Morgunblaðið - 19.09.1999, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 19.09.1999, Blaðsíða 32
32 SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ + MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1999 33 STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI FRAMKVÆMDASTJÓRI RITSTJÓRAR KONNUN á efni ís- lenskra sjónvarpsstöðva sem Hagstofan hefur birt og fjallað var um hér í Morgun- blaðinu í vikunni sýnir að hlutur innlends efnis hefur farið hlutfallslega minnkandi frá því sjónvarpsútsendingar hófust hér á landi fyrir rúm- um þrjátíu árum. Ríkissjón- varpið stendur best að vígi hvað þetta varðar en hlutur innlends efnis er rýr hjá öðr- um íslenskum stöðvum. Töl- urnar sýna þó eigi að síður að þróunin hefur ekki verið í samræmi við upphafleg markmið Ríkissjónvarpsins sem átti að vera frétta- og fræðslumiðill með áherslu á menningartengt efni. Einkum vekur athygli að hjá Ríkissjónvarpinu hefur hlutfall frétta og efnis á sviði fræðslu, lista, menningar og vísinda minnkað verulega frá upphafi sjónvarpsútsend- inga. Þó verður að hafa í huga að fjöldi útsendingar- tíma hefur aukist mjög mik- ið. Þannig hefur útsending- artími frétta á ári nær tvö- faldast en útsendingartími fræðslu-, lista-, menningar- og vísindaefnis hefur sáralít- ið aukist þrátt fyrir rúmleg- an þrefaldan heildarútsend- ingartíma. Jákvætt verður að teljast að efni fyrir börn og unglinga hefur aukist bæði að hlutfalli og útsend- ingartíma, þó að þar sé að mestu um að ræða erlent Árvakur hf., Reykjavík. Hallgrírnur B. Geirsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. efni. Hlutur íþrótta hefur sömuleiðis aukist og er það vel. Hlutur kvikmynda og annars leikins efnis hefur hins vegar því sem næst staðið í stað hlutfallslega og því aukist að útsendingar- tíma. I Ríkissjónvarpinu hefur hlutur innlends efnis nokkurn veginn staðið í stað frá því útsendingar hófust og hefur á undanförnum árum verið um þriðjungur og það- an af minna. Séu einkareknu stöðvarnar teknar með hefur hlutfall innlends efnis aftur á móti dregist töluvert saman. Niðurstöður könnunarinn- ar sýna að einkastöðvarnar einbeita sér að sýningu af- þreyingarefnis en fréttir, fræðslu- og menningarefni er þar í lágmarki. Þó sker Stöð 2 sig nokkuð úr hvað þetta varðar en er samt ekki hálfdrættingur á við Ríkis- sjónvarpið. I niðurstöðunum kemur einnig fram að það erlenda efni sem bæði Ríkissjónvarp- ið og einkastöðvarnar eru að sýna er mjög einsleitt. Stærstur hluti erlenda efnis- ins er af bandarískum eða breskum uppruna en hlutur annarra þjóða, þar á meðal Norðurlandaþjóða, er hverf- andi eða um 0 til 2%. Hér stendur Ríkissjónvarpið einnig öllu betur að vígi en einkastöðvarnar, þar er eng- ilsaxneskt efni um 30% en á einkastöðvunum er það meira en helmingur dag- skrárinnar. Af þessari könnun má draga þrjár meginályktanir um dagskrárstefnu Ríkis- sjónvarpsins. Þróunin hefur verið á skjön við upphafleg markmið. Ríkissjónvarpið hefur kosið að fara út í sam- keppni við einkareknu stöðv- arnar á þeirra forsendum. Þannig hefur það tekið þátt í því að lengja útsendingar- tímann, sem greinilega hefur komið niður á hlutfalli frétta og menningarefnis í dag- skránni, í stað þess að móta sjálfstæða og metnaðarfulla dagskrá sem sinnir því upp- lýsinga- og menningarhlut- verki sem einkastöðvarnar sinna augljóslega ekki nægi- lega vel. Ennfremur má ljóst vera að Ríkissjónvarpið hef- ur ekki unnið að því að auka hlut innlendrar dagskrár- gerðar frá því það var stofn- að. Meginástæðan er vafalít- ið sú að fjármagnið hefur farið í að halda úti sífellt lengri útsendingartíma. Að endingu má draga þá álykt- un að ekki hafi verið lögð mikil áhersla á fjölbreytni við val á erlendu efni Ríkis- sjónvarpsins þrátt fyrir að það sé stærsti hlutinn af dagskrá þess, eða rúmlega 70%. Sú menningarlega eins- leitni sem einkennir hið er- lenda efni gefur ekki aðeins afar takmarkaða mynd af því úrvali sjónvarpsefnis sem til er heldur endurspeglar það veruleikann á afar takmark- aðan hátt einnig. Ríkissjónvarpið hefur ekki skapað sér jafnmikla sér- stöðu á fjölmiðlamarkaðnum og Ríkisútvarpið, Rás 1, hef- ur gert. Rás 1 hefur einbeitt sér að því að halda úti upp- lýsandi frétta- og menning- ardagskrá af þeim toga sem einkastöðvarnar hafa ekki haft áhuga á. Hlutverk Rík- issjónvarpsins ætti að vera hið sama, að sinna því efni sem áhorfendur finna hvergi annars staðar. Til hvers ætt- um við annars að hafa ríkis- rekið sjónvarp? RÍKISSJÓNVARP MEÐ SÉRSTÖÐU ÞAÐ var á þessum ár- um, sem ég komst fyrst í kynni við hina stóru heimslist, því á heimili afa míns og ömmu fann ég lítið kver, og í því voru myndir af ævintýralega fögrum byggingum, köstulum og skrautleg- um tumum, súlum og alls konar prakti, jafnvel voru göturnar fínni en nýskúrað gólfíð í stássstofunni. Að slík dýrð skyldi vera til á þessari jörð var ofar mínum skilningi. Svo hvarf kverið mér sjónum, en endur- minningin um það var mér sterkari en allt annað. Jafnvel óréttlæti heimsins og vöntun á eilífu lífi í himnaríki og önnur vonbrigði hrelldu mig ekki, því ég vissi að ein- hvers staðar úti í heimi voru þessar hallir til, og vitneskjan um það var mér nóg, bæði þessa heims og ann- ars. Löngu seinna þegar ég var orð- inn fullorðinn maður og kominn út í heim, uppgötvaði ég eina af þessum dýrðlegu höllum. Það voru húsa- kynni gamla Carlsbergs. Þannig komu fyrstu áhrifín á listabrautinni handan um hafið frá dönsku firma með rótgróna erfðamenningu í þeirri göfugu list að brugga öl, ekki aðeins gott öl, heldur h'ka vöru, sem var heimsmenning á sínu sviði. Eg var eitthvað 4'Æ árs, þegar forsjónin sendi mér þennan fyrsta styrk, hann var vitanlega eingöngu andlegur og listrænn - og einhver svellgæi nútímans mundi kalla hann rómantískan - en ann- ars konar styrk hafði ég nú ekki brúk fyrir á þeim aldri. M: Þetta hefur verið eins konar frelsun. G: Nei, ég vildi nú heldur nefna það syndafall. M: Og svo fórstu austur á land í leit að nýrri reynslu og nýjum styrk. G: Eg var nú sendur austur að Unaósi við Héraðsflóa til fóstru minnar Guðlaugar Jónsdóttur frá Flautagerði í Stöðvarfirði og Jóns Stefánssonar Scheving frá Prest- hólum í Þingeyjarsýslu. Eg kvaddi því Reykjavík og Veghúsastíginn og afa minnn og ömmu. Síðan ólst ég upp fyrir austan. Eg man ekkert frá þessu ferða- lagi, nema komuna til Unaóss. Þetta hefur víst verið haustið 1909. Faðir minn, Björn Gíslason, fór með mig austur. Skipið sigldi inn til lands í góðu veðri að morgni dags. Það var vindstrekkingur, dimmt á sjónum, en björt fjöll í fjarska með hvítan fannakraga. Stuttu síðar var skipið komið í höfn. Við fórum á báti í land frá skipinu og líklega hefur verið töluverð undiralda. Einhverjir erf- iðleikar minnir mig hafi verið við lendingu og ég var feginn að standa á föstu í fjörunni. Það var lent á ein- hverjum stað sem hét Stapavík, æv- intýralega fagur staður með klett- um og klettadröngum, sem stóðu upp úr sjónum. Ég hélt þetta væru listaverk gerð af manna höndum, bjóst jafnvel við, að á þessum slóð- um byggju stórir meistarar í högg- myndalist. Ég spurði einhvern tíma, hvað þetta væri og hvort þetta væru myndastyttur, en fékk nei. Þetta voru nátttröll sem dagað hafði uppi. Ég vissi ekki vel, hvað þetta þýddi, en var vonsvikinn yfir svarinu, því ég þóttist vita, að líklega væru þá engir meistarar þar á staðnum. Þar sem við lentum, var fjara, en allt í kring klettar og þurfti að draga mannskapinn upp bergið í festi. Mér var sagt, áður en ég var dreg- inn upp, að ég ætti að spyrna mér frá klettinum með höndum og fót- um. Það gerði ég og hafði gaman af, hefði helzt viljað fara niður aftur og láta draga mig á nýjan leik. I hópn- um var hundur, sem dreginn var upp einsamall, og var hann ósköp hræddur svo ég sárvorkenndi hon- um, því mér fannst hljóðin í honum eitthvað svo ámátleg, en svo náði hann sér aftur á strik, þegar upp kom, kunni sér ekki læti og ljómaði af fögnuði. M. HELGI spjall REYKJAVIKURBRÉF Laugardagur 18. september Björn m. olsen segir í æviágripi sínu um Kon- ráð Gíslason, fjölnismann: „í þessa sömu stefnu - að hreinsa og bæta málið - gengur ræða Konráðs um íslenzkuna, sem prentuð er í 4. árgangi Fjölnis. Hann ræðst þar með beizkri gremju á þá menn sem halda að einu gildi, hvernig þeir fara með íslenzkuna og bæta hana og staga með bjöguðum dönskuslettum í orði og tals- háttum, greinum og gi-einarskipan - af ein- berri heimsku og fákunnáttu." Ræðst á „gol- þorskana með eintrjáningssálirnar", sem segja, að íslenzkan sé „ósveigjanleg og óhæfi- leg til að taka á móti skáldskap og vísindum", af því að þeir sjálfir „vaða á bægslunum gegn- um vísindin og gleypa hugmyndirnar eins búnar og þær verða á vegi fyrir þeim, og þá vill stundum svo óheppilega til, að hugmyndin sjálf skreppur í burtu, svo ekki er eftir annað en danski búningurinn, og þá er ekki kyn, þó að það fari stundum óhönduglega að koma honum í íslenzkan búning." Björn vitnar ennfremur í þessi orð Kon- ráðs: „Við heimtum af íslenzkunni, að hún sé íslenzka, og annað hvort standi í stað eða taki framförum. Við kúgum engan, heldur biðjum við og setjum fyrir sjónir. Við finnum, að hin íslenzka tunga er sameign okkar allra saman, og við finnum, að hún er það bezta sem við eigum; þess vegna biðjum við meðeigendur okkar að skemma hana ekki fyrir okkur.“ Nú er það víst ekki danski búningurinn sem við þurfum að óttast, heldur sá engilsaxneski. Sumir hafa jafnvel haldið því fram að hann mundi fara okkur betur eins og tímarnir eru; að tízkan krefjist þessa engilsaxneska bún- ings. Við þurfum sem sagt á alþjóðamáli að halda annars séum við vart í húsum hæfir, þeim húsum þar sem verðbréfamarkaðurinn ræðst og hugbúnaðarmarkaðurinn ræður ferðinni. En við getum tileinkað okkur þennan nútíma, þessa tízku, án þess að falla fyrir henni og láta hana endurmóta okkur í sinni mynd. Við getum - og eigum - að fara sömu leið og þeir sem á fyrstu öldum Islandsbyggð- ar mótuðu íslenzka menningu og steyptu al- þjóðamenninguna í eigin deiglu, bæði með frumsömdum verkum og þýddum. Þar er leið- sögustefið og þar er markmiðið. Svo einföld er nú sú krafa sem við verðum að gera til okkar sjálfra ef við ætlum að halda áfram að heita þjóð og vera stolt af því og arfi okkar. Ef við gerðum það ekki, stæðum við í þeim sporum sem Konráð Gíslason lýsir annars staðar: „Ef við legðum niður íslenzkuna og tækjum upp dönsku í staðinn, hvað yrðum við þá annað en brjóstumkennanleg aumingjaþjóð, sem hefði reynt að murka úr sér lífið, en ekki tekizt það nema til hálfs? Hvað yrði úr okkur, segi ég enn og aftur, utan fáráð afturganga (eða svo sem því sætir), en ekki lifandi þjóð?“ Og Björn M. Olsen bætir við: „Ætli Islendingar, sumir hverjir, hefðu ekki enn í dag (þ.e. uppúr alda- mótum) gott af að hugleiða sumt af því sem hér segir? Enn má ítreka þessi orð Björns M. Olsens. Þau eiga ekki síður við nú en þegar hann ritaði þau inní ævisögu Konráðs Gísla- sonar. SUMT BENDIR TIL þess að íslenzk tunga muni ekki lifa af þá alþjóðlegu rósturtíma sem við nú lifum, ann- að sýnir eindregið að hún muni hrista af sér þrýstinginn, hina al- þjóðlegu ki-öfu um einsmenningu, og halda velli og miðla samfélagi þjóðanna af þvi sem við höfum bezt gert og eigum væntanlega eftir að gera bezt. Margvíslegir misbrestir á notk- un íslenzkrar tungu benda til hins fyrra en annað er stórlega uppörvandi og sumt með þeim hætti að fagna ber af alhug. Svo er guði fyrir að þakka að enn eru til íslenzk skáld og rithöfundar sem láta sér annt um tunguna, rækta hana og leita þeirra fagurfræðilegu leiða í skáldskap sínum sem hæfa henni og eru í senn sómi þeirra og hennar; til eru einnig þeir kennarar - og það er grundvallaratriði - sem láta sér annt um íslenzkuna og leggja stolt sitt og metnað í að kenna ungu fólki að tala og skrifa móðurmálið, en á því er þó oft og einatt mikill misbrestur. Sumt af því sem dagblaði eins og Morgunblaðinu berst í hend- ur er á svo hráslagalegri íslenzku að undrun sætir og eiga þar bæði ungir og gamlir hlut að máli, en að sjálfsögðu er þetta ekki prentað óbreytt. En jafnframt er ekki óalgengt að heyra svo hraksmánarlega íslenzku í ljósvök- Hrak- smánarleg íslenzka unum að þeir virðast í einni hendingu breytast í hryllingsóperu, þegar mestur gállinn er á mannskapnum. En þegar þessi veizla stendur sem hæst verður það stundum til bjargar að allt, sem sagt er, er með öllu óskiljanlegt, svo að hrognamálið fer bæði fyrir ofan garð og neðan. Á það ber að leggja þunga áherzlu að skól- arnir kenni móðurmálið, ekki einungis í ís- lenzkutímum, heldur - og ekki síður - í kennslu á öðrum tungumálum eins og frum- herjarnir gerðu í Bessastaðaskóla, svo að dæmi séu nefnd. Það er t.a.m. ekki aðaltil- gangur enskukennslunnar að kenna Islend- ingi ávæning af ensku til að hann geti fleytt sér áfram einhvers staðar, heldur til þess að tungan verði honum auðvelt tæki, sem hann getur notað í íslenzku umhverfi sínu. EITT AF ÞVÍ, SEM Hagnvtt nú er ekki sízt upp- , t < örvandi, er sú ákvörð- íslenzkunam un háskólans að taka höndum saman við fjölmiðlafyrirtæki og hefja námskeið í hagnýtri íslenzku og þá í nánum tengslum við það umhverfi, sem þessi hagnýt- ing kemur að mestu gagni. Það er háskólan- um til mikils sóma að hafa lagt út í þessa hag- nýtu kennslu með því markmiði sem að er stefnt; að efla íslenzkukunnáttu þeirra sem vinna við íjölrniðlafyrirtæki og önnur slík og minna á, í hvaða umhverfi við búum, hver er arfleifð okkar og hvert við hyggjumst stefna sem sjálfstæð þjóð með mikilvæg framtíðar- markmið. Þessi stefna háskólans er alvarleg áminning um hlutverk okkar og þá ekki sízt, hversu nauðsynlegt er að þessi æðsta menntastofnun landsins ræki lífrænt sam- band við atvinnufyrirtæki og þann íslenzka veruleika, sem er umhverfi okkar. Þessi mjói vísir er vonandi upphaf einhvers meira, en þó getur hann einkum orðið fyrirmynd öðrum þeim menntastofnunum sem ber skylda til þess að fara að orðum Konráðs Gíslasonar, rækta tilfinningu ungs fólks fyrir móðurmál- inu og leggja sitt af mörkum til að efla það og styrkja í því alþjóðlega hafróti sjónvarps og myndbanda, sem nú virðast einna helztir uppalendur nýrrar kynslóðar. Af þeim sökum ekki sízt er mikil vá fyrir dyrum og nauðsyn- legt að bregðast við eins og þeir eldheitu hug- sjónamenn sem hösluðu sér völl í Fjölni forð- um daga. En þá væru þessi skilaboð Konráðs Gíslasonar til Björns M. Olsens ágætt vega- nesti, en þau eru úr kafla sem Konráð skrifaði til hans 9. janúar 1885 - og mætti einnig ágætlega vera pkkur sem nú lifum nokkurt íhugunarefni: „Ósköp þætti mér vænt um, ef þér vilduð taka að yður ( - „að taka yður að“ mundi vera íslenzka núna!!!) kvenvæflu, sem hefur verið sæmilegur kvenmaður á unga aldri en nú er orðin púta, og hefur „f....ós“ eða er að minnsta kosti danósa. Þessi aumingja kvenvæfla er íslenzkan. Mér er nærri því sama, hvernig hún er, ef hún er ekki danósa. Við Islendingar, a.m.k. vel flestir, förum með hana eins og við værum djöflar, en ekki menn. Ég tek aðeins eitt eða tvö dæmi af mý- mörgum. 1) Af því að Danir segja „velvilje" o.s.frv., segja Islendingar nú „velvilji" og „velvild" (en „góðvilji“ og „góðvild" dettur þeim ekki í hug). 2) Um það leyti, sem Danir fóiu að sleppa „som“ í upptalningu, fóru ís- lendingar að segja og skrifa: „þessi bók, sem hér liggur, og sem ég er búinn að lesa.“ 3) Skástu mennirnir - hvað þá aðrir - segja nú „á Færeyjum“ og „á Sámsey“l 4) Og þar fram eftir götunum! Það er eins og hrækt sé fram- an í mig, þegar ég sé eða heyri annað eins. Þess vegna bið ég yður nú og særi yður fyrir drengskap yðar, að þér læknið þennan aum- ingja, doktor góðm-, og reisið hann á fætur og hjálpið honum sem bezt. Og þér munuð sanna, að þá mun flest ganga yður að sólu ...“ Þetta var orðsending eins háskólakennara til annars. Það þarf ekki að kynna Konráð Gíslason fyrir Islendingum, svo nálægt þjóð- arkvikunni sem hann og samstarfsmenn hans hafa verið um hálfrar annarrar aldar skeið. En Björn M. Olsen er einn hugkvæmasti fræðimaður i arfleifð okkar og á vart sinn líka í frumlegri hugsun og óvæntum textaskýring- um. Eftu-minnilegastar eru að öllum líkindum skýringar hans við Sólarljóð sem höfðu áreið- anlega drjúg áhrif á Sigurð Nordal, þegar hann vann að sínum skýringum á Völuspá. Björn M. Olsen var um skeið rektor háskóla Islands og það er því við hæfi að þessi merka menntastofnun hafi tekið hann á orðinu og vísi nú veginn inní nýja öld með þeim markmiðum, sem m.a. eru fólgin í þeirri nýju hagnýtu nám- skeiðaröð, sem nú er að hefjast, og þá ekki sízt í þeirri grein sem er forsenda þess að við mejgum enn teljast sérstök þjóð, íslenzkunni. I Reykjavíkurbréfi sem birtist á þessum vettvangi 5. apríl á fyrra ári var m.a. tekið svo til orða að augljóst væri að útlendir mennta- menn hafi mestan - og kannski einungis - áhuga á Islandi vegna arfleifðar okkar og tungu, en ekki vegna neinna sérstakra póli- tískra stefnumála eða einstaklinga sem borið hafa hróður þess um víða vegu, þótt það hafi kannski í einstaka tilfelli haft einhver áhrif; einnig á það bent að sérstæð náttúrufegurð landsins sjálfs hafi áreiðanlega mikið aðdrátt- arafl, þegar hugsað sé um þessar fjarlægu slóðir. Það hafi þannig ekki verið nein tilviljun að andleg stórmenni á borð við Borges og Áu- den, Maurer og Morris hafi dregizt að þessu framandlega landi og arfleifð þess. Einnig tekið svo til orða að engum detti í hug að al- menningur í nágrannalöndum okkar sé að velta fyrir sér íslenzku þjóðfélagi, forsendum þess og arfleifð. Þessi sami almenningur heyri að vísu eitt og annað um fyrirbærið Island án þess það komi honum frekar við en aðrar þær dægurflugur, sem verða á vegi hans. Samt sé hægt að nota þessar dægurflugur í landkynn- ingarstarfsemi og hefur það verið óspart gert. Um það er ekkert nema gott eitt að segja. Og enn segir þar: „Á hinn bóginn gegnir ís- land allt öðru hlutverki í hugum þeirra tiltölu- lega fáu sem þekkja arfleifð okkar og menn- ingu og hafa heillazt af þeirri staðreynd að þessi arfleifð er enn lifandi þáttur í þjóðllfi okkar og raunar jafn mikilvægur og landið sjálft. Geymd þessarar arfleifðar þykir í senn sérstæð og til fyrirmyndar og þá ekki sízt sú staðreynd að Islendingum hefur tekizt að varðveita tungu sína án þess hún hafi breytzt svo að teljandi sé frá því hinar miklu íslenzku bókmenntir urðu til á sínum tíma. Þeir sem ræða við háskólafólk og þá sem búa yfir veru- legri þekkingu verða fljótt varir við að það er þessi arfleifð og varðveizla tungunnar sem vekja aðdáun og eiga mestan þátt í því að hug- urinn hvarflar til Islands og allt fléttast þetta saman í eina órofa heild, land, þjóð og arfleifð, og þá með þeim hætti að margir útlendingai- dragast að landinu heillaðir af goðsögninni um Thule, sem er þó engin goðsögn í raun og veru, heldur gallharður veruleiki, ólíkur öllu öðru sem fólk á að venjast (ýmsir, þ.á m. Arn- grímur lærði, hafa efazt um að Thule sé ís- land, en um það skal ekki fjölyrt hér).“ Allt má þetta vafalaust til sanns vegar færa og einnig þá fullyrðingu að við eigum að rækta það, sem er mikilvægt, og við eigum að kunna skil á því, sem er mikilvægt. Það, sem gerir okkur að sérstæðri þjóð, hlýtur að vera mikilvægt í okkar augum, jafnvel í augum annarra. Islenzki togkrafturinn er arfleifð okkar. Hann er enginn dægurfluga, engin al- þjóðleg tízka. Hann er grundvöllur 1100 ára byggðar í landi okkar. Hann á ekkert skylt við blómin sem vaxa og deyja eftir duttlung- um veðurguðanna. Og af hverju? Af þeirri einfóldu ástæðu að rætur hans eru djúpt í ís- lenzkri mold. Þær draga athyglina að þeirri óvenjulegu flóru sem við höfum af að státa í sögu okkar og umhverfi; það eru rætur okk- ar, það eru rætur tungunnar sem við höfum borið gæfu til að varðveita í gegnum þykkt og þunnt eða - eins og brezkur háskólaprófessor sagði á kynningarfundi um íslenzkar bók- menntir: Islenzk tunga - hún er einsdæmi, hún er kraftaverk. mmmmm^mmm en þá er spurn- Hlú þarfað ingin, hvort við hug- A um nægilega að rót- rotunum unum. Hvort þær hafa fengið þá aðhlynningu sem nauðsynleg er. Hvort við umgöngumst íslenzkuna með þeim grænu fingrum sem hún á skilið. „Erum við á varðbergi nú þegar upplausnaröfl fara um löndin eyðandi sjónvarpseldi í nafni ein- hverrar alþjóðahyggju sem er einna helzt fólgin í því að skilja þannig við ræturnar að þær veslist upp og deyi? Við erum áreiðanlega á krossgötum hvað þetta varðar." Við höfum að vísu staðizt uppblásturinn en tungan á í vök að verjast, rétt eins og landið sjálft. Okkur ber skylda til að rækta hana, þetta mesta sameiningartákn lítillar þjóðar, sem þarf að átta sig á þeim vegamótum, þar sem við nú stöndum. Við þurfum að standast sírenurnar, ekki síður en sjóarar Ódysseifs á sínum tíma. Það er nauðsynlegt að kunna að varast þær. Nauðsynlegt að láta ekki blekkj- ast. En til þess verða skólarnir að verða í stakk búnir að kenna mælt mál, ekki síður en skrifað. Margir hafa miklar áhyggjur af þess- um þætti íslenzkrar samtímasögu. En fjöl- miðlamenn, sem um þetta skrafa og skrifa, gætu þá einnig sagt: Maður líttu þér nær! Það er víða pottur brotinn á þeim vígstöðvum. Fullkomin ástæða til að styrkja undirstöðurn- ar, herða aðhaldið. Líf okkar og framtíð gætu verið undir því komin. Allt þetta hefur verið margtíundað hér á þessum vettvangi og enn mætti betur, ef duga skal. Ekki alls fyrir löngu spurði norska stór- blaðið Aftenposten forystumenn stjórnmála- flokka þar í landi, hvað væri nauðsynlegast, þegar nýbúar ættu í hlut. Allir stjórnmálafor- ingjarnir lögðu höfuðáherzlu á að styrkja norskan grundvöll og móðurmálið. Að þessu gætum við einnig hugað. En sinnum við þess- um skyldum með þeim hætti sem duga skal? Þeir sem ábyrgðina bera ættu að grandskoða hug sinn og svara þessari spumingu, eins og efni standa til. Allt hrynur ef undirstaðan er ekki réttlig fundin. Morgunblaðið hefur ekki eitt fjölmiðla lagt áherzlu á tengslin við arfleifðina. Það hafa ýmsir aðrir einnig gert, bæði fyrr og síðar. I desember í fyrra var á þessum vettvangi fjallað, um orðið Norse en hörð gagnrýni hef- ur verið á notkun þessa. Þetta orðskrípi er fundið var upp í þvi skyni að komazt hjá því að tala um íslenzka arfleifð og ritmenningu, þeg- ar um það væri fjallað á engilsaxnesku, heldur skyldi arfleifðin vera Norse, þ.e. norræn, skandinavísk eða norsk; allt nema íslenzk! Framhjá því verður samt ekki gengið, sem fullyrt er í Reykjavíkurbréfi fyrr á þessu ári, en þar segir: „Éinatt er talað um íslenzkar bókmenntir til forna sem norskar bókmenntir, en það orð að vísu ekki notað, heldur annað sem einhvers konai- afsökun fyrir því að ekki skuli sagt beinum orðum að þessi arfleifð sé íslenzk, enda varð hún til á íslandi þótt ljóða- hefðin hefði flutzt út hingað með víkingum, þróazt og varðveitzt. Nú er tízka að nota Nor- se í ensku um alla norræna arfleifð - og þá ekki sízt íslenzka - en oftast er í raun átt við íslenzkar bókmenntir, þegar gripið er til þessa orðs. Hér er því um ákveðna tilraun til blekk- ingar að ræða. í orðabók Chambers fyrir 21. öldina segir m.a. að Norse merki einhver tengsl við Skandinavíu, það merki Norðmað- ur; það merki tunga sem töluð vai- í Skandin- avíu eða Noregi og nýlendunum; Norse merki Skandinavar, en þó einkum Norðmenn. í orðabókinni er ekki minnzt á að orðið Norse sé sérstök skfrskotun til Islands ...“ Island ekki á landakorti tízkunnar ÞAERBENTAAÐI jafnvirtu vísindariti og Scientific Americ- an sé talað um Norse sagas, þegar rætt er um víkingaferðir og fund Ameríku, en þessar sögur, sem eru aðal- heimild um þessar ferðir, að sjálfsögðu, voru skrifaðar á íslenzku um svipuð leyti og Norð- menn voru að glata tungu sinni. Þær mega bara ekki vera íslenzkar! Þannig er þessu einnig farið í nýlegu, álitlegu hátíðarblaði U.S. News & World Report, en þar er fjallað um líf mannsins á þessari öld. í þessu tiltölulega ný- útkomna blaði er talað um víkinga og víkinga- skip með gamaldags formerkjum og vart hægt að segja að Island komi þar við sögu, þótt sagt sé í framhjáhlaupi að Ólafur Tryggvason hafi árið 1000 snúið íslendingum til kristni, að vísu. Þar er aðaláherzlan á Nor- se-arfleifðina, þótt hún sé hvorki sjáanleg í tungu Skandinava né bóklegri arfleifð. Hún er sjáanleg á öðrum vettvangi, að vísu, en þó ekki sem þáttur í landnámssögu Vesturheims, svo að dæmi sé tekið. Þar eru íslenzkar heim- ildir alls ráðandi. í úttekt blaðsins er að vísu ekki talað um „Norse sagas“, heldur eru landafundirnir nú skráðir í „Viking sagas“. Það má þó kannski til sanns vegar færa, en er samt villandi. Þar er t.a.m. talað um „Norse term - „hafvilla" - , en það er einfaldlega ís- lenzka. Fyrr á tímum norræn tunga, nú vai’ð- veitt á Islandi. Síðan er sagt að Norsemen hafi bæði haft getu og hugrekki til að komast til Ameríku og loks, að sjálfsögðu, talað um „Norse settlers" í sömu andrá og vitnað er í íslenzka orðið skrælingjar! Að vísu vitnað annars staðar í Magnús Magnússon og rétt það, sem eftir honum er haft. En - Island er utan við þessa uppákomu alla! Þetta leiðir hugann að öði-u. í Bretlandi er merkilegt útgáfufyrirtæki, sem heitir Folio, og gefur út ágætar bækur. Nú er hafin útgáfa Islendingasagna á þess vegum. I kynningar- bæklingi er ekki farið í launkofa með uppruna þessara bókmennta, þær eru íslenzkar. Mesta og endingarbezta framlag íslands á miðöld- um, segir þar. Framúrskarandi afrek í mið- aldabókmenntum evrópskum; ávöxtur langrar menningarlegrar þróunar, einstæð bókmennt- areynsla. Ritstjóri þessarar útgáfu er Magnús Magn- ússon. I ágætri grein sem hann skrifar í kynn- ingarritið talar hann um Island sem raunveru- legt heimaland sitt, þótt hann hafi alizt upp í Edinborg frá 9 mánaða aldri. Magnús minnir á að allar þýðingar eru einskonar samkomulag - og það á auðvitað við um Islendingasögur á öðrum tungum. Magnús segir að útgáfa þess- ara sagna hafi átt að heita The Norse Sagas, eins og venja hafi verið. Hann segir það hafi í raun ekki truflað hann, hvort þessar sögur hafi verið kallaðar Norse eða Icelandic, svo lengi sem þær voru gefnar út! En vinum hans á Islandi þyki slík nafngift jafngilda því, að Skotar séu kallaðir Englendingar og hann gæti aldrei aftur stigið fæti á íslenzka jörð, ef flokkurinn héti The Norse Sagas; hann yrði eins og hver annai’ útlagi! Hann hafði sam- band við útgáfustjórann, Sue Bradbury, og hún samþykkti breytingu þegar í stað: The Icelandic Sagas skyldu bækumar heita. Undir þessu heiti koma Islendingasögur nú út á vegum þessa virðulega forlags, og það, sem er ekki verra - Magnús Magnússon getur komið heim til Islands óskaddaður, svo ágæt- ur fulltrúi íslenzkrai- menningar og arfleifðar, sem hann hefur ávallt verið. Allt er þetta fagnaðarefni. MORGUNBLAÐIÐ er ekki eitt íslenzkra fjölmiðla um þennan áhuga, enda augljóst að senn fer að glaðna til. Þannig benda eld- tinnurnar, sem fundizt hafa á Nýfundnalandi „eindregið til þess að íslenzkir menn hafi kom- ið þar við sögu,“ eins og segir í frétt nýlega, „en þær staðfesta dvöl íslenzkra landkönnuða á Nýfundnalandi fyrir þúsund árum. Það voru ekki íslenzkir heldur erlendir vísindamenn sem röktu þessi „fingraför“ til íslands." Þessi niðurstaða kom að sögn Smiths (dr. Kevin H. Smith, stjórnanda rannsóknarinnar, en hann er aðstoðarforstöðumaður á mannfræðideild vísindasafnsins í Buffaló í Bandaríkjunum) verulega á óvart, en með henni er fundin fyrsta vísindalega tengingin milli Nýfundna- lands og íslands. Hann sagði að eld-tinna, sem fyndist víða, kvamaðist fljótt og hefði verið nánast eins og eldspýtnastokkur fyrir land- könnuði á víkingaöld. „Þetta var því ekki hlut- ur sem líklegt er að hafi gengið milli manna í vömskiptum heldur er sennilegra að sá sem bar íslenzka steininn hafi komið frá Islandi," sagði Smith - og bætti því við að mikill fengur væri að slíkri vitneskju. Það má svo klykkja út með því að taka undir það, sem DV hefur haft um þetta mál að segja, en í forystugrein blaðs- ins 10. ágúst sl. var m.a. komizt svo að orði: „Samkvæmt heimild allra heimilda var Leifur heppni norskur, en ekki íslenzkur. Encyclopædia Britannica velkist ekki í vafa um ágreiningsefnið, sem Islendingar hafa löngum haft mikið fyrir að fá túlkað sér í hag í Bandaríkjunum, heimalandi alfræðibókarinn- ar.“ Raunar gengur heimild allra heimilda lengra því að í norska kaflanum segir, „að norskir sæfarar hafi verið heimskunnir, allt frá dögum Eiríks rauða og sonar hans, Leifs heppna." I kaflanum um Island „er hins vegar hvergi getið um landafundi, Vínland eða feðgana." Bent er á að alfræðiorðabókin birti nafn Leifs uppá norsku, „Leiv Eriksson den hepne“. „Lesendum er óbeint gefið í skyn að þannig hafi nafn Leifs verið ritað fyrir þúsund árum af því fólki sem alfræðibókin kallar „Norse“ og talaði tungu, sem hún kallar „Nor- se“. Og niðurstaða blaðsins er þessi: „Engu máli skiptir, hvað Clinton Bandaríkjaforseti fæst til að trúa og tala á hátíðlegum stundum. Engu máli skiptir hvort hægt er að koma ís- lenzkri söguskoðun á framfæri við hátíðarhöld fína fólksins í Vesturheimi. Það eitt skiptir máli, hvað heimild allra heimilda segir.“ Bandaríkjaforsetar komi og fari, hátíðarhöld komi og fari, fína fólkið komi og fari, en orða- bókin blífi. DVbætir því við að söguskoðunar- valdið sé ekki hjá fína fólkinu í veizlunum, heldur hjá þeim sem skrifa alfræðibók al- heimsins, eins og komizt er að orði, og ef rit- stjórar hennar - og þá væntanlega einnig ann- arra mikilvægra alfræðirita - viðurkenna að Leifur heppni hafi fæðst á Islandi og landnám Grænlands og Vínlands hafi að mestu verið ís- lenzkt fremur en norskt, sé „nánast með einu pennastriki hægt að breyta vefútgáfu alfræði- bókarinnar“ og það yrði meiri ávinningur en unnt yrði að ná með öðrum hætti. „Leiv Eriksson“ En jafnfrarat er ekki óalgengt að heyra svo hrak- smánarlega ís- lenzku í ljósvök- unum að þeir virð- ast í einni hend- ingu breytast í hryllingsóperu, þegar mestur gállinn er á mann- skapnum. «r
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.