Morgunblaðið - 28.01.1999, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 28.01.1999, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 1999 53 MINNINGAR fluttust þá suður og hafa lengst af búið í Reykjavík. Pau eignuðust fjóra syni, Krist- ján, Magnús, Veigar og Hafþór, sem dó í blóma lífsins. Segja má að fyrir nokkrum ár- um hafí þau lokið sinni annasömu starfsævi þegar heilsa þein-a þraut svo að bæði þörfnuðust þau um- hyggju og ummönnunar. En gæf- an hafði gefið þeim góða syni og umhyggjusamar tengdadætur svo allt fór vel. Að síðustu hafði þó heilsu þeirra hnignað svo að þau gátu ekki lengur dvalið heima. Eftir að Óskar fluttist til Reykjavíkur stundaði hann ýmsa vinnu sem í flestum tilvikum snertu akstur og bíla. Síðan hóf hann störf á smurstöð Skeljungs innst á Laugavegi, sem leiddi til þess að hann fór að annast rekstur stöðvarinnar. Óskar sinnti starfí sínu af mikilli samviskusemi. Hann var kurteis og lipur við alla sem til hans sóttu þjónustu, enda jukust viðskipin stöðugt svo að fjölga þurfti starfsliði. Þessa vinnu stundaði hann til starfsloka enda veitti hún honum bæði starfsgleði og góðar tekjur. Margrét og Óskar höfðu mikið yndi af ferðalögum og fóru víða um lönd. Margrét lifir mann sinn og nýt- ur ágætrar aðhlynningar á sjúkra- deild DAS í Reykjavík. Þegar ég horfi til liðinna ára rifjast upp minningar um fjöl- margar ánægjustundir á heimili Óskars og Öddu og vel man ég vin- semd þeirra og gestrisni. Að lokum vil ég votta öllum að- standendum hluttekningu. Sigfús Kristjánsson. Nú ríkir kyrrð í djúpum dal þótt duni foss í gljúfrasal. I hreiðrum fúglar hvíla rótt þeir hafa boðið góða nótt. Nú saman leggja blómin blóð, er breiddu faðm mót sólu glöð, í brekkum fjalla hvfla rótt, þau hafa boðið góða nótt. Nú hverfur sól við segulskaut og signir geisli hæð og laut er aftanskinið hverfúr fljótt, það hefúr boðið góða nótt. Elsku afí, augun lokast, hjartað fer að sofa svefninum langa. Minn- ingarnar lifa og blossa upp og minna okkur á þig. Elsku afi, til dæmis þegar við horfðum á Dallas, eða þegar við sáum Frissa fríska og banana sem þér fannst alltaf svo gott. Ef ekki væru minningar vitum við ekki hvað við myndum gera, en sem betur fer eru þær til og þær eru góðar minningarnar okkar sem við eigum um þig og munum geyma í hjarta okkar, elsku afi. Vertu nú yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni. Sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum.) Margrét Inga og Margrét Kristjánsdóttir. Elsku afi. Nú ertu farinn á ann- an stað og við vonum að þér líði vel þar. Það er svolítið skrítið að geta ekki farið til þín og fengið blátt Ópal og súkkulaði úr ís- skápnum og Emil skilur ekki að nú fórum við ekki með bjór til afa. Þig sem langaði svo að sjá okkur fimleikastúlkurnar í sjónvarpinu. Nú getur þú ekki lengur fylgst með Dallas, uppáhalds sjónvarps- þættinum þínum. En við ætlum að muna vel eftir þér, elsku afi, og heimsækja hana Öddu ömmu fyrir þig- Hér er bæn: I bljúgri bæn og þökk til þín sem þekkir mig og verkin mín. Ég leita þín, Guð, leiddu mig og lýstu mér um ævistig. Þínar afastelpur Stefanía Kristjánsdóttir og Kristjana Ósk Veigarsdóttir. + Arinbjörn Árna- son fæddist á Ncðri-Fitjum í Víði- dal í V-Húnavatns- sýslu 16. ágúst 1904. Hann lést á Land- spítalanum 11. janú- ar siðastliðinn og fór útför hans fram frá Fíladelfíukirkj- unni 19. janúar. Elsku Arinbjöm minn. Nú ert þú farinn frá okkur öllum. Þegar ég sest niður og byrja að skrifa til þín hellist yfir mig söknuður og fallegar minningar um þig. Fyrstu minningar mínar um þig úr æsku eru tengdar þér þegar þú komst ríðandi á hesti fram að Hrappsstöðum í Víðidal til að ná í mig í fóstur og þú fórst með mig að N- Fitjum þar sem ég átti að vera smá tíma. Þar bjuggu foreldrar þínir, Ami og Sigríður, í góðu búi. Þau reyndust mér vel, ólu mig upp sem sitt eigið barn. Þá man ég vel hvað þú varst Ijúfur við mig og góður þegar pabbi þinn dó. Þú hélst á mér og huggaðir mig eftir bestu getu. Arinbjörn vann að bústörfum hjá foreldrum sínum eins og títt var á þessum tíma, allt slegið með orfi og ljá og rakað með hrífum, heyið bundið og reitt heim á klakk. Ég fór oft í heimsókn til hjónanna Margrétar og Arinbjöms þegar þau bjuggu á Melhaganum í Reykjavík. Þangað var gott að koma. Kærleikur- inn í fyrirrúmi. Síðustu ár Arinbjarnar vom á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Selja- hlíð. Þar kom ég oft og áttum við góðar stundir, ræddum saman gömlu góðu dagana. Ég hafði oft með mér pönnukökur sem ég hafði bakað, og var hann mjög þakklátur fyrir, og fyrir jólin bakaði ég smákökur sem ég nefndi hálf- mána. Ég man hvað þú varst ánægð- ur þegar þú sást þetta. Þegar ég kom til þín í desember varstu mjög hress og áttum við góða stund saman. Jæja Arinbjörn minn. Þakka þér fyrir allt og allt. Guð geymi þig. Mínar innilegustu samúðarkveðjur til fjölskyldu hans og annarra að- standenda, frændfólks og vina. Lýs, milda ljós, í gegnum þennan geim, mig glepur sýn, því nú er nótt og harla langt er heim. 0, hjálpin mín, styð þú minn fót; þótt fetin nái skammt, ég feginn verð, ef áfram miðar samt. Þú ljós, sem ávallt lýsa vildir mér, þú logar enn, - í gegnum bárur, brim og voðasker. Nú birtir senn. Og ég finn aftur andans fógru dyr og engla þá, sem barn ég þekkti fyr. (M.Joch.) Álfheiður Björnsdóttir. Elsku Arinbjöm frændi er farinn í ferð- ina miklu. Bjössi frændi, eins og við nánustu ætt- ingjar kölluðum hann, var móðurbróðir minn. Ég er þess fullviss að það voru margir sem tóku á móti honum í betri heimi. Þar á meðal hefur verið Jónína syst- ir hans sem andaðist fyrir hálfu ári. Það var alla tíð mjög kært á milli þeirra. Éftir að móðir mín kom norður á Sjúkrahúsið á Hvammstanga hringdu þau í hvort annað nánast daglega þegar annað hvort var lasið. Bjössi sagði að þeim væri nóg að heyra mál- róminn hvort í öðru, því þau skildu hvort annað. Síðasta ferð Bjössa frænda norður var síðastliðið sumar til að fylgja systur sinni til grafar og var máttur- inn þá farinn að dvína. Bjössi andaðist daginn sem við vor- um að kjósa nýtt nafti á sveitarfélag- ið. Hann sagði mér í sumar að hann vonaðist til að það myndi heita Húna- þing (það lægi í augum uppi). En Húnaþing má segja að sé þjóðsöngur okkar norðanmanna og er eftir frænda. Ég vil þakka frænda fyrir allan þann kærleika og hlýhug sem hann sýndi mér og minni fjölskyldu. Ef eitthvað bjátaði á var svo gott að hringja í hann og fá alla hans til- beiðslu. Mér fannst hann alltaf vera höfuð ættarinnar. Hann munaði ekki um að gefa út niðjatal foreldra sinna, Árna V. Gíslasonar og Sigríðar Guð- mundsdóttur á Neðri-Fitjum í V- Hún., og drífa af stað ættarmót frændfólksins í kjölfar þess. Bjössi frændi var sérlega minnugur og setti margt á prent þótt skólaganga væri ekki löng. Meðal þess efnis sem eftir hann liggur er bókin „Dögun við Dag- múla“. Frændi mat mikils hreinskilm, heiðarleik og traust. Hann var alinn upp við að virða hinar góðu dyggðir, trúnað, samviskusemi og umburðar- lyndi við samferðafólkið, og á þeim vegi villtist hann aldrei. Síðast talaði ég við hann á aðfangadag. Þá fann ég að hverju stefndi. Við kvöddumst vel og báðum hvort öðru Guðs blessunar eins og hann gerði alltaf við mig. Ég bið góðan Guð að blessa minn- ingu hans og vera með öllu hans fólki. I lokin ætla ég að kveðja þig með síð- asta erindinu úr Húnaþingi: Heill sé þér um ævi alla, æsku minnar dvalarstaður. Nefna vil ég nafnið þitt. Ailt frá strönd og upp til fjalla auðnu njóti sérhver maður, Húnaþing, þú hérað mitt. (Arinbjöm Árnason) Þín frænka Árný Kristófersdóttir. JÓN ÁRNIJÓNSSON + Jón Árni Jónsson fæddist á Akureyri 16. desember 1925. Hann lést á Fjórðungssjúkrahús- inu á Akureyri 7. janúar og fór út- fór hans fram frá Akureyrar- kirkju 13. janúar. Enn fjölgar þeim sem á okkar aldri færast um set. Jón Ámi, vinur minn og bekkjarbróðir, hefur nú kvatt þenn- an heim en minning hans lifir og mannkostir. Mig minnir að kynni okkar hæfust fyrst í 2. bekk MA. Okkur bekkjar- systkinum hans varð fljótt ijóst hve góðum námsgáfúm hann var gæddur og ekki síður ijúfmennska hans og drenglyndi. Þegar fram liðu stundir óx með okkur vinátta og í 5. bekk lásum við saman ásamt Ingimar Einarssyni bekkjarbróður okkar og í 6. bekk lás- um við Jón Ami saman tveir. Er mér ijúft og skylt að þakka hve ég naut mikils af þessu starfi. Stundum þegar mér þótti nóg lesið og hðið var á dag vildi hann gjarnan fara aftur yfir pensúmið, sem mér leiddist. Svona var Jón Árni. Hann þurfti þessa ekki sín vegna, en taldi mér það hollt. Ég átti því láni að fagna að kynnast foreldrum hans á þessum áram, ástúðlegu af- bragðsfólki. 011 kynni min af Jóni Ama eru með einum hætti. Glaðværð hans, menn- ingarleg, jafnan temprað, er mér minnisstæð. Þegar námi lauk fyrir norðan skildust leiðir og sem vænta mátti varð minna um samskipti okkar en þó fylgdumst við hvor með öðrum, skiptumst á kveðjum og hresstum upp á kynnin með bekkjarsystkinum af og tíl. Eftir skjallegum mönnum, sam- kennuram og nemendum, hef ég, að hann hafi verið afbui-ðakennari og skilningsríkur sem vakti áhuga nem- enda og menningarlegan metnað. Jón Árni átti skihð að verða ham- ingjumaður og hamingjuna hlaut hann með Maríu sinni, þeirri dýrðarkonu, og niðjum þeirra og þess naut hann. Ég hef haft af því sannar fregnir að allt um þunga banalegu hafi hann til hinstu stundar haldið andlegu þreki sínu og glaðværð. Ég kveð vin minn og bróður og bið honum blessunar Guðs. Við Kristín sendum Maríu og allri fjölskyidu inni- legar samúðarkveðjur. Guðmundur Benediktsson. ARINBJORN ÁRNASON + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar og sonur, HÖGNI BJÖRN HALLDÓRSSON, Selbrekku 17, Kópavogi, verður jarðsunginn frá Digraneskirkju föstu- daginn 29. janúar kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Krabbameinsfélag Islands. Steinunn Karlsdóttir, Halldór Karl Högnason, Unnur Þóra Högnadóttir, Hrefna Björnsdóttir. + Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, PÁLL HJALTALÍN ÁRNASON, Nónási 3, Raufarhöfn, verður jarðsunginn frá Raufarhafnarkirkju laugardaginn 30. janúar kl. 14.00. Una Hólmfríður Kristjánsdóttir, Árni Pálsson, Gyða Halldórsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Faðir okkar, STEFÁN BJÖRNSSON skipstjóri, Hamraborg 32, verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju föstu- daginn 29. janúar kl. 13.30. Fyrir hönd aðstandenda, Björn Stefánsson, Rafn Stefánsson. + Bróðir okkar, ÞORSTEINN FRIÐRIKSSON, Reynimel 49, Reykjavík, lést fimmtudaginn 14. janúar. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Systkini. + Hjartans þakkir sendum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát móður okkar, tengdamóður, ömmu og lang- ömmu, INGIBJARGAR HALLDÓRSDÓTTUR, Furugerði 1. Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki Furu- geðis 1 fyrir frábæra umönnun. Þórdfs Þorbergsdóttir, Gunnar P. Guðjónsson, Aðalsteinn J. Þorbergsson, Stella Stefánsdóttir, Ingibjörg Gunnarsdóttir, Guðrún Gunnarsdóttir, Þórdís Gunnarsdóttir, Þorbergur Aðalsteinsson, Aðalsteinn Aðalsteinsson, Stefán Aðalsteinsson og langömmubörn. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför bróður okkar, SIGURÐAR LOFTSSONAR, Hlaðhömrum 2, Mosfellsbæ. Björn Loftsson, Katrín Loftsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.