Morgunblaðið - 07.04.1999, Qupperneq 1
KÖRFUKNATTLEIKUR
KÖRFUKNATTLEIKUR: KEFLAVÍK OG NJARÐVÍK LEIKA TIL ÚRSLITA/C3
GUÐBJÖRG Norðfjörð, fyrirliði KR, og Hanna Kjartansdóttir fagna meistaratitlinum.
Limor
stóð
við lof-
orðið
ÞEGAR Limor Mizrachi hóf
að leika með liði KR í
körfuknattleik kvenna óskaði
hún eftir að fá að leika í treyju
númer sjö eða 14. Guðbjörg
Norðfjörð, fyrirliði liðsins,
sem hafði alla tíð leikið í
treyju númer 14, lánaði Limor
númerið sitt en tók um leið af
henni loforð um að KR yrði
Islandsmeistari.
„Eg hef nokkmm sinnum
lent í þeiiTÍ aðstöðu að tapa
úrslitaleikjum, eins og stelp-
urnar í KR, og því var mér í
mun að hjálpa liðinu að verða
Islandsmeistari. Það tókst,
enda lögðust allir leikmenn á
eitt að ná þessum árangri,"
sagði Limor.
Limor fer á næstu dögum
til Israels, en heldur síðan
með ísraelska landsliðinu til
Hollands þar sem liðið tekur
þátt í B-keppni Evrópumóts-
ins. Aðspurð segist hún ekki
vilja segja til um hvort hún
verði hér á landi næsta vetur.
„Ég á eftir að ræða við um-
boðsmanninn minn um hvað
ég komi til með að gera næsta
vetur,“ segir Limor.
KR tapaði ekki leik
KR-INGAR tryggðu sér íslandsmeistaratitilinn í körfuknattleik
kvenna um helgina er liðið vann Keflavík í þriðja úrslitaleik lið-
anna 90:81 í Hagaskóla. KR-ingar, sem urðu síðast íslands-
meistarar árið 1987, unnu alla leiki liðsins í deild, bikarkeppn-
inni og úrslitakeppni í vetur.
Guðbjörg Norðfjörð, fyrirliði
KR-inga, sagði að liðið hefði
loksins náð saman í vetur undir
styrkri handleiðslu Oskars Krist-
jánssonar, þjálfara þess. „Við höf-
um haft góðan mannskap síðustu
árin en ekki náð almennilega sam-
an fyrr en nú. Við lékum góða vörn
í flestum leikjunum og það má
segja að góð vörn hafi skilað okkur
öllum þessum sigrum. Þá hafði
ísraelski leikmaðurinn Limor
Mizrachi góð áhrif á liðsheildina og
stóð sig einstaklega vel í úrslita-
keppninni.
I þriðja leiknum hafði hún mikla
yfii'burði yfír aðra leikmenn og
skoraði 40 stig. Það er frábært að fá
tækifæri til þéss að spila með jafn
góðum leikmanni og Limor er.“
Guðbjörg sagði að úrslitaleikirnir
þrír gegn Keflavík hefðu verið
skemmtilegir og oft á tíðum spenn-
andi. „Við náðum okkur oft vel á
strik gegn Keflavík, ekki síst í
fyrsta leiknum. Þá spiluðum við
gríðarlega vel. I þriðja leiknum spil-
uðum við ekki nægilega vel í vörn,
enda hafði liðið aldrei fengið á sig
yfir 70 stig í leik fyrr í vetur. Þá
lentum við átta stigum undir í
seinni hálfleik og það hafði heldur
ekki gerst fyrr í vetur. En við höfð-
um alltaf trú á að við gætum unnið
leikinn og það kom á daginn," sagði
Guðbjörg sem hefur sex sinnum
leikið til úrslita um íslandsmeist-
aratitilinn með KR á síðustu sjö ár-
um.
Guðbjörg sagði að körfubolti
kvenna væri í stöðugri framför hér
á landi og benti á að márgar efnileg-
ar stúlkur væru að leika með liðum í
deildinni. „Liðunum hefur að vísu
fækkað úr 10 í 6 á undanfórnum ár-
um en mörg lið leggja mikla rækt
við þjálfun yngri flokka og það skil-
ar sér vonandi á næstu árum. Það
er hins vegar dýrt að reka deildirn-
ar og það hefur komið í veg fyrir að
liðunum hafí fjölgað," sagði Guð-
björg Norðfjörð.
Einar Karl
, bætir
íslands-
metið á
Spáni
HÁSTÖKKVARINN ungi úr
ÍR, Einar Karl Hjartarson,
bætti eigið íslandsmet í há-
stökki utanhúss um 4 sm á
móti á Alicante á Spáni á
sunnudaginn. Einar stökk
2,22 metra, en fyrra metið,
2,18 metra, setti hann á
Meistaramóti Islands sl.
sumar. Að sögn Jóns Sæv-
ars Þórðarsonar, þjálfara
Einars, þá stökk piltur yfir
2,22 metra í annarri tilraun
eftir að hafa áður farið yfir
1,99, 2,05, 2,11 og 2,18
metra í fyrstu tilraun. Einar
bar sigur úr býtum í há-
stökki á mótinu.
„Þetta er mjög jákvætt og
er fullkomlega í framhaldi
af því sem Einar var að
gera innanhúss," sagði Jón
Sævar. „Einar gerði þrjár
tilraunir við 2,25 metra og
ein tilraunin var ágæt og
gefur vissulega fyrirheit,“
sagði Jón ennfremur. Is-
landsmet Einars Karls inn-
anhúss er 2,20 metrar.
Einar dvelur nú við æf-
ingar á Alicante ásamt hópi
ísleriskra frjálsiþrótta-
manna og verður þar fram í
miðjan þennan mánuð en
ekki er á dagskrá að hann
keppi í hástökki á fleiri mót-
um.
Með þessum árangri er
Einar Karl kominn í
Sydneyhóp Frjálsíþrótta-
sambandsins, en í honum
eru frjálsíþróttamenn sem
hafa náð ákveðnum árangri
í sinum greinum og eiga
raunverulega möguleika á
því að ná lágmarki til þátt-
töku á Ólympíuleikunum í
Sydney eftir eitt og hálft
ár. Fyrir í hópnum eru Guð-
rún Arnardóttir, Vala
Flosadóttir, Þórey Edda
Elísdóttir, Martha Ernsts-
dóttir, Jón Arnar Magnús-
son, Magnús Aron Hall-
grímsson og Jóhannes Már
Marteinsson. Þá er Einar
Karl aðeins 3 sm frá lág-
marki til þátttöku á heims-
meistaramóti fullorðinna í
Sevilla í ágústlok.