Morgunblaðið - 24.04.1999, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 24.04.1999, Blaðsíða 2
2 B LAUGARDAGUR 24. APRÍL 1999 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ ÚRSLIT KÖRFUKNATTLEIKUR LAUGARDAGUR 24. APRÍL 1999 B 3„. KÖRFUKNATTLEIKUR Handknattieikur ísland - Sádí Arabía 25:21 Vináttulandsleikur í handknattieik, íþrótta- húsinuí Grafarvogi ígærkvöldi: Mörk íslands: Konráð Olavson 6, Njörður Arnason 4, Hilmar Þórlindsson 3, Valgarð Thoroddsen 3, Gunnar Berg Viktorsson 2, Heiðmar Felixson 2, Sverrir Björnsson 2, Magnús Agnar Magnússon 1, Svavar Vign- isson 1, Guðfínnur Kristmannsson 1. ■Islendingar höfðu forystu allan leikinn og staðan í leikhléi var 14:8. Liðin mætast aftur í dag og þriðja sinni á morgun. UMFA-FH.....................26:23 Iþróttahúsið að Varmá; þriðji úrslitaleikur liðanna um Islandsmeistaraitilinn í hand- knattleik karla, fímmtud. 22. apríl 1999. Gangur leiksins: 1:0, 1:1, 4:1, 4:3, 7:4, 10:6, 11.8, 14:9, 16:10, 16:11, 19:12, 21:12, 21:14, 22:17, 24:18, 24:22, 25:22, 26:23. Mörk UMFA: Bjarki Sigurðsson 7/1, Gal- kauskas Gintas 6, Jón Andri Finnsson 4, Sigurður Sveinsson 3, Alexei Trúfan 2, Maxím Trúfan 2, Hafsteinn Hafsteinsson 1, Savukynas Gintaras 1. Utan vallar: 8 mínútur. Mörk FH: Valur Arnarson 6, Guðjón Árna- son 5, Gunnar Beinteinsson 4, Hálfdán Þórðarson 3, Guðmundur pedersen 2/1, Lár- us Long 2, Knútur Sigurðsson 1. Utan vallar: 8 mínútur. Dómarar: Gunnar Viðarsson og Stefán Arn- aldsson, því miður ekki þeirra dagur. Áhorfendur: Nærri 1.000. Knattspyma Noregur Fimm mörk íslendinga Viking - Liileström..............2:4 ■Rúnar Kristinsson og Heiðar Helguson skoruðu sitt markið hvor fyrir Lilleström sem komst í 0:4. Þá kom Ríkharður Daðason inn á fyrir Viking og minnkaði muninn með tveimur mörkum, en það dugði ekki til. Brann - Kongsvinger .............5:4 ■Stefán Þórðarson var i iiði Kongsvinger en Steinar Adolfsson er meiddur. Bjarki Gunn- laugsson var ekki í liði Brann. Rosenborg - Tromsö...............2:2 ■Ami Gautur Arason var í marki Rosen- borg og Tryggvi Guðmundsson lék með Trömsö. Stabæk - Moss....................3:1 ■Heigi Sigurðsson skoraði eitt marka Sta- bæk. Strömsgodset - Válerenga.........0:3 ■Bræðumir Valur Fannar og Stefán Gísla- synir vom í liði Strömsgodset. Molde - Bodö/Glimt...............2:1 Odd Grenland - Skeid.............2:1 England 1. deild: Bury - Bolton....................2:1 Þýskaland Stuttgart - Bayer Leverkusen ....0:1 Ulf Kirsten 37.21.000. Dortmund - Werder Bremen ........2:1 Heiko Herrlich 52., Andreas Möller 86. - Bemhard Trares 34. Rautt spjald: Thomas Hassler (Dortmund) 83. 68.600. Holiand Doetinchem - PSV Eindhoven.......1:0 Evrópukeppni bikarhafa Róm, Ítalíu: Lazio - Lokomotiv Moskva.........0:0 30.000. • Samtals 1:1. Lazio komst áfram á marki skoruðu á útivelli. Mallorca, Spáni: Mallorca - Chelsca...............1:0 Leo Biagini 14.18.848. • Maliorca vann samtals 2:1 og mætir Lazio í úrslitaleik á Villa Park í Birmingham 19 maí. Körfuknattleikur Keflavík - UMFN 88:82 Iþróttahúsið í Keflavík. Gangur ieiksins: 2:0, 2:3, 14:3, 21:12, 29:20, 39:31,49:40, 51:53,63:63, 79:70, 88:82. Stig Kefiavíkur: Falur Harðarson 29, Damond Johnson 22, Gunnar Einarsson 13, Hjörtur Harðarson 8, Birgir Öm Birgisson 7, Fannar Ólafsson 6, Guðjón Skúlason 3. Stig UMFN: Brenton Birmingham 20, Her- mann Hauksson 17, Friðrik Ragnarsson 16, Teitur Örlygsson 12, Friðrik Stefánsson 11, Páll Kristinsson 6. Dómarar: Leifur Garðarsson og Kristinn Aibertsson sem dæmdu mjög vel. Áhorfendur: Um: 1200. UM HELGINA Handknattleikur tírslit kvenna, annar leikur: Laugardagur: Kaplakriki: FH - Stjaman.............16 Mánudagur: Þriðji leikur: Ásgarður: Stjaman - FH ...........20.30 tírslit karla, Ijórði leikur: Sunnudagur: Kaplakriki: FH - Afturelding......20.30 Landsieikir karla: Laugardagur: Grafarvogur: ísiand - Saudí-Arabía...14 Sunnudagur: Grafarvogur: ísland - Saudí-Arabía...16 Júdó íslandsmeistaramótið í júdó fer fram í KA- heimilinu á Akureyri í dag og á morgun, sunnudag. Mótið verður sett kl. 10 í dag og síðan hefst einstaklingskeppni bama og unglinga. Fullorðnir hefja keppni kl. 14. A morgun fer fram sveitakeppni kl. 10. Þolfimi Bikarmót í þolfimi fer fram í íþróttahöliinni á Akureyri í dag kl. 18.30. Einnig verður keppt í fjölþraut í líkamsrækt. KefMkingar eru bestir Urslitakeppnin körfuknattleik 1999 Fimmti leikur liðanna i úrslitunum, leikinn í Keflavik 22. apríl 1999 KEFLAVÍK NJARÐVÍK 88 Skoruð stig 82 7/11 Vítahrttni 6/10 11/23 3ja stiga skot 8/30 24/47 2ja stiga skot 26/48 25 Varnarfráköst 26 8 Sóknarfráköst 17 7 Bolta náð 6 7 Bolta tapað 11 21 Stoðsendingar 31 15 Villur 14 Friðrik Ingi Rúnarsson, þjálfari Njarðvík- ur, segir ragnarök ekki á næsta leiti ÞÓTT Friðrik Ingi Rúnarsson, þjálfari Njarðvíkinga, hafi verið afar vonsvikinn eftir að hafa tapað íslandsmeistaratigninni, benti hann á að það markaði alls engan heimsendi, það kæmi dagur eftir þennan dag - lífið snerist um meira en körfuknattleik. Þessi leikur var í sjálfu sér mjög jafn. Við lentum undir, en náð- um þeim aftur og komumst yfir. Pá áttum við möguleika Eftir á að komast fjórum Edwin R. stigum yfir, með Rögnvaldsson kgrf^ en tókst ekki. Pað hefði hugsanlega getað gefið okkur sálrænan styrk - að komast tveimur sóknum yfir. Það gerðist ekki að þessu sinni. Falur gerði tvær ævintýralegar körfur, sem eru ef til vill ekki oft á dagskránni hjá mönnum, en hann lét bara vaða og þetta voru vitaskuld lykilkörfur. Þær gáfu þeim aukinn kraft. Herslumuninn vantaði hjá okkur að þessu sinni, en við vorum alveg sannfærðir fyrir leikinn um að við gætum landað hér titli. Vamarleik- urinn var því miður ekki eins og hann á að vera hjá okkur í fyrri hálfleik, náðum þó að sýna hvað í ökkur býr í síðari hálfleik en það vantaði bara herslumuninn." Falur Harðarson og Damon Johnson tóku völdin undir lokin. Gátuð þið ekkert gert við því, hagað vamarleiknum þannig að það reyndi eitthvað á hina leikmennina? „Jú, jú. Við reyndum það og á köflum skapaðist vandræðagangur í sóknarleik þeirra. En þessir tveir leikmenn hafa í raun „allan pakk- ann“ sem sóknarleikmenn - geta báðir skotið af löngu færi, geta báðir rakið boltann vel og leikið á menn. Þeir eru mjög fjölhæfir og það er auðvitað ekki auðvelt að gæta þeirra. Þeir voru sjóðandi heitir í þessum leik. Damon dró vagninn fyrir þá í fyrri hálfleik, en Falur í þeim síðari. Þeir hittu svo vel í dag ... ég meina, hvað á maður að segja við skotum sem eru tekin nánast þrjá metra fyrir utan þriggja stiga línuna? Hvað varnar- leikinn varðar, telst slíkt merki um að menn séu að gera vel, ef sóknar- maðurinn er þvingaður svo langt frá körfunni. En þegar menn taka upp á því að hitta úr svoleiðis skot- um, er næst spurt hvort vamar- maðurinn sé tilbúinn að fara hrein- lega ofan í buxurnar hjá sóknar- manninum - og það er auðvitað hægar sagt en gert.“ Hvernig líður þér? „Mér líður ágætlega svo sem - já, já. Það kemur dagur eftir þenn- an dag. Það er nauðsynlegt að kunna þetta líka, svo maður kunni að meta góðu stundimar þegar þær ganga í garð. Eg hef verið lán- samur í mínu starfi og er auðvitað þakklátur fyrir það, þannig að ég þekki báðar hliðarnar. En auðvitað er ég aldrei sáttur við að tapa. Ég vil vinna allt sem ég tek mér fyrir hendur. Ef til vill er ég stundum fullákafur, en maður verðm’ auðvit- að að passa sjálfan sig - getur ekki tryllst gersamlega og snúist. á sveif með skrattanum sjálfum. Ég hefði viljað fara héðan með sigur í farteskinu, en því var ekki að heilsa að þessu sinni. Þetta verður bara til þess eins að styrkja mig.“ „Þegar maður vinnur góða sigra er mikilvægt að vera stöðugt á vaktinni, því þá bíður alltaf einhver handan hornsins, tilbúinn að fella þig. Það sama gildir þegar menn tapa. Þá skiptir höfuðmáli að halda sönsum, því það kemur dagur eftir þennan dag og maður hefur ákveðnum skyldum að gegna, gagnvart sínum nánustu, fjöl- skyldu og auðvitað samherjum - samfélaginu.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg KAMPAKÁTUR hampar Guðjón Skúlason íslandsbikarnum eftirsótta í leikslok. Guðjón gat ekki tekið jafn virkan þátt í leiknum og hann er vanur, vegna hnémeiðsla, en sársaukinn hefur eflaust minnkað við að lyfta siguriaunum íslandsmótsins eftir spennandi keppni. KEFLVÍKINGAR eru bestir, það er ekki spurning. Það sýndu þeir og sönnuðu í hreinum úrslitaleik við nágranna sína frá Njarðvík um íslandsmeistaratitilinn í körfuknattleik í Keflavík á fimmtu- dagskvöldið, þar sem þeir sigruðu, 88:82, eftir að staðan í hálf- leik hafði verið 49:40. Þetta var fimmta viðureign liðanna í úr- slitaviðureigninni og var staðan jöfn fyrir leikinn, 2:2. Þar sem Keflvíkingar höfðu áður tryggt sér deildarmeistaratitilinn tryggðu þeir sér jafnframt rétt á oddaleik á heimavelli í úrsiitakeppninni kæmi sú staða upp. Góð stemmning var í íþróttahúsinu í Kefla- vík þar sem stuðningsmenn beggja liða fjölmenntu og studdu vel við bakið á sínum mönnum. Keflvíkingar hófu leikinn eins og svo oft áður með sannkallaðri leiftursókn og ekki var að sjá að ófarirnar frá síðasta leik þar sem lið- ið var rótburstað í Njarðvík sæti enn í leikmönnum. Nú var allt annar bragur á og sjálfstraustið komið aft- ur. Keflvíkingar náðu strax afger- andi forystu, 14:3, og síðan 21:12 eft- ir fimm mínútna leik. Það virtist koma Njarðvíkingum á óvart hversu ákveðnir Keflvíkingar voru og það kom hik á leik liðsins. Liðin léku ekki hratt í fyrri hálfleik og virtust vera að þreifa fyrir sér og hentaði þessi aðferð heimamönnum greinilega bet- ur. I hálfleik var munurinn níu stig, 49:40, og greinilegt var að Njarðvík- ingar urðu að skipta um gír í síðari hálfleik ef þeir ætluðu sér að ógna sigri Keflvíkinga. Það gekk líka eftir. Njarðvíkingar voru miklu ákveðnari í síðari hálfleik og nú voru það Keflvíkingar sem hikuðu á meðan Njai’ðvíkingai’ röð- uðu niður stigunum. Aður en varði var staðan orðin jöfn, 51:51, og síðan komust Njarðvíkingar yfir, 53:51. Þá fór um stuðningsmenn Keflvíkinga sem vita að Njarðvíkingar eru engin lömb að leika sér við sé sá gállinn á þeim. En þá hófst þáttur Fals Hai’ð- arsonar, sem hreinlega tók leikinn í sínar hendur. Hann setti niður þrjár þriggja stiga körfur með stuttu milli- bili og hvað eftir annað braust hann snyrtilega í gegn um vörn Njarðvík- inga og skoraði en alls setti Éalur 18 stig í síðari hálfleik. Þar með náðu Keflvíkingar að snúa leiknum sér í hag aftur og þegar fimm mínútur voru til leiksloka var staðan orðin 79:68 fyrir Keflavík. „Ég fann mig vel á þessum kafla og því var ekki um annað að gera en að láta vaða,“ sagði Falur eftir leikinn um þennan þátt sinn. Síðustu mínútumar var komin örvænting í leik Njarðvíkinga, þeir reyndu allt hvað þeir gátu til að jafna metin en það gekk einfaldlega ekki upp að þessu sinni. Betra liðið sigraði og em Keflvíkingar vel að Is- landsmeistaratitlinum komnir sem þeir unnu til verðskuldað. Bestu menn Keflvíkinga í leiknum vora þeir Falur Harðarson og Damon Johnson, sem fór hreinlega á kostum og saman settu þeir félagar 51 stig af 88 stigum liðsins. Hjörtur Harðarson og Gunnar Einarsson voru einnig mjög góðir. Fannar Ólafsson, Bh’gir Orn Birgisson og Guðjón Skúlason stóðu líka fyrir sínu. Njarðvíkurliðið var ekki beint að leika illa en betur má ef duga skal og það þurfti einfaldlega að gera bet- ur á móti Keflavík á góðum degi. Brenton Birmingham, Hermann Hauksson, Friðrik Ragnarsson, Teitur Örlygsson og Friðrik Stefáns- son léku allir vel en þá skorti herslumuninn að þessu sinni. Eyjamenn lögðu HB ÍBV vanu færeyska liðið HB í vítaspyrnukeppni í Þórsliöfn í Færeyjum á fimmtudag. Liðin gerðu 2:2 jafntefli í venjulegum leiktúna og voru Færeyingarnir fyrri til að ná forystu í bæði skiptin. Eyjamenn höfðu betur í vítaspyrnukeppni, skoruðu úr öllum spyrnum, en leikinenn HB, sem er bikar- og Færeyjaineistari, brenndu af einni spyrnu. Sindri Grétarsson skoraði fyrir Eyja- menn í venjulegum leiktíma, en hitt var sjálfsmark Færeyinga. Morgunblaðið/Árni Sæberg LEIKMENN Keflavíkur dást að verðlaunagripunum: Damon Johnson, Krist- ján Guðlaugsson, Falur Harðarson og Guðjón Skúlason. Þetta líkar mér Damon Johnson hefur verið sigursæll með Keflvíkingum síðan hann gekk til liðs við þá fyrir tveimur og hálfu ári. A fýrsta tímabilinu unnu Keflvíkingar allt sem í boði var, en veturinn eftir lék John- son með Akurnesingum. -Hann gekk síð- an aftur til liðs við Keflavík í haust og vai’ð aftur Islandsmeistari. En hversu miklu máli skiptir hann að verða Islands- meistari? „Ég er viss um að þetta skiptir mig auðvitað ekki jafn miklu máli og félaga mína í liðinu, því það einhvern tíma kem- ur að því að ég fari héðan. En þetta er mjög gaman, því ég get séð hversu dýr- mætt þetta er fyrir hina leikmennina. + Þetta er nokkuð sem skipar sérstakan sess í huga strákanna. Það er auðséð á því hve æstir þeir verða og hversu tauga- óstyrkir þeir verða fyrir leiki. Þeir líta þetta allt öðrum augum en ég, því þeir ólust hér upp og fylgdust með öðrum vinna þennan titil gegnum árin. Fjöl- skyldurnar veðrast líka allar upp - og auðvitað stuðningsmennirnir. Ég held að þessi úrslitarimma hafi gert íslenskum körfuknattleik margt gott. Keflavík og Njarðvík eru bestu lið landsins, líklega frá upphafi. Grípa þurfti til oddaleiks og í einum leiknum þurfti að framlengja. Þetta líkar mér,“ sagði Damon Johnson. Kemur dag- ur eftir þennan dag Sigurður Ingimundarson stóð við stóru orðin Keflavík- urhjarlad er stærst SIGURÐUR Ingimundarson, þjálfari Kefivíkinga, þótti djarfur er hann sagði í viðtali við Morgunblaðið, eftir fjórða leik liðanna sem lið hans tapaði, að hann væri þess fullviss að Keflvíkingar færu með sigur af hólmi í oddaleiknum. Var hann ekkert hrædd- ur um að skjóta sig í fótinn með þessum ummælum? Nei, í sannleika sagt, ekki. En það hefur ríkt mikil tauga- spenna, bæði á meðan leik stóð og ^■■1 eins fyrr í dag. Tvö Eftir bestu liðin að kljást í Edwin R. úrslitaleik, það er Rögnvaldsson g0tt> alveg eins og það á að vera. Ég hafði bara trú á að þeir myndu ljúka verkinu. Við vorum búnh- að gefa einn bikar frá okkur, en gefum ekki tvo frá okk- ur. Það er deginum ljósara." Hvernig líður þér? „Ég er miklu léttari í lund en áð- an. Ég get alveg sagt þér það. Þetta er náttúrulega frábært, að vinna þennan titil, stærsta titilinn í íslenskum körfuknattleik. Um það snýst þetta. Og þessi leikur, fyrir troðfullu húsi áhorfenda, tvö bestu liðin. Þetta er engin smáauglýsing. Ég er mjög ánægður. Við sýndum það að Keflavíkurhjartað er stærst. Það er sama hvað menn fullyrða úti í bæ eða annars staðar, á sjónvarpsstöðvunum, þá erum við sterkastir. Hvaða máli skipti það ykkur að andstæðingurinn í þessari rimmu kom frá Njarðvík? „Það skiptir dálitlu máh - gerir þetta eilítið sérstakara. Við mæt- um í alla leiki til að vinna og það var í það minnsta ekki leiðinlegra að vinna Njarðvík. Umgjörðin er stærri þegai- þessi lið mætast, meiri spenna í loftinu og við höfð- um virkilega gaman af því að vinna þá - sýna í eitt skipti fyrir öll að við erum bestir. Við höfum verið besta liðið í vetui’ og við fengum að sýna það í þessum leik. Falur Harðarson og Damon Johnson voru allt í öllu þegar nær Finnst eins og ég hafi bmgðist ÉG ER óánægður með niinn þátt í leiknnm og þá sérstaklega í síðari hálfleik þegar ég hitti ekki á ntikil- vægum augnablikum og mér Fmnst eins og ég hafi brugðist á örlagastundu,“ sagði Brenton Birming- ham, hinn geðþekki Banda- ríkjamaður í liði Njarðvík- inga, og vildi kenna sér um tapið. Hann sagði að sér hefði líkað vel í Njarðvík í vetur, en um áfrainhaldið hefði ekki verið rætt. „Ég er tilbúinn til að koma aft- ur næsta vetur því mér finnst að ég eigi eftir óloknu verkefni," sagði Brenton Birmingham. dró leikslokum. Var þetta eitthvað sem þið ákváðuð aðgera? „I svona spennuleikjum, þegar allt er í járnum, eni það alltaf ákveðnir menn sem heimta bolt- ann. Þetta eru tveir menn sem geta unnið leiki fyrir okkur oft. Það þarf ekki að fara mörgum orðum um Fal, hvað hann hefur gert og hvað hann getur. Hann sýndi það svo sannarlega í þessum leik.“ Hvað skóp þennan sigur, öðru fremur? „Við sáum viss þreytumerki hjá Njarðvíkingum í leikhléi, sem við nýttum okkur.“ Hvaða merki voru það? „Það var ýmislegt, sem skiptir ef til vill ekki máli.“ Allt í lagi. „Okkur tókst að stjóma hraðan- um og liðsandinn var mjög skemmtilegur. Viljastyrkur þegsa liðs er mjög mikill.“ Þegai' þið fínnið að þriggja stiga skotin eru að rata rétt leið, hlýtur allur leikur ykkar að verða miklu þægilegrí, ekki satt? „Já, þá er svo erfitt að verjast okkur. Menn hafa verið að velta vöngum yfir því hvaða lið sé best í sókn eða vörn. Staðreyndin er sú að við emm besta varnarliðið og besta sóknarliðið. Við emm ein- faldlega besta liðið.“ Að öllu leyti? „Já, það er ekkert hægt að þrefa umjiað." Eg má til með að nefna einn leik- manna ykkar, Hjört Harðarson. Hann hefur reynst ykkur drjúgur. „Hann er hreint út sagt frábær leikmaður og er með betri bak- vörðum á landinu. Hann skorar ef til vill ekki mikið, en hans vegna fá aðrir oft opin skotfæri. Hann spilar svakalega vöm, er góður í fráköst- um og er okkur mjög þýðingarmik- ill. Hann nær oft boltanum þegar við þurfum á því að halda og tekur mikilvæg fráköst báðum megin á vellinum og gerir ýmsa hluti, sem koma ekki endilega fram í blöðun- um. En hann hefur styrkt liðið gi'íðarlega.“ Alfreð leystur frá störfum hjá Hameln ALFREÐ Gíslason, hand- knattleiksþjálfari hjá Ha- meln, var Ieystur frá störfum eftir að liðið tapaði á heima- velli fyrir Willstatt, 27:24. Leikurinn var fyrri leikur liðanna um sæti í 1. deild í Þýskalandi - steinni leikur- inn fer fram í Willstatt 1. maí. Gústaf Bjarnason skor- aði fimm mörk fyrir Will- statt, en í herbúðum liðsins er einnig Magnús Sigurðs- son. Alfreð átti að liætta hjá Hameln eftir seinni leikinn, en eins og hefur verið sagt frá tekur hann við þjálfun lijá Magdeburg í sumar. Gísli til liðs við Eyjamenn GISLI Guðmundsson, mark- vörður Selfyssinga og ung- lingalandsliðsmaður í hand- knattleik, hefur skrifað und- ir tveggja ára samning við ÍBV, en samningur hans við Selfoss rennur út í sumar. Forráðamenn ÍBV hafa áætl- anir um að Gísli taki við af Sigmari Þresti Óskarssyni, sem er hættur keppni efl ir 24 ár ( meistaraflokki. Handknattleiksdeild ÍBV hyggst heiðra Sigmar Þröst sérstaklega á lokahófi deild- ai’innar, sem lialdið verður í Kiwanishúsinu í Eyjum í kvöld. Óvíst er hvort; Slavisa Rakanovic, frá Jágóslavíu, og Giedreus Cernauskas, frá Litháen, verða áfram hjá ÍBV næsta vetur. Sanmingar þeirra við liðið eru útrunnir og hafa ekki verið endurnýj- aðir. Nýr þjálfari hefur ekki enn verið ráðinn hjá karla- liði ÍBV í stað Þorbergs Að- alsteinssonar. BARMMERKI BIKARAR VERÐLAUNAPENINGAR FANNAR LÆKJARTORGI S:551-6488 Op/ð qolfmót i Leiru sunnudaginn 25. apríl Fyrirkomulag: Punktakeppni 7/8 foraiof. Hámarksforajöf 24 hjá körlum en 28 hjá konum. 10 efstu sætin hljóta verðlaun frá Skráning hafin í síma 421 4100. Golfklúbbur Suðurnesja.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.