Morgunblaðið - 31.08.1999, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 31.08.1999, Blaðsíða 1
195. TBL. 87. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 31. ÁGÚST 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Sameinmg Rússa og H-Rússa í Moskvu. AP. Hvíta-Rússlands. Jeltsín I yfirlýsingu Rússa sagði að Jeltsín hefði átt símtal við starfs- bróður sinn þar sem hann óskaði honum til hamingju með 45 ára af- mælið og hældi fyrir „mildlsvert framlag við að skapa sameinað ríki“. deiglunm Lúkasjénkó, sem löngum hefur verið sakaður um alræðistilburði og er yfirlýstur aðdáandi gömlu Sovétríkjanna, hefur þrýst mjög á um að Hvíta-Rússland sameinist Rússlandi. Arið 1996 undirrituðu forsetarnir tveir sáttmála þar sem nánum pólitískum, hemaðarlegum og efnahagslegum tengslum ríkj- anna var heitið. Var skrefið að formlegri sameiningu þó ekki stig- ið til fulls. Jeltsín sagði í gær að nauðsyn væri á opinberri umræðu um málið en vildi ekki nefna hvenær af sam- einingu gæti orðið. Dennis lætur til sín taka MIKIÐ hvassviðri og úrhellis- rigning dundi yfir strandsvæði Norður-Karólínuríkis í gær er fellibylurinn Dennis lét til sín taka með þeim afleiðingum að a.m.k. þrír létu lífið. Olli fellibyl- urinn allt að tíu metra ölduhæð við Cape Fear og víðar en veður- fræðingar telja að miðja fellibyls- ins muni halda kyrru fyrir undan ströndum N-Karólínu og valda þar með hættu víða við austur- strönd Bandaríkjanna á næstu dögum. Yfirvöld í N-Karólínu hafa haft mikinn viðbúnað vegna Dennis og hvatt fólk á hættusvæðum til að yfirgefa híbýli sín. Má á myndinni sjá hvar lögreglumenn loka þjóðveginum frá Morehead- borg í gær. „Til að gæta fyllstu varúðar ætlum við að halda áfram að gefa út viðvaranir vegna felli- bylsins því sá möguleiki er alltaf fyrir hendi að hann snúi aftur til lands,“ sagði Jeremy Penn- ington, sérfræðingur hjá banda- rísku veðurstofunni. Morð á starfsmanni Sameinuðu þjúðanna varpaði skugga á þjóðaratkvæðagreiðslu um framtíð Austur-Tímor Arangurslaus fundur í Israel Jcrúsalcm. Rcutcrs. FULLTRÚUM ísraela og Palest- ínumanna mistókst að leysa ágrein- ingsefni sín í gær í nýrri lotu samn- ingaviðræðna í Jerúsalem um hvemig hægt er að hefja aftur framkvæmd á ákvæðum Wye-frið- arsamkomulagsins. „Enn ber nokk- uð í milli. Við leggjum ennþá hart að okkur en við getum ekki samið um þau atriði sem enn eru óleyst. [Yasser] Arafat forseti og herra [Ehud] Barak þurfa þar að taka af skarið," sagði Saeb Erekat, samn- ingamaður Palestinumanna, eftir fund sinn með samninganefnd Isra- ela. Fyrr í gær sagðist Barak bjart- sýnn á að samningamenn gætu enn náð saman um hvemig hrinda megi í framkvæmd þeim ákvæðum sam- komulagsins sem kveða á um að Israelar afhendi Palestínumönnum land á Vesturbakkanum gegn því að þeir síðamefndu stemmi stigu við hryðjuverkum sem beint er gegn gyðingum. Markmiðið er að ná samningum áður en Madeleine Al- bright kemur í heimsókn til Mið- Austurlanda á fimmtudag. „Ég tel meira en helmingslíkur á að samningar takist,“ sagði Barak við fréttamenn í Jerúsalem. Barak gerði ekki alvöru úr hótunum sínum Barak hafði á sunnudag sent frá sér harðorða yfirlýsingu þar sem sagði að hann myndi jafnvel hrinda ákvæðum friðarsamkomulagsins einhliða í framkvæmd gengju Pa- lestínumenn ekki til samninga um breytingar á því innan fárra klukkustunda. Ekki kom hins vegar til þess í gær að Barak gerði alvöru úr hót- unum sínum og talsmaður hans til- kynnti síðan að viðræðum yrði hald- ið áfram. Sagði Erekat að tilraunir Baraks til að beita þá þrýstingi hefðu mistekist, enda Palestínu- menn í góðri stöðu í þeim skilningi að þeim er síður en svo á móti skapi að Wye-friðarsamkomulaginu verði hrint í framkvæmd óbreyttu. Morðið á starfsmanni SÞ, sem var heimamaður, varpaði skugga á at- kvæðagreiðsluna í gær, sem annars fór friðsamlega fram. Meira en 95% þeirra 430.000 manna sem voru á kjörskrá mættu á kjörstað til að velja á milli þess að hljóta fullt sjálf- stæði eða verða sjálfstjómarhérað í Indónesíu. Er fastlega reiknað með að íbúar A-Tímor velji að rjúfa tengslin við Indónesíu. „Eg er ánægður með þær fréttir að íbúar A-Tímor flykktust á kjör- stað... til að lýsa vilja sínum um fram- tíð landsins," sagði Annan í gær. Allt að vika gæti hins vegar liðið áður en úrslit kjörsins eru kunngerð. Stjórnmálasamband á milli Portúgals og Indónesíu? Flestir íbúar A-Tímor fögnuðu tækifærinu til að greiða atkvæði um framtíð sína en Indónesía innlimaði landið iyrir tuttugu og þremur árum. Loft var engu að síður lævi blandið, enda hafa öfgahópar stuðnings- manna áframhaldandi yfirráða Indónesíu staðið fyrir ódæðisverkum á undanförnum vikum og mánuðum, í því skyni að hræða fólk frá því að velja sjálfstæði. Eg er afar glaður í dag, en líka hræddur," sagði kjósandi í höfuðstað A-Tímor, Dili. „Þetta er merkur dag- ur í sögu A-Tímor... Við höfum beðið lengi eftir þessum degi. Jafnvel þótt við séum hrædd, og þótt menn reyni AP Tvær konur fagna eftir að hafa greitt atkvæði í gær. að myrða okkur, erum við staðráðin í að sýna vilja okkar í verki.“ A-Tímor var áður portúgölsk ný- lenda og Jorge Sampaio, forseti Portúgals, fagnaði því mjög í gær að A-Tímorbúar skyldu loks hafa fengið tækifæri til að greiða atkvæði um eigin framtíð. Portúgalar rufu öll stjórnmála- tengsl við Indónesíu daginn eftir að Indónesar réðust inn í A-Tímor og innlimuðu landið, en Antonio Guterres, forsætisráðherra Portú- gals, greindi frá því í gær að portú- gölsk stjórnvöld myndu hugleiða að taka aftur upp stjórnmálasamband við Indónesíu ef stjórnvöld í Jakarta virtu val íbúa A-Tímor að fullu. ■ Mikil/30 Indónesar hvattir til að una niðurstöðunni New York, Dili, Lissabon. Reuters. KOFI Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, lýsti í gær ánægju sinni með mikla kosningaþátttöku í þjóðaratkvæðagreiðslunni um framtíð Austur-Tímor, sem fram fór í gær, en talið er að meira en 95% prósent kosningabærra manna hafi mætt á kjörstað til að lýsa vilja sínum. Annan hvatti jafnframt til stillingar, og bað menn að una niður- stöðu atkvæðagreiðslunnar, hver svo sem hún yrði, en ófriðlegt hefur verið á A-Tímor í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar og var einn eftirlitsmanna SÞ með kosningunum myrtur í gær. Norðmenn mútmæla áætlunum Svía Kjarnorkuelds- neyti til Sellafíeld Ósld. Morgunblaðið. NORÐMENN óttast, að áætlanir Svía um að senda kjarnorkuúr- gang til endurvinnslu í Sellafield á Bretlandi geti gert samstöðu Norðurlanda og baráttu þeirra gegn geislamengun í hafinu að engu. Guro Fjellanger, umhverfisráð- herra Noregs, hefur sent sænska umhverfisráðherranum mjög harðort bréf af þessu tilefni. Segir hún, að sendi Svíar geislavirkan úrgang til Sellafield muni það stórskaða baráttuna gegn því, að geislavirkum efnum sé sleppt í sjóinn. Magn geislavirka efnisins technetium-99 hefur aukist mjög á síðustu árum inni í norsku fjörð- unum og í hafinu úti fyrir. Segist Fjellanger óttast, að það stefni í mikið umhverfisslys haldi þessi þróun áfram en viðræður við bresk stjórnvöld og Michael Meacher, umhverfismálaráðherra Bretlands, hafa til þessa engan árangur borið. Fjellanger minnti á, að í júlí fyr- ir ári hefðu norrænu umhverfis- ráðherrarnir krafist þess af bresk- um stjómvöldum, að þau hættu að sleppa technetium-99 í sjóinn, og í desember hefðu Svíar fylgt kröf- unni eftir með sérstöku bréfi. Það væri því furðulegt í þessu ljósi, að í júní sl. hefði sænska kjamorku- veraeftirlitið sótt um að fá að senda 4,8 tonn af notuðu eldsneyti til enduivinnslu í Sellafield. Sænsk stjórnvöld tjáðu sig ekk- ert um þetta mál um helgina en búist er við, að ákveðið verði í haust hvað gert verði við elds- neytið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.