Morgunblaðið - 10.07.1999, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 10.07.1999, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 1999 23 NEYTENDUR Verðkönnun NS og ASÍ-félaga á höfuðborgarsvæðinu á gistingu á Vestfjörðum Allt að 227% munur á gistingu í uppbúnu rúmi Hvað kostar gistingin á gistiheimilum og hótelum á Vestfjörðum? Gististaðir Uppbúið rúm fyrir einn Uppbúin rúm fyrir 2 2ja m. herb. Svefnpoka- pláss í rúmi Morgun- verður Aðgangur að eldhúsi Finnabær, Bolungarvík 1.500 kr. 2.600 kr. 950 kr. 700 kr. Farfuglaheimilið, Önundarfirði 1.950 kr. 3.900 kr. 1.450 kr. 600 kr. já Bjarkarholt, Barðaströnd 2.200 kr. 4.400 kr. 1.200 kr. 600 kr. já Breiðavík, Barðaströnd 1.600 kr. 3.200 kr. 1.300 kr. 700 kr. já Stekkjarból, Patreksfirði 2.400 kr. 3.200 kr. 1.300 kr. 700 kr. já Borgarbraut, Hólmavík 2.280 kr. 3.600 kr. 1.250 kr. já Torfnes, ísafirði 4.900 kr. 6.900 kr. 1.700 kr. 800 kr. Gistih. Áslaugar, ísafirði 3.300 kr. 4.600 kr. 2.000 kr. 850 kr. já Gistih. Erlu, Patreksfirði 3.000 kr. 5.000 kr. 1.200 kr. 500 kr.* (*M. v. innif. í gist.) Reykjanes v. ísafjarðardjúp 3.100 kr. 4.600 kr. 1.400 kr. 700 kr. Hamraborg, Tálknafirði 2.500 kr. 3.800 kr. 1.250 kr. 600 kr. já Skrúðhamrar, Tálknafirði 3.000 kr. 4.500 kr. 1.200 kr. 500 kr. Staðarskáli, Hrútafirði 3.600 kr. 4.900 kr. 1.400 kr. 740 kr. Gistiheimilið Norðurfirði 1.300 kr. já Hótel Laugarhóll, Bjarnarfirði 2.500 kr. 5.000 kr. 1.500 kr. 750 kr. já Hótel Djúpavík, Djúpuvík 3.700 kr. 4.800 kr. 1.400 kr. 750 kr. Hótel ísafjörður, ísafirði Hótel Flókalundur, Barðastr. Hótel Bjarkalundur, Barðastr. Hótel Edda, Núpi, Dýrafirði 8.800 kr. 5.800 kr. 4.000 kr. 4.100 kr. 10.600 kr. 8.300 kr. 5.100 kr. 5.200 kr. 1.500 kr. 1.500 kr. 1.450 kr. Innifalinn 750 kr. 700 kr. 750 kr. & Eitt hótel allan ársins hring MINNST kostar gisting á gisti- heimili í uppbúnu rúmi fyrir einn 1.500 krónur í Finnabæ í Bolungar- vík en dýrust er hún á 4.900 krónur í Torfnesi á Isafirði. Það munar því allt að 227% á gistingu fyrir ein- stakling í uppbúnu rúmi á gisti- heimili á Vestfjörðum. Þetta kemur fram í verðkönnun á gistiheimilum á Vestfjörðum sem Samstarfsverkefni Neytendasam- takanna og ASÍ félaga á höfuðborg- arsvæðinu létu gera nýlega. Þá kom í ljós að morgunverður er einungis innifalinn á einu gistiheim- ili og einu hóteli en hann kostar annars aukalega á bilinu 500-850 krónur. Um símakönnun var að ræða og ekki var því lagt mat á gæði aðbún- aðar né þjónustustig sem er mjög mismunandi eftir stöðum. Að sögn Agústu Yrar Þorbergsdóttur, verk- efnisstjóra samstarfsverkefnisins, bjóða einungis tveir staðir upp á herbergi með baði, Ferðaþjónustan Reykjanesi við ísafjarðardjúp og Staðarskáli Hrútafírði. Þá segir hún að hótel verði að hafa 75% her- bergja með baði tO að geta kallað sig Hótel og hún bendir á að Hótel Laugarhóll og Hótel Djúpuvík standist ekki þær kröfur og falli því undir gistiheimili. Aðstaðan mismunandi Aðstaðan á gistiheimilunum er mismunandi. Að sögn Agústu er gistihúsið Finnabær í Bolungarvík rekið samhliða veitingastað, baðað- staðan er á sömu hæð og gistiher- bergin og einnig er boðið upp á setustofu með sjónvarpi. Hjá Far- fuglaheimilinu (Youth Hostel) Ön- undarfirði er baðaðstaða í boði og aðeins þeir sem eru í svefnpokagist- ingu fá aðgang að eldhúsi. „Bjarkarkot á Barðarströnd er með baðaðstöðu á sömu hæð og herbergin, setustofu með sjónvarpi en svefnpokapláss er á dýnum í skólastofum fyrir hópa. Aðgangur er að eldhúsi. Breiðavík Barða- strönd er með baðaðstöðu á sömu hæð og flest herbergin, setustofu með sjónvarpi, aðgang að eldhúsi og geta gestir látið þvo af sér. A Stekkjabóli Patreksfírði er baðað- staða á sömu hæð og gistiherberg- in, setustofa með sjónvarpi og boð- ið upp á aðgang að eldhúsi. Hjá gistihúsinu Borgarbraut Hólmavík er baðaðstaðan á sömu hæð og gistiherbergin, boðið er upp á þvotta- og eldhúsaðstöðu og svefn- pokapláss á dýnum.“ Ágústa segir að á sumargisti- staðnum Torfnesi ísafírði sé veit- ingarstaður rekinn samhliða gisti- heimilinu. Baðaðstaða er á sömu hæð og gistiherbergin, setustofa með sjónvarpi, tjaldstæði og svefn- pokapláss er í skólastofum. „Hjá Gistiheimili Áslaugar er baðaðstaðan á sömu hæð og her- bergin, setustofa er með sjónvarpi og aðgangur að eldhúsi. Hjá gisti- heimili Erlu á Patreksfirði er bað- aðstaðan á sömu hæð og gistiher- bergin og setustofan með sjón- varpi. Reykjanes við Isafjarðardjúp er með veitingastað samhliða gisti- heimilinu, baðaðstaða er á sömu hæð og herbergin, mörg herbergi eru með baði og setustofan er með sjónvarpi. Einnig eru í boði tjald- stæði og sumarhús. Hjá Hamraborg Tálknafirði er baðaðstaðan á sömu hæð og her- bergin, setustofan er með sjónvarpi og aðgangur er að eldhúsi og til þvotta. Hjá Skrúðhömrum á Tálknafírði er veitingastaður í tengslum við gistiheimilið, baðað- staðan er á sömu hæð og herbergin og setustofan er með sjónvarpi. I Staðarskála Hrútafirði er veit- ingastaður rekinn samhliða gisti- heimilinu, öll herbergi eru með baði og þar eru líka sameiginlegar setu- stofur og þvottaaðstaða. Gistiheimilið Norðurfirði býður baðaðstöðu og aðgang að eldhúsi svo og svefnpokapláss á dýnum. Hótel Laugarhóll Bjarnarfirði rek- ur veitingastað í tengslum við gistiheimilið. Setustofan er með sjónvarpi og baðaðstaða í sundlaug við hliðina á gistiheimilinu. Svefn- pokapláss á dýnum er í boði fyrir hóga. Á Hótel Djúpuvík er rekinn veit- ingastaður í tengslum við gistiheim- ilið, baðaðstaða er á sömu hæð og herbergin og setustofan er með sjónvarpi." Ágústa segir að þegar komi að hótelum sé Hótel Isafjörður eina Hótelið sem er rekið allt árið. „Hótel Flókalundur er opið 25. maí til 12. september og Hótel Edda, Núpi, er opið frá 17. júní til 31. ágúst. „Einnig bjóða gistiheimilin upp á svefnpokapláss á dýnum þar sem allt að 25 manns eru í hverju her- bergi/stofu og er það ódýrari gist- ing en svefnpokapláss í rúmi.“ Hún segir að á öllum stöðum séu kynningarbæklingar um afþrey- ingu, verslun og þjónustu. 7 W / w//‘ % ékSF/y . að þad þarf 2,5 kg af að feo///nn af Nescafé kaff'baunum til þess að feosfar ade/ns um 10 kr bua til 1 kg. af Nescafe. gardagar lau. 10.00-18.00 KRINGMN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.