Morgunblaðið - 07.03.1999, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ
C
SUNNUDAGUR 7. MARZ 1999 47
þessi sigldi til Ameríku á vegum
SÍS, 22 ára að aldri, að læra til
skinnaverkunar. Um það samdist
við verksmiðju vestur þar að hann
fengi að rokka á milli starfa í fyrir-
tækinu og kynnast sem flestum
verkþáttum. Arið 1923 kom hann
aftur heim. Hann hófst handa með
handverksmönnum að hanna, smíða
og kaupa útbúnað fyrii' afullun og
forverkun gærna í Sláturhúsinu í
Grófargili eftir að slátrun lauk það
haust. Ari síðar reistu sömu aðilar,
eftir tilsögn Þorsteins, Gæruverk-
smiðjuna, ofar í Gilinu þar sem hún
var starfrækt með hléum í áratug,
undir hans stjóm.
Þegar foiráðamenn SÍS tóku
stefnu á fullgilda sútun skinna var
það aftur Þorsteinn Davíðsson sem
utan sigldi, fyrst til Ameríku og síð-
an Þýskalands, árin 1927-30, til að
kynna sér sútunina betur, og reynd-
ar slátran og skógrækt í leiðinni.
Eftir þetta hóf hann með samverka-
mönnum að fullsúta skinn í Grófar-
gili, þó ekki væri það í stórum stíl.
í útflutningstregðu og gjaldeyris-
skorti kreppuáranna tóku Islending-
ar upp þá stefnu að „búa að sínu“ og
gera sér sem mest úr eigin auðlind-
um. Menn hófu að þróa iðnað fyrir
heimamarkað. Áiið 1934 var Þor-
steinn Davíðsson beðinn að teikna
allstóra skinnaverksmiðju á Gler-
árejrum fyrir aðalfund SÍS þá um
sumarið. Þorsteinn gerði það. Var
skjótt gengið til framkvæmda og Sk-
innaverksmiðjan Iðunn hóf fram-
leiðslu næsta ár. Þorsteinn var fram-
kvæmdastjóri. Ekki þó þannig að
hann stjómaði frá skrifborði, heldur
var hann eini fagsútarinn, verkstjóri,
efnafræðingur og stjórnunarlegur
forstjóri um leið, auk þess að hafa
sem verkfræðingur hannað verk-
smiðjuna áður. Hann var á þeim
tíma eini íslendingurinn með alhliða
reynslu af hinu margbrotna og afar
vandasama ferli sútunariðnaðar.
Árin 1936 og 1937 setti SÍS af
stað tvær nýjar deildir við Skinna-
verksmiðjuna, skógerð og hanska-
gerð. Þær gáfu afsetningu fyrir hin
sútuðu skinn og skópu um leið mörg
störf. Á fyi’stu árum skógerðarinnar
dvaldi Þorsteinn eitthvað í Svíþjóð, í
nokkurs konar sumarfríi, til að
kynna sér þarlenda skógerð, kaupa
tæki og læra á þau.
Ég þekki Þorstein Davíðsson
ekki persónulega. Ég hef hins vegar
fengið vinnu við að skrifa um ís-
lenskan skinnaiðnað á 20. öld og þá
hef ég rekist á nafn hans æði oft,
oftar en nokkurs annars manns.
Það má reyndar ljóst vera af því
sem þegar er sagt. Þó var þetta lítið
annað en byrjun skinnaiðnaðar á
Akureyri.
Þetta var fyrir daga EFTA og
sérhæflngarnar í íslenskum iðnaði.
Opið hús
í dag milli
kl. 14 og 17
Fálkagata
21, Rvík
í dag er opið fyrir þig og
þína til að skoða 3ja-4ra
herbergja vel staðsetta og
spennandi íbúð á eftirsótt-
um stað í vesturbæ
Reykjavíkur. íbúðin er á
2. hæð og er sameign
góð. Frábært útsýni Suð-
ursvalir. Bjallan merkt
Guðjóni Einarssyni. Verð
8,5 millj.
Hátún,
fasteignasala,
SkipKolti 50b, 2. hæð
sími 561 9500.
AFMÆLI
Og í hinum unga iðnaðarbæ Akur-
eyri þurftu ýmsir frumkvöðlar að
vera allt í öllu. Þorsteinn var það.
Þá braut sem hann og samstarfsfólk
hans gekk þurfti að ryðja fyrst.
Auðvitað var margt af vanefnum
gert. En menn urðu að duga á eigin
spýtur eða drepast. í því reyndist
hin þrjóska sjálfsbjargarviðleitni
mönnum best. Ég hygg að Þor-
steinn hafi haft mikið af henni.
Ég held því ekki fram að Þor-
steinn Davíðsson hafí verið neinn
kraftaverkamaðm-. Bæði voru
stundum fengnfr erlendir fagmenn
til starfa á Gleráreyram og margir
heimamenn kappkostuðu að ná tök-
um á iðnaðinum sem skjótast. En
þá var það líka ómetanlegt að til var
maður með alhliða reynslu sem gat
gengið á undan með fordæmi í
margs konar störfum. Hann mætti
manna fyrstur á morgnana og fór
gjarnan síðastur heim og féll víst
sjaldan verk úr hendi.
Þessi iðnaður var þjóðinni lífs-
nauðsyn. Á stríðsárunum þuiftu ís-
lendingar að framleiða megnið af
skófatnaði sínum sjálfir, rétt eins og
klæðnaðinn. Stærstu einingarnar
bæði í sútun og skógerð voru á
Gleráreyrum. Sérstaklega var sút-
unin þar nauðsynleg fyrir margs
kyns verkstæði og handverk vítt um
land. Starfsfólk Skinnaverksmiðj-
unnar þurfti að ná færni í afar fjöl-
skrúðugri framleiðslu. í bréfi til
norsks vinar síns 1953 lýsir Þor-
steinn því hvað menn vora að starfa
í verksmiðjunni þann daginn:
„Tveir menn hafa penslað kalk-
brennisteinsblöndu á 400 sauðskinn
sem eiga að afullast á morgun. Einn
maður kembir, í vél og með hönd-
um, langhærð teppaskinn, og pækl-
ar líka 400 gærur. Einn maður af-
vatnar sólaleður, í vél og höndum.
Einn maður valsar, lýkur við eitt
800 kg partí af kýrhúðum, tvíkróm-
uðum í feitileður, eftirvalsar sól-
aspalt og byrjar á partíi af kálfs-
skinnum í bókband. Einn maður
hlutleysir og eftirsútar kýrhúðir í
leður fyrir húsgögn eða bílasæti og
setur út í Essorella-vélina eitt partí
(ca 2200 ferfet) af hrosshúðum fyrir
chevreaux. Einn maður slípar sól-
aspalt. Einn maður slípar og flosríf-
ur hanskaskinn, tveir menn vinna
við að sprauta hanskaskinn með
eukanol-litum, sauðskinn í fóður
með collodíum, orthokróm. Einn
kantklippir gærur. Einn flokkar og
mælir sólaspalt, kálfsskinn og geita-
skinn í úrfestar, fóðurskinn og sóla-
leður. Svona dagsprógram er lík-
lega ekki til í nokkuiri annarri sút-
un í veröldinni."
Eins og þetta væri ekki nóg voru
talsverðir snúningar fyrir einstaka
viðskiptavini. Helgi Hjörvar þurfti
að láta sérsmíða á sig skó og iýsti
fótum sínum í bréfi til Þorsteins.
Það er stórbrotin lýsing. Og Jón í
Möðradal skrautritaði til hans áll-
langt bréf og sendi ásamt með húð
af Stóra-Skjóna sem hann þurfti að
fá sútaða til að nota í setuleður und-
ir hnakkadýnur en bað Þorstein
velja fyrir sig tvo húðarparta að
auki „ekki geysiþykka en samt
góða“ í löf og ólatau. Gallinn var sá
að Jón gat ekki borgað strax, þ.e.
hann þurfti fyrst að borga nýkeypt-
ar 22 ær og meri. Hann yrði því að
fá þetta lánað fram yfir áramót en
þá kæmi ellistyrkurinn.
Iðnaður þessi fyrir heimamarkað,
þó margbrotinn væri, náði miklum
þroska á starfstíma Þorsteins Da-
víðssonar, framleiddi mikið og var
ein meginundirstaðan undir at-
vinnulíf Akureyrar. Þorsteinn hætti
framkvæmdastjórn Sútunarinnar
eftir verksmiðjubranann 1969 en
hélt þó áfram störfum fram yfir
1980, kominn á níræðisaldur. Og nú
fyllir hann hundraðið enda er ber-
sýnilega seigt í karli þessum.
Þegar skrifuð er saga skinnaiðn-
aðar í landinu þyrfti að gera þætti
Þorsteins góð skil. Skinnaiðnaður
hf. sem starfar á gi-unni gömlu Ið-
unnar, hefur veitt framlag til ritun-
ar þeirrar sögu og er það m.a. gert
til heiðurs Þorsteini Davíðssyni og
störfum hans.
Þórarinn Hjartarson.
félagíffasteignasala Örugg fasteignaviðskiptii
Fjöldi eigna á veraldarvefnum: www.midborg.is
Opið virka daga frá kl. 9-18, sunnudaga frá kl. 12-15
Smáíbúðahverfi-einb/tvíb. Gott u.þ.b.
235 fm. einb. sem er kjallari, hæð og ris, auk
u.þ.b. 40 fm. bílsk. Endurn. eldh. og bað. Arinn.
Garðstofa. 5-6 svefnh. f kjallara er u.þ.b. 45 fm.
séríbúð. V. 24,0 2197
Víðihvammur - Kóp. Gullfalleg u.þ.b. 105
fm efri sérhæð í 2-býli, ásamt 25 fm bílskúr.
Nýtt eldhús. Nýtt baðherb. Nýjar innréttingar
og gólfefni. Áhv. u.þ.b. 5,3 millj. V. 10,8 m.
1941
Við Vatnsstíg - 3ja herb. Vorum að fá I
sölu góða 65 fm íbúð á þakhæð I traustu stein-
húsi. íbúðin hefur talsvert veriö endurn m.a.
parket á herb, nýr sólpallur á stórri verönd.
Snyrtil sameign V. 6,0 m. 2205
Hverafold-ekkert greiðslumat. Vorum
aö fá í sölu 88,4 fm endaíbúð á 2. hæð í mjög
góðu húsi í Grafarvogi. íbúðin er með innrétt-
ingum frá Brúnás. Sérþvottahús í íbúö. Parket
og flísar á gólfum. Áhv. kr. 5,1 millj. byggsj.
m/grb. 26 þús á mán. V. 8,6 m. 2074
Arahólar - 2ja herb. Falleg 62,5 fm ib. á
3. hæð í góðu lyftuhúsi. Flísar á holi og eldh.
Merbau-parket á stofu. Hálf yfirbyggðar svalir.
Endurn. eldhús og bað. Lögn f. þvottavél I íb.
Húsvörður. Gervihnsjónv. Góð sameign. Áhv.
3.4 m. V. 5.7 m. 2195
Boðagrandi - 2ja herb. í einkasölu 61
fm. íb. á besta stað í vesturb. Parket á gólfum.
Rúmgóð stofa. Flísalagt baðherb. Góð
sameign. Áhv. 3,6 millj. V. 6,6 m. 2190
Öldugata - einstaklíb. Vorum aö fá I sölu
fallega og snyrtilega stúdíó-íbúð á þessum vin-
sæla stað m. sérinng. í virðulegu húsi. Ný
gólfefni og innr. í eldhúsi. Gott skápapláss.
Lögn f. þvottav. Sérinngangur. V. 4,4 m. 2161
Vesturbær - 101 svæði Sérlega falleg 50
fm kjib. á þessum eftirsótta stað. Parket á gólf-
um. Góðir skápar. Ibúðin snýr öll inn í garð.
Áhv. 2,6 m. V. 5,3 m. 2138
Miðhraun Garðabæ. Vorum að fá í sölu
gott atvinnuhúsn. á góðum stað. Hentar vel
fyrir alla þrifalega starfsemi. Gott athafnasvæði
utan við rýmin. Stærðir 170-550 fm.
Margháttaðir nýtingarmöguleikar. 2186
Garðabær. Vorum að fá u.þ.b. 135 fm verk-
stæðis- eða þjónustupláss á jarðhæð í nýju
húsi, auk u.þ.b. 65 fm millilofts. Eignin er til
afh. fljótlega tilb til innr. að innan en fullbúin að
utan. Hagstæð langtímafjármögnun fylgir.
2184
Reykjavík - miðbær. Mjög gott 1. 200 fm
skrifstofu- og iðnaðarhús í traustri útleigu á
góðum stað miðsvæðis í Reykjavík.
Byggingarmöguleiki á lóö. Allar nánari
upplýsingar veita Karl G. og Pétur Örn á skrif-
stofu Miðborgar. V. 75,0 m. 2043
LAU GARNESVEGUR 37
OPIÐ HÚS í DAG, SUNNUDAG,
MILLI KL. 14 OG 17
Um er að ræða fallega 2ja herbergja íbúð á 2. hæð í 2ja hæða
steinhúsi á góðum stað við Laugarnesveginn. Parket.
Vestursvalir. Gott útsýni. Ingólfur og Svala taka vel á móti þér.
Skeifan fasteignamiðlun,
Suðurlandsbraut 46, sími 5685556.
Sérliæð — Hörgshlíð
Vorum að fá í einkasölu mjög glæsilega 177,3 fm sérhæð í nýlegu 4ra
íbúða húsi. íbúðin skiptist m.a. í góða forstofu, stórt hol, 3 stór herbergi,
mjög stórar stofur með ami, tumherbergi, tvö baðherbergi og eldhús.
Sérharmaðar iimréttingar. Frábært skipulag. Frábært útsýni. Bílskýli,
Eign í algerum sérflokki. Verð kr. 17.000.000.
(f ÁSBYRGI <f
Suóurlandsbraut 54
vló Foxafan, 108 Rayfciavik,
sirol 568-2444, fox: 568-2446.
OPIÐ HUS
frá kl. 14 - 16 í dag. að
AKRALANDI 3, Rvík
Mjög góð 2ja herb. íb. á 2. hæð með sérinngang í litlu fjölb.
Stærð 76 fm. Þvottahús í íbdð.
Suðursvalir, falleg útsýni.
Hús í góðu ástandi, frábær staðsetning.
Verð 8,5 millj. 9248
Erum að leita að 130 - 160 fm sérbýli með sérinngang og bílskúr miðsvæðis í
Reykjavík. Fjársterkur kaupandi. Staðgreiðsla í boði.
LAUGARNESVEGUR. Rúmg. 2ja herb.íb. 1. hæð í litlu nýl. fjölb. Parket. Stærð
70 fm. Áhv. 2,8 m. hagstæð lán. Góð staðsetning. 9406
BARMAHLIÐ. Rúmg. 2ja herb. íb í kj. í 4-býli með sameiginl. inngangi með annarri
íb. Nýl. innr. í eldhúsi. Baðherb. tlísalagt. Stærð 65 fm. Áhv. 3,1 m. byggsj. Verð 5,7
millj. 9416
AKRALAND. Mjög rúmg. og vel innréttuð 2ja herb. íb. á 2. hæð með sérinngangi og
suðursv. Þvhús I íbúð. Stærð '76 fm. Verð 8,5 millj. Frábær staðsetning við
Fossvogsdalinn. 9248
SAFAMÝRI - LAUS. Rúmgóð 3ja herbergja íb. á 4. hæð í fjölb. með bílskúrsrétti.
Gott útsýni. Vestursv. Hús og sameign í góðu ástandi. LAUS STRAX. 9446
DOFRABORGIR - BÍLSK. Mjög góð 123 fm 4ra herb. Ib. á 3. hæð ásamt innb.
bílskúr. 3 svefnherb. Góðar innr. Parket og fiísar. Stórar svalir. Verð 10,7 millj. 9445
FÍFULIND - KÓP. Glæsileg og vönduð 4ra herb endaíb. á 3. hæð í litlu fjölb. 3
svefnherb. Góð stofa. Mahóní innr. Baðherb. flísal. Þvhús I íbúð. Stærð 104 fm. Áhv.
5,9 m. Verð 11,5 m. 9425
LAUGARNESVEGUR. Mikið endumýjuð 4ra herb. endaíb. á 4. hæð með fallegu
útsýni yfir flóann. 3 svefnherb. íbúðin er nýl. standsett og i mjög góðu ástandi. 9436
REYRENGI. Vorum að fá í sölu gott raðhús á einni hæð með innb. bílskúr. 3 svefn-
herb. Góðar innr. Parket. Áhv. 7,9 m. Verð 12,5 millj. Lóð fullfrágengin. Frábær
staðsetning. 9443
VESTURBERG Mjög gott 210 fm endaraðhús á tveimur hæðum ásamt innb. bíl-
skúr. 4 svefnherb. 2 stofur með arni. Baðherb. allt nýl. standsett. Húsið er nýl. klætt
með Imúr og í góðu standi. Verð 14,3 millj. 9426
NESBALI - SELTJ. Vandað einbýlishús á einni hæð ásamt tvöföldum bílsk. Húsið
er innst I botnlanga og skiptist i 3 svefnherb. Góðar stofur, arinn, vandaðar innr. og
gólfefni. Stærð 159 fm + 42 fm bíisk. Verð 21,5 millj. Góð staðsetning. 9427
SKÚLASKEIÐ HF.
Vorum aö fá í sölu járnklætt tim-
burhús sem er hæð og ris á
steyptum kjallara. Stærð 87 fm.
Byggt 1925. LAUST STRAX.
Gamalt vinalegt hús sem þarfn-
ast lagfæringa. 9441
OPIÐ í DAG, SUNNUDAG, FRÁ KL. 12-15.
á
Sími 533 4040 Fax 588 8366
^oreign ehí] P Ármúla 21 i DAN V.S. WIIUM, hdl. lögg. fasteignasali.