Morgunblaðið - 06.07.1999, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚLÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Stjórnarfonnaður Landssímans gagnrýnir Samkeppnisstofnun 1 bréfí tO ráðherra
C3^lu/\JC2
HÆSTVIRTUR viðskiptaráðherra á skilið að fá nokkrar hugljúfar línur
frá þér foringi, ég er lagður í einelti.
Sólinni haldin hátíð
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
ÞESSIR kátu krakkar skemmtu sér vel á Sólhátíðinni á Mánagarði, enda búnir að sjá leikrit, gæða sér á
grilluðum pylsum og appelsínusafa. Eftir allt þetta var tilvalið að skella sér í smáökuferð.
Full búð af nýjum vörum
Tilbúnir eldhústaukappar frá kr. 650 metrinn,
Falleg stofuefni frá kr. 980 metrinn.
Tilbúnir felldír stofutaukappar
frá kr. 1.790 metrinn.
Nýkomið mikið úrval af vaxdúkum.
Einnig undirlagsdúkur í metratali.
Z-brautir & gluggatjöld,
Faxafení 14,
símar 533 5333/533 5334.
Reglugerð um vinnu barna og unglinga
Ákvæðisvinna
á færibandi
er bönnuð
Ný reglugerð um
vinnu bama og
unglinga tekur
gildi 1. september næst-
komandi. Hún er í sam-
ræmi við tilskipun sem
gildir á evrópska efna-
hagssvæðinu um vinnu-
vemd bama og ung-
menna. Magnús Erlings-
son er lögfræðingur
Vinnueftirlits ríkisins.
„Þessi nýja reglugerð
setur ýmis mörk og skil-
greinir betur hvaða vinna
telst hættuleg fýrir böm
og unglinga. Hún afmark-
ar einnig nánar og tak-
markar vinnutíma bama
og unglinga. Barn er sam-
kvæmt reglugerðinni ein-
staklingur undir 15 ára
aldri sem enn stundar
skyldunám. Unglingur er einstak-
lingur sem hefur náð 15 ára aldri
en er undir 18 ára aldri og er ekki
lengur í skyldunámi."
-Hvað með vinnu barna sem
eru undir 13 ára aldrí?
„Börn sem em yngri en 13 ára
mega ekki vinna nema vinnan falli
undir þá skilgreiningu að teljast á
menningar-, íþrótta- eða auglýs-
ingasviði. Sækja þarf sérstaklega
um leyfi fyrir slíkri vinnu hjá
Vinnueftirliti ríkisins. Þegar börn
era orðin 13 og 14 ára er þeim
heimilt að vinna við takmörkuð
störf sem talin era upp í reglu-
gerðinni."
Magnús segir að undir þessi
verkefni falli hefðbundin vinna
eins og hjá Vinnuskólanum svo og
blaðburður.
Hann segir að sérfræðingar
hafi talið varasamt að leyfa blað-
burð með tilliti til álags á börn á
vaxtarskeiði og umhverfisþátta.
„En niðurstaðan varð sú að leyfa
blaðburð en taka ákvæðið til end-
urskoðunar eftir þrjú ár. Þó era í
gildi lægri þyngdarmörk gagn-
vart bömum eða 8-10 kíló há-
mark.“ Hann bendir á að umrædd
reglugerð sé lágmarksreglugerð
og fyrirtæki geti sett sér strang-
ari reglur ef þau vilja.
- Geturðu nefnt dæmi um vinnu
sem samkvæmt reglugerðinni
teist hættuleg fyrír börn og ung-
linga?
„Nærtækt dæmi er færibanda-
vinna sem jafnframt er ákvæðis-
vinna. Slík vinna er nú almennt
bönnuð. Akstur dráttarvéla er al-
mennt bannaður þeim sem er
yngri en 16 ára og er slíkt bundið
við að viðkomandi hafi réttindi.
Þá er vinna með villt eða skað-
vænleg dýr bönnuð. Það var tölu-
vert rætt hvort þessi liður ætti við
hér á landi og hvemig taka ætti á
almennri sveitavinnu. í reglu-
gerðinni er tekið fram að heimilt
sé að vinna með ótamin húsdýr og
böm geta farið í sveit og aðstoðað
við tamningu ef fullorðnir fylgjast
með. Vinna við villta refi eða
minka er á hinn bóg-
inn bönnuð."
- Samkvæmt þess-
ari nýju reglugerð
mega börn ekki lyfta
mjög þungum hlutum.
Hver eru mörkin?
„Mörg böm hafa “““
hlotið slæm álagsmeiðsli þegar
þau byrja í þungri sumarvinnu
eftir skóla. Með viðmiði um
þyngdir er í reglugerðinni verið
að sporna við slíkum tilfellum.
Börn og unglingar mega ekki
lyfta þyngri hlutum en sem vega
25 klló og að jafnaði ekki lyfta
þyngri hlutum en 12 kílóum. Böm
Magnús Erlingsson
► Magnús Erlingsson er fæddur
í Reykjavík árið 1965. Hann lauk
lagaprófi frá Háskóla Islands ár-
ið 1992 og vann í tvö ár á fast-
eignasölu og sem sjálfstætt starf-
andi lögmaður. Hann lauk MA-
prófi í Evrópurétti frá Árósahá-
skóla svo og dönsku lagaprófi ár-
ið 1997. Magnús hefur frá árinu
1998 verið lögmaður og lögfræð-
ingur hjá Viimueftirliti ríkisins.
Eiginkona hans er Sunna Ólafs-
dóttir flugfreyja og eiga þau
þrjú börn 2, 7 og 11 ára. Hann á
eina dóttur.
mega ekki lyfta þyngri hlutum en
8-10 kílóum háð vinnuaðstæðum."
- Hvað með lengd vinnutíma?
Gilda strangar reglur þar um?
„Böm mega vinna frá sex á
morgnana en ekki eftir klukkan
átta á kvöldin og engar undan-
tekningar era veittar frá þeirri
reglu. Unglingar mega vinna frá
sex á morgnana og til klukkan tíu
á kvöldin. Veittar era undanþágur
frá þeirri reglu.“
Magnús segir að vinnutími sé
misjafn eftir aldri barna. „Þegar
þau eru 13 og 14 ára mega þau
vinna 12 tíma á viku með skóla en
35 tíma á viku þegar þau era í fríi.
Þegar krakkarnir era orðnir 15
ára mega þeir vinna 40 tíma á
viku í fríi og þeir sem era búnir
með skyldunám geta unnið 40
tíma á viku með skóla.“
-1 reglugerðinni er sérstakt of-
beldisákvæði. Um hvað fjalhir
það?
„Þar er sérstaklega tekið fram
að vinna í sölutumum, söluskál-
um, myndbandaleigum, á skyndi-
bitastöðum og á bensínstöðvum sé
bönnuð börnum og unglingum
yngri en 18 ára nema þau séu að
vinna með einstaklingum sem eru
eldri en 18 ára. Tilefni þessa
ákvæðis er ofbeldi sem hefur við-
gengist og það má segja að þetta
sé verndarákvæði gagnvart þess-
um hópi.“
- Eru viðurlög ef ekki er farið
eftir þessum reglum?
„Ef um slík tilfelli
verður að ræða fá þau
hefðbundna meðferð
og eru kærð eftir at-
vikum og kunna að
leiða til höfðunar á
refsimáli. Atvinnurek-
endum ber skylda til að meta
áhættu vegna starfa barna og
unglinga. Það er mikilvægt að
mat fari fram og fyrirtæki skoði
hvaða vinnu þau eru að láta ung-
menni inna af hendi og að þau
sinni fræðslu um þær hættur sem
eru samfara störfum bama og
unglinga."
Börn mega
vinna frá sex á
morgnana en
ekki eftir átta
á kvöldin