstur og Páll. Þeir segjast vel geta hugsað sér að þróa þá hugmynd frek- ar í framtíðinni að hafa meira af lif- andi hþoðfærum í tónlist sveitarinnar, en það yrði þá sem viðbót við þeirra tónKst. sveitin Hálft í hvoru. Horfl um öxl HLJÓMSVEITIN Hálft í hvoru er mörgum að góðu kunn, en hún er enn starfandi eftir sautján ára líf- tíma. Talsverðar breytingar hafa orðið á hljómsveitinni frá því hún var stofnuð 1981, en fyrir skemmstu kom út safnskífa, Horft um öxl, með lögum frá fyrsu árum Hálft í hvoru. Hálft í hvoru skipuðu upphaflega þau Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson, Bergþóra Ámadóttir, Eyjólfur Kristjánsson, Gísli Helgason, Ingi Gunnar Jóhannsson og Oi-var Aðal- steinsson. Hljómsveitin gaf út sína fyrstu plötu það ár, Heyrðu, og ári síðar gaf Menningar- og fræðslu- samband alþýðu út plötuna Al- mannarómur, en sveitin fór víða um land til að kynna þá plötu og einnig í tónleikaferðir til Noregs og Sví- þjóðar. Bergþóra hætti í hljómsveitinni síðsumars 1982. Vorið eftir gaf sveitin út tveggja laga plötu og stóra þá um haustið, en vorið eftir fluttist Aðalsteinn Ásberg af landi brott. Varð þá nokkur stefnubreyt- ing á tónlist sveitarinnar og tals- verðar mannabreytingar fylgdu í kjölfarið. 1986 kom út platan Götumynd með Hálft í hvoru og var Gísli einn eftir af stofnmeðlimum, en með honum í sveitinni voru Herdís Hall- varðsdóttir, Guðmundur Benedikts- son og Hannes Jón Hannesson. Ingi Gunnar, Örvar og Eyjólfur gengu aftur í sveitina stuttu síðar, en Bergsteinn Björgúlfsson leysti svo Gísla af hólmi árið 1985 og þannig skipuð starfar sveitin enn þann dag í dag, þó starfsemi hennar sé stopul og hljómsveitin allbreytt frá því fyrstu skreftn voru stigin. Á safnplötunni sem hér er gerð að umtalsefni er að finna alla fyrstu skífu Hálft í hvoru, Áfram, en einnig lög af Almannarómi og Heyrðu, en alls eru á plötunni nítján lög.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.