Morgunblaðið - 31.03.1999, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 31.03.1999, Blaðsíða 2
2 C MIÐVIKUDAGUR 31. MARZ1999 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MARZ 1999 C 3 KÖRFUKNATTLEIKUR Keflavík haffði sigur GESTIRNIR höfðu betur í ná- grannaslag Grindavíkur og Keflavíkur í Grindavík í gær- kvöldi, 88:79. Sigurður Ingimundarson, þjálfari Keflavíkur, var að vonum kampakátur að leik loknum og hafði þetta um leikinn að Garðar Páll «eaa:, .,>-Þe\ta var Vignisson horkuleikur, barnmg- skrífar ur og menn tókust á, enda tvö góð lið að keppa. Sóknarleikurinn var slakur hjá báðum liðum en hjá okkur sér- staklega í upphafi beggja hálfleikja. Þetta gekk í lokin, við breyttum hug- arfarinu, spiluðum svæðisvörn og gerðum þetta saman.“ Fyrri hálfleikur hófst með miklum látum heimamanna sem spiluðu án Ástralans sterka, Paul Denman, sem var með flensu og gat ekki leikið. Það kom því á óvart hve grimmir þeir voru og eftir þriggja mínútna leik var staðan orðin 12:0 og Kefla- vík tók leikhlé. Gestimir náðu þó fljótlega takti við leikinn og kropp- uðu forskot heimamanna hægt og bitandi niður. Staðan í hálfleik var 47:38. Heimamenn hófu seinni hálfleik eins og þann fyrri en nú beið Sigurð- ur Ingimundarson, þjálfari Keflvík- inga, ekki jafnlengi og í fyrri hálf- leik. Eftir 7 stig heimamanna í röð og algjört ráðaleysi gestanna tóku Keflvíkingar leikhlé eftir tæpar tvær mínútur. Munurinn enda orðinn 16 stig heimamönnum í vil. Eins og áð- ur gafst leikhléið vel og Keflvíkingar minnkuðu forskotið hægt og bítandi. Kaflaskipti urðu síðan þegar um 8 mínútur voru til leiksloka í stöðunni 69:65. Þá hrökk allt í baklás hjá heimamönnum, þeir náðu ekki að leysa svæðisvöm gestanna sem skor- uðu 15 stig í röð. Þeir héldu haus til leiksloka og sigruðu, 79:88. Bestir í liði heimamanna voru Warren Peeples og Páll Axel Vil- bergsson, sem kunni greinilega vel við sig í sínu gamla hlutverki. Hjá gestunum átti Gunnar Einarsson góðan leik og hélt sínum mönnum oft inni í leiknum með mikilvægum þriggja stiga körfum, Damon John- son átti að venju góðan leik en mað- urinn sem skóp þennan sigur var án efa Fannar Olafsson, sem spilaði mjög góða vöm í síðari hálfleik auk þess að skora 9 af sínum 11 stigum í seinni hálfleik og raunar á síðustu 8 mínútunum. KFI sýndi klærnar Eg er ánægður með þennan sigur og þann öfluga stuðning sem við fengum. Við sýndum að við getum haldið okkar hlut Magnús þegar á reynir og náð Gíslason g°ðn stjorn á leik skrífar okkar,“ sagði Baldur Ingi Jónsson, fyrirliði KFÍ, sem náði fram hefndum á ísa- firði í gærkvöldi, er það lagði Njarð- víkinga í öðram'leik liðanna i undan- úrslitum, 89:84. „Þessi leikur sýndi hvað koma skal - það er hörð barátta framundan og við munum ekkert gefa eftir í henni.“ Friðrik Rúnarsson, þjálfari Njarð- víkinga, var rólegur og yfírvegaður eftir leikinn. „Við vissum að róðurinn yrði erfiður hér. Mínir menn náðu ekki að leika eins og þeir geta best - það var ekki nægilegur kraftur í þeim.“ Heimamenn byrjuðu leikinn af miklum krafti, pressuðu gestina grimmt og settu fyrstu átta stig leik- ins. Þá bað Friðrik um leikhlé til að endurskipuleggja leik sinn og eftir það var jafnvægi með liðunum í fyrri hálfleik, 45:45. Heimamenn byrjuðu seinni hálfleikinn eins og þann fyrri, af miklum krafti. Ray Contes og James L. Cason vora mjög sterkir og það munaði mikið um tvær þriggja stiga körfur frá Baldri Inga. Ódyrt íþróttablað! Sportlíf kostar aðeins 249 krónur í áskrift! Áskriftarsími 568 2929 ísfirðingar náðu tíu stiga forskoti, sem þeir misstu niður undir lok leiksins - 83:73 í 86:84, en þá var mikill darraðardans, sem endaði með sigurdansi heimamanna, 89:84. Ray Contes lék mjög vel í vöm og sókn hjá KFÍ, þá voru James L. Ca- son og Baldur Ingi ágætir. Hjá Njarðvíkingum léku þeir Teitur Ör- lygsson og Brenton Bh-mingham best að vanda. ÚRSLIT Grindavík - Keflavík 79:88 fþróttahúsið í Grindavík, úrslitakepgni karla - annar leikur í undanúrslitum um ís- landsmeistaratitlinn, þriðjudaginn 30.mars 1999. Gangur leiksins: 12:0, 19:11, 29:22, 30:31, 37:33, 47:38, 54:38, 58:49, 65:59, 69:65, 69:80,79:88 Stig Grindavíkur: Warren Peepies 22, Páll Axel Vilbergsson 19, Herbert Arnarsson 16, Bergur Hinriksson 8, Pétur Guðmundsson 6, Guðlaugur Eyjólfsson 5, Unndór Sigurðs- son 3. Fráköst: Vörn: 22, Sókn: 11. Stíg Kcflavíkur: Damon Johnson 28, Gunn- ar 'Einarsson 18, Falur Harðarsson 15, Fannar Ólafsson 11, Hjörtur Harðarsson 5, Guðjón Skúlason 5, Birgir Ö. Birgisson 4, Sæmundur Oddsson 2. Fráköst: Vörn: 21 Sókn: 13. Villur: Grindavík 20, Keflavík 21. Dómarar: Sigmundúr Már Herbertsson og Kristján Möller. Áhorfendur: Um 800. KFÍ - Njarðvík 89:84 Isafjörður: Gangur leiksiens: 8:0, 8:7, 17:11, 21:21, 36:37, 43:39,45:45.55:47, 61:51, 70:61,80:69, 83:73,86:84,89:84. Stig KFÍ: James L. Cason 32, Ray Cason 19, Mark Quashi 12, Baldur Ingi Jónsson 11, Ólafur Ormsson 8, Ósvaidur Knudsen 3, Hrafn Kristjánsson 2, Tómas Harmannsson 2. Frílköst: 27 í vöm, 10 í sókn. Stig Njarðvíkur: Brandon Birmingham 36, Teitur Örlygsson 24, Friðrik Ragnarsson 12, Friðrik Stefánsson 9, Hermann Hauks- son 3. Fráköst. 20 í vörn, 10 í sókn. Villur: KFÍ 18, Njarðvík 22. Ðómarar: Jón bender og Einar Pór Skarp- héðinsson. Áhorfendur: 750. í kvöld KÖRFUKNATTLEIKUR Úrslit kvenna, annar leikur: Keflavík: Keflavík - KR 20 HANDKN ATTLEIKUR 2. deild karla: Fylkishús: Fylkir - Völsungur 20 • Aðgangur ókeypis. ÍÞRÓTTIR ÍÞRÓTTIR Stella endurtók leikinn eftir ellefu ár Morgunblaðið/Golli HAUKUR Eiríksson fagnar sigri á ísafirði í gær - varð íslandsmeistari í 30 km göngu karla með nokkrum yfirburðum. Stjörnumenn réðu ekki við sterka vöm FH-inga FH-ingar tryggðu sér rétt til þess að leika í undanúrslitum íslandsmótsins í handknatt- leik, er liðið sigraði Stjörnuna 23:18 í oddaleik í Ásgarði í Garðabæ í gærkvöld. Stjarnan er hins vegar enn einu sinni úr leik í átta liða úrslitum. Strax á fyrstu mínútum leiksins kom í ljós hve leikur liðanna var mikilvægur. Lítið var skorað og mistök voru á báða Gislj bóga. En framúr- Þorsteinsson skarandi markvarsla skrífar Birkis I. Guðmunds- sonar í marki Stjörn- unnar í hálfleiknum skipti sköpum um tíma og færði liðinu þriggja marka forystu. FH-ingar voru hins vegar ekki á þeim buxunum að hleypa Stjörnumönnum lengra, tóku sér tak og lokuðu vöminni. A meðan Hafnarfjarðarliðið skoraði hvert markið af öðru gerðu heima- menn aðeins eitt mark í átta sókn- um. FH-ingar héldu uppteknum hætti í síðari hálfleik í vöminni ásamt því að Magnús Árnason fór að verja af miklum móð. Eftir 10 mínútna leik í síðari hálfleik höfðu Hafnfirðingar náð 5 marka forystu og þann mun létu þeir ekld auðveldlega af hendi. Stjörnumenn reyndu hvað þeir gátu til að minnka muninn en allt kom fyrh' ekki og FH-ingar fognuðu ákaft í leikslok. Heimamenn sátu eftir með sárt ennið og urðu að sætta sig við þá staðreynd að liðinu hefur enn ekki tekist að komast í undanúrslit íslandsmótsins frá því að úrslitakeppninn hófst árið 1992. Guðjón Árnason, fyrirliði FH- inga, sagði að Stjarnan hefði ein- faldlega mætt ofjörlum sínum í þessum leik. „í dag lékum við fyrir félagið okkar, enda allir uppaldir FH-ingar. Vörnin var hreint frábær og ég vil meina að áhorfendur í Ás- garði hafi orðið vitni að varnarleik eins og hann gerist bestur.“ Guðjón sagði að erfitt hefði verið að mæta Stjörnunni í öðrum leikn- um eftir ófarir FH-inga í fyrsta leiknum á fóstudag. „En þegar við unnum í Kaplakrika á sunnudag var okkur ljóst að við gátum slegið Stjörnuna út og því héldum við upp- teknum hætti í kvöld.“ Guðjón sagði að sér litist vel á að mæta Fram í undanúrslitum. „Við SÓKNARNÝTING Þriðji leikur liðanna í 8 liða úrsiitum, leikinn í Garðabæ 30. mars 1999 Stjarnan FH Mörk Sóknir % Mörk Sóknir % 8 22 36 F.h 9 22 41 10 25 40 S.h 14 24 58 18 47 38 Alls 23 46 50 5 Langskot 8 0 Gegnumbrot 1 0 Hraðaupphlaup 4 2 Horn 1 5 Lína 4 6 Viti 5 spiluðum við þá í undanúrslitum í fyrra og það voru skemmtilegir leikir. Það vora ekki margir sem höfðu trú á okkur fyrir úrslita- keppnina, en ég tel að við getum farið alla leið,“ sagði Guðjón. Einar Einarsson, þjálfari Stjörn- unnar, sagði að slakur sóknarleikur liðsins hefði átt stóran þátt í því að það laut í lægra haldi. „Við spiluð- um ágæta vörn og náðum þriggja marka forystu um miðjan hálfleik- inn. En þá var eins og menn yrðu smeykir í sókninni og FH-ingar gengu á lagið og náðu forystu fyrir leikhlé. í síðari hálfieik vora menn of staðir í sókninni, en því má ekki gleyma að FH-ingar léku góða vörn í leiknum sem gerði okkur erfitt fyrir.“ Aðspurður um hvort sú stað- reynd hefið haft áhrif á leikmenn Stjörnunnar að félagið hefði aldrei komist í undanúrslit sagði Einar að sjálfsagt hefði það haft eitthvað að segja. „Ég hef hins vegar lagt á það áherslu að það er nútíðin sem skipt- ir máli og menn þurfi að horfa fram á við. í þessari keppni þurfa menn að hafa sterkar taugar og þær brugðust hjá mínum mönnum í kvöld,“ sagði Einar. Kristinn endur- heimti titilinn KRISTINN Björnsson frá Ólafsfirði endurheimti ís- landsmeistaratitilinn í stór- svigi karla frá því 1997 á Skíðamóti íslands á ísafirði í blíðskaparveðri í gær. Hann var með besta tímann í báð- um umferðum og var með rúmlega sekúndu betri tíma samanlagt en Björgvin Björg- vinsson frá Dalvík, sem varð annar. Kristinn fór fyrri umferðina á 56,49 sek., sem var næstbesti tími allra keppenda ef erlendu keppendumir eru Vaiur B taldir með, en mótið Jónatansson var jafnframt al- skrifar þjóðlegt stigamót (FlS-mót). Norð- maðurinn Aane Sæter var með besta tímann, 56,49 sek., og landi hans, Knut Arne Furuseth, með þriðja tímann, 57,13 sek. Þá kom Sveinn Brynjólfsson, Dalvík, og Kristinn Magnússon, Akureyri, fimmti. Islandsmeistarinn í stór- svigi frá í fyrra, Haukur Arnórs- son, féll úr keppni í fyrri umferð eins og þeii' Arnór Gunnarsson og Jóhann Haukur Hafstein. Þeir voru allir líklegir til afreka fyrir mótið. Töluverð eftirvænting var í síð- ai'i umferðinni. Norðmaðurinn Sæter náði aftur besta tímanum, 53,82 sek., en Kristinn næstbesta, 54,39 sek., og tryggði sér Islands- meistaratitilinn en Sæter vann FlS-mótið. Björgvin Björgvinsson frá Dalvík, sem var sjötti eftir fyrri umferð, náði þriðja besta tímanum í síðari umferð og hafnaði í þriðja brekkan var brött og skíðafærið í brautinni frekar lint og erfitt að ná köntun í beygjunum," sagði Brynja Þorsteinsdóttir frá Akureyri, sem varð Islandsmeistari í stórsvigi kvenna. Þetta var í fyrsta sinn sem hún hlýtur titilinn, en hún varð Is- landsmeistari í risasvigi í fyrra. Frænka hennar, Dagný L. Krist- jánsdóttir, varð önnur og Lilja Rut Kristjánsóttirúr KR þriðja. „Ég hef verið að keyi-a betur en í þessu stórsvigi. Ég tapaði aðeins í rásmarkinu í síðari umferðinni er ég missti handtakið á öðrum stafn- um. Ég náði því ekki að ýta mér af neinum krafti út úr startinu. En ég vissi að ég mátti ekkert gefa eftir því hinar stelpurnar voru ekki svo langt á eftir,“ sagði Biynja. Hún sagði að sigurinn í gær myndi auka sjálfstraustið í sviginu sem fram fer í dag. „Ég mun reyna mitt allra besta í sviginu og er bjartsýn á gott gengi,“ sagði hún. Helsti keppinautur hennar og fé- lagi í landsliðinu, Theódóra Mathiesen úr KR, féll í brautinni í fyrri umferð stórsvigsins eins og helmingur keppenda. Nokkrir erlendir keppendur tóku þátt í stórsviginu og náði sænsk-íslenska stúlkan Emma Furuvik besta tíma allra keppenda, var 0,20 sek. á undan Brynju. Móð- ir hennar, Jóhanna Jóhannsdóttir, er íslensk og sagði að vel gæti farið að Emma, sem er 17 ára, myndi keppa fyrir fsland í framtíðinni. „Ég er að hugsa um hvort ég eigi að velja ísland eða Svíþjóð. Ég á líklega meiri möguleika á að kom- ast í íslenska landsliðið," sagði Emma. STELLA Hjaltadóttir frá ísafirði varð ís- landsmeistari í göngu kvenna fyrir ellefu árum, en mætti nú aftur til leiks og virt- ist engu hafa gleymt og endurtók leik- inn. Hún kom fyrst í mark í 10 km göngu kvenna með hefðbundinni aðferð, var langfyrst, tæpum fimm mínútum á und- an Söndru Dís Steinþórsdóttur, sem varð önnur, en báðar eru þær frá ísa- firði. Hanna Dögg Maronsdóttir frá Ólafsfirði varð þriðja. Eg get fullyrt að ég er í betri æfingu núna en þegar ég varð íslandsmeistari á Akureyri 1988. Ég eignaðist barn fyrir níu mánuðum og ákvað að koma mér í góða æf- ValurB ingu með því að ganga. Skíða- Jónatansson gangan er besta íþróttin til að skrifar koma sér aftur af stað eftir barnsburð," sagði Stella, sem er 31 árs. „Ég er búin að æfa mjög vel í vetur jafnframt því sem ég er að þjálfa hér unga ís- firska göngukrakka. Ég hefði ekki getað æft vel nema með aðstoð systur minnar, Diddu, sem sá um að passa barnið meðan ég æfði. Hún á því sinn þátt í þessum sigri.“ Miklir yfirburðir Hauks Akureyringurinn Haukur Eiríksson varð ís- landsmeistari í 30 km göngu karla með nokkr- um yfirburðum. Hann var tæpum fjórum mín- útum á undan Þóroddi Ingvarssyni sem varð annar og rúmum fimm mínútum á undan Ólafi Björnssyni frá Ólafsfirði sem varð þriðji. Þetta var í þriðja sinn sem Haukur vinnur 30 km gönguna á Skíðamóti Islands, áður sigraði hann 1989 og 1990. „Þetta var nokkuð erfið ganga vegna þess að það var mikil vinna í brautinni. Það var ekki mikið um rennsli og því ekki hægt að hvíla sig á milli. Það var smá bar- átta við Ólaf í byrjun en eftir þriðja hring fann Morgunblaðið/Golli STELLA Hjaltadóttir frá ísafirði varð íslandsmeistari og segist vera í betri æfingu nú en fyrir ellefu árum, en þá vann hún einnig í 10 km göngu kvenna. Morgunblaðið/Golli KRISTINN Bjömsson kemur í mark sem sigurvegari i stór- svlgi. sæti og þar með var silfrið á ís- landsmótinu hans. „Ég var óánægður með báðar ferðirnar og gerði mistök í þeim báðum. Ég ætl- aði að gera mun betur,“ sagði Dal- víkingurinn ungi, Björgvin. Jóhann Friðrik Haraldsson úr KR kom næstur og tryggði sér bronsverð- launin á landsmótinu með góðri síðari umferð. Veðrið á skíðasvæðinu í Tungu- dal var eins og best verður á kosið, sól, nánast logn og 7 stiga frost. Keppendur voru ánægðir með að- stæður enda framkvæmd mótsins til mikillar fyrirmyndar hjá heima- mönnum. „Þetta var frekar erfitt því Stjaman - FH 18:23 íþróttahúsið Ásgarður, oddaleikur í 8-liða úrslitakeppni í handknattleik karla, þriðju- daginn 30. mars 1999. Gangur leiksins: 0:2, 2:2, 5:4, 7:4, 8:8, 8:9, 9:13,10:15,14:16,15:19,16:21,17:22, 18:23. Mörk Stjörnunnar: Konráð Olavson 6/3, Hilmar Þórlindsson 4/3, Jón Þórðarson 3, Aliaksand Shamkuts 2, Rögnvaldur Johnsen 1, Heiðmar Felixson 1, Arnar Pétursson 1. Utan vallar: 2 mínútur. Arnar Pétursson fékk rautt spjald. Mörk FH: Knútur Sigurðsson 6/1, Hálfdán Þórðarson 4, Lárus Long 3, Guðjón Arnason 3, Guðmundur Pedersen 3/1, Valur Amar- son 2/2, Gunnar Beinteinsson 2. Utan vallar: 8 mínútur. Dómarar: Guðjón Sigurðsson og Olafur Haraldsson. Áhorfendur: Um 700. ég mig vel á meðan Óli var að gefa eftir. Ég náði mér vel á strik á endasprettinum. Ég hef æft mjög vel í vetur, sérstaklega eftir jólin því ég var að undirbúa mig fyrir Vasa-gönguna,“ sagði Haukur, sem er 35 ára. Hann sagði ávallt gaman að keppa á Skíðamóti Islands og það væri nokkuð undarleg tilfinning að vera að endurheimta Islandsmeist- aratitilinn í 30 km göngu eftir tíu ár. „Árangur minn segir að aldur er afstæður í göngunni. Ég hef haft mjög gaman af þessu í vetur og á meðan ég hef það held ég áfram og hver veit nema ég mæti aftur til leiks næsta vetur til að verja titil- inn,“ sagði Islandsmeistarinn. í fótspor bróður síns Baldur Helgi Ingvarsson frá Akureyri fetaði í fótspor bróður síns, Þórodds, er hann varð Is- landsmeistari í 15 km göngu pilta 17-19 ára. Baldur kom í mark 26 sekúndum á undan helsta keppi- naut sínum í vetur, Ólafi T. Árna- syni frá ísafirði. Helgi Heiðar Jó- hannesson, Akureyri, varð þriðji. „Ég átti ekkert frekar von á sigri því við Ólafur höfum verið að skiptast á að vinna mótin í vetur með litlum mun. Ég er auðvitað ánægður með að hafa hitt á það á þessu móti,“ sagði Baldur Helgi. „Það var mjög gott að ganga, enda veður og allar aðstæður eins og best verður á kosið. Ég er búinn að æfa mjög vel í vetur eins og fimm aðrir í þessum flokki og keppni milli okkar hefur verið mjög hörð og spennandi," sagði Baldur Helgi, sem er 18 ára og á því eitt ár eftir í þessum flokki. Þóroddur bróðir hans vann þessa göngu í fyrra en er nú kominn í karlaflokk og varð þar í öðru sæti. Þannig vörðu þeir (Innan sviga, knötturinn aftur til mótherja) Ingvar Ragnarsson, Stjörnunni 5/2 3 (2) langskot, 1 af línu, 1 víti. Birkir ívar Guðmundsson, Stjörnunni 14/8 6 (4) langskot, 4 (3) af línu, 2(1) eftir gegnumbrot, 1 úr horni, 1 víti. Magnús Árnason, FH 16/7 5 (3)eftir gegnumbrot, 3 langskot, 2 (2) af línu, 2 eftir hraðaupphlaup, 2 (2) úr horni, 2 víti. HANDKNATTLEIKUR SKIÐAMOT ISLANDS A ISAFIRÐI in útsending í dag kl. 15:45 áskriftarsíminn er 515 6100

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.