Morgunblaðið - 16.06.1999, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 16.06.1999, Blaðsíða 1
B L A Ð A L L R A LANDSMANNA 1999 ■ MIÐVIKUDAGUR 16. JÚNÍ BLAÐ KR-ingar ætla að fjölmenna til Eyja MIKILL áhugi er á meðal s(uðningsmanna KR fyrir leik liðsins gegn IBV á laugardaginn. Magnús Orri Schram framkvæmdastjúri KR Sport sagði að fyrirspurnum um sætaferðir á leikinn hefði rignt yfir skrifstofur féiagsins und- anfarna daga. Til að sinna eftirspurninni ætlar félagið að bjóða upp á 70 sæti með flugi. Ennig má gera ráð fyrir að töluverður fjöldi fari með Bakkaflugi og Herjólfi. Magnús Orri sagði að töluverðrar spennu gætti í Vesturbænum fyrir leikinn. „Menn gera sér grein fyrir að þetta er einn af úrslitaleikjum mótsins og að við verðum að sigra ætium við að vinna titilinn.“ Ekki er víst að Sigursteinn Gíslason leiki með á móti ÍBV vegna meiðsla. Það mun skýrast, á æfingu á föstudag. Scanpix/Leif R. Jansson Svíar heimsmeistarar SVÍAR urðu í gærkvöldi heimsmeistarar ( handknattleik er þeir lögðu Rússa, 25:24, í úrslitaleik í Kaíró eftir að leikið illa í fyrri hálfleik og verið 14:12 undir í hálfleik. Fögnuður Svía var mikill í leikslok og að ofan má sjá Staffan „Faxa“ Olsson, Martin Frendsjö og Johan Petterson gleðjast innilega. Nánari umfjöllun um HM er á B3. Hilmar með Fram gegn Leiftri HILMAR Björnsson kemur til landsins frá Svíþjóð á morgun og verður væntanlega í leikmannahópi Pram gegn Leiftri á sunnudag. Arni Þór Freysteinsson, framkvæmda- stjóri Fram, sagði að samningur milli Helsingborgar og Fram væri nánast frágenginn og aðeins forms- atriði eftir. „Eg reikna með að mál- inu verði lokið í dag. Hann ætti því að vera löglegur þegar við mætum Leiftri á sunnudag,“ sagði hann. Hilmar verður væntanlega hjá Fram til 1. september, en þá þarf hann að vera mættur aftur til Hels- ingborgar. Hann spilar því ekki með Fram síðustu þrjár umferðir Lands- símadeildai-innar. Pattstaða í máli Daða IZUDIN Daði Deivic hefur enn ekki fengið félagaskipti úr Þrótti, Reykja- vík, yfir í Val. Hann er samnings- bundinn Þrótti til næstu áramóta og hafa félögin ekki getað komið sér saman um kaupverðið á leikmannin- um. Daði hefur æft með Val frá því Ingi Björn Albertsson tók við þjálf- un liðsins í síðustu viku. „Valsmenn hafa ekki rætt við okkur síðan í síð- ustu viku og því er óbreytt staða í málinu. Eg veit ekki annað,“ sagði Gunnar Jón Yngvason, fram- kvæmdastjóri Þróttar. Samkvæmt heimildum blaðsins mun Daði senda umsókn um félaga- skipti yfir í Val til félagaskiptanefnd- ar KSI í dag. Túnisbúi í mark ÍBV Hibemian vill Ríkharð SOLTAN Majeri, 26 ára túnískur landsliðsmarkvörður, hefur geng- ið til liðs við handknattleikslið ÍBV. Majeri, lék á síðasta tímabili með franska liðinu FC Mulhouse. Hann hefur einnig leikið í Pól- landi, Túnis og Rúmeníu. Hann hefur vegabréf frá tveimur síðast- nefndu löndunum því faðir hans er Túnisbúi og móðir hans Rúmeni. Að sögn Magnúsar Bragasonar, formanns stjórnar meistarflokks karla, setti Majeri sig í samband við forráðamenn IBV um að fá að leika með liðinu. Gísli Guð- mundsson unglingalandsliðsmark- vörður, sem lék með Selfyssingum síðasta vetur, hefur einnig gengið til liðs við ÍBV. Forráðamenn frá skoska knatt- spyrnufélaginu Hibernian eru væntanlegir til viðræðna við norska úrvalsdeildarfélagið Vik- ing í Stavangri um hugsanleg kaup á Ríkharði Daðasyni. Út- sendari frá skoska félaginu hyggst fylgjast með leikmannin- um er Viking leikur gegn Rosen- borg í kvöld. Hibernian, sem Olafur Gott- skálksson leikur með, vann 1. deildina með yfirburðum í vetur og leikur í úrvalsdeild næsta haust. Það er annað félagið sem sýnt hefur áhuga á að fá Ríkharð til liðs við sig á skömmum tíma, en þýska 2. deildar liðið Karls- ruhe hefur einnig lýst yfir áhuga á honum, en útsendari frá félag- inu fylgdist með leikmanninum á deildarleik í Noregi um síðustu helgi. Skoska félagið fékk áhuga á ís- lendingnum er útsendari frá félag- inu, sem var að fylgjast með félaga hans hjá Viking, Auðuni Helga- syni, sá Ríkharð koma inn á gegn Lillestrom og skora tvö mörk. Ríkharður sagðist í samtali við Morgunblaðið ekki eiga von á að fara frá norska liðinu á miðju tímabili, enda stefndi það á þátt- tökurétt í Evrópukeppni, en það gæti breyst ef félagið ætti ekki lengur möguleika á sæti í slíkum keppnum. „Ég hef lítið velt þess- um málum fyrir mér enda samn- ingsbundinn Viking,“ sagði Rík- harður. Hann vildi aðspurður lít- ið segja til um hvort hann hefði áhuga á að ganga til liðs við skoska liðið en sagði að úrvals- deildin í Skotlandi væri ekki hátt skrifuð í Evrópu. Viking tapaði 10 milljónum króna á liðnu rekstrarári og hef- ur sýnt áhuga á að selja leikmenn og ætlar jafnframt að auka hluta- fé félagsins um 60 milljónir króna. Ole Rugland, stjórnarfor- maður Viking, segir í þriðjudags- útgáfu dagblaðsins Stavanger Aftenblad að félagið þoli ekki annað tapár í röð. Blaðið hefur giæint frá því að félagið hafi tap- að um 100 milljónum króna á liðnu ári og hallinn á þessu rekstrarári sé kominn upp í 20 milljónir króna. Fylgst með Rúnari Útsendari frá austurríska liðinu Grazer AK, sem hefur haft auga- stað á Rúnari Kristinssyni leik- manni Lillestrpm, ætlar að íylgj- ast með honum er liðið mætir Válerenga í nágrannaslag í norsku úrvalsdeildinni í kvöld. Rúnar hef- ur fengið góða dóma fyrir leik sinn og er í fjórða sæti í einkunnagjöf dagblaðsins Verdens Gang. KÖRFUKNATTLEIKUR: HELDUR NEW YORK ÁFRAM AÐ KOMA Á ÓVART? / C4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.