Morgunblaðið - 14.04.1999, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 14.04.1999, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 83. TBL. 87. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 14. APRÍL 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Umdeild lög um óháða saksóknara Serbneskir hermenn sagðir hafa ráðist inn á albanskt landsvæði Starr mæl- ir gegn endurnýjun KENNETH Stan-, sérskipaði sak- sóknarinn sem með rannsókn sinni á málum Bills Clintons Bandaríkjafor- seta hleypti nýju lífi í umræðu um réttmæti löggjafarinnar sem starf- semi sérskipaðra saksóknara er grundvölluð á, mun samkvæmt heimildum AP- íréttastofunnar mæla gegn því að löggjöfin verði endurnýjuð. Starr, sem á að bera vitni fyrir stj órnarfarsmála- nefnd öldunga- deildar Banda- ríkjaþings í dag, lét í gær frá sér skriflega útdrætti úr vitnisburði sín- um, þar sem hann rekur rökin fyrir því að hann telji ekki rétt að endur- nýja löggjöfina sem grundvallaði hans eigin starfsemi. Að sögn heimildarmanna AP er Starr mótfallinn endm'nýjuninni af nokkrum ástæðum, þai' á meðal að hún stríði gegn hinni stjórnarskrár- bundnu skiptingu valdsins milli framkvæmda- og dómsvalds. Starr mun einnig telja vafasamt hve lengi rannsóknir sérskipaðra saksóknara geta teygzt á langinn og hve mikinn kostnað þær geta haft í fór með sér. Þá telji hann þær pólitísku árásir sem sérskipuðu saksóknararnir þurfi að þola mæla gegn endurnýjuninni. Clinton ekki laus mála Clinton var í febrúar sl. sýknaður af þeim ákærum sem byggðar voru á rannsókn Starrs. Dómari í Arkansas sakfelldi hins vegar Clinton í fyrradag fyi'ir að sýna dóminum óvirðingu með því að fara vísvitandi með rangan vitnisburð í máli Paulu Jones á hendur forsetanum. ■ Clinton gaf/25 Kenneth Starr Tannbursta- framleiðend- um stefnt DÓMSMÁL hefur verið höfðað á hendur nokkrum tannbursta- framleiðendum í Bandaríkjun- um og bandarísku tannlækna- samtökunum (ADA) fyrir að vara ekki neytendur nógsam- lega við hættunum sem kunna að fylgja tannburstun. Af hálfu stefnenda er krafizt skaðabóta fyrir hvem þann er þjáist í gómi eða hlotið hefur holdfleiðui’ af völdum tann- burstunar. Stefnandinn, Marc Trimarco, segist þjakaður af skrámum í tannholdi er leitt hafi til gómrýrnunar og tann- verkja. Heldur hann því fram að tannlæknar hafi vitað af fleiðurmyndun af völdum tann- burstunar í hálfa öld. Þess er m.a. krafizt að fram- leiðendur tannbursta verði skyldaðir til að merkja burstana með áberandi viðvörunum og láta skriflegar leiðbeiningar um notkun þeirra fylgja með. Serbar varaðir við því að breiða átökin út Reuters ALBANSKUR hermaður beinir í gær flóttafjölskyldu, sem nýkomin er yfir landamærin frá Kosovo til albanska bæjarins Kukes, áfram til höfuðborgarinnar Tirana. Ósló, London, Bajrani Curri. Reuters. STJÓRNVÖLD í Albaníu og eftir- litsmenn Öryggis- og samvinnu- stofnunar Evrópu (ÖSE) sögðu í gær að serbneskir hermenn hefðu ráðist inn í Albaníu, umkringt þorp- ið Kamenica og barist við albanska landamæraverði í nokkrar klukku- stundir. Albanska ríkissjónvarpið sagði að hermennirnir hefðu verið hraktir aftur til Kosovo en stjórn- völd í Belgrad sögðu ekkert hæft í því að serbneskir hermenn hefðu farið yfir landamærin. Madeleine Aibright, utanríkisráðherra Banda- ríkjanna, varaði Serba við því að ef þeir reyndu að breiða átökin út myndi það hafa „alvarlegar afleið- ingar“. Fréttir af landamæraátökunum skyggðu á tilraunir Albright til að fá Rússa til að beita sér á ný fyrir samkomulagi um frið í Kosovo. Al- bright ræddi í gær við Igor ívanov, utanríkisráðherra Rússlands, í Ósló. Ráðhen-arnir náðu ekki sam- komulagi um leiðir til að binda enda á átökin en sögðust ætla að halda viðræðunum áfram. „Serbneskir hermenn fóru um 500-600 metra inn fyrir landamæri Albaníu,“ sagði albanska sjónvarp- ið. „Aibanskir lögreglumenn, með stuðningi varða úr landamærastöð- inni Padesh í nágrenninu, börðust við þá í margar klukkustundir og neyddu þá til að hörfa.“ Albanska sjónvarpið sagði að kviknað hefði í þremur húsum í Kameniea sem hefðu orðið fyrir sprengjum serbnesku hermann- anna. Þeir hefðu einnig varpað sprengjum á landamærastöð og nágrannaþorpið Zogaj. Ekki var vitað um mannfall. Albanska stjórnin sagði að hundrað serbneskir hermenn hefðu tekið þátt í árásinni. Heimildarmaður Reuters í alb- önsku lögi-eglunni sagði að sprengj- um hefði einnig verið varpað á landamæraþorpið Gerek, um 30 km suðaustur af Kamenica. Talsmenn eftirlitsmanna Örygg- is- og samvinnustofnunar Evrópu á svæðinu staðfestu að serbneska hersveitin hefði farið yfir landa- mærin. Þeir töldu að árásin hefði verið gerð í hefndarskyni vegna bardaga sem hafa geisað við landa- mærin frá því á föstudag milli Frelsishers Kosovo og serbneskra hermanna. „Svívirðileg lygi“ Þjóðaröryggisráð Albaníu kvaðst hafa fyrirskipað her landsins að svara öllum árásum á albönsk land- svæði af fullum krafti. Sokol Gjoka, talsmaður albanska utanríkisráðu- neytisins, sagði að markmið Serba væri að draga her Albaníu inn í átökin í Kosovo. Júgóslavneska utanríkisráðu- neytið og her Júgóslavíu sögðu ekkert hæft í því að serbneskir her- menn hefðu farið inn á albanskt landsvæði og lýstu ásökunum Alb- ana og ÖSE sem „svívirðilegri SERBAR I ALBANIU Fulltrúar Öryggis- og samvinnu- stofnunar Evrópu sögðu í gær að serbneskar hersveitir hefðu farið inn fyrir landamæri Albaníu, þar sem komið hefur til mikilla átaka milli Serba og skæruliða Frelsis- hers Kosovo síðan á föstudag. Tropoje-hérað Iygi“. „Þeir hafa snúið látlausum tilraunum albanskra hryðjuverka- hópa til að fara inn á landsvæði okkar upp í meinta innrás Júgó- slavíuhers í Albaníu," sagði yfir- maður upplýsingamiðstöðvar hers- ins í Belgrad. Serbar segja að þúsundir liðs- manna Frelsishers Kosovo hafi reynt að komast inn í Kosovo með stuðningi Albaníuhers og NATO en serbnesku hersveitirnar við landa- mærin hafi komið í veg íyrir það. Madeleine Albright sagði að Bandaríkjastjórn íylgdist grannt með ástandinu við landamærin. „Við höfum sagt mjög skýrt að við fordæmum tilraunir Serba til að breiða átökin út og NATO hefur tekið skýrt fram að bandalagið muni líta allar árásir Serba yfir serbnesku landamærin mjög alvar- legum augum.“ Enn deilt um friðargæslusveitir Ivanov sagði eftir fundinn með Albright í Ósló að Rússar væru enn andvígir árásum NATO á Júgó- slavíu en ákveðið hefði verið á fund- inum að halda viðræðunum áfram. Ráðherrarnir sögðu að þótt þeim hefði ekki tekist að jafna ágreining ríkjanna hefði fundurinn, sem stóð í fjóra tíma, borið nokkurn ái'angur. „Við höfum stigið skref framávið, ef til vill ekki eins stórt og við vildum, en samt skref framávið,“ sagði Ivanov. Rússneski utanríkisráðherrann bætti við að ríkin greindi einkum á um alþjóðlega herliðið sem stefnt er að því að senda til Kosovo í því skyni að framfylgja hugsanlegu friðarsamkomulagi. Þau væru hins vegar sammála um að brýnt væri að íbúar Kosovo, sem flúið hafa héraðið, fengju að snúa þangað aft- ur. Albright hvikaði ekki frá þeirri afstöðu Bandaríkjastjórnar að NATO yrði að vera „kjarni“ friðar- gæslusveitanna. ívanov sagði að Slobodan Milosevic Júgóslaviufor- seti yrði að fallast á að hleypa frið- argæslusveitum til Kosovo, en NATO yrði einnig að hætta árásum sínum til að greiða fyrir friðarvið- ræðum. Ráðherrarnir ræddu einnig við Knut Vollebæk, utanríkisráðherra Noregs og yftrmann ÖSE. Stjóm- arerindrekar sögðu að Albright og Vollebæk hefðu viljað kanna mögu- leikann á því að Rússar tækju þátt í friðargæslunni ef samkomulag næðist um frið í Kosovo. Flóttafólk í Kosovo deyr úr sulti Júgóslavneska fréttastofan Tanjug sagði í gær að NATO hefði gert árásir á hersjúkrahús og skíðahótel í miðhluta Serbíu. Mikl- ar skemmdir hefðu orðið á bygg- ingunum en ekkert mannfall. Wesley Clark, yfirmaður Evr- ópuherafla NATO, og fleiri tals- menn bandalagsins, hörmuðu í gær að flugskeyti sem flugmaður NATO-herþotu skaut til að eyði- leggja brú í Júgóslavíu í fyrradag, skyldi hafa lent á farþegalest. Sagði hann flugmanninn ekki hafa komið auga á lestina fyrr en of seint. Tíu fórust. Um 260.000 Kosovo-Albanar haf- ast við án matar og drykkjar undir berum himni í skógum og fjallahlíð- um Kosovo og fréttir hermdu í gær að nokkrir þeirra hefðu dáið úr sulti. Ymsir sjúkdómar, svo sem taugaveiki, kólera, maurakláði og lungnasýkingar, væru einnig orðnir algengir meðal flóttafólksins. ■ Árás NATO/24
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.