Morgunblaðið - 11.06.1999, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 11.06.1999, Blaðsíða 1
129. TBL. 87. ÁRG. FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS • • Oryggisráð SÞ samþykkir að alþjóðlegar hersveitir tryggi frið í Kosovo Serbar yfirgefa Kosovo og hlé gert á loftárásum BRYNVARÐIR bflar serbn- esku öryggislögreglunnar aka framhjá serbneskum hermönn- um á palli hertrukks á leið út úr Kosovo-héraði, skammt frá bænum Kosovska Mitrovica, í gær. Æðsti yfírmaður júgó- slavneska hersins í Kosovo sagði í gær að brottflutningn- um yrði lokið á ellefu dögum, eins og kveðið var á um í frið- arsamkomulaginu sem undir- ritað var á miðvikudag. Belgrad, Köln, London, Moskva, Pristina, Róm, Sarajevo, Skopje, Washington. Reuters. ÖRYGGISRAÐ Sameinuðu þjóðanna samþykkti síðdegis í gær ályktun, sem heimilar alþjóðlegum hersveitum að fara inn í Kosovo- hérað til að tryggja að flóttamenn geti snúið öruggir til síns heima. Ályktunin var samþykkt eftir að NATO hafði tilkynnt að gert yrði hlé á loftárásum á Serbíu, í kjölfar þess að bandalagið fékk staðfest að brottflutningur serbneskra öryggissveita úr Kosovo væri hafínn. Ályktun öryggisráðsins kveður á um að friðargæslusveitimar hafi heimild til að „beita öllum nauðsyn- legum ráðum“ til að verja flótta- menn, um ótiltekinn tíma. Lagt er til að Sameinuðu þjóðirnar beiti sér fyrir því að stofnuð verði nokkurs konar héraðsstjórn fyrir Kosovo, sem veitti íbúunum nokkurt sjálf- ræði. Var ályktunin samþykkt með fjórtán samhljóða atkvæðum, en Kínverjar sátu hjá. Þeir höfðu ásamt Rússum neitað að greiða atkvæði fyrr en NATO gerði hlé á loftárás- um á Serbíu. Fyrstu friðargæslusveitirnar væntanlegar í dag Straumur serbneskra flutninga- bíla með nokkur þúsund hermenn innanborðs, auk loftvarnabyssa, sprengjuvarpa og léttvopna, lá frá héraðshöfuðborginni Pristina áleiðis til serbnesku landamæranna í gær. Haft var eftir æðsta yfirmanni júgóslavneska hersins í Kosovo að brottflutningnum yrði lokið á ellefu dögum, eins og heitið hefði verið. Fyrstu friðargæslusveitir Atlants- hafsbandalagsins (K-FOR) eru vænt- anlegar til Kosovo í dag, að því er Ja- vier Solana, framkvæmdastjóri NATO, skýrði frá í gær. Gert er ráð fyrir að um 50 þúsund hermenn muni starfa að friðargæslu í héraðinu. Utanríkisráðherrar G-8-hópsins, sjö helstu iðnríkja heims og Rúss- lands, samþykktu á fundi sínum í Köln í gær að veita ríkjunum á Balkanskaga efnahagsaðstoð, sem miðaði að því að efla þar lýðræði og færa þau nær öðrum Evrópuríkjum. Sérstök áhersla verður lögð á hjálp við enduruppbyggingu í Kosovo, en Serbar munu ekki fá aðstoð á meðan Slobodan Milosevie er þar við völd. Bill Clinton Bandaríkjaforseti sagði í gær að stund vonar væri runnin upp í Kosovo, og að nú riði á að tryggja varanlegan frið í hérað- inu. I sjónvarpsávarpi seint í gær- kvöldi sagði hann að NATO hefði tekist að afstýra tilraunum Serba til þjóðemishreinsunar í Kosovo. Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, sagðist ekki finna fyrir sigurgleði, aðeins vissu um að réttlætinu hefði verið fullnægt. Milosevic hrósar sigri Slobodan Milosevic Júgóslavíufor- seti lýsti yfir sigri í sjónvarpsávarpi í gær, þar sem Júgóslavar héldu Kosovo-héraði áfram undir sinni stjórn. Hvatti hann þjóð sína til ein- ingar um uppbyggingu landsins eftir átökin. Sagði Milosevic að 462 júgó- slavneskir hermenn og 114 lögreglu- menn hefðu látið lífið í loftárásum NATO. Þessar tölur eru mun lægri en mat NATO, en samkvæmt því féllu yfir 5.000 serbneskir hermenn á fyrstu 72 dögum loftárásanna. Boris Jeltsín Rússlandsforseti fagnaði því að NATO hefði gert hlé á loftárásunum. Sagði hann í yfirlýs- ingu sinni að þetta væri fyrsta skrefið í rétta átt, en nauðsynlegt væri að lýsa því yfir að árásum væri algjörlega lokið. Sagði hann Rússa hafa átt stóran þátt í að samkomu- lag næðist. Rússar senda sveitir undir eigin stjórn Strobe Talbott, aðstoðarutanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, sagði í gær að NATO gæti ekki fallist á að Rúss- ar myndu hafa umsjón með sérstöku svæði innan Kosovo, og sagði það jafngilda uppskiptingu héraðsins. Yfirmaður alþjóðasamvinnudeildar rússneska vamarmálaráðuneytisins, Leonid Ivasjov, sagðist þó enn von- ast til að óskir Rússa þar að lútandi yrðu samþykktar. Aðspurður hvenær rússneskar hersveitir gætu verið komnar til Kosovo svaraði hann að það yrði mjög fljótlega. Igor Sergejev varnarmálaráð- herra hefur lýst því yfir að Rússar gætu sent allt að tíu þúsund her- menn til héraðsins, en hann gerði jafnframt ljóst að þeir yrðu undir rússneskri stjórn, en lytu ekki her- foringjum NATO. Ljóst er að fjár- skortur gæti sett strik í reikninginn fyrir Rússa, en forsætisráðherrann Sergej Stepashín sagði á ríkisstjórn- arfundi í gær að ástand rússneska hersins væri skelfilegt og að hann þyrfti nauðsynlega á frekari fjár- veitingu að halda. Kosovo-Albanar tortryggnir Flóttamenn af albönsku bergi brotnir, sem höfðust við í flótta- mannabúðum nálægt Sarajevo, sögðust í gær ekki treysta loforðum Milosevic um frið og kváðust aldrei framar vilja búa innan um Serba. Þá em serbneskir íbúar Kosovo, sem era um 150 þúsund, sagðir hræðast hefndir af hálfu Kosovo-Albana og Frelsishers Kosovo (UCK) eftir að serbneskar öryggissveitir verða á brott úr héraðinu. Jamie Shea, tals- maður NATO, sagði í gær að þeir myndu njóta verndar friðargæslu- sveita bandalagsins. Hashim Thaqi, leiðtogi Frelsis- hers Kosovo, ítrekaði í gær að skæraliðar myndu ekki ráðast að hersveitum Serba á leið úr Kosovo, en að hreyfingin áskildi sér rétt til að verja sig og aðra íbúa héraðsins. Hann kom sér hjá því að svara spurningum um hvort UCK myndi afvopnast eftir að friðargæslulið kæmi til starfa, eins og hreyfingin skuldbatt sig til að gera í Rambouil- let-samkomulaginu sem gert var í mars. ■ Flókið ferli/28-29 )... Lt: Reuters Búið að telja rúmlega 10% atkvæða í þingkosningimum í Indúnesíu Ottast að tafir leiði til óeirða Jakarta. AP. Lítil þátt- taka í kosn- ingum til Evrópuþings Amsterdam, Kaupmannahöfn, London. Reuters. KOSNINGAR til Evrópu- þingsins fóra fram í Bret- landi, Danmörku og Hollandi í gær. Kosningaþátttaka var dræm í öllum löndunum þremur og áhugi almennings virtist lítill. í Bretlandi hafði kosninga- baráttan að miklu leyti snúist um aðild Breta að Mynt- bandalagi Evrópu, EMU. Engar fregnir höfðu borist um úrslit í gærkvöldi. Helm- ingur Dana mætti á kjörstað og bentu útgönguspár til þess að Venstre fengi fimm af 16 þingsætum, og bætti við sig einu sæti, en að jafnaðarmenn misstu eitt sæti og fengju þrjá menn kjöma. I Hollandi nýttu aðeins 30% landsmanna kosn- ingarétt sinn, og í gærkvöldi leit út fyrir að kristilegir demókratar, sem eru í stjóm- arandstöðu, fengju flest at- kvæði. Önnur ríki Evrópusam- bandsins munu ganga að kjör- borðinu í dag og um helgina og úrslit verða Ijós á sunnu- dag. LÖGREGLA í Jakarta í Indónesíu jók í gær öryggisgæslu þar sem talin er hætta á að til óeirða komi, ef hægagangur við talningu atkvæða úr kosningunum á mánudag veki gran- semdir um svindl. Talningamenn neita því að nokkuð óeðlilegt sé á seyði og segja að þær 113 milljónir atkvæða, sem talið er að greiddar hafi verið, séu að kaffæra þá. Þingkosningarnar sl. mánudag vora fyrstu lýðræðislegu kosningar í Indónesíu í 44 ár. Síðdegis í gær bárust fréttamönnum óopinberar tölur og samkvæmt þeim var þá bú; ið að telja rúmlega 10% atkvæða. I tíu af 25 fylkjum höfðu innan við tvö prósent verið talin. Samkvæmt opinberam tölum er stjórnarandstöðuflokkur Megawati Sukamoputri, PDI-P, með afger- andi forystu, eða hátt í 39% talinna atkvæða. Þjóðvakningarflokkur múslímaleiðtogans Abdurrahmans Wahids er í þriðja sæti með 21% og stjórnarflokkurinn, Golkar, í þriðja sæti með 16 prósent. Röðin er þó önnur samkvæmt óopinberam tölum sem alþjóðlegir ráðgjafai- kjörstjórnar hafa greint frá. Segja þeir Golkar vera í öðru sæti, með 21% atkvæða. Gangi þetta eftir hefur Golkar gert að engu spádóma um að hann myndi bíða afhroð vegna tengsla fyrrver- andi forseta, Suhartos, við flokkinn. Fréttaskýrendur hafa jafnvel leitt að því líkum, að Golkar kunni að fá nægilegt fylgi til þess að geta myndað samsteypustjórn, væntan- lega með smáflokkum múslíma, og haldið völdum. Formaður Þjóð- vakningarflokksins sagði hins veg- ar að Golkar gæti ekki sigrað nema með því að „stýra“ talningu at- kvæða. Hlutabréf féllu í verði á mörkuð- um í gærmorgun, en í fyrradag höfðu þau lækkað um rámlega eitt prósent. Mikil bjartsýni vegna kosninganna hækkaði gengi bréfa á þriðjudaginn um 12 prósent, en fréttaskýrendur segja að mjög hafí dregið úr þeirri bjai'tsýni. „Menn era farnir að verða áhyggjufullir á mörkuðunum vegna þess að þeir vilja ekki að [Golkar] vinni,“ sagði Laksono Widodo, deildarstjóri hjá ING Barings- markaðsfyrirtækinu, við Reuters.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.