Morgunblaðið - 07.04.1999, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 07.04.1999, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL 1999 B 3 ÍÞRÓTTIR KÖRFUKNATTLEIKUR / UNDANÚRSLIT KARLA Reykjanesbæjarliðin Keflavík og Njarðvík mætast í úrslitarimmu Damon Johnson í banastuði í Grindavík ÞAÐ voru Keflvíkingar sem höfðu betur í Grindavík 90 stig gegn 82 stigum heimamanna. Sigurður Ingimundarson, þjálfari Kefla- víkur, var að vonum kampakátur að leik loknum og hafði þetta um leikinn að segja: „Þetta var hörkuleikur eins og allir hinir leikirnir. Þá vantaði Ástralann og þá munaði um hann. Það er mjög gott að klára þetta hérna það eru ekki mörg lið sem sigra hér í Grindavík. Við héldum uppi hraðanum í fyrri hálfleik en þeir náðu að halda honum niðri í seinni. Nú er það draumaserían að margra mati Keflavík á móti Njarðvík.“ Spennan var mikil í þriðja leik liðanna í Keflavík á föstudaginn langa, þar sem Keflvíkingar náðu að knýja fram sigur í GarðarPáll þríframlengdum Vignisson leik, 122:119. Damon skrifar Johnson jafnaði fyr- ir heimamenn í venjulegum leiktíma, 86:86. Pétur Guðmundsson jafnaði fyrir Grindavík í fyrstu framlengingu, 98:98. Guðjón Skúlason jafnaði fyrir heimamenn með þriggja stiga skoti í annari framlengingu. Fyrri hálfleikur í gærkvöldi var jafn framan af en þó höfðu Keflvík- ingar yfirhöndina. Um miðjan hálf- leik var staðan 21:21 en upp frá því fóru gestimir að síga frammúr og náðu 10 stiga forskoti, 25:35, og þá tóku Grindvíkingar sitt annað leik- hlé. Herbert Amarsson setti síðan í framhaldi af leikhléi Grindvfldnga tvær þriggja stiga körfur og leikur- inn aftur orðinn jafn. í stöðunni 40:40 hrukku Keflvíkingar í fluggír- inn og settu 16 stig í röð og voru því heimamenn undir 43:56 í leikhléi. Heimamönnum gekk illa að ráða við Damon Johnson í fyrri hálfleik og raunar í öllum leiknum. Pað er reyndar Ijóst að ef Damon Johnson verður í þessum ham það sem eftir er af úrslitakeppninni eiga Njarð- víkingar ekki von á góðu. I fyrri hálfleik skoruðu Keflvíkingar 9 þriggjastigakörfur en heimamenn 7 en í þeim síðari bættust 4 við hjá Grindavík en 1 hjá Keflavík. Grindvíkingar höfðu því 13 stig að vinna upp og virtust líklegir til þess í byrjun seinni hálfleiks. Skot Keflvfldnga rötuðu ekki öll niður og heimamenn fóra að taka fráköst sem svo sárlega hafði vantað í fyrri hálfleik. Þá voru Keflvíkingar mun varkárri í öllum sínum aðgerðum og leituðu mikið eftir Damon Johnson. Þegar sex og hálf mínúta er liðin af seinni hálfleik meiðist Warren Peeples og útlitið dökknaði til muna hjá heimamönnum í stöðunni 56:62. Við þetta þjöppuðu heimamenn sér saman og virtust í fyrsta skipti í þessum leik vera að ná yfirhöndinni. Heimamenn ná að minnka muninn í 75:76 en þá sögðu gestimir hingað og ekki lengra og tóku framkvæðið aftur. Warren Peeples kom um þetta leyti inn aftur og virkaði sú skipt- ing hæpin því hann gat lítið beitt sér og reyndi ekkert. Gestirnir höfðu því sigur í baráttuleik en heimamenn fara svekktir í sumar- frí. Bestur í liði heimamanna var Herbert Arnarsson sem skoraði 32 stig og átti frábæran leik. Aðrir voru ekki að spila jafnvel og þeir eiga að geta. Hjá gestunum var Damon Johnson allt í öllu og skor- aði 39 stig og skoraði að vild í þess- um leik. Þá átti Falur Harðarson góðan fyrri hálfleik eins og reyndar allt Keflavíkurliðið. Morgunblaðið/Einar Falur LEIKMENN Keflvíkinga fögnuðu sigri í Grindavík í gærkvöldi, eins og þeir gerðu í miklum spennuleik í Keflavík á föstudaginn. Breytingar hjá KR-ingum EIRÍKUR Önundarson leikur ekki með KR-liðiuu í úrvalsdeildinni í körfuknattleik næsta vetur, því liann hyggst halda til náins í Dan- mörku. Eiríkur kom til KR á síðasta timabili, en lék áður ineð ÍR. Ljóst er að Keith Vassel verður ekki áfram þjálfari KR næsta vetur og eru forráðamenn liðsins að leita að nýjuin þjálfara. Að sögn Gísla Georgssonar, formanns körfuknattleiksdeildar KR, hefur Vassel áhuga á að leika með liðinu næsta vetur. Það kemur hins vegar ekki ljós fyrr en í sumar hvort af því verður því Vassel bíður eftir tilboðum frá liðum í Evrópu. Þá hefur Jesper Sörensen, danski landsliðsbakvörðurinn, sem lék síðustu leikina með KR í vetur, áhuga á að vera áfram hjá lið- inu næsta vetur. Gísli sagði að engin ákvörðun hefði verið tekin af hálfu forráðamanna liðsins hvort danski leikmaðurinn verði áfram. Morgunblaðið/Einar Falur DAMON Johnson átti stórleik með Keflvíkingum í Grindavík, skoraði 39 stig. Hann skoraði 51 stig í Keflavík á föstudaginn. Slerk liðsheild Njarðvíkinga Njarðvíkingar tryggðu sér sæti í úrslitum íslandsmótsins í körfuknattleik með góðum sigri á liði KFÍ á ísafirði í Magnús gærkveldi, þar sem Gíslason lokatölur urðu 69:80. skrifar Var þetta fjórði leik- ur liðanna í undanúr- slitunum og vann því Njarðvík ein- vígið 3:1. Njarðvíkingar lögðu fsfirðinga í Njarðvík á laugardaginn í þriðja leiknum, 90:77. Teitur Örlygsson fór á kostum í leiknum, skoraði 32 stig og setti niður sjö þriggja stiga skot. Það voru heimamenn sem áttu fyrstu mínúturnar í leiknum í gær- kvöldi í „Klakanum“ - skoraðu sex fyrstu stigin. Það tók gestina rúmar þrjár mínútur að finna réttu leiðina í körfuna. Eftir um sex mínútna leik höfðu heimamenn enn forystuna 14:10. Þá skiptu Njarðvíkingar yfir í árang- ursríka svæðisvörn og sneru leikn- um sér í vil og náðu öruggu forskoti er þeir breyttu stöðunni úr 14:10 í 18:28. Leikmenn KFI voru ólánsam- ir í sóknaraðgerðum sínum á þessum kafla og luku fjölmörgum sóknum án þess að ná skoti á körfuna. Ray Carter átti erfitt uppdráttar í hálf- leiknum og tapaði boltanum alls sex sinnum. Hjá Njai-ðvíkingum var það Brenton Birmingham sem fór fyrir sínum mönnum og setti 20 stig í hálfleiknum og Örvar Kristjánsson kom sterkur inn og skoraði átta mik- ilvæg stig. Njarðvíkingar leiddu svo í leikhléi 35:48. í seinni hálfleik léku Njarðvíking- ar eins og þeir sem valdið hafa og hleyptu heimamönnum aldrei inn í leikinn og voru öryggið uppmálað í öllum sínum aðgerðum og sýndu að þeir eiga á að skipa betra og heil- steyptara liði og áttu sigurinn svo sannarlega skilið. Lið KFÍ náði sér engan veginn á strik í þessum leik einmitt þegar mest reið á og er þar með úr leik eft- ir ágæta framgöngu í vetur og geta þrátt fyrir þetta tap unað sáttir við sitt. Njarðvíkingar léku hinsvegar mjög vel í þessum leik og góð og samstillt liðsheild skóp öruggan sig- ur. Sviss vill endurtaka leikinn í Aarau ÁKVEÐIÐ hefur verið að fyrri leikur Sviss og fslands í forkeppni að uudankeppni Evrópukeppninnai’ í hand- knattleik fari fram í Aarau 26. niaí nk. Síðari leikurinn verður í Reykjavík fjórum dögum síðar. Leikirnir ei-u báðum þjóðum mikilvægir og nokkuð Ijóst að sigurvegarinn í leikjunuin tveimur heldur áfram í undankeppnina en hin þjóðin situr eftir með sárt ennið. Svisslendingar hafa góða reynslu af því af því að mæta Islendingum í Aarau og er skemmst að minnast þess að þeir unnu viðureign þjóðanna þar sl. haust, 25:23. Hættir Einar með Fylki? ALLS er óvíst hvort Einar Þorvarðarson verður þjálfari Fylkis í 1. deild karla í hand- knattleik á næstu leiktíð, en Fylkismenn tryggðu sér sem kunnugt er 2. sætið í 2. deild á dögunum. Samningur Einars við Fylki rennur út í vor og ekki hefur verið tekin afstaða til fram- haldsins að sögn Einars. Ekki er aðeins að Einar þurfi að ræða við forráðamenn Fylkis vegna málsins, því hann starí'ar einnig sem mótstjóri Handknattleikssambandsins og því vafamál hvort fari sam- an það starf og þjálfun liðs í efstu deild. „Ég hef hvorki rætt þessi mál við Fylki né stjórn HSI,“ sagði Einar við Morgunblaðið í gærkvöldi. „Ég geri mér ekki fyllilega grein fyrir hvort hægt sé að samræma þessi störf eða ekki og ætla því ekki að tjá mig um það. Mér bauðst að þjálfa lið í 1. deildinni í fyrra, en þáði ekki þá og veit ekki hvað verður úr nú,“ bætti Ein- ár við. Mótstjóri HSÍ sér um öll mótamál á vegum Handknatt- leikssambandsins og kemur því m.a. að niðurröðun leikja á Islandsmótinu. Þorbergur hættur með ÍBV ÞORBERGUR Aðalsteinsson mun ekki þjólfa ÍBV í 1. deild karla í handknattleik á næstu leiktíð. Hann hefur ekki ákveð- ið hvað tekur við, en segir þó ljóst að hann verði búsettur á höfuðborgarsvæðinu. Þorbergur hefur að undan- förnu verið sterklega orðaður við Framara, en hann sagðist í samtali við Morgunblaðið ekki hafa átt í formlegum viðræð- um við neitt lið. „Fyrst vil ég ganga frá öðrum atvinnumál- um mínum og geri það í þess- ari eða næstu viku,“ sagði Þor- bergur, en hann hefur starfað sem markaðsstjóri Vinnslu- stöðvarinnar hf. í Vestmanna- eyjum undanfarin ár og lætur nú einnig af því starfi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.