Morgunblaðið - 21.01.1999, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 21.01.1999, Blaðsíða 1
B L A Ð ALLRA LANDSMANNA KÖRFUKNATTLEIKUR HANDKNATTLEIKUR 1999 Bjarki með stórleik STJÖRNUMENN unnu sinn sjö- unda sigur í röð í 1. deildar- keppninni í handknattleik er þeir lögðu Hauka að velli í Garðabæ í gærkvöldi, 28:25. Þeir fyigja leikmönnum Aftureldingar eins og skuggi á toppi deildarinnar, en Afturelding lagði Val að Hlíð- arenda 28:25. Hér á myndinni til hliðar fagnar Bjarki Sigurðsson einu af tíu mörkum sínum, en hann átti stórleik með Aftureld- ingu. ■ Úrslit / C2 ■ Staðan / C2 i Þórsarar með enn einn nýjan Á LAUGARDAGINN barst l Morgunblaðinu tilkynning frá í körfuknattleiksdeild Þórs frá Akureyri, þar sem sagt var að féiagið hefði fengið til liðs við sig Bandaríkjamanninn Luis Richardson, sem lék í Finn- jj landi. Hann var sagður koma í ji stað Lorenzo Oit, sem var lát- p inn fara í síðustu viku. Þegar :: öll kurl komu til grafar kom í i; I ljós að Richardson var í leik- “ banni í Evrópu. Ástæðan var ! sú að hann varð uppvís að i neyslu kannabisefna í Finn- | landi. Hann kom því ekki til Þórs um helgina eins og áætl- að var. Nú voru góð ráð dýr. Orr var farinn og enginn kominn í staðinn. í gær var síðan geng- ið frá því að annar bandarísk- ur leikmaður kæmi til félags- ins. Hann heitir Maurice Spill- j ■ð Kefivíking- íi ðirnar í fyrra % )ninni. Hann sinn með Þór g nað kvöld. 5 að hrakför- g ítlendinga sé fréttatilkynn- |: Nýr leik- maður í herbúðir ÍA Morgunblaðið/Golli FIMMTUUDA GUR 21. JANUAR BLAÐ SKAGAMENN hafa sagt upp samningi við bandaríska leikmanninn Anthony Jones sem leikur með úrvalsdeildarliði félagsins í körfuknattleik. Hann mun leika síðasta leik sinn með liðinu í kvöld er ÍA mætir Grindavík. Á morgun fer hann utan og annar Bandarfkjamað- ur, Kurk Lee, kemur í staðinn. Hann er bak- vörður og hefur leikið undanfarin ár með Torp- an Pojat í Finnlandi. Þetta er þriðji erlendi leik- maðurinn sem Skagamenn reyna í vetur. Banda- ríski leikmaðurinn Warren Peebles, sem hefur leikið með Grindvíkingum í vetur, verður áfram með liðinu. Um áramótin stóð til að skipta um leik- mann og var samningnum við Peebles sagt. upp. Hann var reyndar beðinn að leika með liðinu þangað til annar leikmaður kæmi, en nú er ljóst að Peebles verður áfram. 45 erlendir leikmenn hafa leikið með íslenskum liðum í vetur - aldrei verið fleiri Félögin hafa greitt um 1,4 millj. í félagaskipti að hefur varla liðið sú vika að einhver erlendur körfuknatt- leiksmaður hafi ekki verið sendur heim og annar komið í staðinn i vet- ur. Þetta hefur haft slæm áhrif á íþróttina og eins komið mjög við pyngju félaganna. Það er áætlað að það kosti um 300 þúsund krónur að skipta um erlendan leikmann. Þá eru meðtalin flugfargjöld sem eru um 100 þúsund krónur, félagaskipta- gjald og laun. Dæmi er um að félag hafi fengið fjóra leikmenn á tímabil- inu. Samkvæmt heimildum blaðsins hafa 45 erlendir körfuboltamenn komið til landsins það sem af er tímabilinu, sem er þó aðeins rétt hálfnað. Hér á landi eru nú 23 stöðugildi fyrir útlendinga, 15 í úr- valsdeildinni, 5 í 1. deild kvenna og 3 í 1. deild kai-la. Gjald vegna fé- lagaskipta hvers leikmanns er 30 þúsund krónur. Félögin hafa því greitt samtals um 1,4 milljónir fyrir félagaskipti í vetur vegna erlendu leikmannanna. Sigurður Hjörleifsson hefur verið umboðsmaður erlendra leikmanna sl. fimm ár. Rúmlega 60 leikmenn hafa komið hingað til landsins á hans vegum. Hann segir félagaskipti leikmanna aldrei hafa verið tíðari en í vetur. Hann segir ástæðurnar margar, m.a. þær að umboðsmenn vandi vinnubrögð sín ekki nægilega vel og eins liggi þetta hjá félögunum sjálfum. Þau skoði bakgrunn leik- manna ekki áður en þeir eru keypt- ir. „Þau renna of blint í sjóinn og vita í raun ekkert hvernig leikmann þau eru að kaupa,“ sagði Sigurður. „Það þarf að vera búið að undir- búa leikmenn vel áður en þeir koma hingað, kynna þeim land og þjóð þannig að þeir viti að hverju þeir ganga. Það hefur orðið mis- brestur á þessu og leikmenn hafa hreinlega fengið áfall þegar þeir koma hingað og heimtað að fara aftur heim með næstu flugvél," sagði Sigurður. ■ Brottfallið... / C4 ■ Með allt að... / C4 Björgvin annar í Svíþjóð BJÖRGVIN Björgvinsson, skíðamaðurinn efnilegi frá Dalvík, hafnaði í öðru sæti á alþjóðleg-u stórsvigsmóti í Svíþjóð um helgina. Hann var með besta tímann í fyrri umferðinni, en náði síðan næstbesta tímanum samanlagt eftir báðar um- ferðirnar. Hann hlaut 24 styrkleikastig (fis-stig) fyrir árangur sinn. Hann var með 28 fis-stig á síðasta styrkleikalista FIS um ára- mótin og hefur því bætt sig töluvert með árangrinum um helgina. Björgvin er 19 ára og samkvæmt heimslistanum í stórsvigi um áramótin var hann þá í 4. sæti listans í sínum aldursflokki. i I J ! ! HANDKNATTLEIKUR: EYJAMENN ENN ÁN SIGURS Á ÚTIVELLI / C3

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.