Morgunblaðið - 11.05.1999, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 11.05.1999, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 104. TBL. 87. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 11. MAÍ 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Mótmæli í Peking BANDARÍSKUR hermaður kann- ar skemmdir á byggingu banda- ríska sendiráðsins í Peking í Kína. Mótmælaaðgerðir kínversks almennings hafa staðið undan- farna daga vegna loftárásar NATO á Belgrad þar sem sendi- ráð Kína var eyðilagt. Árásin hefur valdið mikilli reiði í Kína og hafa kínverskir náms- menn og ahnenningur kastað grjóti að sendiráðsbyggingum, brotið glugga, brennt fána og ráðist að vestrænum fréttamönn- um. Að sögn bandarískra embætt- ismanna í gær virtist þó heldur hafa dregið úr mótmælunum. Stjórnvöld í Belgrad segjast ætla að draga hluta hersveita sinna frá Kosovo-héraði NATO tekur yfírlýs- ingum með varúð Belgrad, Moskvu, Brussel, Washington, Peking. Reuters, AP, AFP. YFIRSTJÓRN júgóslavneska hersins tilkynnti í gær að hún hefði skipað hluta hersveita sinna í Kosovo að yfirgefa héraðið og að frekar yrði dregið úr fjölda hermanna þegar samkomulag lægi fyrir um að senda friðargæslusveit- ir á vegum Sameinuðu þjóðanna (SÞ) inn í héraðið. Var ástæðan sögð sú að vopnaðri andstöðu Frelsishers Kosovo (UCK) í héraðinu hefði verið hætt. I yfirlýsingunni kom þó ekki fram hversu margar hersveitir hefðu verið kallað- ar frá Kosovo, hve margar yrðu eftir í héraðinu eða hvort og hvenær Kosovo- Albanar gætu snúið til heimkynna sinna. Reuters Talsmenn Atlantshafsbandalagsins (NATO) og leiðtogar NATO-ríkja lýstu því yfir í gær að þótt brottfor júgóslavneskra hersveita frá Kosovo væri ein af forsendum þess að hægt væri að koma á friði á Balkanskaga gengi yfirlýsing Júgóslavíuhers alls ekki nógu langt. Loftárásum yrði fram haldið ims Slobodan Milosevic Júgóslavíuforseti sættist á öll skilyrði NATO, þ.á.m. að allar vopnaðar sveit- ir Serba hyrfu frá Kosovo. Jamie Shea, talsmaður NATO, sagði á blaðamannafundi í höfuð- stöðvum bandalagsins í Brussel í gær: „Ef það reynist rétt að Milos- evic hafi fyrirskipað brottflutning hermanna frá Kosovo þá er hið sama sönnun þess að áhrifa loftárásanna gætir.“ Sagði hann NATO vera að kanna réttmæti yfirlýsinganna og lagði áherslu á að brottflutninginn yrði að vera hægt að sanna. Joe Lockhart, talsmaður Bandaríkjafor- seta, sagði í gær að ekki væru nein merki um að Serbar hafi hafið brotf> flutning hersveita sinna. Robin Cook, utanríkisráðherra Bretlands, sagði afar mikilvægt að halda núverandi hemaðaraðgerðum til streitu. Ef Milosevic fyndi að NATO væri að slaka á tauginni minnkuðu líkumar á að hann féllist á skilyrði NATO. Þá sagði Madeleine Albright, utanríkisráðherra Banda- ríkjanna, að yfirlýsingin jafnaðist á við „hálfgildings loforð“. Rússnesk stjómvöld fógnuðu hins vegar yfirlýsingu Júgóslaviuhers og sögðu hana mikilvæga forsendu þess Stefnir í verkfall í Færeyjum Þdrshöfn. Morgunblaðið. FLEST benti í gærkvöldi til að verk- fall myndi skella á í Færeyjum þrátt fyrir að náðst hafi aðfaranótt laugar- dags að koma í veg fyrir allsherjar- verkfall er fulltrúar þriggja stærstu verkalýðsfélaga í Færeyjum náðu í gegn kröfu sinni um 9,25% launa- hækkun. Samningaviðræður deiluaðila hóf- ust í gær og fyrir liggur verkfalls- boðun sem taka átti gildi á miðnætti. Ef sáttasemjurum tekst ekki að leysa úr ágreiningi milli verkalýðs- hreyfingarinnar og samtaka fær- eyskra atvinnurekenda, leggur m.a. fiskvinnslufólk niður vinnu. Tals- menn Föroya Arbeiðarafelag hafa sagt að þrátt fyrir að fulltrúar verka- lýðsfélaganna þriggja í Þórshöfn og Klakksvík hafi náð samningum um hækkun tímakaups um sem svarar 70 ísl. krónum, þá standi þeir fast við kröfu sína um 100 kr. hækkun. Vilhelm M. Johannesen, fram- kvæmdastjóri færeysku vinnuveit- endasamtakanna, lýsti því yfir eftir að samkomulagið náðist á laugardag að hann hefði áhyggjur af áhrifunum sem hækkunin kynni að hafa á fær- eyskt efnahagslíf. Barak styrkir stöðu sína fyrir kosningarnar í fsrael Aróður Net- anyahus hefur öfug áhrif Jerúsalem. Reuters. EHUD Barak, frambjóðandi Verkamannaflokksins í Isra- el, hefur aukið nokkuð forskot sitt á Benjamin Netanyahu forsætisráðherra og leiðtoga Likudflokksins. Kosninga- barátta Netanyahus verður æ örvæntingarfyllri og hefur hann gripið til þess, sem ísraelar kalla „dómsdagsáróður". Flest bendir til, að það vinni fremur gegn honum en með. Reuters STUND milli stríða í kosningabaráttunni í Israel. Benjamin Netanyahu forsætisráðherra og Natan Sharansky, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, að tafli. Samkvæmt könnun, sem ísraelsk sjónvarpsstöð birti í gær, fær Barak 45% atkvæða en Netanyahu 37% í fyrri umferð kosninganna nk. mánu- dag og mun sigra hann örugglega í síðari umferðinni 1. júní með 52% á móti 40%. Umferðimar verða tvær ef enginn frambjóðenda fær meira en 50% atkvæða í þeirri fyrri. Þá kom líka fram, að drægju tveir aðrir fram- bjóðendur sig í hlé, þeir Yitzhak Mor- dechai og arabinn Azmi Bishara, myndi Barak sigra Netanyahu auð- veldlega í fyrri umferðinni. Netanyahu hefur gripið til svokall- aðs „dómsdagsáróðurs“ í kosninga- baráttu sinni en þá er m.a. átt við sjónvarpsauglýsingar þar sem notað- ar eru myndir af palestínskum hermdarverkamönnum og samning- um ísraela og Palestínumanna lfkt við samningana i Munchen við nasista í Þýskalandi. Með þessum áróðri von- aðist Netanyahu til að ná til lausa- fylgisins, einkum innflytjenda frá Rússlandi, en það virðist alveg hafa mistekist. Skoðanakönnun 23. apríl sl. sýndi, að Netanyahu hafði þá heldur meira fylgi meðal þessa hóps, 36% á móti 34% hjá Barak, en síðan hefur þetta snúist við. Kosningabaráttan að þessu sinni hefur leitt í ljós sem aldrei fyrr þá gjá, sem er á milli Israela eftir því hvaðan þeir komu. í kosningunum 1996 voru það einkum tveir hópar, sem tryggðu Netanyahu sigur, svo- kallaðir sefardar, gyðingar frá Mið- jarðarhafs- og Miðausturlöndum, og innflytjendur. Að þessu sinni hefur Netanyahu fyrst og fremst hampað sefördum og það hefur ekki fallið í góðan jarðveg hjá rússneskum innflytjendum. Fréttaskýrendur telja, að Netanya- hu þurfi að fá 60% atkvæða rúss- nesku innflytjendanna til að koma í veg fyrir sigur Baraks, sem hafði ekki nema 20% fylgi í þeirra röðum þegar kosningabaráttan hófst. Talið er, að stuðningurinn sé nú kominn í 40%. að hægt væri að finna friðsamlega lausn á átökunum á Balkanskaga. Kínverjar krelja Clinton um formlega afsökunarbeiðni Bill Clinton Bandaríkjaforseti bað kínversk stjórnvöld afsökunar á loft- árás NATO á Belgrad sl. fóstudag þar sem sprengjur féllu á byggingu kínverska sendiráðsins og urðu þrem- ur Kínveijum að bana. Lagði hann þó áherslu á að hemaðaraðgerðir banda- lagsins myndu halda áfram þrátt fyr- ir atvikið. „Eg tel mjög mikilvægt að draga skýra linu miíli sorglegra mis- taka og þjóðemishreinsana að yfir- lögðu ráði,“ sagði Clinton. „Ég hef þegar beðið Jiang forseta og kín- versku þjóðina afsökunar.“ I bréfi sínu til forseta Kína mun Clinton hafa tjáð honum ástæður hemaðaraðgerð- anna í Júgóslavíu og lýst yfir áhyggj- um sínum vegna öryggis bandarískra sendiráðsstarfsmanna. Tang Jiaxuan, utanríkisráðherra Kína, la-afðist þess í gær að Banda- ríkjastjóm bæðist opinberlega afsök- unar á atvikinu og að nákvæm rann- sókn færi fram á tildrögum árásar- innar á sendiráðið, sem NATO hefur sagt að hafi komið til vegna rangra upplýsinga. Richard Shelby, formaður upplýs- inganefndar Bandaríkjaþings, sagði í viðtali við Reuters í gær að úreltar upplýsingar bandarísku leyniþjónust- unnar (CLA) væm ástæða þess að ráðist hefði verið á sendiráðið fyrir slysni. „Mistöldn liggja í gagnagrann- inum,“ sagði Shelby. „Upplýsingam- ar voru úreltar. Ég held að kort frá árinu 1992 hafi verið notað í stað nýrra korta.“ William Cohen, vamar- málaráðherra Bandaríkjanna, stað- festi á blaðamannafundi í Washington að árásin hafi verið gerð með hliðsjón af gömlum kortum af Belgrad. Arásin var tekin fyrir á sérstökum fundi öryggisráðs SÞ í gæmótt að kröfu Kínveija. Haft var eftir fulltrú- um öryggisráðsins eftir fundinn að ekki hafi náðst samstaða um þá harð- orðu yfirlýsingu sem Kínveijar höfðu farið fram á. Friðarviðræður halda áfram Viktor Tsjémómýrdín, sérlegur sendifulltrúi Rússa í Kosovo-deilunni, hélt í gær til Peking til viðræðna við kínverska ráðamenn. Talið er að Tsjérnómýrdín, sem hefur undanfarið rætt við leiðtoga þeirra ríkja sem að stríðinu á Balkanskaga standa, hafi haldið til Kína í þeirri viðleitni að sefa reiði þarlendra stjómvalda vegna árásarinnar á sendiráðið í Belgrad. Að sögn Yasushi Akashi, fyi-rver- andi erindreka SÞ í Júgóslavíu, virð- ast nú einhverjár líkur á að Milosevic sé reiðubúinn að senya um framtíð Kosovo-héraðs á granni friðartillagna sjö helstu iðnríkja heims auk Rúss- lands frá þvi í sl. viku. Akashi, sem átti fund með Milosevic í Belgrad í gær, sagði þó að Milosevic hefði gert það að skilyrði að hugsanlegt friðar- gæslulið í Kosovo yrði léttvopnað og starfaði undir merkjum SÞ. ■ Harðlínuöfl í Kína/bls. 28
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.