Morgunblaðið - 29.04.1999, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 29.04.1999, Blaðsíða 1
95. TBL. 87. ÁRG. FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Reuters FRÉTTAMENN og íbúar bæjarins Surdulica í Serbíu skoða það sem eftir er af húsi sem gjöreyðilagðist þeg- ar sprengja féll á bæinn í árás NATO í fyrradag. 20 Serbar falla í árás NATO Surdulica. Reuters. ATLANTSHAFSBANDALAGIÐ viðurkenndi í gær að leysistýrð sprengja hefði misst marks og sprungið í íbúðahverfi í bænum Surdulica í suðurhluta Serbíu í fyrradag. Embættismenn í bænum sögðu að lík tuttugu óbreyttra borg- ara, þar af sex bama, hefðu fundist í rústum húsa, sem eyðilögðust í sprengjuárásinni, og óttast væri að fieiri hefðu beðið bana. Talsmaður NATO, Jamie Shea, sagði að sprengjan hefði átt að lenda á þjálfunarstöð Júgóslavíu- hers í Surdulica en breytt um stefnu og sprungið um 200-300 m frá skotmarkinu. Erlendir fréttamenn sáu sextán lík eftir árásina. íbúar bæjarins söfnuðust saman til að mótmæla sprengjuárásum NATO og for- dæma leiðtoga bandalagsins, sem þeir kölluðu „fasista“. Eitt íbúðarhúsa bæjarins gjör- eyðilagðist í árásinni og bæjarbúar sögðu að þar hefðu verið sextán manns, aðallega aldrað fólk og böm, sem höfðu leitað skjóls í kjallara hússins. Stór gígur myndaðist þar sem húsið stóð og þök húsa í ná- grenninu eyðilögðust og allar rúður þeirra brotnuðu, að sögn frétta- manna á staðnum. NATO hafði tvisvar áður gert árásir á verk- smiðjur og herbúðir í bænum. Talsmaður júgóslavneska utanrík- isráðuneytisins sagði að um 100 íbúar bæjarins hefðu særst, sex hús eyði- lagst og 100 skemmst. „Þriðjungur bæjarins eyðilagðist," sagði bæjar- stjóri Surdulica, Miroslav Stojilkovic. Stjómvöld í Júgóslavíu hafa sagt að um þúsund óbreyttir borgarar, þeirra á meðal mörg börn, hafi beð- ið bana í árásum NATO frá 24. mars. Ný vísbending um að samstaða ráðamanna í Belgrad sé að bresta Vuk Draskovic vikið úr ríkisstjórn Júg’óslavíu Dregur úr líkunum á að Milosevic fallist á málamiðlun á næstunni Belgrad, Brussel, Berlín. Reuters. Reuters VUK Draskovic á blaðamannafundi í Belgrad eftir að honum var vikið úr embætti aðstoðarforsætisráðherra í gær. VUK Draskovie, aðstoðarforsætis- ráðherra Júgóslavíu, var vikið úr stjóm sambandsríkisins í gær, dag- inn eftir að hann hvatti til þess að er- lent friðargæslulið undir stjóm Sam- einuðu þjóðanna yrði sent til Kosovo. Stjóm Júgóslavíu sagði að Draskovic hefði verið leystur frá störfum vegna þess að hann hefði látið í ljós skoðanir sem væm í andstöðu við afstöðu hennar í Kosovo-deiiunni. Þrír flokks- bræður Draskovic sögðu af sér ráð- herraembættum sínum eftir að hon- um var vikið úr stjóminni. Brottvikn- ingin dregur úr líkunum á því að Slobodan Milosevic, forseti Júgó- slavíu, fallist á málamiðlun í Kosovo- deilunni á næstunni og talsmenn Ati- antshafsbandalagsins sögðu hana til marks um að samstaða ráðamann- anna í Belgrad væri að bresta. Draskovic lýsti þvi yfíi- í fyrradag að Rússar og leiðtogar Vesturlanda þyrftu að semja um að alþjóðlegt her- lið undir stjórn Sameinuðu þjóðanna yrði sent til Kosovo. Hann skoraði einnig á stjómvöld í Belgrad að fall- ast á málamiðlun í deilunni um Kosovo og sakaði ríkisfjölmiðlana í Júgóslavíu um að hafa gefið serbnesku þjóðinni ranga mynd af Kosovo-deilunni og afleiðingum henn- ar. Draskovic vai- einn af helstu leið- togum stjómarandstöðunnar í Serbíu þar til hann gekk í júgóslavnesku stjórnina í janúar. Hann skýrði frá því að þrír flokksbræður sínir - Milan Komnenic upplýsingamálaráðherra, Slobodan Nenadovic, sem fór með innanríkisviðskipti, og Milan Bozic, ráðherra án ráðuneytis - hefðu allir sagt sig úr stjóm Júgóslavíu eftir brottvikninguna. Sérfr'æðingar í júgóslavneskum stjómmálum sögðu að afsögn ráðherranna þriggja myndi ekki hafa mikil áhrif þai- sem valdið væri að mestu leyti í höndum Milos- evic ög ríkisstjómar Serbíu en ekki stjómar júgóslavneska sambandsrík- isins. Draskovie sagði á blaðamannafundi eftir brottvikninguna að hann hefði talið ummæli sín í fyrradag í sam- ræmi við afstöðu júgóslavnesku stjórnarinnar. Bratislav Gmbacic, ritstjóri óháða fréttabréfsins VTP í Belgrad, sagði að viðhorf Draskovic ættu sterkan hjjómgrann hjá serbneskum almenn- ingi, sem hefði fengið nóg af árásum NATO. „Margir venjulegir Serbar töldu að Milosevic væri að nota Dra- skovic til að senda NATO skilaboð. Brottvikning hans hefur gert þær vonir að engu.“ Merki um klofning Rudolf Scharping, vamarmálaráð- herra Þýskalands, sagði brottvikn- ingu Draskovic benda til klofnings meðal ráðamanna Júgóslavíu og sýna að Milosevic hygðist reyna að halda völdunum eins lengi og kostm- væri. „Það er Ijóst að Milosevic hefur einangrast, jafhvel innan eigin stjóm- ar,“ sagði David Leavy, talsmaður Þjóðaröryggisráðs Bandaríkjanna. „Ljóst er að jafnvel æðstu embættis- menn hans telja að hann eigi að hætta kúguninni, hætta blekkingum sínum, hætta að misnota fjölmiðlana og verða við kröfum alþjóðasamfélags- ins.“ „Þetta sýnir að ekkert andóf er lið- ið [í Júgóslavíu]," sagði embættis- maður hjá NATO í Brassel um brott- vikninguna. „Þetta er enn ein vís- bendingin um að samstaða pólitísku leiðtoganna sé að bresta eins og við höfum sagt.“ Ekkert bendir til þess að Milosevic gefi eftir Brottvikning Draskovic bendir til þess að Milosevic hyggist ekki hvika frá andstöðu sinni við friðarskilmála NATO og dregur úr líkunum á því að Rússum og NATO-ríkjunum takist að finna pólitíska lausn á Kosovo-deil- unni á næstunni. Goran Matic, einn af forystumönn- um Sameinaða vinstriflokksins, flokks eiginkonu Milosevic, sagði í viðtali við The New York Times í gær að hann teldi að samkomulag gæti náðst síðar í vikunni um meginatriði hugsanlegs friðarsamnings. Strobe Talbott, aðstoðarutanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, sagði þó ekkert benda til þess að Milosevic myndi gefa eftir og fallast á skilmála NATO íyrir friðarsamningi. Gerhard Schröder, kanslari Þýska- lands, og Kofi Annan, framkvæmda- stjóri Sameinuðu þjóðanna, tóku í sama streng eftir viðræður þeirra í Berlín í gær og sögðu ekkert benda til þess að deilan yi'ði leyst á næstunni. Annan fór tii Moskvu í gærkvöldi og ræðir í dag við Borís Jeltsín for- seta, Jevgení Prímakov forsætisráð- herra og Viktor Tsjernomyrdín, sér- legan sendimann rússnesku stjórnar- innar í Kosovo-deilunni. Gert er ráð fyrir því að Tsjernomyrdín fari til Þýskalands, Ítalíu og Júgóslavíu eftir fundinn með Annan. ■ Árásir NATO/26 PLO frest- ar því að stofna ríki Gaza. Reuters. ÞING Frelsissamtaka Palestínu- manna (PLO) ákvað í gær að lýsa ekki yfir stofhun sjálfstæðs Palest- ínuríkis í næstu vilni, eins og hótað hafði verið, og_ fresta því fram yfir kosningamar í Israel. Palestínski embættismaðurinn Na- bii Amr, sem á sæti á þingi PLO, sagði að ákveðið hefði verið að fram- lengja umræðu um stofnun Palestínu- ríkis fram yftr kosningamai' 17. maí. Yasser Arafat, leiðtogi Palestínu- manna, hafði hótað að stofna Palest> ínuríki 4. maí, þegar friðarviðræðum ísraela og Palestínumanna á að Ijúka samkvæmt bráðabirgðasamningum þeirra. Arafat flutti ræðu á þinginu í fyrradag þar sem hann mæltist til þess að stofnun ríkisins yrði frestað eftir að Bandaríkjaforseti hvatti ísra- ela og Palestínumenn til að reyna að ná varanlegu friðarsamkomulagi inn- an árs. Þing PLO hafði einnig verið varað við því að stofnun Palestínuríkis gæti aukið sigurlíkur Benjamins Netanya- hus, forsætisráðherra Israels, í kosn- ingunum. ------------------ Mikil spreng- ing í Sofíu Sofíu. Reuters. ÖFLUG sprenging varð í gærkvöldi í tveggja hæða íbúðarhúsi í einu af út- hverfum Sofiu, höfuðborgar Búlgaríu, og forseti landsins og innanríkisráð- herrann flýttu sér á staðinn. Yftrvöld í Búlgaríu greindu ekki frá orsök sprengingarinnar en margir íbúar hverfisins sögðust óttast að eitt af flugskeytum NATO í árásunum á Júgóslavíu hefði lent á húsinu, en Sof- ía er um 60 km frá Júgóslavíu. Tals- maður NATO kvaðst ekki vita til þess að sprengingin tengdist árásum bandalagsins. Ekki var vitað til þess að spreng- ingin hefði valdið manntjóni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.