Morgunblaðið - 22.07.1999, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 22.07.1999, Blaðsíða 32
32 FIMMTUDAGUR 22. JÚLÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ Omur af ís- lenskri sönghefð Nýstofnaður þjóðlagahópur, Bragarbót, heldur sína fyrstu opinberu tónleika í Kaffíleikhúsinu annað kvöld og hefjast þeir um kl. 20.30. Orri Páll Ormarsson fór að fínna hópinn sem samanstendur af lands- kunnu fólki úr ólíkum áttum. ER ÍSLENSK sönghefð að gleymast? Eru íslendingar að tapa niður kunnáttunni til að kveða og „stinga kvint“? Þeir spyrja stórt félagarnir í þjóðlaga- hópnum Bragarbót sem kemur nú fram á sjónarsviðið í Kaffileikhús- inu. En eiga þeir ekki koilgátuna? Þessi angi á arfi okkar á undir högg að sækja, einkum meðal yngra fólks. Og hvað er þá að gera? Bragarbót! „Hugmyndin kviknaði út frá þeirri hugsun að hér á iandi er fullt af erlendum ferðamönnum sem er svo til hvergi boðið upp á að hlusta á þennan hluta þjóðar- arfsins,“ segir Kristín Á. Ólafs- dóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi, ieik- og söngkona, um tilurð Brag- arbótar og Ólína Þorvarðardóttir þjóðfræðingur, kvæðakona og fyrrverandi borgarfulltrúi, bætir við að jafnframt valdi það hópnum áhyggjum að ungt fólk í dag þekki ekki kvæðahefðina. „Þetta er hefð, menning, sem við ólumst upp við en núorðið þekki ég varla mann- eskju undir tuttugu ára aldri sem kann að kveða.“ Auk þeirra skipa hópinn Sigurð- ur Rúnar Jónsson, betur þekktur sem Diddi fiðla, og Krist- ján Kristjánsson, oft nefndur KK, en fjórmenningarnir eiga það sam- eiginlegt að hafa brennandi áhuga á íslenskum söngarfi. Kristín var landsþekkt fyrir þjóðlaga- og vísnasöng sinn á sjö- unda og áttunda áratugnum og segir hina ástsælu söngkonu Göggu Lund hafa komið sér á bragðið. „Ég var nemandi Göggu Lund fyrir um þrjátíu árum og það var hún sem leiddi mig, eins og marga aðra, inn í þjóðlagaheim ís- lendinga. Fyrir það er ég henni þakklát.“ Kristín kveðst um tíma hafa gengið með það í maganum að taka upp þráðinn. „Þegar KK, sem lengi hefur verið minn uppáhalds trúbadúr, fór að tala um nývaktan áhuga sinn á þjóðlagatónlist við mig á kaffihúsi, fannst mér ástæða að skoða málið af fullri alvöru.“ að var síðan á stofnfundi Þjóð- lagafélagsins fyrr á þessu ári að hjólin fóru að snúast. Þar voru Kristín, Ólína og Diddi fiðla saman komin - og ekki varð aftur snúið. „Við vorum á einu máli um að það þyrfti að koma saman hópur sem hefði þetta á sinni skrá, dusta ryk- ið af ýmsum fágætum perlum ís- lenskrar sönghefðar,“ segir Krist- ín. Hún segir beint hafa legið við að virkja krafta Didda fiðlu. Hann sé löngu landskunnur þúsundþjala- smiður á sviði tónlistar, auk þess sem hann hafi drukkið þjóðlögin í sig með móðurmjólkinni. „Móðir mín söng þjóðlögin fyrir mig í bragganum í æsku og faðir minn kynnti fyrir mér hámenningu," segir Diddi. „Þjóðlögin hafa því alla tíð verið mér hugleikin og ég lagt mig fram um að kynna þau sem víðast. Þannig sungum við Njáll Sigurðsson og Bára Gríms- dóttir íslensk þjóðlög í klukku- tímalöngum þætti í franska ríkis- útvarpinu fyrir ellefu árum og fór- um í ótal ferðir til Evrópulanda í sama skyni upp frá því. Það er því virkilega ánægjulegt að vera kom- inn af stað aftur.“ Ólína hefur ekki fengist mikið við tónlist til þessa en hlakkar til að kveðja sér hljóðs á nýjum vett- vangi. „Ég er mikil kvæðakona og smell inn í þetta sem slík. Á menn- ingarnóttunni í fyrra kvað ég fyrir mannskapinn í Iðnó og mér hlýnar enn um hjartaræturnar þegar ég Fyrirlestur um leið- angur kanadískra og íslenskra listamanna KANADÍSKIR og íslenskir lista- menn verða með fyrirlestra í Hafn- arborg, lista- og menningarstofnun Hafnarfjarðar, föstudaginn 23. júlí og hefst hann ki. 20.30. í fyrirlestrinum List/Náttúra - samvirkni kynnir Boreal Art Nat- Vönduð - ryðfrí HÚSASKILTI PIPAR OG SALT Klapparstíg 44 S: 562 3614 ure-hópurinn nokkur verkefni og starfsaðferðir í listrænni vinnu sinni með náttúruna sl. 11 ár. Þau hafa haft samvinnu við yfir 150 listamenn frá 10 löndum á þessu tímabili. Viðfangsefni og túlkunar- leiðir hafa verið fjölbreytileg og hafa þau starfað víða um heim, m.a. í Evrópu, Norður- og Suður-Amer- íku. í hópnum starfa listamenn úr flestum listgreinum, m.a. myndlist- armenn, rithöfundar, tónlistarmenn og dansarar. í síðari hluta dagskrárinnar kynnir hópurinn ásamt íslenskum þátttakendum afrakstur leiðang- ursins Án ummerkja. Leiðangurinn Án ummerkja er listaverkefni sem hefur m.a. að leiðarljósi að vekja at- hygli á og stuðla að náttúruvernd. Markmiðið er að safna og skrá hug- myndir og sýnir með nánari úr- vinnslu í huga. Hópurinn mun dvelja frá 11.-22. júlí í Hruna- mannaafrétti í þeim tilgangi. LISTIR Morgunblaðið/Árni Sæberg „KRUMMI svaf í klettagjá Bragarbót tekur lagið á æfíngu, Diddi fiðla, Ólína Þorvarðardóttir, Kristín Á. Ólafsdóttir og KK. hugsa um viðtökurnar sem ég fékk. Fólk tók upp til hópa undir með mér, þarna var eitthvað sem allir kunnu. Ég hef aldrei heyrt annan eins englakór. Þetta sýnir manni að þótt sjaldan sé kveðið núorðið er áhuginn fyrir hendi.“ KK hefur notið vinsælda sem tónlistarmaður og farandsöngvari síðastliðinn áratug en lítið tekist á við þjóðlögin til þessa. „Ég ólst upp í Bandaríkjunum og er fyrst að kynnast þessu núna. Fer maður ekki ailtaf að pæla í arfinum þegar árin færast yfír?“ Líkast til! En hvernig skyldi trúbadúrinn kunna við sig í nýja félagsskapnum? „Ég dauðsé eftir þessu,“ svarar hann að bragði og glottir út í annað. „Nei, nei, að öllu gríni slepptu gæti ég ekki verið á betri stað til að nema þessi fræði. Þetta fólk kann sitt fag. Ég er líka alltaf að sjá það betur að við sem gefum okkur út fyrir að vera tón- listarmenn á íslandi verðum að kunna skil á þjóðlögunum." ragarbót hyggst flytja um þrjátíu íslensk þjóðlög í Kaffí- leikhúsinu, ýmist í þeim búningi sem ætla má að forfeður okkar og -mæður hafi gert eða undir nú- tímaáhrifum. „Þetta á að vera lif- andi arfur!“ Hópurinn leggur áherslu á breiddina en sumt er sungið án hljóðfæraundirleiks, til dæmis fimmundarsöngvarnir sér- íslensku og stemmurnar, en annað flutt með hljóðfæraslætti. Leika þeir Diddi og KK á ýmis hljóðfæri, svo sem langspil, íslenska fiðlu, venjulega fiðlu, munngígju, gítar, trommu og hörpu. „Við fetum okkur frá landnáms- öld og fram á daginn í dag. Tökum með öðrum orðum mið af því sem íslenskir tónlistarmenn hafa verið að gera undanfarna áratugi," segir Kristín og Ólína bætir við að þarna verði „að sjálfsögðu" lag eftir Jór- unni Viðar. Á efnisskrá er einnig stemman Þýtur í stráum sem Diddi heyrði gamlan mann fara með fyrir einum tólf árum og útsetti nýverið fyrir lítinn kór. KK var með stemmu þessa í farteskinu þegar hann lagði upp í tónleikaferð um landið í vor og flutti hana fyrir fólk. Segir hann viðtökur hafa verið góðar og á Stykkishólmi tók eldri maður meira að segja undir með honum. „Hann þekkti þetta frá fornu fari.“ ónleikarnir annað kvöld eru raunar ekki hinir fyrstu hjá Bragarbót, því nýverið kom hópur- inn fram á samkomu Norræna vegamálasambandsins í Viðey. Ekki voru þeir tónleikar þó opnir almenningi. Ekki er annað að heyra en vel hafi til tekist nema hvað Ólína grípur andann á lofti. „Eftir tónleikana missti ég fiðluna hans Didda í gólfið en hún er „bara“ hundrað ára gömul og ekki nóg með það, ég held ég hafi skemmt hörpuna líka.“ Augljóst að tónlistarmenn hafa ekki enn lagt af þann umdeilda sið að mölva hljóðfæri sín í lok tón- leika - viljandi eða óviljandi! En hvað um framhaldið? „Okkur langar til að halda sam- starfinu áfram en ef við verðum púuð niður í Kaffileikhúsinu verð- um við að endurskoða málið,“ segir Diddi og Ólína viðurkennir að hóp- urinn hafi í upphafi verið eilítið banginn. „Eftir því sem á æfing- arnar líður verðum við hins vegar sannfærðari um að þetta eigi hljómgrunn. Við treystum því að þjóðin vilji halda upp á þennan anga á arfinum." Og KK sér fyrir sér næsta verk- efni - að fara í skólana og leika og syngja þjóðlögin fyrir æsku lands- ins. „Það yrði svo sannarlega verð- ugt verkefni,“ bætir Ólína við. „Bömin fara mikils á mis ef þjóð- lagaarfurinn gleymist. Það er lifandi seiðmagn í þessari tónlistarhefð." Bræðingur- inn KK og djasstríó DJASSARARNIR Óskar Guð- jónsson, Þórður Högnason, Ein- ar Valur Scheving og KK leiða saman hesta sína fimmtudaginn 22. júlí. í fréttatilkynningu segir m.a.:„Óskar Guðjónsson var val- inn „Blásturshljóðfæraleikari ársins“ þrjú ár í röð og var val- inn til að taka þátt fyrir íslands hönd í „Jazz Orkester Norden“. Þórður Högnason hefur leikið með fremstu djassleikurum þjóðarinnai- og spilað inn á fjölda hljómplatna, m.a. Gling- gló. Einar Valur Scewing hefur leikið inn á 40 hljómplötur og verið virkm' í ílestum geirum ís- lenskrar tónlistar.“ Bræðingur er tónleikaröð á fimmtudagskvöldum í sumar í Kaffileikhúsinu og er þetta þriðja kvöldið. Sýning á vefn- aði á Akranesi SNJÓLAUG Guðmundsdóttir, Brúarlandi, heldur sýningu á vefnaði og flóka í Listahorninu, Kirkjubraut 3, Akranesi og stepdur hún til 26. júlí. Á sýningunni eru landslags- myndir unnar í flóka og ofin veggstykki. Ennfremur eru sýn- ishorn af skartgripum unnum úr skeljum. Snjólaug er vefnaðarkennari frá Myndlista- og handíðaskóla íslands. Hún hefur haldið tvær einkasýningar ásamt nokkrum samsýningum. Snjólaug býr á Brúarlandi á Mýnim þar sem hún starfrækir vinnustofu og gallerí. Sýningin er opin alla virka daga frá kl. 11-17. Lífæðar á Vopnafírði MYNDLISTAR- og ljóðasýn- ingin Lífæðar, sem ferðast hefur verið með milli sjúkrastofnana á íslandi á árinu, verður opnuð í heilsugæslustöðinni á Vopnafirði á morgun, föstudag, kl. 15. Að sýningunni stendur íslenska menningarsamsteypan art.is en hún er styrkt af lyfjaíyrirtækinu Glaxo Wellcome á íslandi. Sýn- ingarstjóri er Hannes Sigurðs- son listfræðingur. Frá Vopnafirði fara Lífæðar til Seyðisfjarðar 12. ágúst þar sem sýningin verður liður í lista- hátíðinni Á seyði. Det lille Operakor í Stykkis- hólms- kirkju SÉRSTAKIR gestatónleikar verða í tónleikaröð Stykkis- hólmskirkju í kvöld, fímmtu- dagskvöld, þegar danskur óp- erukór frá Konunglega danska leikhúsinu heldur tónleika,sem hefjast þeir kl. 20.30. Det lille Operakor var stofn- aður vorið 1997. Kórinn sam- anstendur af 16 menntuðum söngvurum sem ýmist syngja í óperukór Konunglega danska leikhússins eða starfa sem ein- söngvarar þar. Stjórnandi og píanóleikari er Adam Faber. Adam Faber hefur, samhliða kórstjórn við Malmo Musikteat- er 1995-97, verið æfingastjóri óperunnar í Konunglega danska leikhúsinu frá 1990. Á efnisskrá er allt frá a cappella, margradda söngvum og norrænum lögum til kór- verka úr óperuheiminum með einsöngsívafí yfir í negrasálma. Kórinn heldur tónleika í Reykjavík, Reykholti, Stykkis- hólmi og á Sauðárkróki dagana 19. til 29. júlí.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.