Morgunblaðið - 11.06.1999, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 1999 31
Tónlistar-
skóla í sem
flest hverfí
BORGARRÁÐ Reykjavíkur
hefur samþykkt stefnumörk-
un um rekstur tónlistarskóla
og skólahljómsveita í Reykja-
vík, þar sem markmiðið er, að
böm og unglingar eigi aðgang
að tónlistarnámi sem næst
heimili sínu og tónlistarskólar
starfi í sem flestum hverfum
borgarinnar. Einnig er stefnt
að því að boðið verði upp á
forskóla tónlistarskóla í flest-
um grunnskólum sem val eftir
hefðbundinn skóladag.
Listamenn í skólum
LISTAMENN úr ýmsum list-
greinum verða ráðnir til að vinna
með nemendum í grunnskólum
Reykjavíkur á árinu 2000.
Forsvarsmenn Reykjavikur
menningarborgar Evrópu árið
2000 og Fræðslumiðstöðvar
Reykjavíkur hafa undirritað
samning um verkefnið „Lista-
menn í skólum“, en markmið
þess er að auka tækifæri bama
til Ustsköpunar og tjáningar.
f grunnskólum borgarinnar
hafa verið gerðar áætlanir um
verkefni sem listamenn munu
taka þátt í að vinna og er í
fréttatilkynningu getið gerðar
útilistaverka og veggmynda í
skólum, uppsetningar á Ieikritum
og söngleikjum og vinnu við
ljóða- og sögugerð. Auk þess má
nefna hönnun og smíði listaleik-
tækja.
Unnið er út frá einni megin-
hugmynd í hverjum skóla og
hefðbundið skólastarf stokkað
upp meðan á þessari vinnu stend-
ur. I mörgum skólum er hug-
myndin tengd öðmm viðburðum
þessa árs, svo sem afmæli
kristnitöku og landafunda. Sam-
starf er haft við aðra aðila sem
tengjast bama- og unglinga-
starfi, s.s. félagsmiðstöðvar,
íþróttahreyfinguna og foreldra-
félög. Unnið verður að a.m.k. 30
slíkum verkefnum í grunnskólum
borgarinnar á árinu 2000.
GERÐUR G. Ólafsdóttir fræðslustjóri og Þórunn Sigurðardóttir, fram-
kvæmdastjóri M2000, undirrita samning um „Listamenn í skólum."