Morgunblaðið - 20.04.1999, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 20.04.1999, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA 1999 ÞRIDJUDAGUR 20. APRIL BLAÐ Einar dansk- ur meistari DANSKA blakliðið Gentofte, sem Einar Signrðsson, fyrr- verandi leikmaður Stjörn- unnar úr Garðabæ, leikur með, gerði það gott um helg- ina. Liðið lagði Kaupmanna- hafnarliðið Holte í úrslita- keppninni og tryggði sér þar með Dannierkurmeistaratitil- inn. Urslitin teljast, söguleg þar sem lið Holte hefur unnið meistaratitilinn frá því 1986 utan einu sinni þegar Gentofte vann í fyrsta skipti 1996. Gentofte kemur til Is- lands og tekur þátt í afmælis- móti Þróttar R. 8.-10. maí. Tveir hættir hjá Víkingum ÁSGEIR Halldórsson, sem gekk til Iiðs við Víkinga í vet- ur, er hættur hjá liðinu. Hann gerði tveggja ára samning við liðið í vetur, en hefur ekki æft með því að undanförnu. Ásgeir vildi ekki tjá sig um ástæður þess að hann hætti hjá liðinu í sam- tali við Morgunblaðið. Ásgeir lék með Fram og Breiðabliki áður en hann gekk til liðs við Víkinga. Jakob Hallgeirsson er einnig hættur hjá Víkingum, en hann kom frá Skallagrími í vetur og hyggst snúa aftur á heimaslóðir. Morgunblaðið/Einar Falur Ingólfsson TEITUR Örlygsson og samherjar hjá meisturum Njarðvíkur réðu ekki við Keflavík í þriðja leik liðanna. Hér kemst Teitur ekki áleiðis að körfu Keflvíkinga - Damon Johnson og Fannar Ólafsson eru til varnar. Keflavík er yfir 2:1 í meistaraeinvígi fyrir fjórða leik liðanna, sem fer fram í Njarðvík í kvöld. FRJÁLSÍÞRÓTTIR Guðrún byvjjar keppni í Brasilíu og Japan essi hásinameiðsli eru orðin ár- viss hjá mér, það liggur við að ég geti skráð þau fyrirfram inn á daga- talið hjá mér,“ sagði Guðrún Arnardóttir, íslandsmethafi í sprett- og grindahlaupum, en hún hefur dvalist við æfingar í Athens í Bandaríkjunum í vetur og verður þar áfram næsta mánuðinn. „Undir lok mars fór ég að flnna fyrir eymslum í hásinunum og ég er rétt að ná mér á strik um þessar mundir, þar með er ég að vona að það versta sé yfirstaðið. Ég skil bara ekki hvernig á þessu stendur ár eftir ár, ef svo væri stæði ég ekki í þessum sporum. Ólíkt síðustu ár- um þá finn ég nú fyrir í báðum hásinum, en hingað til hafa eymslin verið öðru megin.“ Eymslin settu strik í æfingaáætl- un Guðrúnar, en hún sagðist vonast til þess að geta unnið það eitthvað upp á næstunni skánuðu hásinarnar eins og margt benti til. Guðrún keppti í 800 metra hlaupi á móti Athens um liðna helgi og kom fyrst í mark á 2.13,66, sem er næn-i hennar besta, en Guðrún seg- ist hafa hlaupið 800 metra á mótum undanfarin vor. „Ég fann ekkert fyrir í hásinunum í þessu hlaupi, sem betur fer.“ Vegna eymslanna sagðist Guðrún ekki vera nógu sátt við þá tíma sem hún hefði hlaupið á mótum að und- anförnu, en allt hefðu það verið styttri hlaup en 400 metra grinda- hlaup, sem er hennar sérgrein. Keppir í Ríó um helgina Formlegt keppnistímabil hefst hjá Guðrúnu næsta laugardag þegar hún hleypur 400 metra grindahlaup á stigamóti Alþjóða frjálsíþróttasambandsins sem fram fer í Rio de Janeiro. í næsta mánuði keppir hún á stigamótum í Osaka í Japan, Quatar og í St. Louis í Bandaríkjunum áður en hún tekur þátt í Smáþjóðaleikun- um í Liechtenstein eftir rúman mánuð. „Ég renni alveg blint í sjóinn á mótinu í Brasilíu um næstu helgi. Það er fyrsta alvöru mótið á árinu og því ekki hægt að reikna með því að maður nái sínu besta,“ sagði Guðnín. „En ég vænti þess að hlaupið verði nokkuð sterkt." ÓLAFUR STEFÁNSSON EVRÓPUMEISTARI MEÐ MAGDEBURG / B8 Vinningar Fjöldi vinninga Vinnings- upphæð 1. 5 af 5 0 3.381.270 2. 4 af 5+t$$s? 3 105.670 3. 4 af 5 60 9.110 4. 3 af 5 2.015 630 ÞREFALDUR 1. VINNINGUR Á LAUGARDAGINN Jókertölur vikunnar 9 3 9 8 3 Vinningar Fjöldi vinninga Upphæð á mann 5 tölur 0 1.000.000 4 síðustu 0 100.000 3 síðustu 13 10.000 2 síðustu 112 1.000 VINNINGSTOLUR MIÐVIKUDAGINN I 14.04.1999 AÐALTÖLUR Vinningar Fjöldi vinninga Vinnings- upphæð 1. 6 af 6 1 38.673.820 2. 5 af 6 + búnus 1 3.279.780 3. 5 af 6 7 38.850 4. 4 af 6 234 1.840 3. 3 af 6+ bónus 479 380 Alltaf á míðvikudögun Upplýsingar: Lottómiðarnir með bónusvinningun- um sl. laugardag voru keyptir í sölu- tuminum Allra best við Stigahlíð í Reykjavík, Siglósportí á Siglufírði og versluninni Báru í Grindavík. Vikingalottó Bónusvinningurinn kom á miða frá Snævarsvídeói við Höfðabakka 1, Rvik. Ath. að einungis 1. vinningur er sameiginlegur með þátttakendum á Norðurlöndum. Aðrir vinningar, þ.m.t. bónusvinningurinn, eru heimavinningar og dreifast ekki á milli landa. Upplýsingar í síma: 568-1511 Textavarp: 281, 283 og 284 í þágu öryrkja, ungmenna og íþrótta Birt með fyrtrvara um prenlvillur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.