Morgunblaðið - 06.07.1999, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 06.07.1999, Blaðsíða 64
MORGUNBLAÐffl, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI6691100, SÍMBRÉF 6691181 PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRl: KAUPVANGSSTRÆTI1 ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚLÍ 1999 VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK Ung stúlka slasaðist í bflveltu SAUTJÁN ára stúlka meidd- ist talsvert þegar bifreið sem hún ók valt við bæinn Breiða- ból á Svalbarðsströnd laust eftir klukkan 20 í gærkvöld. Kalla þurfti til tækjabifreið slökkviliðs og klippa stúlkuna út úr bifreiðinni. Hún var flutt á slysadeild á Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Akureyri. Slysið var í rannsókn í gær- kvöld og var ekki vitað um frekari orsakir þess, sam- kvæmt upplýsingum frá lög- reglunni á Akureyri. Að sögn læknis á FsA var stúlkan með áverka sem kröfðust aðgerða en hún var ekki talin í lífs- hættu. Bjartar sumar- nætur FÁTT er eins fagurt og íslenskar sumarnætur. í veðurblíðunni á höfuðborgarsvæðinu undanfarna viku hafa aðstæður fyrir róman- tíska næturgöngu verið ákjósan- legar. Það er vohandi að sem flestir hafí nýtt sér það því útlit er fyrir að þykkni upp á næstu dögum. Veðurspá segir von á breytilegri átt með stöku skúrum. Borgarbú- ar verða því að leggja sólgler- augu og stuttermaboli til hliðar og taka regnfötin í gagnið. Norðlenskir nátthrafnar geta hins vegar tekið gleði sína en spáð er léttskýjuðu veðri fyrir norðan næstu daga. Flugleiðir hætta flugi til Hamborgar í haust FLUGLEIÐIR hafa ákveðið . að leggja niður áætlunarflug milli Kaupmannahafnar og Hamborgar 1. nóvember nk. I staðinn verður ferðum fjölgað til Kaupmannahafn- ar og flogið verður þrisvar daglega í stað tvisvar á dag eins og nú er. „Ávinningur Flugleiða af þessu er að félagið getur nýtt mun betur flugvélar sem fljúga á þessari leið þar sem hætt verður við næturflug til Hamborgar," segir Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða. Þá segir Sigurður að áfangastöð- um Flugleiða muni ekki fjölga á næstunni en félagið mun strax í haust auka ferðatíðni á nokkra staði. í vetur er ætlunin að fljúga daglega til Boston og Minneapolis og einnig er í bígerð að fjölga ferðum til Hali- fax úr þremur í fímm í viku. Samnýting leiðakerfís Flugleiðir nota sama leiðakerfi til að þjóna markaði til og frá Islandi og markaði yfir Norður-Atlantshaf- ið. Þannig segir Sigurður að Flug- leiðum takist að byggja upp nægi- leg umsvif og hagkvæmni í rekstri til að geta att kappi við mun stærri flugfélög. „Leiðakerfið er nú að mestu fullmótað en eftir er að auka tíðni ferða enn frekar. I framtíðinni er stefnt að daglegu flugi til allra staða innan þessa leiðakerfis," segir Sigurður. Að sögn Sigurðar verður grunn- hlutverk Flugleiða eftir sem áður að þjóna ferðamönnum til og frá Is- landi. Ef félagið sinnti hins vegar einungis heimamarkaði væru aðeins famar fimm ferðir daglega til Evr- ópu og ein til Bandaríkjanna. „80% farþega okkar eru útlendingar og þetta hlutfall mun væntanlega vaxa á næstu árum. Það er ástæða þess að við getum flogið á svo marga áfangastaði," segir Sigurður Helga- son. ■ Flugleiðir markaðssefja/33 Morgunblaðið/Halldór Sótt um byggða- kvóta fyrir Þingeyri BÆJARRÁÐ ísafjarðar samþykkti í gær að sækja um byggðakvóta fyrir Þingeyri. Umsókn þess efnis verður send Byggðastofnun í dag. Bæjar- stjóri og bæjarráð ísafjarðar fund- uðu með stjórn íbúasamtakanna ^Ataks á Þingeyri í gærkvöld. Halldór Halldórsson, bæjarstjóri ísafjarðar, segir að ákveðið hafi ver- ið að vinna með Atvinnuþróunarfé- lagi Vestfjarða og fleirum að því að koma af stað skammtímaverkefnum á Þingeyri. „Þar má t.a.m. nefna starfsmenntunarnámskeið, en einnig er hugsanlegt að við forgangsröðum fi’amkvæmdum í bæjarfélaginu, þannig að stærri hluti þeirra verði á Þingeyri en annars staðar,“ segir Lokaáfangi stækkunar Kröfluvirkjunar Tvær viimsluhol- ur verða boraðar fpYRJAÐ er að bora tvær vinnsluhol- ur á Kröflusvæðinu. Að sögn Þor- steins Hilmarssonar, upplýsingafull- trúa Landsvirkjunar, eru þessar bor- anir lokahnykkurinn á framkvæmd- um sem hafnar voru fyrir þremur ár- um og miðuðust við að koma virkjun- inni í fulla stærð, 60 megavött. Kröfluvirkjun hefur verið rekin af -^fcllu afli í tæpt ár. Segir Þorsteinn að það hafi alltaf verið ætlunin að bora meira, til að hafa meira en næga gufu til að reka virkjunina með fullum afköstum, því þegar svæðið sé notað dragi smám saman úr kraftinum. Stefnt er að því að þessum borun- um, sem hófust um sl. mánaðamót, verði lokið um miðjan ágúst. Ekki er ætlunin að bora meira við Kröflu næstu árin ef þessar framkvæmdir ganga vel. hann. Halldór segir að einnig verði lögð áhersla á að vinna við endur- bætur á flugvellinum á Þingeyri fari af stað sem fyrst, en samþykkt hefur verið að 30 milljónir renni til þeirra framkvæmda. Ráðgert er að flug- völlurinn þjóni hlutverki varaflug- vallar fyrir flugvöllinn á ísafirði. Halldór segir líklegt að skipuð verði framkvæmdanefnd til að stjórna framkvæmdum á Þingeyri í framhaldinu. Hún verði væntanlega skipuð_ einum fulltrúa íbúasamtak- anna Átaks, einum frá Atvinnuþró- unarfélaginu og einum frá bæjaryfir- völdum. Stjórn Byggðastofnunar hafnaði í gær lánsbeiðni fyrirtækja Rauða hersins svokallaða á Vestfjörðum þar sem skilyrði sem stofnunin setti fyrir lánveitingu þóttu ekki uppfyllt. Er þetta í annað sinn sem stofnunin synjar fyrirtækjunum um lán. Fyrir- tækin, Rauðsíða ehf. á Þingeyri, Bol- fiskur ehf. á Bolungarvík, Rauðfeld- ur ehf. á Bíldudal og Rauðhamar ehf. á Tálknafirði, fóru þess á leit við Byggðastofnun í lok síðasta mánaðar að stofnunin veitti þeim 100-150 milljóna króna lán. ■ Uppfyllti/26 Stakk konu sína með hnífi KARLMAÐUR á fertugsaldri misþyrmdi konu sinni hrottalega í sumar- húsi í Vík aðfaranótt sunnudags eftir að ágreiningur kom upp milli þeirra hjóna. Hann gekk í skrokk á henni og stakk hana m.a. mörgum sinnum með hnífi. Tvö böm voru með hjónunum í húsinu. Að sögn Alex- anders Alexanderssonar lögregluvarðstjóra, sem fór á vettvang, var konan talsvert slösuð er að var komið, m.a. illa útleikin í andliti. Atvikið átti sér stað á fimmta tímanum aðfaranótt sunnudags. Fólkið gisti í sumarhúsi í Vík í Mýrdal um helgina en býr á höfuð- borgarsvæðinu. Konan var flutt með sjúkrabíl á slysadeild Sjúkrahúss Reykjavíkur í Fossvogi og lá þar enn í gær. Hún er þó ekki talin í lífshættu. Árásarmaðurinn var handtekinn og færður í fangageymslur lögregl- unnar á Selfossi þar sem hann var látinn sofa úr sér vímu áður en yfir- heyrslur yfir honum hófust. Stóðu þær sunnudag og fram á aðfaranótt mánudags. Málið er enn í rannsókn en telst þó liggja nokkuð ljóst fyrir, að sögn lögreglu. Með hjónunum í húsinu voru tvö börn og eiga þau annað þeirra. Að sögn lögreglu munu bömin ekki hafa vaknað við atburðinn. Þeim var komið fyrir í umsjá barnaverndar- fulltrúa í Vík þar til aðstandendur í Reykjavík náðu í þau. Drengur á hjóli fyrir bfl EKIÐ var á átta ára gamlan dreng sem var á reiðhjóli í Stóragerði á Akureyri um klukkan 18.30 í gærkvöld. Svo virðist sem drengurinn hafi hjólað út af göngustíg og í veg fyrir bifreiðina, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Ákureyri. Drengurinn var hjálmlaus en varð aðeins fyrir smávægi- legum meiðslum, og telst það lán í óláni að sögn lögreglu. Ekki er talið að bifreiðinni hafi verið ekið of hratt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.