Morgunblaðið - 01.07.1999, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 01.07.1999, Blaðsíða 46
46 FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR * + Elskuleg móðir mín, tengdamóðir og frænka, FANNÝ EGILSON, lést 25. júní á Landakoti. Jarðarförin fer fram frá Fríkirkjunni mánu- daginn 5. júlí kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Barnaspítala Hringsins. Guðrún Högnadóttir Ansiau, Charles Ansiau, Erla Egilson, Skarphéðinn Loftsson. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÁGÚSTA AMALÍA FRIÐRIKSDÓTTIR, Dvalarheimili aldraðra, Siglufirði, lést á Sjúkrahúsi Siglufjarðar þriðjudaginn 29. júní. Sigurbjörn Víðir Eggertsson, Katrín K. Karlsdóttir, Friðrik Eggertsson, Una Árnadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR BJARNVEIG GUÐMUNDSDÓTTIR, lést á Dvalarheimilinu Lundi 30. júní. Útförin auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda, Guðrún Birna Garðarsdóttir, Kristinn Guðmundur Garðarsson, Brynja Fríða Garðarsdóttir. + Ástkær systir okkar og frænka, JÚLÍANA EINARSDÓTTIR kjólasaumsmeistari, hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð, sem lést þriðjudaginn 15. júní, verður jarð- sungin frá Digraneskirkju í Kópavogi, föstu- daginn 2. júlí kl. 15.00. Indriði Einarsson, Haraldur Einarsson, Arndís Einarsdóttir, Finnbogi Einarsson og systkinabörn. + Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, EVA SVANLAUGSDÓTTIR, Stórholti 14, sem lést aö morgni sunnudagsins 27. júní á öldrunardeild Landspítalans, verður jarðsungin frá Háteigskirkju föstudaginn 2. júlí kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hennar er bent á Styrktarfélag vangefinna. Svanlaugur Magnússon, Ragnheiður Magnúsdóttir, Friðgeir Hallgrímsson, Eva Friðgeirsdóttir, Bjarni Gunnarsson, Hallgrímur Friðgeirsson, Þorbjörg Dögg Árnadóttir, Sesselja Friðgeirsdóttir, og barnabarnabörn. + Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa, langafa og langalangafa, FRIÐGEIRS ÞORSTEINSSONAR, Árbæ, Stöðvarfirði. Sérstakar þakkir til starfsfólks Hrafnistu í Hafnarfirði fyrir góða umönnun hans. Örn Friðgeirsson, Víðir Friðgeirsson, Þórólfur Friðgeirsson, Guðríður Friðgeirsdóttir, Björn Reynir Friðgeirsson, Ásdís Magnúsdóttir, Hallbera ísleifsdóttir, Nanna Ingólfsdóttir, Kristín Halldórsdóttir, Björn Pálsson, Ásta Gunnarsdóttír og aðrir afkomendur. SIGRÍÐUR SIGURÐARDÓTTIR + Sigríður Sigurð- ardóttir fæddist á Dalshöfða í Hörg- landshreppi 23. des- ember 1911. Hún lést í Reykjavík 20. júní síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Þórunn Kára- dóttir og Sigurður Sigurðsson. Fóstur- foreldrar hennar voru Guðrún Hans- dóttir-Wiium og Sigurður Jónsson á Maríubakka í Fljóts- hverfi. Fóstursystk- ini hennar eru Jón, Sigurður, Sólveig og Lovísa Sigurðarbörn. Hálfsystur hennar (samfeðra) eru Sigþrúður og Elín Sigurðar- Fótmál dauðans fljótt er stigið fram að myrkum grafarreit, mitt er hold til moldar hnigið máskefyrrenafégveit. Þetta upphaf eins hinna mörgu sálma sr. Björns Halldórssonar, prófasts í Laufási, kom í hug minn, þegar bróðurböm mín, Sigrún og Kristján, hringdu til mín sunnudag- inn 20. júní til að segja mér lát móður sinnar og mágkonu minnar, Sigríðar Sigurðardóttur. Þessi fregn kom mér mjög á óvart. Daginn áður kom hún í heim- sókn til mín og dvaldi hjá mér nokkrar klukkustundir. Erindið var að færa mér muni sem hún hafði unnið með eigin höndum og áttu að fara á basar Kristniboðsfélags kvenna á komandi hausti til að afla fjár fyrir kristniboðsstarfið í Eþíópíu og Kenýa. Við sátum lengi og ræddum sam- an þennan dag. Hún virtist vel frísk og rifjaði upp ýmsar gamlar minn- ingar. Nefndi meðal annars hve lánsöm hún hefði verið að fá strax sem hvítvoðungur fóstur og uppeldi á mjög góðu heimili, Maríubakka I Fljótshverfi, þegar leið foreldra hennar lá ekki saman. Hjónin á Maríubakka, Guðrúnu og Sigurð, kallaði hún ætíð mömmu og pabba og börn þeirra systkini sín. Hún talaði líka um þann tíma þegar hún ung að árum kom til Reykjavíkur. Uppeldisáhrifin frá Maríubakka fylgdu henni þá og voru mikiivæg er hún valdi sér braut í lífinu. Að lokum ræddi hún um hve mikilvægt það væri henni nú að geta farið í Hallgrímskirkju hvern sunnudags- morgun og verið þar við guðsþjón- ustu. Þó að hún heyrði ekki alltaf hið talaða orð nógu vel, þá væri söngurinn yndislegur og kirkjan sjálf helgidómur, fullur af friði Drottins. Þessar stundir á sunnu- dagsmorgnum væru sér ákaflega dýrmætar. Að morgni næsta dags, sunnu- dætur. Hálfbróðir hennar sammæðra er Guðvarður Magnússon í Kanada. Maki Sigríðar var Sigurjón Krislján Kristjánsson, f. 10. september 1907, d. 31. júlí 1982. Börn þeirra eru Sigrún Lovísa og Krislján Tryggvi, bæði gift og eiga afkomend- ur. Sigrún á sex börn og fimm barnabörn. Kristján á fjögur börn og þijú stjúpbörn. Útför Sigríðar fer fram frá Ffladelfíukirkjunni í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. dagsins 20. júní, fór Sigríður eins og venjulega gangandi til Hall- grímskirkju, í helgidóminn, þar sem hún naut nærveru Drottins. Sú ganga var hennar síðasta hér á jörð. Meðan guðsþjónustan stóð yf- ir og lesið var guðspjallið um týnda soninn, sem faðirinn fagnaði svo mjög við heimkomu hans, var sál hennar sótt og flutt inn í himin Drottins hennar og frelsara, í þann helgidóm, þar sem guðsþjónustan tekur aldrei enda. Ég var ung að árum er ég sá Sigríði fyrst. Hún og systur mínar kynntust hér í Reykjavík. Sá kunningsskapur leiddi til þess, að hún kom í kaupavinnu norður í Svarfaðardal. Á því sumri hittust hún og Sigurjón bróðir minn oft. Þau kynni leiddu síðar til hjóna- bands. Áður höfðu Svanfríður, systir mín, og Sigríður stundað nám samtímis á biblíuskóla í Ósló. Nokkru síðar fór hún í Kennara- skólann og lauk þar námi vorið 1946. Sama ár giftist hún bróður mínum og tók þá við húsmóður- störfum á bernskuheimili mínu, Brautarhóli í Svarfaðardal. Tvö næstu sumur vann ég sveita- störf á heimilinu og kynntist Sigríði því vel. Samband okkar hefur ætíð verið gott. Hún var hjálpsöm og bóngóð, svo að auðvelt var að leita til hennar, ef ég þurfti á að halda. Sigríður var lagviss með snotra alt- rödd. Spilaði hún dálítið á gítar á þessum árum og á orgelið sitt allt til hinstu stundar. Vegna heilsubrests Sigurjóns urðu þau hjónin að hætta búskap á Brautarhóli vorið 1955 og fluttust þá til Akureyrar. Nokkrum árum seinna lá leiðin suður yfir heiðar. Sigurjón andaðist 31. júlí 1982. Síð- an hefur Sigríður búið til skiptis hjá börnum sínum eða í nánd við þau. Nú síðast var hún búsett hjá dóttur sinni í Reykjavík. Þó að heilsa Sigríðar væri ekki sterk var hún sátt við lífið og lagði EINAR KARLSSON + Einar Karlsson fæddist í Reykjavík 7. mars 1939. Hann lést á Landspítalanum 23. júní síðastliðinn. Foreldrar hans voru Margrét Tóm- asdóttir ljósmóðir og Karl Guðmunds- son, rafvélavirkja- meistari og sýning- arstjóri í Tjarnar- bíói og síðar Há- skólabfói. Þau eru bæði látin. Systkin Einars eru: Ásta 2.1. 1932, látin; Margrét Björk, f. 15.1. 1933, látin; Kristinn, f. 18.2. 1935, járnsmiður í Reykjavík; Tómas, f. 20.2. 1937, látinn, og Ragnar, f. 22.4. 1942, búsettur í Reykjavík. Ötför Einars fer fram frá Fella- og Hólakirkju f dag og hefst athöfnin klukkan 15. Guðrún, f. 6.10. 1926, látin; Guðmundur, f. 2.10. 1927, lést 15. júní síðastliðinn; Hrefna Sig- ríður, f. 25.1. 1930, húsmóðir í Reykjavík; Anna Kristjana, f. Mig langar að minnast vinar míns, Einars Karlssonar. Við kynntumst á heimili fyrir veikt fólk, nánar tiltekið í Norðurbrún 34. Við höfðum sést áður á Kleppsspítalan- bæði sjálfa sig og ástvini sína, börn, tengdabörn og fjölskyldur þeirra, í hendur Drottins. Hún unni málefni hans og vildi leggja því lið á allan þann hátt sem hún gat. Hún bað þess líka að þegar ævidagurinn væri að kvöldi kominn fengi hún að fara héðan án langvarandi þján- inga, helst skyndilega. Sú bæn var heyrð í Hallgrímskirkju sunnudag- inn 20. júní í miðri guðsþjónustu. Þá fékk hún að ganga inn til fagn- aðar herra síns. Skyndileg burtför hennar ætti að vera okkur, fjölskyldu hennar og vinum, áminning um að vera viðbú- in þegar kallið, sem enginn fær um- flúið, kemur til okkar fyrr eða síð- ar. Ég þakka áratuga samfylgd og bið öllum ástvinum hennar og ætt- ingjum blessunar Guðs. Lilja S. Krisljánsdóttir. Mig langar að minnast vinkonu minnar og trúsystur, Sigríðar Sig- urðardóttur. Hún var gift heiðurs- manninum Sigurjóni Kristjánssyni og þau eignuðust tvö börn, Sigi’únu og Kristján, sem nú lifa móður sína. Við Sigríður kynntumst fyrst á okkar unglingsárum er við sóttum kristilegar samkomur bæði í KFUM og í Kristniboðshúsinu Bet- aníu og einnig kom hún oft heim á æskuheimili mitt. Við áttum það sameiginlegt að fá að mæta Jesú Rristi sem lifandi upprisnum Frels- ara strax á æskuárum okkar. Og vita að Jesús þekkti okkur með nafni, við vorum hans heimamenn. Við máttum tala um allt við Jesú, vitandi að hann á allt vald á himni og jörðu og hann heyrir bænakvak- ið okkar. Ein lítil stund með Jesú getur fært allt í lag, Jesús er dýrð- legri en allt. í Jóh. 8:12 sagði Jesús: „Ég er ljós heimsins. Sá sem fylgir mér, mun ekki ganga í myrkri, heldur hafa ljós lífsins." Sigríður skein eins og ljós í heiminum. Hún hélt fast við orð lífsins og var góðilmur Krists. Hún var mikilhæf kona og gædd margvíslegum hæfileikum. Hún söng mjög vel og spilaði á gít- ar, hún söng lofsöngva um náð Guðs og um Jesú nafnið. Hún var bænakona og vitnaði um Frelsara sinn í orði og verki. Dýrðlegast nafn, sem er nefnt hér á jörð. Jesús, Jesús. Trúuðum safnar í hólpinna hjörð, Jesús, Jesús. Það hefir styrkt mig í þrautannadal, það hefur glatt mig í hátíðarsal. Duga mér einnig í dauðanum skal. Jesús, Jesús. (Magnús Runólfsson) Ég kveð Sigríði með þökk fyrir allt og allt. Nú er hún friði skírð í örmum Jesú. Guði sé lof fyrir von- ina um endurfundi heima á himn- um. Ég bið Guð að styrkja og blessa alla hennar ástvini. Kveðja. Anna Guðrún Jónsdóttir. um þar sem við vorum bæði í endur- hæfingu. í fyrstu leist mér ekkert á þennan miðaldra mann en það átti eftir að breytast. Við urðum kærustupar sem átti eftir að endast á sjötta ár. Við höfðum þó alltaf samband og vildum fylgjast hvort með öðru. Síðustu mánuðina hefur Einar dvalið á Kleppsspítala mikið veikur á sál og líkama. Hann bar sig alltaf vel og var hægt að hafa gaman af því að heim- sækja hann og vil ég minnast þess sérstaklega þegar hann átti sex- tugsafmæli í vetur. Honum var haldin stór veisla og bornar fram tertur og allt mögulegt annað. Þar var alveg yndislegt. Ég gleymi þessari stund aldrei meðan ég lifi. Ég vil þakka öllu því góða fólki sem annaðist hann og um leið vil ég þakka fyrir mig og þá hlýju sem mér var sýnd er ég var að fást við hann Einar minn Karlsson. Blessuð sé minning hans. Guðbjörg Albertsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.