Morgunblaðið - 13.04.1999, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913
82. TBL. 87. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR13. APRÍL 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Tíu manns bíða bana í árás
á serbneska farþegalest
Washington, Belgrad, Brussel. Reuters.
UTANRÍKISRÁÐHERRAR ríkja Atlantshafsbandalagsins sögðu í gær
að árásum NATO á Júgóslavíu yrði haldið áfram þar til Slobodan Milos-
evic, forseti sambandsríkisins, yrði við öllum kröfum bandalagsins. Ser-
bnesk stjórnvöld létu þó engan bilbug á sér finna, kröfðust þess að árás-
unum yrði hætt án tafar og sögðust ekki vilja ræða við tengslahóp
Vesturveldanna þótt bandalagið léti af hemaðaraðgerðum sínum.
Utanrfkisráðherrar NATO-ríkjanna árétta kröfurnar á hendur Serbum
Arásunum haldið áfram
uns Milosevic g’efur eftir
Vilja í banda-
lag Rússa og
Hvít-Rússa
ÞING Júgóslavíu samþykkti
með öllum greiddum atkvæðum
í gær að sambandsríkið ætti að
ganga í laustengt bandalag
Rússlands og Hvíta-Rússlands.
Igor Ivanov, utanríkisráðherra
Rússlands, sagði að Rússar
gætu stutt þá hugmynd en gaf
til kynna að bið yrði á því að
henni yrði komið í framkvæmd.
Um 2.000 Serbar komu sam-
an við þinghúsið í Belgrad tii að
fagna tillögu þingsins og héldu
á myndum af Slobodan Milos-
evic, forseta Júgóslavíu, og Voj-
islav Seselj, leiðtoga flokks
þjóðemissinnaðra Serba, Rót-
tæka flokksins.
Reuters
Varað við valdaráni í Svartfjallalandi
Hætta sögð á
borgarastyrj öld
London. Tlie Daily Telegraph.
MILO Djukanovic, for-
seti Svartfjallalands, hef-
ur varað Slobodan Milo-
sevic, forseta Júgóslavíu,
við því að borgarastyrj-
öld geti blossað upp í
landinu ef reynt yrði að
steypa stjórn landsins.
Djukanovic sagði í við-
tali við The Daily Tele-
graph að Milosevic hefði
reynt að þröngva hernum
Djukanovic
sveitir stjórnarinnar en
valdaránstilraun myndi
ekki aðeins leiða til átaka
milli þeirra, heldur einnig
blóðugi-ar borgarastyrj-
aldar.
Hefur gagnrýnt
stefnu Milosevic
Stjóm Svartfjalla-
lands, sem er í júgóslav-
neska sambandsríkinu
í Svartfjallalandi til að taka völdin í
sínar hendur. Hann sagði að það
væri „barnalegt" af Milosevic að
halda að slíkt valdarán gæti orðið
án blóðsúthellinga. Sveitir Júgó-
slavíuhers í Svartfjallaiandi væra
að vísu mun öflugri en lögreglu-
með Serbíu, hefur oft gagnrýnt
þjóðemisstefnu Milosevic og for-
dæmt grimmdarverk Serba í
Kosovo. Leiðtogar NATO-ríkja
vöraðu við því fyrir hálfum mánuði
að Júgóslavíuher væri að búa sig
undir að steypa Djukanovic.
Þýsk svif-
brautarlest
hrapar
ÞRÍR menn biðu bana og 47 slös-
uðust í gær þegar lest á sögu-
frægri svifbraut í þýska bænum
Wuppertal féll tíu metra og lenti
í ánni Wupper.
Að sögn þýskra yfirvalda Ieik-
ur grunur á að slysið hafi orðið
vegna króks sem viðgerðarmenn
skildu eftir um helgina á teini
svifbrautarinnar, sem er einteina
og var tekin í notkun árið 1901.
Ráðist var í viðhaldsframkvæmd-
ir á svifbrautinni vegna aldaraf-
mælis hennar á næsta ári.
Vegfarendur í grennd við svif-
brautina sögðust hafa heyrt
mikla sprengingu þegar eimreið
og tveir lestarvagnar losnuðu af
teininuin og hröpuðu á svert
vatnsrör og í ána. „Síðan heyrði
ég fólkið í lestinni hrópa og það
reyndi að brjóta rúðurnar til að
komast út,“ sagði einn þeirra.
og ítrekuðu kröfur bandalagsins:
Serbar yrðu að hætta öllum hem-
aðaraðgerðum sínum, flytja örygg-
issveitir sínar frá Kosovo, hleypa
flóttafólki aftur til héraðsins og
heimila alþjóðlegu herliði að fara
þangað til að koma á friði.
„Engin málamiðlun kemur til
greina hvað varðar hernaðarmark-
mið NATO,“ sagði Tony Blair, for-
sætisráðherra Bretlands. „Við
verðum að halda áfram þar til
hvert einasta markmið hefur verið
tryggt að fullu.“
Halldór Asgrímsson utanríkis-
ráðherra sat fundinn og sagði í
samtali við Morgunblaðið að fram
hefði komið „mikil samstaða“ um
að halda loftárásunum áfram og
minnka möguleika Milosevic á því
að ráðast gegn Kosovo-búum.
Fréttaritarar í Brassel sögðu að
komið hefði fram á fundinum að
ekki væri stefnt að innrás í Kosovo.
Bandaríska utanríkisráðuneytið
gaf þó til kynna í fyrsta sinn í gær
að svo gæti farið að NATO sæi sig
knúið til að senda hermenn til hér-
aðsins án þess að samkomulag
næðist við Serba um frið í Kosovo.
Talsmaður ráðuneytisins sagði að
hershöfðingjar NATO væra að
íhuga þann möguleika og talsmað-
ur breska varnarmálaráðuneytisins
staðfesti það, að sögn breska út-
varpsins BBC.
Herlið til Kosovo undir
merkjuin SÞ?
Þrátt fyrir yfírlýsingu ráðherr-
anna um að hvergi yrði hvikað frá
kröfum bandalagsins benti ýmis-
legt til þess að NATO væri tilbúið
að slaka á afstöðu sinni til skilmála
hugsanlegs friðarsamkomulags.
Madeleine Albright, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, sagði að
NATO ætti að gegna „lykilhlut-
verki“ í hugsanlegum aðgerðum al-
þjóðlegra hersveita til að fram-
fylgja samkomulagi um frið í
Kosovo en væri tilbúið að deila
verkefninu með Sameinuðu þjóð-
unum eða Öryggjs- og samvinnu-
stofnun Evrópu (ÖSE).
Leiðtogar NATO höfðu áður
krafist þess að herliðið, sem sent
yrði til Kosovo, yrði undir stjórn
hershöfðingja bandalagsins, þótt
Rússar og fleiri þjóðir utan NATO
gætu tekið þátt í aðgerðunum.
Milosevic hefur ekki léð máls á því
að herlið undir stjórn NATO verði
sent til Kosovo og nokkur aðildar-
ríki bandalagsins eru hlynnt þeirri
málamiðlunarlausn að herliðið
verði undir merkjum Sameinuðu
þjóðanna.
Fregnir hermdu í gærkvöldi að
serbneskar öryggissveitir hefðu
kveikt í þremur mannlausum þorp-
um Kosovo-Albana við landamærin
að Albaníu, að því er virtist til að
koma í veg fyrir að íbúarnir gætu
snúið þangað aftur.
■ Árásir NATO/25-27
■ Samstaða/4
NATO hélt sprengju- og flug-
skeytaárásum sínum áfram í gær,
20. daginn í röð. Embættismenn í
Júgóslavíu sögðu að a.m.k. tíu
manns hefðu beðið bana og sextán
særst þegar flugskeyti hefði lent á
farþegalest á brú í suðausturhluta
Serbíu. Þá skýrði júgóslavneska
fréttastofan Tanjug frá því að þrír
menn hefðu látið lífið þegar bíll
þeirra hefði orðið fyrir flugskeyti á
vegi nálægt Pristina, höfuðstað
Kosovo.
Embættismaður hjá NATO lagði
áherslu á að bandalagið hefði ekki
ætlað að ráðast á lestina. „Því mið-
ur getum við þó ekki útilokað að
mannfall hafi orðið í þessu tilviki."
Hafna viðræðum við
tengslahópinn
Borislav Milosevic, bróðir forset-
ans í Belgrad og sendiherra Júgó-
slavíu í Moskvu, sagði að júgóslav-
nesk stjómvöld vildu að Rússar
gegndu veigamiklu hlutverki í frið-
aramleitunum. „Hættið sprengju-
árásunum og þá verður hægt að
finna leiðir til að hefja samingavið-
ræður að nýju.“
Sendiherrann sagði að Serbar
myndu þó ekki ræða við tengsla-
hópinn svokallaða, sem stóð fyrir
árangurslausum friðarviðræðum í
Frakklandi áður en árásir NATO
hófust.
Ráðherrar NATO-ríkjanna gáfu
út sameiginlega yfirlýsingu þar
sem þeir skoraðu á Milosevic að
hlífa um 250.000 Kosovo-búum,
sem hafast við matarlausir undir
beram himni í skógum og fjalla-
hlíðum Kosovo. Ráðhemarnir sök-
uðu Milosevic um að hafa valdið
íbúum Kosovo miklum hörmungum
Reuters
Þeir sem slösuðust mest voru
fluttir með þyrlum á sjúkrahús.
54 voru í lestinni, aðallega fólk á
leið til vinnu.
Slysið varð tæpu ári eftir
mannskæðasta lestarslys Þýska-
lands í bænum Eschede þegar
101 fórst í ICE-hraðlest sem fór
út af sporinu.