Morgunblaðið - 10.07.1999, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 1999 53*..
FÓLK í FRÉTTUM
STÚLKURNAR frá Eistlandi eru fimar með hringina.
DANS og gleði í fyrirrúmi í gær þegar Ofurkrakkarnir sýndu í Kringlunni.
Fimleikahópurinn fljúgandi í Háskólabíói
Ofurkrakkar æfa
ánægjunnar vegna
AÐ VERÐUR kátt á hjalla í
Háskólabíói í dag og á morg-
un þegar hinn ótrúlegi fim-
leikahópur „Fljúgandi, danskir of-
urkrakkar“ koma fram. Lone Godb-
ersen, framkvæmdastjóri hópsins,
kom til landsins með hópn-
um í gær ásamt syni sínum
Lars sem er Ofurkrakki þótt
hann sé orðinn 21 árs.
„Flestir í hópnum eru á
aldrinum 8-17 ára en einu
sinni var strákur með okkur
þar til hann varð 27 ára. Þá
kom hann til mín og sagði:
„Lone, ég verð að hætta, ég
er ekki lengur krakki. Svo
er ég líka að fara að gifta
mig“. En þjálfarar hópsins
eru flestir fyrrum Ofur-
krakkar svo að hann þurfti
ekki að kveðja hópinn al-
veg,“ sagði Lone sem var
þreytt eftir flugið því hópur-
inn var að koma frá hátíð í
Halifax á Nova Scotia. „Við héldum
tíu sýningar á jafnmörgum dögum.
í hópnum eru 44 krakkar en bestu
23 eru með okkur í för núna svo að
sýningin hér á íslandi verður alveg
frábær." Einnig eru með í för fimm
fimleikastúlkur frá Eistlandi og
þjálfari þeirra, Mall Kalve. Hóparn-
ir sýndu báðir í Halifax og því var
tilvalið að þeir kæmu saman hingað
til lands.
Ofurkrakkamir hafa ferðast víða
um heim og þykja fimleikafólk á
heimsmælikvarða. Þau eru öll bú-
sett í Árósum og því óhjákvæmilegt
að velta fyrir sér hvaða ástæður
liggi á baki því að svo margir færir
fimleikamenn séu frá sama bænum.
„Það er hefð fyrir fimleikum í Árós-
um,“ segir Lars sem hefur verið Of-
urkrakki frá því hann var sjö ára. „í
fimleikafélaginu okkar eru um 700
manns. Eg held að málið sé að við
keppum aldrei. Við látum krakkana
aldrei keppa og það virðist skila sér
í mun betri árangri. Það er nóg fyr-
ir þau að hugsa um að læra og að
reyna að sýna framfarir. Ef þau
væru að keppa líka myndi það
trufia þau. Ef einhver dettur í atriði
hjá okkur missar hann engin stig.
Það er allt hluti af sýningunni."
Sýning Ofurkrakkanna er engin
venjuleg fimleikasýning heldur vel
útfærð og lífleg skemmtiat-
riði þar sem krakkamir
syngja, dansa og leika listir.
„Við höldum um 30 sýningar
á ári og höfúm farið víða.
Þetta er í fyrsta skipti sem
við komum til f slands og við
hlökkum til að sýna ykkur
hvað í okkur býr,“ sagði Lo-
ne sem er mjög stolt af
krökkunum sínum. Sjálf hef-
ur hún verið í fimleikum frá
blautu bamsbeini. „Krökk-
unum finnst þetta rosalega
gaman. Við pössum að þau
æfi aðeins í 6-7 klukkustund-
ir á viku svo að þau verði
ekM leið,“ bætti hún við.
í Eistlandi er því öðm vísi
farið, að sögn Mall. „Við æfum oftar
og keppum enda emm við ekki
skemmtikraftar eins og Ofúrkrakk-
amir,“ sagði hún. íslenskar fim-
leikastúlkur úr Stjömunni munu
líka koma fram á sýningunni í Há-
skólabíói um helgina. „Þetta verður
alþjóðleg og spennandi sýning,"
sagði Lone að lokum með bros á vör.
Sýningamar hefjast kl. 14:30 báða
dagana.
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
LONE og Lars Godbersen frá Danmörku
og Mall Kalve frá Eistlandi.
Ö\^turgalmn
Snúðjuvegi 14, C/(ópavqgi, sími 587 6080
Dans- og skemmtistadur
í kvöld leika
Hilmar Sverrisson og
Anna Vilhjálms
Opið frá kl. 22—3
Næturgalinn — alltaf lifandi tónlist
Qt!ðiLe t SuM iD/er
áMcD NaidSI
•7í bikar
aðeins
Austurstræti 20
Suðurlandsbraut 56
íslenskur gæða rjómaís eftir sér-
uppskrift McDonald’s. Fitu- og
sykurminni en gengur og gerist.
Þrjár sósur: Heit súkkulaði, heit
karamellu eða köld jarðarberja.
Litlir bílar - Stórir bílar - Ódýrir bílar - Dýrir bílar
Verö frá 40.000.- til 4.000.000.- • Lánamöguleigar til allt aö 5 ára • Tökum notaöa bíla upp í notaða
Opiö virka daga kl. 9 - 18 og laugardaga kl. 12 - 17
BÍLAHÚSIG
(í húsi Ingvars Helgasonar og Bflheima) Sævarhöfða 2-112 Reykjavfk
Síman 525 8096 - 525 8020 • Símbréf 587 7605