Morgunblaðið - 07.08.1999, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 07.08.1999, Blaðsíða 1
175. TBL. 87. ÁRG. LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Leiðtogi þjóðernissinna í Serbíu varar Svartfellinga við aðskilnaði Reykjarkóf yfir Suðaustur-Asíu Segir að her- valdi kunni að verða beitt Belgrad. Reuters. VOJISLAV Seselj, leiðtogi róttækra þjóðemissinna í Serbíu, brást í gær reiður við tillögu Svartfellinga um að júgóslavneska sambandsríkið yrði leyst upp og stofnað yrði laustengt ríkjasamband Serbíu og Svartfjalla- lands. Nokkrir stjórnmálamenn í Svartfjallalandi hafa lýst tillögunni sem fyrsta skrefínu í átt að sjálf- stæði landsins en Seselj sagði að júgóslavneska hernum yrði beitt ef Svartfellingar reyndu aðskilnað. Stjórn Svartfjallalands kynnti til- löguna í fyrradag og samkvæmt henni á laustengt ríkjasamband, Samveldi Svartfjallalands og Serbíu, að taka við af júgóslavneska sam- bandsríkinu. Ennfremur er lagt til að Svartfjallaland fái eigið vamar- málaráðuneyti, utanríkisráðuneyti og eigin gjaldmiðil. Leiðtogi eins af svartfellsku stjómarflokkunum, Zarko Rakcevic, lýsti tillögunni sem „risastóra skrefi í átt að sjálfstæði Svartfjallalands". Filip Vujanovic, forsætisráðherra Svartfjailaiands, sagði hins vegar að nýja ríkjasambandið myndi ekki jafngilda aðskilnaði frá Júgóslavíu. Milo Djukanovic, forseti Svart- fjallalands, hefur hótað að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði landsins ef stjómvöld í Belgrad sam- þykkja ekki tillöguna innan sex vikna. Júgóslavneskir ráðamenn hafa ekki svarað tillögunni en talið er nánast ömggt að Slobodan Milo- sevic, forseti Júgóslavíu, hafni henni. Vojislav Seselj, leiðtogi Róttæka flokksins, sem hyggst ganga í stjórn- ir Serbíu og Júgóslavíu, lýsti tillög- unni sem „bulli og vitleysu". „Sam- kvæmt stjórnarskrá Júgóslavíu hef- ur hvorugt lýðveldanna rétt til að- skilnaðar. Ef einhverjir reyna að- skilnað með valdi ættu þeir að vita hvað bíður þeirra,“ sagði Seselj. Hann bætti við að stjórnvöld í Belgrad myndu beita öllum tiltækum ráðum, m.a. hervaldi, til að koma í veg fyrir að júgóslavneska sam- bandsríkið yrði leyst upp. Hópflug loftbelgja IJM fímmtíu loftbelgir, fylltir heitu lofti, tóku á loft frá Bristol á Englandi þegar al- þjóðleg loftbelgjahátíð var sett þar í gærmorgun. Tugir loftbelgja af öllum stærðum og gerðum, meðal annars „Veröld“ BBC og eftir- líkingar af leikföngum, taka þátt í hátíðinni sem stendur í Qóra daga. Yfirvöld í Indónesíu fyrir dóm? Jakarta, Kuala Lumpur. Reuters. AP. AFP. REYKJARKÓF liggur nú yfir stór- um hluta Suðaustur-Asíu vegna skógarelda í Indónesíu. Umhverfis- vemdarsamtök hafa hvatt stjóm- völd í nágrannaríkjunum, Malasíu, Singapúr og Brúnei, til að draga yf- irvöld í Indónesíu fyrir alþjóðadóm vegna þessa, enda er slík reyk- mengun orðin að kalla árviss við- burður. Stjómvöld í Malasíu hafa hætt að veita upplýsingar um mengunina til að skelfa ekki er- lenda ferðamenn. Reykjarþoka liggur yfir stómm hluta Indónesíu og hefur borist til nágrannaríkjanna Malasíu, Singa- púr og Brúnei. í Riau-héraði á eynni Súmötm í Indónesíu, þar sem ástandið er hvað verst, mælist loft- mengun langt yfir hættumörkum. Ibúamir þurfa að ganga með grím- ur til að veijast reyknum og eru hvattir til að halda sig innanhúss. I Brúnei, sem deilir eynni Bomeó með Indónesíu og Malasíu, er óttast að reykmengunin muni spilla fyrir Suðaustur-Asíuleikunum sem hefj- ast eiga í dag. Indónesíustjórn harðlega gagnrýnd fyrir aðgerðaleysi Reykurinn stafar af því að bændur og skógarhöggsfyrirtæki, einkum á Súmötm og í indónesíska hluta Borneó, hafa lagt eld að skógum til að vinna land til rækt- unar og ábúðar. Indónesíustjóm hefur verið harðlega gagnrýnd fyr- ir að grípa ekki til nauðsynlegra aðgerða til að sporna við þessu. Reykjarkóf lagðist einnig yfir Suð- austur-Asíu árin 1997 og 1998 af þessum sökum. Reykurinn olli þá mikilli mengun, hamlaði skyggni og olli ferðaþjónustu í ríkjunum í kring miklum skaða. Fjöldi fólks þurfti að leita til læknis vegna ým- issa kvilla, einkum óþæginda í önd- unarfærum. Reykjarmökkurinn hefur valdið töfum á flugi síðustu daga. Sjó- ferðayfirvöld hafa einnig varað við hættu á slysum vegna lélegs skyggnis á sundunum á þessu svæði, einkum á hinu þrönga Malakka-sundi milli Súmötm og meginlands Malasíu. Sérfræðingar spá því að eldamir geti logað fram í október, eða þar til þurrkatímabilið er á enda. Eldgos í Níkaragva YFIRVÖLD í Níkaragva Iýstu í gær yfir hættuástandi í bæjum og þorpum í grennd við eldfjallið Cerro Negro eftir að það tók að spúa eldi og eimyiju. Nokkrum klukkustundum áður hófst hrina jarðskjálfta sem mældust allt að 4,7 stig á Richters-kvarða. Ekkert Iát var á skjálftunum i gær og eldfjallið gaus ösku yfir allt að 8 km langt svæði. Um 1.860 nianns höfðu verið fluttir af svæðinu í gær og yfirvöld töldu að rúmlega 4 000 manns til viðbótar yrðu að fara þaðan ef gosið færðist í aukana. Fjöl- skylda er hér flutt úr þorpi um 10 km frá eldfjallinu. Eldgosið hefúr ekki valdið mannskaða eða tjóni. Cerro Negro er virkasta cldfjall Ník- aragva og er um 64 km norðvcst- an við höfuðborgina, Managua. Það spjó ösku yfir 240 ferkm svæði árið 1992 og olli mörgum bændum þungum búsiQum. Tjón- ið var metið á andvirði 1,5 millj- arða króna. Reuters SLOBODAN Milosevic Júgóslavíuforseti með 200 Serbum sem búa er- lendis og eru í Belgrad í boði júgóslavnesku stjórnarinnar. Milosevic falaðist í gær eftir aðstoð þeirra við enduruppbygginguna í Serbíu eft- ir ellefu vikna loftárásir NATO og kvaðst ekki ætla að verða við kröfu stjórnarandstöðunnar um að hann segði af sér. Innanríkisráðherrann hótar að beita valdi Einn af leiðtogum serbnesku stjórnarandstöðunnar, Zoran Djind- jic, sagði í gær að ekki væri tíma- bært að ræða tillögu Svartfellinga fyrr en Milosevic léti af embætti. Hann kvaðst hafa áhyggjur af því að tillagan gæti spillt fyrir tilraunum stjómarandstöðunnar til að steypa Milosevic af stóli. Vlajko Stojiljkovic, innanríkisráð- herra Serbíu, varaði serbneska stjórnarandstæðinga við því að hann kynni að fyrirskipa lögreglunni að beita valdi til að kveða niður mót- mæli þeirra ef þeir reyndu að grafa undan stjóm Milosevic. Júgóslavneski forsetinn tjáði sig í gær í fyrsta sinn opinberlega um þá kröfu stjórnarandstöðunnar að hann segði af sér og kvaðst ekki ætla að láta undan þrýstingi hennar. Hann sagði að kröfur stjómarandstöðunn- ar væm runnar undan rifjum NATO, sem hefði fengið spillta stjórnmála- menn og flokka í Serbíu til liðs við sig til að ná þeim markmiðum sem ekki hefðu náðst með því að varpa „22.000 tonnum af sprengjum“ á landið. Reuters Ottast veik- indi verði hann ekki í framboði London. The Daily Telegraph. KEN Livingstone, sem berst fyrir því að verða tilnefndur frambjóðandi Verkamanna- flokksins fyrir borgarstjóra- kosningarnar í London á næsta ári, segir að mikið þung- lyndiskast muni ríða yfir hann standi Tony Blair forsætisráð- herra í vegi fyrir tilnefningu hans. Óvenjuleg beiðni Livingston- es, um að honum verði leyft að bjóða sig fram á grundvelli heilbrigðissjónarmiða, kemur í kjölfar frétta um að Blair hygg- ist gera allt sem í hans valdi stendur til að koma í veg fyrir tilnefningu Livingstones, sem kemur úr vinstri armi Verka- mannaflokksins. Livingstone segir í viðtali við vikuritið The New Statesman að verði lagður steinn í götu hans sé hætta á að hann fái slæmt kast af húðsjúkdómnum psoriasis. Greinir hann jafn- framt frá því að hann hafi fengið mikil þunglyndisköst þegar á móti hafi blásið í stjórnmálunum. Livingstone, sem setið hefur á þingi í tólf ár, fullyrti hins vegar að yrði komið í veg fyrir fram- boð hans á vegum Verkamanna- flokksins myndi hann ekki bjóða sig fram sem óháður. Kvaðst hann vilja sitja í ríkisstjóm og hann myndi sýna Blair fulla hollustu byði forsætisráðherr- ann honum ráðherrastól.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.