Morgunblaðið - 06.07.1999, Blaðsíða 33
32 ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚLÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Tft"
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚLÍ 1999 33.
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI
FRAMKVÆMDASTJÓRI
RITSTJÓRAR
Árvakur hf., Reykjavík.
Hallgrímur B. Geirsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
AÐSTÆÐUR
ÞROSKAHEFTRA
AÐSTÆÐUR þroskaheftra á íslandi eru, sem betur
fer, aðrar og betri en þær voru fyrir örfáum áratug-
um. Viðhorf til þroskaheftra hafa breyst mikið í áranna
rás, þannig að nú gætir vart fordóma í þeirra garð, sem
voru landlægir lengi vel. Sem betur fer er fátítt núorðið að
hin mjög svo neikvæðu orð eins og „fáviti“ eða „vangefínn“
séu notuð um þroskahefta, sem því miður voru allt of al-
geng í orðaforða landsmanna, þegar á annað borð var rætt
um þá sem þroskaheftir voru hér á árum áður.
í skemmtilegri grein um þátttöku 37 þroskaheftra Is-
lendinga á heimsleikum hinna sérstöku ólympíuleika í
Norður-Karólínu, sem birtist í sunnudagsblaði Morgun-
blaðsins í fyrradag, kemst hin jákvæða viðhorfsbreyting
sem orðið hefur, hér á landi sem annars staðar, vel til
skila. í litríkri frásögn í máli og myndum er þátttöku þess-
ara 37 Islendinga í stórum íþróttaviðburði þroskaheftra
gerð skil. Gleði og ánægja skín úr hverju andliti, enda má
öllum ljóst vera, að það að taka þátt, er aðalatriði þessara
leika. Sigur er afstætt hugtak og á þessum leikum má til
sanns vegar færa að 7.000 sigurvegarar hafi att kappi hver
við annan.
Fyrstu slíkir heimsleikar voru haldnir árið 1968, en upp-
haf samtakanna er rakið til þess er Eunice Kennedy Shri-
ver, systir Johns Kennedys, Bandaríkjaforseta, opnaði
sumarbúðir fyrir nokkur þroskaheft börn og fullorðna í
garðinum hjá sér í Maryland í Bandaríkjunum, en eitt
Kennedysystkinanna var þroskaheft.
A fyrstu leikunum kepptu 1.000 keppendur frá Banda-
ríkjunum og Kanada, en nú, 31 ári síðar, voru keppendur
7.000 talsins frá 150 löndum og að fjórum árum liðnum er
ráðgert að 7.500 keppendur mæti til leiks á írlandi.
Frú Shriver er nú um áttrætt. Hún ávarpaði keppendur
í Norður-Karólínu og sagði að þátttaka þroskaheftra í
íþróttum hefði leitt af sér verulega viðhorfsbreytingu í
þeirra garð. Þetta er rétt hjá frú Shriver og því ber okkur
að stuðla áfram að hvers konar þátttöku þroskaheftra á
sem flestum sviðum þjóðlífsins, þeim til góðs og okkur öll-
um.
LOKA ÞARF STEININUM
NÝR RÁÐHERRA dóms- og kirkjumála, Sólveig Pét-
ursdóttir, kom að þeim miklu umbótum, sem gerðar
hafa verið á íslenzku réttarfari, á þeim tíma er Þorsteinn
Pálsson gegndi starfi dómsmálaráðherra. Hún segir í við-
tali við Morgunblaðið sl. sunnudag, að hún telji frekari
uppstokkun á sviði dómsmála eða lögreglumála ekki nauð-
synlega á næstunni. Verkefnin framundan snúist fremur
um frekari útfærslu á framkvæmdinni og nefnir Sólveig
sérstaklega fíkniefnamál og unga afbrotamenn, svo og að-
gerðir til að bæta löggæzlu. Um þetta segir ráðherrann
m.a.:
„Ég sé fyrir mér, að frekari tengsl lögreglunnar við
hverfisskóla og barnaverndaryfirvöld geti haft mikil for-
varnaráhrif. Áherzla hefur að undanförnu verið lögð á, að
reglur um útivistartíma séu virtar. Lögreglan hefur fylgst
vel með því, að börn undir 16 ára aldri séu ekki á ferli í
miðbæ Reykjavíkur seint á kvöldin. Ég tel brýnt, að lög-
reglan verði sýnilegri, svonefnt götueftirlit verði aukið.
Þetta mun hvort tveggja í senn auka öryggistilfinningu al-
mennings og hafa varnaðaráhrif gagnvart líklegum af-
brotamönnum.“
Sólveig segist munu leggja áherzlu á, að nýtt fangelsi
verði byggt á kjörtímabilinu en það hefur verið í
undirbúningi. Færir hún fram þau rök, að óheppilegt sé að
vista þá, sem þurfa að sæta gæzluvarðhaldi, á sama stað
og þá, sem afplána dóma. Hún telur, að í nýju gæzluvarð-
haldsfangelsi þurfí að vera greiningarmiðstöð, þar sem
andleg og líkamleg líðan fanga sé metin áður en afplánun
refsivistar hefst. Fyrir nokkrum árum var opnað nýtt
fangelsi að Litla-Hrauni, sem segja má að hafi jafngilt
byltingu á þessu sviði. Nú er tímabært að loka gamla tugt-
húsinu við Skólavörðustíg, Steininum, en það hefur verið á
dagskrá alllengi, enda talið illhæft sem mannabústaður og
lengi legið undir gagnrýni, ekki sízt af fangelsis-
yfirvöldum. Fangelsinu í Síðumúla var á sínum tíma lokað
af sömu ástæðum.
Áfangastaðir í áætlunarflugi Flugleiða 1999-2000
mm
Minneapolis
NewYork
Baltimore •
Washington
Orlando
Halifax.
; Flugtíðni Flug í vlku Sumar Vetur 1999 99-00 (apr.-okt.) (nóv.-mars)
Halifax 3 3
Boston 6 7
HewYork 9 7
Baltim./ Wash 7 7
Minneapolis 6 7
Orlando 2
Keflauik*
Glasgow >
Flugtíðni ÍSS ! Fluo á viku (apr.-okt.) (nóv.-mars)
| Osió 10 8
Stokkhólmur 9 7
I Kaupmannah. 27 19
j Glasgow 7 6
I London 10 12
París 7 3
Amsterdam 7 5
Hamhorg 13
Frankturt 9 5
Miinchen 1
Ziirich 1
Mílanó 3
\ Barcelona 1
London«
c Osló
* •Stokkhólmur
• Kaupmannahöfn
Amsterdam • Hamhorg
París
• Frankfurt
• Munchen
•Zurich
Mílahó
Barcelona
Morgunblaðið/Jim Smart
í FRAMTÍÐINNI er stefnt að daglegu flugi til allra staða innan þessa
leiðakerfis,“ segir Sigurður Helgason.
ferðir og breyt-
á áfangastöðum
Töluverðar breytingar hafa orðið og eru
fyrirhugaðar á áfangastöðum Flugleiða.
Flugi til Orlando hefur verið hætt tíma-
bundið og í haust hættir félagið áætlunar-
flugi til Hamborgar. Ferðatíðni til Kaup-
mannahafnar, Frankfurt og London hefur
verið aukin og í haust hefst í fyrsta sinn
áætlunarflug til Parísar að vetri til.
Sigurður Helgason forstjóri Flugleiða segir
Hrönn Marinósdóttur að breytingarnar
séu í takt við þróun fyrirtækisins og nýja
ímynd sem verið er að skapa.
Fleiri
ingar
LEIÐAKERFI Flugleiða er
að mestu byggt upp þannig
að unnt sé að fljúga á sólar-
hrings fresti á milli áfanga-
staða í Evrópu og Ameríku með við-
komu á Islandi. Flogið er vestur um
haf síðdegis, vélin stoppar í rúma
klukkustund og heldur síðan aftur til
Islands og lendir snemma morguns.
Upp úr klukkan sjö á morgnana halda
vélarnar áfram til Evrópu og þannig
áfram koll af kolli.
Sigurður Helgason forstjóri Flug-
leiða segir að með því að nota sama
leiðakerfi til að þjóna markaði til og
frá Islandi og markaði yfir Norður-
Atlantshafið takist Flugleiðum að
byggja upp nægileg umsvif og hag-
kvæmni S rekstri til að geta att kappi
við mun stærri flugfélög, ekki síst á
markaðnum yfir hafið. „Leiðakerfið er
nú að mestu fullmótað en eftir er að
auka tíðni ferða enn frekar. í framtíð-
inni er stefnt að daglegu flugi til allra
staða innan þessa leiðakerfis. Meginá-
fangastaðirnir eru fjórir í Bandaríkj-
unum og sjö í Evrópu en síðan eru við-
bótarstaðir tveir vestanhafs og sjö í
Evrópu.“
Óánægja vegna afnáms
flugs til Orlando
Áætlunarflug hefur verið lagt niður
til Orlando á Flórída í sumar en und-
anfarin ár hefur félagið flogið þangað
allan ársins hring, tíðari ferðir hafa þó
jafnan verið að vetri til en á sumrin.
Nokkurrar óánægju hefur gætt meðal
íslendinga, sér í lagi sumarbústaða-
eiganda á Flórída, með afnám flugsins
í sumar en íslendingar hafa verið um
25% farþega á flugleiðinni.
Áætlunarflug til Orlando verður
tekið upp að nýju þann 10. september
og í vetur verður flogið ýmist tvisvar
eða þrisvar í viku.
Lengi vel voru Flugleiðir einnig
með áætlunarflug til Fort Lauderdale
en því var hætt fyrir um ári og ekki
eru uppi áætlanir um að hefja það að
nýju.
Ástæða þess að flugi var hætt tíma-
bundið til Orlando er að sögn Sigurðar
fyrst og fremst slæm nýting á vélum
sem þangað hafa flogið. „Mun lengra
er til Orlando en annarra áfangastaða
okkar í Bandarikjunum. Flugið fellur
því illa inn í leiðakerfið þar sem vélin
hefur viðdvöl hátt í sólarhring á flug-
veilinum í Orlando. Slíkt er óhag-
kvæmt á mesta ferðamannatíma árs-
ins. Islenski markaðurinn einn og sér
ber ekki flugið til Orlando. Hagnaður
af fluginu er einnig minni en á öðrum
leiðum félagsins vestanhafs, því til
Flórída fljúga fáir á viðskiptafarrými
auk þess sem vöruflutningar þangað
eru mun minni en til annarra áfanga-
staða okkar í Bandaríkjunum."
Flugleiðir hafa gert samning við
bandarísk flugfélög um flugferðir frá
Baltimore til Flórida. Sigurður segir
að flogið sé daglega og verð svipað og
Flugleiðir hafa boðið þessa leið.
Áfangastöðum Flugleiða mun ekki
fjölga á næstunni en félagið mun strax
í haust auka ferðatíðni á nokkra staði.
í vetur er ætlunin að fljúga daglega til
Boston og Minneapolis en flogið hefur
verið þangað_ fjórum sinnum í viku
undanfarið. í bígerð er einnig að
fjölga ferðum til Halifax úr þremur í
fimm á viku en enn sem komið er
strandar það á tvíhliða loftferðasamn-
ingi milli Kanada og Islands. „Halifax
er eini áfangastaðurinn þar sem við
erum háðir takmörkunum á fjölda
fluga. Þetta hefur haft í för með sér
slæma nýtingu á flugáhöfnum sem
hafa viðdvöl í nokkra sólarhringa í
Halifax. Nokkuð er þó um að áhafnir
séu samnýttar flugi til Boston.“
Hamborgarflug
hættir í haust
Breytingar eru einnig yfirvofandi í
Evrópu. I Þýskalandi er Frankfurt
orðin aðaláfangastaður Flugleiða, í
vetur fjölgar ferðum þangað úr tveim-
ur í fimm á viku en nú í sumar er flog-
ið þangað níu sinnum í viku.
Áætlunarflug milli Kaupmanna-
hafnar og Hamborgar verður lagt nið-
ur 1. nóvember en í staðinn verður
ferðum fjölgað enn frekar til Kaup-
mannahafnar, flogið verður þrisvar á
dag í stað tvisvar eins og nú er.
„Ávinningur Flugleiða af þessu er að
félagið getur nýtt mun betur flugvélar
sem fljúga á þessari leið þar sem hætt
verður við næturdvöl í Hamborg.
Hamborgarflugið hefur frá árinu 1993
verið í samvinnu við SAS og næsta
vetur mun SAS auka flug þangað og
fljúga áfram í nafni félaganna tveggja.
Þjónusta við markaðinn verður því
sem næst óbreytt."
Áætlunarferðum hefur fjölgað til
London, flogið er þangað tíu sinnum í
viku en gera má ráð fyrir að flugin
verði tólf á viku í vetur.
Til Stokkhólms og Óslóar er flogið
beint níu sinnum í viku í sumar og svo
verður áfram í vetur í stað tengiílugs
áður.
I fyrsta sinn í haust hefja Fiugleiðir
áætlunarflug til Parísar, flogið verður
þrjá morgna í viku.
Lúxemborgarflug var aflagt íyrr á
þessu ári þar sem halli var af rekstri
leiðarinnar og afkoman fór versnandi.
Sigurður nefnir að þess í stað hafí ver-
ið ákveðið að fjölga ferðum til Frank-
furtar og Parísar. Það sé mun arðvæn-
legra meðal annars vegna þess að
fleiri ferðist á viðskiptafarrými á síð-
arnefndu leiðunum auk þess sem þá
gefist meiri möguleikar á að ná ferða-
mönnum til íslands.
Sumaráætlunarstaðir Flugleiða eru
Zurich, Barcelona, Mílanó og
Múnchen, þangað er flogið að kvöld-
lagi og fer það eftir eftirspurn hve
lengi fram eftir hausti flogið verður.
Ný ímynd, fleiri við-
skiptaferðalangar
Flugleiðir kynntu í síðustu viku nýtt
útlit sem formlega tekur gildi í haust.
Það er hluti af viðleitni félagsins að
byggja upp nýja ímynd á alþjóða-
markaði. Nýja ímyndin hefur tvö meg-
inmarkmið að sögn Sigurðar, „að auka
ferðamannastraum til Islands og
fjölga þeim farþegum sem fljúga á við-
skiptafarrými. Miðað við stóru flugfé-
lögin í Evrópu - félög á borð við SAS
og Lufthansa - er hlutfall tekna okkar
af farþegum á viðskiptafarrými lágt,
um 17% en á bilinu 50-60% hjá þeim.
Þessu viljum við breyta. Þess vegna,
meðal annars, höfum við hug á að
bjóða daglegar ferðir á áfangastaði
okkar, þannig erum við betur sam-
keppnishæfir. Farþegar sem fljúga á
viðskiptafarrými líta því vonandi á
okkur sem vænlegan kost.“
Sigurður bætir við að þessi stefna
hafí þegar boríð árangur, viðskipta-
ferðalöngum til og frá Skandinavíu
hefur fjölgað um 90% frá í fyrra.
Flugleiðir hafa hins vegar veika
ímynd í útlöndum að mati forstjórans.
„Imyndin er ekki slæm en hún er veik.
Við erum svo að segja óþekkt flugfé-
lag á sumum markaðssvæðum. Með
því að styrkja ímynd félagsins á al-
þjóðamarkaði gerum við okkur vonir
um að vera ekki jafn háðir ferðaskrif-
stofu- og ferðaheildsölukeðjum þar
sem við erum sumstaðar í raun að
kaupa viðskipti með of lágu verði. Við
viljum að viðskiptavinirnir þekki fé-
lagið af afspurn og af raun og sækist
eftir þjónustu þess. Við höfum náð ár-
angri á ákveðnum markaðssvæðum og
til að styrkja okkur enn frekar til
sóknar verðum við að byggja upp
ímyndina.“
Ein flugvélagerð notuð
I samræmi við nýja ímynd og breytt
leiðakerfi hafa Flugleiðir nú selt allar
Boeing 737 400 vélar sínar en leigja
þrjár þeirra aftur af kaupendum.
Flugleiðir gera ráð fyrir að starfrækja
í framtíðinni aðeins eina flugvélagerð,
Boeing 757.
í ár starfrækir félagið 9 farþegaþot-
ur; sex Boeing 757 200 og þrjár
Boeing 737 400. Flugleiðir eiga í fastri
pöntun fjórar nýjar þotur, tvær
Boeing 757 200 sem taka 189 farþega
og tvær stærri Boeing 757 300 fyrir
227 farþega. Félagið fær nýja Boeing
757-200 flugvél þegar á næsta ári og
aðra árið 2003. Tvær stærri Boeing
757 300 þotur bætast í flotann árið
2001 og 2003. Félagið á þess kost að
skila á móti Boeing 737 400 þotum
sem það hefur nú á leigu. „Boeing
737 þoturnar voru seldar af markaðs-
legum ástæðum en einnig kostnaðar-
legum,“ segir Sigurður. „Vöxtur er á
öllum mörkuðum og vélarnar því að
verða of litlar en einnig er mun ódýr-
ara að hafa einsleitan flota, það
minnkar þjálfunarkostnað flugmanna
og tæknimanna sem er verulegur auk
þess sem mun hagkvæmara er að hafa
aðeins einn varahlutalager."
títlendingar borga
fyrir íslendinga
Grunnhlutverk Flugleiða verður
eftir sem áður að þjóna ferðamönnum
til og frá Islandi. Ef félagið sinnti hins
vegar einungis heimamarkaði væru
héðan aðeins fimm ferðir daglega til
Evrópu og ein til Bandaríkjanna.
„80% farþega okkur eru útlendingar
og þetta hlutfall mun væntanlega vaxa
á næstu árum. Það er ástæða þess að
við getum flogið á svo marga áfanga-
staði.“
Alltaf er að verða ódýrara fyrir Is-
lendinga að fljúga frá landinu, að sögn
Sigurðar. „Líklega þess vegna sjá
fleiri flugfélög sér ekki hag í að koma
inn á íslenska markaðinn en raun ber
vitni.“
Fargjöld hafa lækkað hjá Flugleið-
um um 20% að raunvirði sl. 10 ár, að
sögn Sigurðar og þau munu líklega
halda áfram að lækka. „Flugleiðir líkt
og önnur flugfélög eru í stöðugri leit
að aukinni hagkvæmni í rekstrinum.
Undanfarin ár hefur félagið lækkað
kostnað með umfangsmikilli endur-
skoðun á öllum þáttum í rekstrinum,
og með því að stórauka umsvif, sem
dreifir föstum kostnaði á fleiri fram-
leiddar einingar.“
Tilboð fyrir íslendinga
Því hefur verið haldið fram að Is-
lendingum bjóðist ekki eins lág far-
gjöld með Flugleiðum og öðrum. Til
að mynda hafa Bandaríkjamenn keypt
svokölluð víkingafargjöld til Evrópu á
lágu verði. „Þetta hefur einnig
breyst,“ segir Sigurður. „Lág fargjöld
sem oftast eru háð sætatakmörkunum
eru einnig til sölu hér, til að mynda í
Netklúbbi Flugleiða. I Bandaríkjun-
um er markaðurinn þó öðruvísi, þar
eru fargjöld í hámarksverði yfír sum-
ai’ið en mun lægri yfír veturinn. Hér
er hins vegar lítill munur milli árs-
tíða.“
Sigurður segir það rangt að íslend-
ingar borgi niður fargjöld fyrir útiend-
inga, eins og stundum er haldið fram.
„Frá okkar sjónarhóli eru útlendingar
að tryggja að flugþjónusta sé yfirleitt
til og frá landinu. Það eru farþegarnir
sem fara yfír hafið sem tryggja Is-
lendingum bæði ferðatíðni, úrval áætl-
unarstaða og hagstæð fargjöld. Án
þeirra væri þjónustan rýr og afar árs-
tíðabundin. „
Önnur Evrópuflugfélög sjá sér ekki
hag í að byggja upp svipað leiðakerfi
og Flugleiðir, til þess er markaðurinn
hér á landi of lítill, að sögn Sigurðar.
„Stór hluti Evrópubúa þarf að milli-
lenda á leiðinni vestur um haf. Til
dæmis býðst frá Ósló einungis beint
flug til Newark í New Jersey og
Minneapolis. Farþegar sem ætla til
annarra staða vestanhafs þurfa að
millilenda. Fyrir þá sem ætla til
áfangastaða Flugleiða er félagið nú
besti kosturinn vegna þess að milli-
lendingin á íslandi er á stystu flugleið
til austurstrandar Bandaríkjanna og
Kanada.“
Flugleiðum hefur tekist að sögn
Sigurðar að bjóða góðar tengingar
milli norrænu höfuðborganna og
borga í Bandaríkjunum með stuttum
ferðatíma. Það tekur um þremur tím-
um minna að fljúga frá Glasgow í
gegnum ísland og til Boston en að
fara frá sama stað en millilenda í
London. Á sumum ieiðum, er ekkert
flugfélag með styttri ferðatíma en við.
Það er mikilvægt því þá koma Flug-
leiðir fyrst upp á skjáinn hjá ferða-
skrifstofum þegar spurt er um tiltekn-
ar ferðir, til að mynda frá Frankfurt
til Minneapolis eða Halifax.“
Sigurður segir það einnig færast í
vöxt að ferðamenn vilji dvelja á Is-
landi í tvo til þrjá daga á leið vestur
eða til Evrópu. Því er uppbygging
mikilvæg meðal annars á gistirými og
vinsælum ferðamannastöðum eins og
Bláa lóninu en þar eru Flugleiðir
einmitt hluthafar.
Hjartað áfram í Keflavík
Með nýrri ímynd eru Flugleiðir að
sögn forstjórans að skapa þjónustu
sem er kraftmikil, skörp og jákvæð.
„Okkar markmið er að verða sýnilegri
á markaðnum með jákv’æðum hætti.
Leiðakerfið sem og aðrir þættir í
starfí okkar þurfa að vera í stöðugri
endurskoðun. Landfræðileg lega gerir
það að verkum að við liggjum á stystu
flugleið frá Norður-Evrópu til austur-
strandar Ameríku. Hjartað í fyrirtæk-
inu verður því áfram Keflavíkurflug-
völlur.“
Sigurður leggur áherslu á að Flug-
leiðir séu alþjóðlegt fyrirtæki, enska
er til að mynda notuð í samskiptum
milli skrifstofa félagsins í mismunandi
löndum en starfsmenn flugfélagsins
eru af 15 þjóðernum. „Við etjum kappi
við mun stærri flugfélög í Ameríku og
Evrópu og í sumum tilvikum erum við
alþjóðlegri, til að mynda talar starfs-
fólkið í vélunum okkar yflrleitt fímm
tungumál, fleii'i en til dæmis hjá SAS
og Air France. Segja má að Flugleiðir
sé norrænt flugfélag á alþjóðamarkaði
og Islendingar njóta góðs af því.“
Blair reynir að fá sam-
bandssinna á sitt band
Skrúðganga Óraníumanna í Drumcree
------------7-------------------------------------
á Norður-Irlandi fór að mestu leyti friðsam-
----------------------------7---------------------
lega fram á sunnudag. A sama tíma lýstu
þingmenn sambandssinna mikilli andstöðu
við tillögur breskra og írskra stjórnvalda
um næstu skref í friðarumleitunum í hérað-
inu og í grein sinni segir Davíð Logi
Sigurðsson að Tony Blair muni ekki reynast
auðvelt að telja þá á að samþykkja þær.
SAMBANDSSINNAR á
Norður-írlandi höfnuðu
í gær tækifærinu til að
eiga fund með Tony Bla-
ir, forsætisráðherra Bretlands, í
London en Blair hafði boðist til
að funda augliti til auglitis með
öllum tuttugu og sjö manna
þingflokki Sambandsflokks Ul-
sters (UUP) á norður-írska
þinginu um þær tillögur sem
hann og Bertie Ahern, forsætis-
ráðherra írlands, lögðu fram á
föstudag um næstu skref í frið-
arumleitunum í héraðinu. Sögðu
þeir nægjanlegt að David
Trimble, leiðtogi UUP, sinnti
samningaviðræðum við Blair í
samvinnu yið aðra leiðtoga
flokksins. „Ég tel ekki nauðsyn-
legt að við mætum allir líkt og
óþekkir krakkar sem boðaðir
eru á skrifstofu skólastjórans,“
sagði Sir Reg Empey, aðalsamn-
ingamaður UUP.
Fundarboð Blairs var liður í
tilraunum hans til að fullvissa
sambandssinna um að þeim væri
óhætt að leggja blessun sína yfir
framkvæmdaáætlun breskra og
írskra stjómvalda um myndun
Reuters
SKRÚÐGANGA Óraniumanna í Porta-
down á sunnudag fór friðsamlega fram.
heimastjórnar á N-Irlandi og af-
vopnun öfgahópa. Þingmenn UUP
lýstu á laugardag mikilli andstöðu við
áætlun þeirra og mun aðeins einn af
tuttugu og sjö hafa verið hlynntur
þeim. Hundrað manna framkvæmda-
stjórn flokksins kemur saman næst-
komandi föstudag en svo mikil and-
staða er meðal sambandssinna að ólík-
legt er talið að hún muni einu sinni
hafa fyrir því að vísa málinu áfram til
átta hundruð manna miðstjórnar.
Markmið Blairs með herferðinni er
að gera tilraun til að telja sambands-
sinna á að tilnefna sína fulltrúa í
heimastjórn á N-írlandi fimmtánda
júlí næstkomandi, eins og tillögur
þeirra Aherns gera ráð fyrir, þrátt
fyrir að IRA hafi ekki byrjað afvopn-
un. Bertie Ahern lét ekki sitt eftir
liggja og í viðtali við írska ríkisútvarp-
ið (RTE) í gær fór hann fram á það við
leiðtoga IRA að láta frá sér yfirlýs-
ingu sem gæti róað taugar sambands-
sinna varðandi afvopnun samtakanna.
Heimildarmenn The Irish Times töldu
hins vegar ekki harla líklegt að slíkrar
yfirlýsingar væri að vænta.
Drumcree-gangan
fór friðsamlega fram
Þrátt fyrir að blikur væru á lofti
varðandi tillögur Blairs og Aherns
voru menn almennt afar ánægðir með
hversu friðsamlega ganga Óraníuregl-
unnar í Portadown á sunnudag fór
fram. Óttast hafði verið að til átaka
kæmi við Drumeree-kirkju í útjaðri
Portadown vegna þeirrar ákvörðunar
breskra stjórnvalda að meina Óraníu-
mönnum að ganga í gegnum hverfi
kaþólskra á leiðinni inn í miðbæ
Portadown frá Drumcree. Sá ótti
reyndist ástæðulaus þótt að vísu hefðu
brotist út nokkrar skærur á laugar-
dags- og sunnudagskvöld.
Oraníumenn hlutu mikið hrós í gær
fyrir hversu prúðmannlega skrúð-
ganga þeirra fór fram en þegar
göngumenn komu að varnarveggjum,
sem liðsmenn öryggissveita höfðu
reist svo Óraníumenn kæmust ekki
niður Garvaghy-götuna, þar sem búa
nánast eingöngu kaþólikkar, gengu
sex fulltrúar Óraníureglunnar að yfir-
manni öryggissveitanna og afhentu
honum mótmæli sín vegna göngu-
bannsins. Sneru Óraníumenn síðan frá
og efndu í staðinn til mótmælasam-
komu á grasfiötinni við Drumcree-
kirkju.
Margir voru harla undrandi á því
hversu friðsamlega ganga Óraníu-
manna fór fram og ýmsar samsæris-
kenningar komust á kreik, bæði meðal
göngumanna og kaþólskra í Porta-
down, sem voru viðbúnir hinu versta.
Vöknuðu t.d. grunsemdir um að leið-
togar Óraníureglunnar hefðu náð ein-
hverju leynilegu samkomulagi við
stjórnvöld um að þeim yrði leyft að
halda sína leið síðar. Var talið að
bresk stjórnvöld hugleiddu þennan
möguleika, m.a. með það í huga að
létta pólitískum þrýstingi af David
Trimble, en hann er einmitt þingmað-
ur kjördæmisins.
Öllum fregnum af slíku samkomu-
lagi var vísað á bug en leiðtogar Óran-
íureglunnar í Portadown kváðust fyrir
sitt leyti vona að með prúðmannlegri
framkomu gætu þeir talið bresk
stjórnvöld á að endurskoða ákvörðun
sína um að meina göngumönnum að
halda þá leið inn í Portadown, sem
þeir hafa farið allt frá árinu 1807.
Segir í fréttaskýringu The Belfast
Telegraph í gær að Óraníumennirnir
hafí óttast að átök vegna göngunnar
nú myndu endanlega gera út um vonir
þeirra um að fá nokkurn tíma aftur að
ganga niður Garvaghy-götuna. Munu
leiðtogar reglunnar miklar áhyggjur
hafa haft af fregnum þess efnis að
öfgasinnaðir sambandssinnar hygðust
mæta á staðinn og æsa til óeirða.
Trimble sakaði Blair um að hafa
látið blekkjast af Adams
Ljóst er að friðarumleitanir á N-ír-
landi eru komnar í nokkrar ógöngur
takist Blair ekki að fá sambandssinna
til að samþykkja þær tillögur sem
lagðar voru fram á föstudag. Sam-
bandssinnar gagnrýna mjög að heima-
stjórnin verði úr sögunni standi lýð-
veldissinnar ekki við gefin loforð um
afvopnun og segja þeir að með þessu
sé öfgamönnunum gefið neitunarvald.
Áætlanir Blairs og Aherns séu að
þessu leyti „ósanngjarnar" í grund-
vallaratriðum, því svíki öfgamennirnir
loforð sín verði trúum og tryggum
þjónum lýðræðisins refsað um leið,
jafnvel þótt þeir hafi ekkert til saka
unnið. Öfgamönnunum sé því að
mörgu leyti gert hærra undir höfði en
hinum.
Trimble sakaði Blair um helgina um
að hafa látið blekkjast af Gerry Ad-
ams, leiðtoga Sinn Féin, í viðræðum í
Belfast í síðustu viku en Adams full-
yrti þar að vænta mætti afvopnunar
IRA yrði heimastjórnin sett á laggirn-
ar. Trimble skammaði forsætisráð-
herrann fyrir að vera reiðubúinn til að
treysta orðum þeirra Adams og Mart-^r
in McGuinness en sjálfur vill Trimble
aðgerðir en ekki orð, hann telur nauð-
synlegt að IRA sýni í verki að samtök-
in hyggist afvopnast áður en hægt sé
að hleypa Sinn Féin í heimastjórn.
Grunsemdir sambandssinna um að
ekki væri hægt að treysta Sinn Féin
fengu byr undir báða vængi við lestur
leynilegrar greinargerðar af fundi
sem nokkrir fulltrúar Sinn Féin í
Newry áttu í síðustu viku, en skýrsl-
unni var lekið í fjölmiðla um helgina.
Er þar fullyrt að markmið leiðtoga
Sinn Féin í viðræðunum hafi verið að
sá fræjum sundrungar meðal sam-
bandssinna, slá þá út af laginu og
valda óeiningu þeirra á meðal. Jafn-
framt þykir skýrslan vekja efasemdir
um hvort Adams sé fyllilega heiðar- '
legur er hann segist vilja fjarlægja
morðtólin úr stjórnmálum N-Irlands.
Það er hins vegar megininntak rök-
semda Blairs að menn geti aldrei
komist að því hvort Adams og félögum
hans sé alvara fyrr en á það sé látið
reyna. Því verði sambandssinnar að
samþykkja framkvæmdaáætlunina og
fullyrðir Blair að þeir hafí í öllu falli
engu að tapa, reynist loforð lýðveldis-
sinna lygar einar verði ferlinu snúið
við og leit hafin að annarri leið fram á
við. Kosturinn sé að þá viti menn fyrir .
víst að lýðveldissinnar hafi ekki geng-
ið og muni ekki ganga lýðræðinu á
hönd.
Mo Mowlam sögð á förum
úr N-írlandsmálaráðuneytinu
Sú saga gekk fjöllunum hærra í
breskum fjölmiðlum um helgina að Mo
Mowlam, N-írlandsmálaráðherra
bresku stjórnarinnar, yrði færð um
set á næstu vikum og mundi hætta
störfum í ráðuneytinu. I samtali við
The Irish Times harðneitaði hins veg-
ar háttsettur breskur stjórnarerind-
reki þeim fréttum helgarblaðsins The
Sunday Telegraph að túlka bæri
brottfor Mowlam úr embættinu sem
eftirgjöf til handa sambandssinnum.
Sagði hann það „algert kjaftæði“ að
tilfærslan væri hugsuð sem liður í
þeim tilraunum Blairs að fá sam-
bandssinna til að leggja blessun sína
yfir þær tillögur sem hann og Ahem
kynntu á föstudag, og sem fela í sér
myndun heimastjórnar með aðild Sinn
Féin, án þess að IRA hafi áður byrjað
afvopnun. Kröfur sambandssinna um
afsögn Mowlam í síðasta mánuði hafi
frekar minnkað líkur á brotthvarfi
hennar heldur en hitt.
Um nokkurra mánaða skeið mun
það hafa verið öllum Ijóst, sem fylgjast
með málefnum N-írlands, að Mowlam
vill gjarnan snúa aftur til „hefðbund-
inna“ breskra stjórnmála, en hún hef-
ur nú um rúmt tveggja ára skeið haft
hin erfiðu N-írlandsmál á sinni könnu. -
Aðspurð hefur hún að vísu fullyrt að
hún muni halda áfram störfum í
Belfast meðan hún telur sig geta
hjálpað til í leitinni að friði í héraðinu
en jafnframt hefur hún sagt að það sé
í valdi Blairs að færa hana, telji hann
að tími sé til kominn að skipa nýjan N-
Irlandsmálaráðherra.
Það gæti þó reynst þrautin þyngri
fyrir Blair að finna nýtt starf handa
Mowlam sem hún getur sætt sig við.
Skv. skoðanakönnunum nýtur enginn
ráðherra í stjórninni meiri vinsælda
meðal kjósenda en einmitt Mowlam,^
og mun hún örugglega fara fram á að'
fá bitastæðara ráðherraembætti frem-
ur en hitt fyrir þátt sinn í þeim ár-
angri sem páðst hefur í friðaramleit-
unum á N-írlandi undanfarin tvö ár.
Hver tæki við af Mowlam í N-ír-
landsmálaráðuneytinu er óljóst, nafn
Peters Mandelsons hefur verið nefnt í
því sambandi en óvíst hversu mikið er
að marka þær getgátur.