Morgunblaðið - 09.04.1999, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 09.04.1999, Blaðsíða 18
18 FÖSTUDAGUR 9. APRÍL 1999 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI Sala bréfa í Baugi hefst 19. apn1 Morgunblaðið/Kristinn ÓSKAR Magnússon, stjórnarformaður Baugs hf., flytur skýrslu stjórn- ar á fyrsta aðalfundi félagsins sem haldinn var í Viðskiptaháskólanum. Railfllir hf Úr ársuppgjöri 1998 1/7-31/12 1998 1/1-31/12 1998 Rekstrarreikningur Muijónir króna Vörusala 10.178,7 18.663,0 Rekstrartekjur Rekstrargjöld 2.372,0 (1.899,0) 4.120,2 (3.409,3) Hagnaður án afskr. og fjárm.kostn. Afskriftir 471,9 (104,8) 711,0 (192,4) Rekstrarhagnaður fyrlr fjárm.liði Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld) 367,1 (40,8) 518,6 (62,0) Hagnaður fyrir tekjuskatt Tekjuskattur Áhrif dótturfélaga Áhrif hlutdeildarfélaga 326,3 (77,8) 53,9 (2,6) 456,6 (108,6) 53,5 Hagnaður tímabiisins 299,8 401,5 Efnahagsreikningur Miiuónir króna 31/12 '98 1/7 '98 Fastafjármunir Veltufjármunir 2.614,1 3.781,4 1.365.7 2.868.8 Eignir samtals 6.395,6 4.234,5 Eigið fé 1.426,5 1.174,0 Tekjuskattsskuldbinding 152,6 93,9 Langtímaskuldir 676,3 770,1 Skammtímaskuldir 4.140,3 2.196,5 Skuldir og eigið fé samtals 6.395,6 4.234,5 Sjóðstreymi 1/7-31/12 1998 Veltufé frá rekstri Milljónir króna 252,0 SALA á hlutabréfum Fjárfesting- arbanka atvinnulífsins hf. og Kaup- þings hf. í Baugi hf. hefst á al- mennum markaði 19. apríl næst- komandi, en gert er ráð fyrir að bréfin verði seld á gengi í kringum 10. Um er að ræða 16% hlut í Baugi hf. og áætlað er að hluta- bréfin seljist fyrir um 1,5 milljarða króna. Þegar sala bréfanna hefst verður Baugur hf. skráður á Verð- bréfaþingi. Hagnaður Baugs hf. og þeirra félaga sem sameinuðust í Baug hf. á síðasta ári var 401,5 milljónir króna og rekstrartekjur námu 1,7 milljörðum króna. Baugur hf. var stofnaður 1. júlí 1998 og yfirtók félagið þá rekstur matvöruverslana Hagkaups, Ný- kaups, Bónus og Hraðkaups, auk innkaupa- og dreifingarfélagsins Aðfanga. í október 1998 sameinuð- ust Hagkaup hf., Boðið heim ehf. og Eignarhaldsfélagið Gaumur ehf. félaginu og í nóvember voru dótturfélög Baugs hf., Aðföng ehf., Bónusbirgðir ehf. og ísþor ehf. sameinuð félaginu, auk þess sem rekstur Bónuss sf. var yfirtekinn. I desember var svo gerður samn- ingur um kaup Baugs hf. á 50% hlutafjár í verslunarfyrirtækinu P/f SMS í Færeyjum og um sölu á öllum hlutabréfum Baugs hf. í P/f Föris til P/f SMS. Hagnaður Baugs hf. frá stofndegi félagsins 1. júlí til árs- loka 1998 var 299,8 milljónir króna og námu rekstrartekjur tímabilsins 10.179 milljónum króna, en rekstr- artekjur þeirra félaga sem samein- uðust námu samtals 18.663 milljón- um króna fyrir allt árið 1998. Eigið fé félagsins í árslok nam 1.426,5 milljónum að meðtöldu hlutafé að fjárhæð 1.000 milljónir króna. Hlutaféð skiptist í árslok á 46 hluthafa og þá áttu þrír hluthafar yfir 10% eignarhluta í félaginu, en þeir eru Fjárfestingarbanki at- vinnulífsins hf. með 36,5%, Fjár- festingarfélagið Gaumur ehf. og tengdir aðilar með 25% og Compagnie S.A., Luxembourg með 20%. Á síðari hluta ársins í fyrra gerði alþjóðlega verslunarkeðjan Reitangruppen samning um kaup á 20% hlut í Baugi hf. af FBA og Kaupþingi, og er Reitangruppen nú næststærsti hluthafinn á eftir Gaumi ehf. Sala bréfa fyrir 1,5 milljarða króna Þann 19. apríl næstkomandi hefst almennt hlutafjárútboð í Baugi hf. þar sem FBA og Kaup- þing munu selja enn frekar af eign- arhlut sínum í félaginu, en sam- hliða því verður Baugur hf. skráð- ur á Verðbréfaþingi. Bréf í félaginu voru seld íjárfestum fyrr í vetur á genginu 8,5, en búist er við að gengi bréfanna sem fara á almenn- an markað verði um 10 og þannig verði um að ræða sölu fyrir 1,5 milljarða króna. Óskar Magnússon, stjórnarfor- maður Baugs hf., sagði á aðalfundi félagsins í gær að mikið hefði verið um að vera í rekstri félagsins á fyrsta starfsári þess. Vitað hafi verið að félagið myndi mæta mikl- um erfiðleikum, en þeir hafi hins vegar ekki verið meiri eða svo óvæntir að það hafi ekki verið við þá ráðið, og markaðshlutdeild þein-a verslana sem Baugur rekur hefði aukist umtalsvert á þessum tíma. Samruni félaga í keppni við Baug á matvörumarkaðnum hafi verið fyrirsjáanlegur og eigendur Baugs hræddust ekki samkeppn- ina. FBA um reglur Seðlabankans um lausafjárskyldu lánastofnana Viðskipti með hanka- víxla nánast engin Álstjóri í Rússlandi látinn sæta rannsókn Moskvu. Reuters. RANNSÓKN er hafin í máli Anatolíj Bykov, stjórnarformanns næst- stærsta álvers Rússa í Krasnoyarsk (KrAZ), samkvæmt fréttastofu- fregnum. Vladimír Kolesnikov varainnan- ríkisráðherra sagði á blaðamanna- fundi að Bykov væri grunaður um peningaþvætti. Fréttastofumar sögðu að Bykov væri í Bandaríkjunum, en hann neit- aði því í yfirlýsingu, þar sem hann kvaðst vera undir læknishendi án þess að tiltaka hvar hann væri niður- kominn. „Kostnaðarsöm leit að mér er óþörf því að ég mun gefa mig fram,“ sagði Bykov. Hann sagði að rannsóknin gæti beint grunsemdum að fyrrrverandi stjóm álversins, en ekki sér. Svipaður málarekstur er hafinn gegn kaupsýslumanninum Borís Berezovskíj og bankastjóran- um Alexander Smolenskíj. Bykov hefur deilt um yfirráð yfir orku- og málmgeira Síberíu við héraðsstjór- ann í Krasnoyarsk, Alexander Leþed. I Krasnoyarsk vom framleidd 807.000 tonnafáli 1998. REGLUR Seðlabankans um lausafjárskyldu lánastofnana hafa haft mikil áhrif á viðskipti með banka- og ríkisvíxla á Verðbréfa- þingi íslands. Viðskipti með bankavíxla heyra nú nánast sög- unni til en þau voru blómleg á síð- asta ári, að því er fram kemur í mánaðarskýrslu Fjárfestingar- banka atvinnulífsins fyrir apríl. Þar kemur fram að í janúar sl. hafi viðskipti með bankavíxla numið 3,8 milljörðum króna, 1,9 milljörðum króna í febrúar en að- eins 605 milljónum króna í mars þrátt fyrir að ávöxtunarkrafa bankavíxla hafi hækkað mjög mik- ið. Á sama tíma hafa viðskipti með ríkisvíxla aukist úr 690 milljónum króna í febrúar upp í 2,7 milljarða í mars. Yfirsýn Seðlabankans yfír peninganiarkaðinn horfin „Ástæðu þessa má rekja til þess að samkvæmt reglum Seðlabank- ans þá telst bankavíxlaeign ekki til lauss fjár en hins vegar hafa ríkis- víxlar jákvæð áhrif á laust fé. Mismunandi viðmiðunar- vextir í viðskiptum Ekki er mikilla breytinga að vænta á peningamarkaði á næstu vikum. Vextir munu áfram vera háir og viðskipti með minna móti. Ljóst er að Seðlabankinn hefur misst yfirsýn yfir innlendan pen- ingamarkað, það eru fáir sem vita hverjir eru raunverulegir skamm- tímavextir á Islandi í dag. Reibor- vextir voru besti mælikvarðinn á skammtímavexti en Reibor-mark- aðurinn er óvirkur í dag. Þar sem út- og innlán til mis- munandi aðila hafa mismunandi áhrif á laust fé samkvæmt skil- greiningum Seðlabankans gilda mismunandi viðmiðunarvextii- í viðskiptum við mismunandi aðila. Óvissa um réttan mælikvarða á skammtímavexti ásamt tilkomu reglnanna sjálfra hafa slæm áhrif á afleiðumarkað hér á landi,“ að því er fram kemur í skýrslu FBA. Þann 29. mars tilkynnti Seðla- bankinn að lausafjárreglunum hefði verið breytt afturvirkt. Breytingarnar fólust aðallega í því að lengja aðlögunartímabilið, lýmka hlutföll á aðlögunartímabil- inu og afnema takmarkanir á leyfi- legri dagsstöðu. Um leið og breyt- ingar þessar voru tilkynntar ítrek- aði Seðlabankinn vilja til þess að þróa nýjar reglur um laust fé í samstarfi við lánastofnanir. „Mikil- vægt er að sú vinna hefjist sem fyrst og að útkoman verði nútíma- legri og betri lausafjáiTeglur þannig að markaðir komist sem fyrst í samt lag aftur. Sú óvissa sem hefur verið í kringum þessar lausafjárreglur frá upphafi og er enn hefði ein- hvers staðar haft neikvæð áhrif á trúverðugleika Seðlabankans en ekki skal dæmt um áhrif þess hér,“ að því er fram kemur í mán- aðarskýrslu FBA. Olivetti þarfað greiða háan reikning London. Reuters. KOSTNAÐUR af 65 milljarða dollara tilboði ítalska fjarskipta- fyrirtækisins Olivetti í Telecom Italia er kominn upp í meira en 100 milljónir dollara. Tilboð Olivetti er komið undir 30,5 milljarða evra láni, mesta fyr- irtækjaláni sem um getur í Evr- ópu, og greiðslur til banka og lög- fræðifyrirtækja til að útvega lánið hafa rokið upp úr öllu valdi. 100 milljóna dollara þóknun Reikningurinn er hærri en 90 milljóna dollara reikningur, sem Exxon þurfti að greiða ráðgjöfum sínum áður en félagið sameinaðist Mobil eins og nú hefur verið upp- lýst. BP Amoco þurfti að greiða hjálparmönnum sínum 100 millj- óna dollara þóknun til að komast yfir Atlantic Ricthfeld. Olivetti kom mörkuðum á óvart með því að tryggja loforð fyrir gífurlegu láni sínu á aðeins þrem- ur vikum með tilstyrk Chase, DLJ, Lehman Brothers og Medi- obanca. Varnaráætlun Sjálft ætlar Telecom Italia-fé- lagið að afla 20 milljarða evra láns og það er liður í varnaráætlun gegn fjandsamlegu tilboði Olivetti. Telecom virðist hafa komizt að betra samkomulagi við banka- stjóra sína. Þeir sem komu Olivetti-láninu í kring fengu liðsinni 21 annars banka, sem hafa verið beðnir að ábyrgjast 1 milljarð evra hver samkvæmt frétt í Ewoweek, tíma- riti um lánsfjármarkaði. Talið er að þeir muni fá 15 milljóna dollara þóknun hver. HÖNNUN / SMÍÐI / VIÐGERÐIR / ÞJÓNUSTA = HÉÐ1NN = Stórás 6 »210 Garðabæ sími 569 2100 • fax 569 2101 Gucci visar tilboði LVMHábug London. Reuters. STJÓRN ítalska tízkufyrirtækisins Gucci hefur vísað síðasta tilboði franska lúxusvörufyrirtækisins LVMH á bug og verð hlutabréfa í Gucci snarhækkaði í verði. Samkomulag var talið í nánd þeg- ar LVMH hækkaði 8 milljarða doll- ara tilboð sitt í Gucci um 9% í 85 dollara á bréf. Gucci hafnaði tilboðinu án þess að greina frá ástæðu en kvaðst til við- ræðu um frekari tilboð frá franska fyrirtækinu. Fyrirtækin samþykktu að taka upp viðræður þegar LVMH hækk- aði fyrsta tilboð sitt. Gucci hafði áð- ur reynt að koma í veg fyrir tilboðið og sakað franska fyrirtækið um til- raun til yfirtöku með brögðum. LVMH hafði eignazt 34% hlut í fyr- irtækinu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.