Morgunblaðið - 20.04.1999, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 20.04.1999, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 1999 B 3 ÍÞRÓTTIR Sigurður Ingimundarson, þjálfari Keflvíkinga, eftir stórsigur á Njarðvíkingum Ekkert sem hindrar okkur ÞEGAR Sigurður Ingimundar- son, þjálfari Keflvíkinga, var beðinn um að útskýra fyrir lesendum, hversu mikilvægur annar sigur liðs hans á Njarðvík var, sagði hann: „Menn hugsa einfaldlega að- eins um einn leik í einu, líta ekki mikið fram á veginn. Njarðvíkingarnir eru komnir upp að vegg núna. Þeir mega ekki tapa aftur. Fyrir okkur var þetta bara unninn leikur og við ætlum að vinna næsta leik líka. Annað kemur ekki til greina.“ Sigurður hefur áður sagt að lið sitt væri betra en lið Njarðvík- inga. Hversu betra? Sýndu úrslit leiksins á sunnudag ef til vill getumun liðanna í hnotskurn, að mati Sigurðar? „Nei, nei,“ svarar þjálfarinn og grettir sig. „Þetta var nú gróf spurning. Við vorum bara betri en þeir í kvöld, vorum tilbúnir. Þetta var ef til vill ekki ósvipað fyrsta leiknum, þegar þeir mættu mun betur stemmdir heldur en við. En þegar við komum reiðubúnir til leiks vinnum við. Á því leikur eng- inn vafi, sama hvar leikið er.“ Hvað ykkur varðar hefur úr- slitarimman þróast þannig hingað til; tap, naumur sigur og stórsigur. Þetta er augljóslega merki um að það sé stígandi í leik liðsins, ekki rétt? „Stígandi? Þetta var besti leikur- inn okkar hingað til í þessu einvígi. Já, það hefur verið stígandi í leik okkar og við látum ekki deigan síga. Við vorum góðir í Njarðvík [í öði'um leik liðanna á fímmtudag]. Reyndar var sumt sem gekk ekk- ert of vel þar, en flest allt gekk upp í þessum leik.“ Þú ert þá ánægður með leikinn í alla staði, eða hvað? „Já, það var ekkert sem við gerðum illa, en við eigum enn góð- an leik inni. Við voi-um ekki að leika eins og við getum best. Þetta var bara góður leikur hjá okkur.“ Sjálfstraustið hlýtur að aukast eftir slíka frammistöðu. „Já, já, já, já! Það er alltaf til staðar hjá okkur. Við vitum allir að hverju er stefnt og hvað við getum. Það er ekkert sem hindrar okkur.“ Morgunblaðið/Einar Falur TEITUR Örlygsson var búinn að játa sig sigraðann, þegar hann settist niður fyrir aftan varamanna- bekkinn er sjö mín. voru eftir af leik - trúir varla sínum eigin augum. Njarðvíkingar rótburstaðir NJARÐVÍKINGAR riðu ekki feitum hesti frá þriðju viðureign sinni við Keflvíkinga í úrslitaeinvíginu um íslandsmeistaratitilinn í körfuknattleik í Keflavík á sunnudagskvöldið. Þeir voru nánast rótburstaðir og hafa sjálfsagt orðið þeirri stundu fegnastir þegar flautað var til leiksloka. Lokatölur urðu 108:90, en í leikhléi var staðan 52:43. Það lið sem fyrr sigrar í þremur leikjum hlýtur meistaratitilinn og er staðan nú 2:1 fyrir Keflavík. Fjórði leikur liðanna verður í Ljónagryfjunni í Njarðvík í kvöld og þar geta Keflvíkingar tryggt sér íslandsmeistaratitilinn. Hjá Njarðvíkingum hlýtur aðeins eitt að vera á dagskrá, að duga eða drepast. Leikur liðanna í Keflavík byrjaði þó fjörlega og allt virtist stefna í hörkuleik. Keflvíkingar hófu leikinn ■■■■■■ með leiftursókn og Bjöm léku á als oddi á með- Blöndal an Njarðvíkingar áttu skrífar greinilega í erfiðleik- um. Þeir hafa ekki jafn stóum hópi leikmanna á að skipa og Keflvíkingar og því ljóst að lítið má útaf bera hjá burðarásum. Friðrik Ragnarsson, leikstjórnandi og einn af lykilmönnum liðsins, átti í miklum erfiðleikum með að ná sér á strik. Eftir stuttan leik var staðan orðin 22:8 og greinilegt var að Njarðvík- ingum var nokkuð brugðið. Friðrik Rúnarsson þjálfari tók þá leikhlé og upp úr því kom besti kafli Njarðvík- inga. Þeim tókst að jafna metin, 28:28, en síðan datt botninn úr leik þeirra aftur og Keflvíkingar sigldu framúr að nýju. Keflvíkingar gerðu síðan endan- lega út um leikinn þegar á fyi-stu mínútunum í síðari hálfleik með sömu leiftursóknunum og í upphafi leiks. Á meðan flest gekk upp hjá heimamönnum stóð ekki steinn yfir steini hjá Njarðvíkingum. Á nokkrum mínútum fengu þeir á sig 15 stig á móti þremur og þar með var staðan orðin 67:46 fyrir Keflavík. Friðrik þjálfai-i tók þá tvö leikhlé með stuttu millibili til að endur- skipuleggja leik sinna manna, en allt kom fyrir ekki. Leikurinn nánast fjaraði út og öll spenna sem hefur einkennt leiki þessara liða hvarf út í veður og vind. Keflvíkingar gátu landað sigri án erfiðleika og langt er síðan Njarðvíkingar hafa verið jafn grátt leiknir. Bestu menn Keflvíkinga voru Damon Johnson, sem enn einu sinni sýndi hversu snjall körfuknattleiks- maður hann; stórskytturnai- Falur Harðarson og Guðjón Skúlason voru ekki síðri; Hjörtur Harðarson lék nú sinn besta leik í úrslitakeppninni og hefur reynst liði sínu mjög drjúgur. Fannar Olafsson hefur einnig verið að sækja í sig veðrið, en honum hættir til að vera full ákafui-. Þá stendur Birgir Örn Birgisson alltaf fyrir sínu. Besti maður Njarðvíkinga var Brenton Birmingham en hann komst að því að enginn má við margnum. Þá gaf Teitur Örlygsson sitt ekki eftir að vanda. Friðrik Stef- ánsson og Hermann Hauksson voru einnig ágætii’. Urslitakeppnin í körfuknattleik 1999 Þriðji leikur liðanna i úrslitunum, leikinn í Keflavik 18. april 1999 KEFLAVÍK NJARÐVÍK 108 Skoruð stig 90 26/34 Vítahittni 20/27 16/34 3ja stiga skot 8/30 17/42 2jastigaskot 23/42 30 Varnarfráköst 26 19 Sóknarfráköst 14 12 Bolta náð 10 15 Bolta tapað 16 23 Stoðsendingar 23 22 Villur 27 Todd lofar Eið Smára og Guðna 1 EIÐUR Smári Guðjohnsen Ivar heija Bolton er liðið vann Ipswich Town 2:0 á heimavelli í ensku 1. deild- inni um helgina. Eiður ■ Smári skoraði eitt mark og :j átti einnig þátt í öðru marki s Bolton-liðsins. Fyrra mark Bolton kom : eftir skot frá Eiði Smára j sem markvörður Ipswich varði en hélt ekki boltanum Iog Bob Taylor fylgdi á eftir og skoraði. Eiður Smári inn- siglaði síðan sigur Bolton í síðari hálfleik er hann gerði sitt fjórða mark á tnnabil- inu. Guðni Bergsson Iék einnig s með Bolton, en hann hefur verið frá í rúmlega tvo mán- uði vegna meiðsla. Colin Todd, knattspyrnustjóri » Bolton, hrósaði Eiði Smára | og Guðna fyrir frammistöðu I þeirra í leiknum. Guðni, sem kom í veg fyrir mark tvíveg- is í leiknum, meiddist lítil- lega undir lokin en Todd sagði á heimasíðu Bolton- liðsins að varnarmaðurinn yrði klár í næsta leik. Bolton er í fimmta sæti deildarinnar og hefur mögu- leika á að tryggja sér sæti í úrvalsdeild með því að sigra í sérstakri úrslitakeppni liða í 3.-6. sæti 1. deildar. ■ BJARNÓLFUR Lárusson og Sigurður Ragnar Eyjólfsson komu inn á hjá Walsall gegn Maccles- field Town í 2. deildinni. Walsall sigraði 2:0 og er í 2. sæti deildar- innar og á góða möguleika á að komast upp í 1. deild. ■ BRENTFORD, lið Hermanns Hreiðarssonar, er í 3. sæti í 3. deild. Liðið gerði markalaust jafn- tefii við Leyton Orient og var Her- mann í byrjunarliðinu. ■ SIGURÐUR Jónsson, var í sig- urliði Dundee United sem vann Aberdeen 4:0. Liðið er í 8. sæti skosku úrvalsdeildarinnar. ■ HIBERNIAN, lið Ólafs Gott- skálkssonar, hefur 17 stiga forskot í 1. deildinni í Skotlandi. Olafur var í liði Hibernian sem vann St. Mirr- en 2:1 um helgina. ■ SUNDERLAND hefur tryggt sér sigur í 1. deild ensku knatt- spyrnunnar. Liðið hefur haft mikla yfirburði í vetur og er nú 18 stigum á undan Bradford og Ipswich Town sem eru í 2. og 3. sæti. ■ ASTON VILLA hefur lýst yfir stuðningi við Paul Merson sem hef- ur látið á ný undan í baráttunni við Bakkus. Leikmaðurinn viður- kenndi í blaðaviðtali að hann hefði drukkið eina og hálfa vodkaflösku á átta tímum á bar í Lundúnum á dögunum. Merson hefur lengi barist við vímuefnanotkun, en hann fór í meðferð við áfengis- og eitur- lyfjanotkun þegar hann lék með Arsenal árið 1994. ■ CRYSTAL Palace ætlar að inn- heimta um 600 krónur af stuðn- ingsmönnum liðsins fyrir að mæta á fund þar sem Mark Goldberg stjómarmaður liðsins ætlar að sitja fyrir svörum um framtíð liðsins, sem á við mikla fjárhagserfiðleika að etja. I stað þess að halda fund- inn á heimavellinum Selhurst Park var ákveðið að leigja sal úti í bæ.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.