Morgunblaðið - 22.07.1999, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 22.07.1999, Blaðsíða 56
MORGUNBLAÐIÐ t 56 FIMMTUDAGUR 22. JÚLÍ 1999 KIRKJUSTARF GARÐAKIRKJA á Álftanesi. Safnaðarstarf Ferð eldri borg- ara í Garðabæ ✓ og á Alftanesi FARIN verður ferð á vegum Garða- og Bessastaðasókna þriðju- daginn 27. júlí. Nýja listasafnið Englar og fólk að Vallá á Kjalar- nesi verður skoðað, en þar er nú sýning fornmuna. Kaffi á eftir. Farið verður frá safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli kl. 13.30 og komið til baka um kl. 16. Aðgangseyrir og kaffi kostar 950 krónur. Allir eldri borgarar í Garða- og Bessastaða- sókn velkomnir. Vinsamlegast lát- ið vita um þátttöku sem fyrst í síma 565 6380 (safnaðarheimilið) eða 895 0169 (Nanna Guðrún djákni). Hallgrímskirkja. Orgeltónlist kl. 12-12.30. Háteigskirkja. Taize-messa kl. 21. Fella- og Hólakirkja. Helgistund verður í kirkjunni í dag klukkan 10.30. Allir velkomnir. Prestarnir. Kópavogskirkja. Kyrrðar- og bænastund í dag kl. 18. Fyrirbæna- efnum má koma til prests eða kirkjuvarðar. Hafnarfjarðarkirkja. Mömmumorgnar kl. 10-12 í Vonar- höfn. ÁTN-starf íyrir 8-9 ára kl. 17-18.30 í Vonarhöfn. Vidalínskirkja. Bæna- og kyrrðar- stund kl. 22. Kaffi eftir athöfn. Bi- blíulestur kl. 21. Landakirkja, Vestmannaeyjum. Helgistund á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja, dagstofu 2. hæð. Opið hús fyrir unglinga í KEUM&K-húsinu kl. 20.30. Ing- veldur og Óli Jói. Akraneskirkja. Fyrirbænastund kl. 18.30. L;«ugavtM|i 25, sími 551 9805 VIO UMFEROAMIÐSTÖÐINA WWW.HM EOIA.IS/SPORTLEIGAN SÍMI 551 9800 í DAG VELVAKANPI Svarað í síma 569 1100 frá 10-13 frá mánudegi til föstudags Fálæti um þrekiþróttir unglinga MIG undrar stórum fálæti fjölmiðla um sumar grein- ar íþrótta og tómstunda- starfs sem engu síður en boltaleikir, golf og hesta- leikar, leiða ungmenni til að nota orku sína á heil- brigðan hátt. íþróttir svo sem fjallabrun á hjólum, götuhjólakeppnir og fjalla- hjólakeppnir eru í þeim flokki sem fjölmiðlar þekkja greinilega ekkert til. Slíkar íþróttir eru þó stundaðar á Islandi og má segja að óvíða þurfi að taka jafn rösklega á og reyna kraft og úthald til hins ítrasta. Að sjá ungmenni bruna grýttar brekkur á fljúgandi ferð eða bruna um götur og stíga, berjast við mótvind í bröttum brekkum, hjóla drullu og aur á stígum og troðningum, er stórkost- legt. Ekki síðra að sjá ánægju og þreytu skína úr löðursveittum andlitum í gegnum forarbrynjuuna. En það eru ekki bara fjöl- miðlar sem láta þetta af- skiptalítið. Því ekki verður með sanni sagt að bæjarfé- lög sýni nokkum áhuga á þessum greinum. Það eru byggð dýr íþróttahús og félagsmið- stöðvar, boltavellir og golf- vellir, skíðalönd með lyft- um og tækjum. Hjóla- brautir til æfinga og keppna fýrirfinnast engar í landinu. Tæplega verður skuld- inni skellt á landleysi eða kostnað, heldur verður hugmyndafátækt og áhugaleysi ofar á biaði. Að sumarlagi má auð- veldlega nýta skíðasvæði til hjólaæfinga og keppni séu þau í hæfilegri nálægð byggða. Ónýttar brekkur við bæjardyr eru margar og væri hægt að koma upp brautum fyrir hjólasvig, brun, torfæru og smáhóla- brautir með ótrúlega litl- um kostnaði. Vonandi vaknar áhugi einhverra ráðamanna á þessari leið til að virkja afl æskunnar á heilbrigðan hátt. Björn Finnsson. Hóflegur agi er bestur í SÍÐUSTU viku skrapp ég til Akureyrar og að sjálfsögðu fór ég í hina glæsilegu sundlaug þar. Þar heyrði ég á tali ungra manna, að þeir voru á suð- urleið og einn þeirra sagði að það væri allt í iagi að vera á öðru hundraðinu út að Varmahlíð en síðan væri vissara að halda sér innan við íyrsta hundraðið, þ.e. keyra á iöglegum hraða. Sjálfur hélt ég suð- ur daginn eftir og sann- reyndi að ökumenn voru á sömu skoðun og ungu mennimir í lauginni. Eg ók á rúmum 90 km meðaihraða enda bíll og bílstjóri komnir til ára sinna og báðir löghlýðnir. Það er skemmst frá að segja að stöðugt fóm bílar fram úr mínum, mishratt en allir yfir löglegum hraða. Mér leið vel á þessum meðalhraða og skyndilega virtust aðrir bílstjórar komnir á sömu skoðun, því enginn tók lengur fram úr, þótt beinn og freistandi vegur væri fram undan. Skýringin var auðfundin. Eg var kominn í Húna- vatnssýslur og þar líðst bílstjórum ekki að aka á ólöglegum hraða. A leiðinni úr Vatns- skarði að Brú í Hrútafirði sá ég tvo eftirlitsbíla lög- reglunnar. Þeir þurftu þó ekki að hafa afskipti af ökumönnum, allir virtu umferðareglur og allir virtust afslappaðir. Ferð mín frá Akureyri til Reykjavíkur tók tæpa 5 tíma með tveim stuttum áningum. Mér finnst það raunar ævintýralegt að komast á milli þessara tveggja höfuðborga á einni morgunstund - já á milli tveggja veðurbelta - á lög- legum hraða. Þessi ferð mín sann- færði mig um, að hóflegur agi er besta uppeldisað- ferðin og þegar upp er staðið eru hinir öguðu ánægðastir. Jón. Athugasemd EG vil koma á framfæri at- hugasemd vegna greinar sem birtist í Velvakanda um konur og iþróttir. Vil ég taka fram að 50% leikj- anna var sýndur á Eurosport og sá ég þar m.a. úrslitaleikinn. Ingi Steinn. Tapað/fundið Gullarmband týndist í EUiðaárdal TÝNST hefur gullarm- band í Elliðárdalnum. Fundarlaun. Upplýsingar í síma 557 2011. Regnkápa týndist á Laugavegi REGNKÁPA (tiger) týnd- ist á Laugaveginum sl. mánudag. Skilvís finnandi hafi samband í síma 551 6907. SKAK llmsjún Margeir Pútnrsson STAÐAN kom upp á stór- mótinu í Dortmund sem lauk í síðustu viku. Rússinn Vladúnir Kramnik (2.760) hafði hvítt og átti leik gegn Veselin Topa- lov (2.690), Búlgaríu. 27. Rxb7! - Hxb7 28. a5! - Rc6 29. Rxc6 - Bxc6 30. Bxa6 (Svartur ræður nú ekki við þrjú samstæð frípeð hvíts á drottningarvæng) 30. - Hb8 31. Bb5 - Dc8 32. Bxc6 - Dxc6 33. a6 - Kg7 34. Hb4 - Rd6 35. Da4- Dxa4 36. Hxa4 - Rc8 37. Hb4 - Ra7 38. bxa7 - Ha8 39. c6 - Haxa7 40. Hcl og svartur gafst upp. Urslit á mótinu urðu: 1. Peter Leko, Ungverjalandi, 5 v. af 7 mögulegum, 2. Kramnik 4'A v., 3-5. Karpov, Adams og Anand 4 v. 6. Ivan Sokolov 2'A v., 7-8. Topalov og Timman 2 v. HVÍTUR leikur og vinnur. HÖGNI HREKKVÍSI Víkverji skrifar... AÐ verður athyglisvert að fylgj- ast með því sem gerist á fjar- skiptamarkaðnum á næstu misser- um. Þróunin á þessum markaði er mjög ör og erfitt fyrir hinn venju- lega íslending að sjá hana fyrir. Samstarf Islandssíma og Línu, dótt- urfyrirtækis Orkuveitu Reykjavík- ur, bendir til þess að samkeppni á þessum markaði eigi eftir að aukast. Að mati Víkverja er aukin samkeppni á þessu sviði jákvæð bæði út frá sjónarhóli neytenda og eins ef litið er til atvinnumála al- mennt. íslendingar virðast standa mjög framarlega í samanburði við aðrar þjóðir við að tileinka sér tæknikunnáttu. Verði áframhald- andi vöxtur á þessu sviði má reikna með að til verði mörg ný vellaunuð störf hér á landi. Því ber að fagna og vonandi auðnast stjómvöldum að setja leikreglur sem tryggja áfram- haldandi vöxt í þessari grein. Það kom þess vegna Víkverja mjög á óvart að heyra viðbrögð St- urlu Böðvarssonar samgönguráð- herra við samstarfi Islandssíma og Línu. I stað þess að fagna sam- keppni og fjölgun atvinnutækifæra á þessu sviði sá ráðherrann ástæðu til að vara við offjárfestingu á þessu sviði. Hvers vegna sér samgöngu- ráðherra ástæðu til að vara við því að lagðar séu símalínur á íslandi? Telur hann t.d. að sá geysilegi vöxt- ur í gagnaflutningum sem verið hef- ur síðustu ár muni stöðvast og þess- ar símalínur því liggja ónotaðar í jörðu? Fróðlegt væri að fá álit sam- gönguráðherrans á fjárfestingum Eimskips. Telur hann ástæðu til að vara við offjárfestingu í sjóflutning- um? Hvað með flugvélakaup Flug- leiða? x x x STJÓRNMÁL á íslandi eru stundum háð með einkennileg- um hætti. Nýlega hækkaði stjórn SVR fargjöld í strætó. Að þessari hækkun standa m.a. vinstrimenn, sem yfirleitt hafa lagt áherslu á að sú þjónusta, sem hið opinbera veit- ir, sé sem mest greidd af því opin- bera. Helgi Hjörvar, nýkjörinn for- seti borgarstjórnar, fordæmdi borgaryfirvöld t.d. árið 1995 fyrir að hækka strætófargjöld, en ekk- ert heyrist frá honum nú. Sjálf- stæðismenn í minnihluta borgar- stjórnar hafa gagnrýnt þessa hækkun nokkuð harkalega. Sjálf- stæðismenn hafa hins vegar í gegn um tíðina lagt talsverða áherslu á þjónustugjöld með þeim rökum að þjónustan eigi að vera sem mest greidd af þeim sem nota þjónust- una. Þetta dæmi sýnir kannski ágætlega að íslensk stjórnmál snú- ast ekki um stefnu þar sem tekist er á um lífsviðhorf, heldur snúast þau um dægurþras þar sem aðalat- riðið er að koma höggi á andstæð- inginn. xxx AÐUR en Guðni Ágústsson tók við embætti landbúnaðarráð- herra gagnrýndi hann landbúnaðar- ráðuneytið fyrir að vera svifaseint og fullyrti að afgreiðsla mála drag- ist þar úr hófi. Þegar Guðni settist í ráðherrastól höfðu kúabændur beð- ið í nokkra mánuði eftir svari úr ráðuneytinu um hvort þeir fengju að gera tilraun með innflutning á erfðaefni úr norskum kúm. Guðni hefur sjálfsagt skoðað þetta mál áð- ur en hann varð ráðherra og skoðað það betur síðan. Hann hlýtur því að fara að taka ákvörðun í málinu. Bændur hafa þegar lagt í umtals- verðan kostnað við að undirbúa þessa tilraun og kostnaðurinn vex meðan kýmar í Hrísey bíða eftir ákvörðun ráðherra. Það er óviðun- andi að draga bændur á svari í marga mánuði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.