Morgunblaðið - 02.07.1999, Blaðsíða 26
26 FÖSTUDAGUR 2. JÚLÍ 1999
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
VERSTA KLÁFFERJUSLYS Í FRAKKLANDI
rekin afhenni
® Grenoble
HAUTESÍALPES
St Etienne®
FRAKKLAND
FRAKKLAND
Pic de Bure (2.712 m)
Klafferja alþjoðlegu I
útvarpsstjörnufræði-
ntnfm irtnrinnnr I ..v . "** M ■ ■
Athugunarstöö
(2,574m)
I
519 m)
Lengd klafferju: 3,9 km
Hraði vagnanna: 4 m/sek
Milli súla 2 og 3: 1.818 m
m)
506
Norður
£
H (1.575 m)
L’Enclus (1.501 m)
Heimtldir:
Devoluy Voyages, IRAM
SPANN
Stjórnarand-
staðan í sæng
með Milosevic?
Belgrad. AFP,, AP, Reuters.
FULLTRÚAR nokkurra stjómar-
andstöðuflokka í Júgóslavíu gáfu í
skyn í gær að þeir myndu fylkja liði
undir stjórn Slobodans Milosevics,
forseta Júgóslavíu, og taka sæti í
stjórn og hefja í sameiningu upp-
byggingarstarf í landinu. Hafði
Momir Bulatovic, forsætisráðherra
Júgóslavíu, boðað til fundar fulltrúa
helstu stjórnarandstöðuflokkanna í
gær um hugsanlega aðild þeirra að
ríkisstjórn.
Þrír af þeim níu flokkum sem boð-
aðir voru til fundarins sniðgengu
hann. Það voru Lýðræðisflokkur
jafnaðarmanna í Svartfjallalandi
(DPS), undir forystu Milos Djuka-
novic, forseta Svartfjallalands, Lýð-
ræðisflokkurinn í Serbíu og Samtök
Ungverja í Vojvodina (SVM).
Engar yfirlýsingar voru gefnar
eftir fundinn um árangur hans, en
þó voru uppi raddir meðal stjórn-
málamanna um að stofna ætti til
nýrrar samsteypustjórnar til að hin-
ir ólíku flokkar gætu tekið saman
höndum við enduruppbyggingu í
landinu eftir loftárásir Atlantshafs-
bandalagsins (NATO).
Milan Komnenic, fulltrúi Endur-
reisnarhreyfingar Serbíu (SPO) á
fundinum, sagði að viðræðurnar
mundu halda áfram í næstu viku.
Ivica Dacic, talsmaður Jafnaðar-
mannaflokksins, flokks Milosevic,
sagði flokkinn hlynntan „endur-
skipulagningu“ í ríkisstjórninni þar
sem allir flokkar á þingi ættu sæti.
Ellilífeyrisþegar
í hóp mótmælenda
Tuttugu
farast í kláf-
ferjuslysi
Hið versta er
orðið hefur
í Frakklandi
Grenoble ( Frakklandi. Reuters.
TUTTUGU manns létust þegar
kláfferja hrapaði 80 metra 1
frönsku Ölpunum í gær. Allir sem
voru um borð fórust, að því er yfir-
völd greindu frá. Ekki er vitað
hvað olli slysinu.
Fólkið í ferjunni var á leið upp í
stjörnuskoðunarstöð sem franskir,
þýskir og spænskir vísindamenn
reka á fjallinu Pic de Bure, í 2.700
metra hæð, yfir ferðamannastaðn-
um Saint-Etienne-en-Devoluy,
nærri bænum Gap. Slysið varð upp
úr klukkan sjö í gærmorgunn að
staðartíma (fimm að íslenskum
tíma).
Níu þeirra sem fórust voru
starfsmenn verktakafyrirtækis,
fimm voru vísindamenn og tækni-
menn hjá IRAM-stjamfræðimið-
stöðinni, að sögn Jean-Marie Bern-
ard, bæjarstjóra í Saint-Etienne-
en-Devoluy. Meðal farþega voru
einnig nokkrir bæjarbúar. AUir
sem fórust voru Frakkar. Kláfferj-
an var ekki notuð til að flytja ferða-
menn.
Þetta er mannskæðasta kláf-
ferjuslys sem orðið hefur í Frakk-
landi, og fjöldi þeirra sem fórst sá
sami og fórnarlamba kláf-
ferjuslyss á Italíu í fyrra, þegar
bandarísk herþota sleit burðarvíra
ferju.
Opinber rannsókn er hafin á or-
sökunum. Jean-Pierre Chevenem-
ent innanríkisráðherra fór á slys-
stað í gær. Hann sagði slysið mikla
ráðgátu, því að ferjan hefði ekki
losnað af burðarvímum, eins og
væri algengasta orsök kláf-
ferjuslysa, og ekki væri heldur útlit
fyrir að burðarvírinn hefði slitnað.
Ferjan var byggð 1980 og var síð-
ast öryggisprófuð í fyrra.
Reuters
FLAK kláfferjunnar á slysstað í gær.
Yaraforseti
Zimbabwe
látinn
Harare. Reuters.
JOSHUA Nkomo, varaforseti
Zimbabwe, lést í gær, 83 ára að
aldri. Banamein hans var krabba-
mein í blöðruhálskirtli.
Nkomo barðist í frelsistríði
Zimbabwe og var einn af helstu
frammámönnum í stjórnmálum
landsins síðustu hálfa öld. Robert
Mugabe, forseti landsins, minntist
hans í gær sem mikils manns, sem
hefði lagt gmnn að sjálfstæði þjóð-
arinnar með striti og erfiði.
Eftir að Zimbabwe hlaut sjálf-
stæði frá Bretum árið 1980 ríkti
óvissuástand í landinu vegna upp-
reisnar ættbálks Nkomo, ndebele,
gegn stjórn Mugabes. Nkomo var
þakkað að samstarf náðist loks ár-
ið 1987 með ndebele-mönnum og
flokki Mugabes, ZANU-PF, eftir
fimm ára átök og var hann þá
skipaður annar varaforseti lands-
ins.
Uppnám hjá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins
Bangemann úthýst
Brussel. Reuters.
SVIÐSLJÓS fjölmiðlanna beindist
í gær enn og aftur að framkvæmda-
stjórn Evrópusambandsins (ESB),
er tilkynnt var um ákvörðun
Jacques Santers, forseta hennar,
um að Martin Bangemann, sem fer
með iðnaðar- og fjarskiptamál í
framkvæmdastjórninni, yrði útilok-
aður frá fundum framkvæmda-
stjórnarinnar í kjölfar þess að
kunnugt varð að hann hygðist
þiggja stöðu í stjórn spænska
símarisans Telefonica.
Tilkynning Bangemanns í fyrra-
dag um að hann hygðist taka til
starfa fyrir Telefonica um leið og
hann hætti störfum hjá fram-
kvæmdastjórninni vakti upp mikla
mótmælaöldu. Gagnrýnisraddir,
ekki sízt úr sölum Evrópuþingsins,
héldu því þegar fram að það færi
engan veginn saman að
Bangemann þægi stöðu hjá fyrir-
tæki sem sú deild framkvæmda-
stjórnarinnar sem hann stýrir hef-
ur ítrekað haft til rannsóknar í
sambandi við hugsanleg brot þess
á samkeppnisreglum ESB. Vildu
sumir draga í efa að þessi ákvörð-
un Bangemanns samræmdist
ákvæðum stofnsáttmála sam-
bandsins.
Nýtt áfall
Deilan er nýtt áfall fyrir opin-
bera ímynd framkvæmdastjórnar-
innar, sem hún á undanförnum
mánuðum hefur verið önnum kafin
við að reyna að bæta, í kjölfar þess
að allir meðlimir hennar sögðu af
sér í febrúar, eftir að óháð sérfræð-
inganefnd sakaði í skýrslu suma
þeirra um frændgæzku og fjár-
málaóreiðu. Hin 20 manna fram-
kvæmdastjórn hefur setið síðan til
bráðabirgða og fer fyrst endanlega
frá þegar ný hefur formlega verið
skipuð.
Greint var frá því í Brussel í
gær, að Santer hefði á fundi með
Bangemann beðið hann um að taka
sér frí frá skyldustörfum á vegum
framkvæmdastjórnarinnar unz
ráðherraráð ESB hefur tekið laga-
lega bindandi ákvörðun um stöðu
hans.
Talsmaður Tony Blairs, forsætis-
ráðherra Bretlands, sagði brezku
ríkisstjórnina fordæma athafnir
Bangemanns og Pauline Green,
leiðtogi þingflokks jafnaðarmanna
á Evrópuþinginu, hvatti til þess að
Bangemann yrði tafarlaust rekinn
úr framkvæmdastjórninni.
Er það mat fréttaskýrenda að
Milosevic sé með þessu að reyna að
koma í veg fyrir að samstaða náist
meðal stjórnarandstöðuflokkanna
sem hugsanlega gæti orðið til þess
að velta stjórn hans úr sessi.
Þjóðernissinninn Vojislav Seselj,
leiðtogi Flokks róttækra, sagði
nauðsynlegt að koma á samstarfi
flokkanna í ríkisstjórn til að „koma í
veg fyrir áætlanir Bandaríkjanna
um að valda enn frekari sundurlyndi
innan Júgóslavíu“.
Mótmæli meðal almennings gegn
Milosevic héldu áfram í gær, en þá
fóru ellilífeyrisþegar í mótmæla-
göngu í Belgrad og kröfðust þess að
Milosevic segði af sér og ríkið borg-
aði þeim útistandandi ellilífeyri.
Hafa stjómarandstöðuhreyfíngar
sem kalla sig Samtök um breyting-
ar sagst munu stofna til fjöldamót-
mæla á næstu fimm vikum gegn
Milosevic.
*
Ovænt
tungumála-
deila í ESB
ÞÝZK stjórnvöld tilkynntu í
gær að þau myndu sniðganga
óformlegan fund iðnaðarráð-
herra Evrópusambandsins
(ESB), sem á að fara fram í
Oulu í Finnlandi um helgina,
vegna þess að ekki stendur til
að túlka á þýzku á fundinum.
Finnar tóku við formennsku í
ráðherraráði ESB um mánaða-
mótin. Reglan hefur verið sú að
túlkað hefur verið á öllum fund-
um á vegum ráðsins á ensku,
frönsku og tungu formennsku-
ríkisins, sem hefur fundarstjórn
með höndum. Á pappírnum að
minnsta kosti hefur þýzka þó
verið viðurkennd sem jafnrétt-
hátt „vinnumál“ ESB og enska
og franska. Síðustu tvö for-
mennskuríki hafa verið þýzku-
mælandi (þ.e. Austurríki og
Þýzkaland), en næstu tvö for-
mennskuríki þar á undan, Lúx-
emborg og Bretland, létu jafn-
an túlka á þýzku.
Þýzk stjórnvöld tóku ofan-
greinda álwörðun eftir að Ger-
hard Schröder kanzlari sendi
Paavo Lipponen, forsætisráð-
herra Finnlands, bréf þar sem
hann fór fram á að á fundum
ráðherraráðsins yrði í for-
mennskutíð Finnlands einnig
túlkað á þýzku.
„Það liggur fyrir skýrt og
skorinort bréf frá kanzlaranum
um að þýzka skuli notuð sem
fundamál," sagði talsmaður
þýzku stjórnarinnar í gær. „Svo
að við munum ekki taka þátt.“
Sagði talsmaðurinn ekkert bóla
á svari frá finnskum stjórnvöld-
um við bréfi Schröders.