Morgunblaðið - 13.11.1999, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 13.11.1999, Blaðsíða 50
MORGUNBLAÐIÐ 50 LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 1999 MINNINGAR EYÞÓR STEFÁNSSON + Eyþór Stefáns- son fæddist á Sauðárkróki 23. janúar 1901. Hann iést á Sjúkrahúsi Sauðárkróks 3. nó- vember síðastliðinn. Foreldrar hans voru Stefán Sig- urðsson, sjómaður á Sauðárkróki, f. 27. maí 1856, d. 14. des. 1921, og Guðrún Jónasdóttir, hús- freyja Sauðárkróki, f. 9. mars 1857, d. 6. október 1935. Systkini hans voru Stefán Stef- ánsson, f. 7. maí 1883, d. 16. júlí 1929, og Anna María Stefáns- dóttir, f. 26. október 1887, d. 1. nóvember 1956. Hann gekk í barna- og unglingaskólann á Sauðárkróki, en 1928 fór hann suður í tónlistarnám hjá Emil Thoroddsen og Páli ísólfssyni og leiklistamám hjá Indriða Waage. Hann var síðan við framhalds- nám í þessum greinum í Ham- borg 1934. Hann var aðeins 11 ára gamall er hann byrjaði að syngja með kirkjukór Sauðár- króks en kórinn var ekki form- lega stofnaður fyrr en 1942 að hans tiistuðlan sem var fyrsti stjóraandi hans. Hafði hann þá verið organisti og söngstjóri við Sauðárkrókskirkju frá árinu 1929 og gegndi hann þeim störfum allt tii ársins 1972. 19 ára gamall byij- aði Eyþór að vinna að söng- og leiklistar- störfum fyrir Ung- mennafélagið Tinda- stóls, eins var hann einn af þeim sem endurreistu Leikfé- iag Sauðárkróks 1941 og starfaði þar sem leikstjóri og leik- ari allt til ársins 1976 er hann steig siðast á svið, var það hans 118. hlutverk. Hann vann við verslunar- og skrifstofu- störf á Sauðárkróki 1923-1948, og var söngkennari við Baraa- og gagnfræðaskóla Sauðárkróks 1948-1972. Skólastjóri Tónlistar- skólans 1964-1974. Formaður framkvæmdanefndar um bygg- ingu minnisvarða Stephans G. Stephanssonar á Arnarstapa 1953. Hann var á timabili for- maður Kirkjukórasambands Skagafjarðarprófastsdæmis, sat í stjóra Kirkjukórasambands Is- lands og var sendikennari þess til kirkjukóra á Norður-, Austur- og Vesturlandi 1952-1961. Hann var einn af stofnendum Rotary- klúbbs Sauðárkróks 1948 og Hann stendur efst á kirkjutröpp- um Sauðárkrókskirkju beinn í baki með stafinn og ömmu sér við hlið, að koma úr messu og horfir yfir Skagafjörðinn. _ Þó að sjóninni hafi hrakað með aldrinum þá kom það endilega ekki að sök því hann mundi nákvæmlega hvernig Skagafjörðurinn leit út og hvar hver bær var. Hann þurfti því ekki endilega að sjá hlutina, hann mundi eftir þeim og minnið brást honum aldrei. Þessi sýn af honum og ömmu á kirkjutröppunum er mörgum Skagfirðingum sem komnir eru yfir miðjan aldur ekki ókunn því afi var organisti í rúm 40 ár og sagt er að enginn hafi gengið oftar um kirkjudymar en hann. Það eru viss forréttindi að hafa þekkt afa sinn í nær 40 ár og geta rætt nánast hvað sem er við hann allt fram á síðasta dag. A mínum yngri árurn var heilmikið ferðalag ‘ að fara frá Isafirði til Sauðárkróks, var það því alltaf jafn spennandi að fara til afa og ömmu og fá að vera þar mest allt sumarið. Hann kunni fullt af sögum, þurfti ekki bækur heldur mundi hann þær allar og mörg kvöld sat hann inn í herbergi hjá mér og sagði sögur. Það var líka regla hjá honum á kvöldin að hlusta á klassíska tónlist og sat hann þá venjulega einn inni í stofu og hlust- aði, en hann var ekki einn, því miðl- ar sem heimsóttu hann í gegnum árin sögðust sjá annað fólk í stof- unni sem fylgdi honum. Ég fór oft með honum í göngu- ferðir um bæinn og var þá komið við á hinum og þessum stöðum t.d. pósthúsinu og bankanum. Við vor- um oft lengi í þessum ferðum að mér fannst því það þurfti að spjalla við svo marga og þolinmæði mín á þessum árum fyrir svoleiðis kjafta- gangi ekki alltof mikil. Eitt af því mörgu sem afi starfaði við um æf- ina sem ég vissi lengi ekkert um var að hann var sjómaður og átti á tímabili bát og stóð í útgerð. Hann sagði mér seinna að hann hefði haft mjög gaman af því að vera á sjó. Afi fór líka í Drangey ásamt fleirum til eggjatöku í nokkur ár og mundi i, hann vel eftir þessum ferðum þegar ég var að spyrja hann um þær þó rúmlega 60 ár væru liðin. Á píanó- inu mínu eru tvær myndir af okkm- saman við píanóið hans teknar fyrir mjög mörgum árum og munu þær alla tíð minna mig á hver það var sem sá til þess að ég lærði á píanó sem hefur veitt mikla ánægju í ‘i gegnum árin. Núna veit ég að hon- um líður vel því hann er kominn til ömmu, mömmu og allra hinna ætt- ingja og vina sem farnir eru á und- an honum og við hin sem eftir eru getum verið þakklát fyrir að hafa hann hjá okkur svona lengi, lengst af við góða heilsu. Eyþór. í dag verður kvaddur frá Sauðái-- krókskirkju góður vinur, kennari og samstarfsmaður til margra ára, Eyþór Stefánsson, tónskáld. Tónlistarhæfileikar Eyþórs komu snemma í ljós, sem barn þótti hann hafa óvenju fagra söngrödd og aðeins 11 ára að aldri var hann tekinn í kirkjukór Sauðárkróks og söng þar til ársins 1929, er hann tók við af Pétri Sigurðssyni tónskáldi sem orgelleikari og kórstjóri kirkjunnar. Eyþór gegndi því starfi óslitið til ársins 1972. í áratugi var Eyþór helsti for- ystumaður Skagfirðinga í tónlistar- málum og leikstarfsemi. Fágaður smekkur og lifandi áhugi á félags- málum ásamt listrænum hæfileik- um gerðu það að verkum að allt sem Eyþór tók sér fyrir hendur var unnið af einlægri undirgefni og lotningu hins sanna listamanns. Sökum fátæktar og annarra að- stæðna átti Eyþór engan kost á að afla sér menntunar fyrr en vetur- inn 1928 er hann fór til Reykjavíkur og stundaði tónlistarnáni hjá Emil Thoroddsen og dr. Páli ísólfssyni, jafnframt því sem hann lagði stund á leiklist hjá Indriða Waage. Sjál- fnám hóf Eyþór 18 ára gamall, en þá hafði hann eignast sitt fyrsta hljóðfæri, lítil stofuorgel. „Jú, það var það, en ég gafst ekki upp, því áhuginn var svo mikill, en það sem bjargaði mér var að ég kom nótna- læs út úr barnaskóla," sagði Eyþór mér þegar ég innti hann einu sinni eftir því hvort ekki hefði verið erfitt að vera án kennara. Árið 1934 fór Eyþór námsför til Hamborgar. Hann dvaldi á heimili heiðurshjón- anna Hermínu og Bjöms Kri- stjánssonar. Hann minntist oft á það við mig hversu þakklátur hann var þeim hjónum fyrir alla þá að- stoð sem þau veittu honum. Dvölin í Hamborg varð honum mjög heilla- dijúg. Samhliða fjölþættum tónlistar- störfum vann Eyþór að leiklistar- málum á Sauðárkróki í röska hálfa öld, enda frábær leikari og leik- stjóri. Hann stóð fyrst á leiksviði 1917, en síðast lék hann í Islan- dsklukku Halldórs Laxness 1976 og var það 118. hlutverk hans. fræðslustúkunnar Mælifells, inn- an frímúrarareglunnar á íslandi 1970. Hann var heiðursfélagi í mörgutn félögum, þar á meðal: Kirlyukór Sauðárkróks, Leikfé- lagi Sauðárkróks, Ungmennafé- laginu Tindastól, Rotaryklúbbi Sauðárkróks, Tónskáldafélag- inu, var sæmdur heiðursmerki úr silfri frá Karlakórasambandinu Heklu á Akureyri, gullmerki frá Félagi íslenskra leikara og var heiðursborgari Sauðárkróks frá árinu 1971. Eins var hann sæmdur stór- riddarakrossi hinnar islensku fálkaorðu fyrir störf sín að menningarmálum á Sauðár- króki. Eyþór kvæntist 13. desember 1936 Sigríði Önnu Stefánsdóttur frá Skógum í Þelamörk, f. 29. september 1905, d. 20. júní 1992. Sigríður tók virkan þátt í störf- um Eyþórs bæði í leiklist og tón- list. Þau eignuðust eina dóttur, Guðrúnu Eyþórsdóttur, f. 24. júlí 1939, d. 17. apríl 1987. Maki Ein- ar Valur Kristjánsson, f. 16. ágúst 1934, d. 7. september 1996. Börn þeirra: 1) Eyþór Kristján, búsettur á Sauðárkróki, maki Ás- gerður Gísladóttir, og eiga þau tvö börn. 2) Sigríður, búsett á Akranesi, maki ÓIi Páll Engil- bertsson og eiga þau tvö börn. 3) Atli Stefán, búsettur í Hafnar- fírði, maki Ingunn Helgadóttir og eiga þau tvö böra. 4) Auðunn, búsettur á fsafirði. títför Eyþórs fer fram frá Sauðárkrókskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Árið 1964 gekkst Eyþór, ásamt öðrum áhugamönnum, fyrir stofn- un Tónlistarskóla Skagafjarðar. Starfsemin hófst 1965 og var Eyþór skólastjóri til 1974. Aðeins tveir kennarar voru við skólann fyrstu árin, - Eyþór sá um tónfræðina og tónlistarsögukennslu _ og ég um hljóðfærakennsluna. Árið 1980 á 15 ára afmæli Tónlistarskólans færði Eyþór skólanum peningagjöf - eina milljón króna - og í gjafabréfi segir hann: „Ég ætlast til að þessari fjár- hæð verði varið til sjóðsstofnunar, er þjóni því markmiði að styrkja þá nemendur skólans, er hyggja á framhaldsnám 1 hljóðfæraleik eða söng, eftir að hafa lokið tilskildum prófum við skólann. Það skal verða þeim lykill að leið, sem mér var lok- uð fyrir eina tíð.“ Það gladdi hann mjög að nemendur mínir, sem hlot- ið hafa styrk úr sjóðnum, eru nú starfandi tónlistarkennarar. Eyþór bar þannig hag Tónlistarskólans fyrir brjósti alla tíð og vildi hann sem mestan og spurði mig ætíð frétta úr skólanum er ég heimsótti hann. Við systkinin nutum góðs af vin- áttu, sem var milli foreldra okkar og Éyþórs og Sigríðar konu hans og fengum að læra á orgel hjá Ey- þóri. Atta ára hóf ég nám hjá hon- um og fljótlega kom að Snæbjörgu systur. Við fetuðum þar í fótspor systra okkar, Ólafar og Gígju, sem höfðu þá lært hjá honum í nokkur ár og voru farnar að syngja í kirkjukómum. Síðar hvatti Eyþór okkur Snæbjörgu til framhalds- náms. Hann var fyrstur til að gefa okkur innsýn í dýrðarheima tónlist- arinnar og það verður aldrei full- þakkað. Eftir að Snæbjörg varð söngvari og söngkennari í Reykja- vík, sendi Eyþór henni oft yndisleg lög sín, sem hún frumflutti. Eyþór Stefánsson er landsþekkt tónskáld, sem gaf þjóðinni nokkrar dýrmæt- ar perlur sem helstu söngvarar okkar hafa sungið mikið bæði hér heima og erlendis. Fremstur í þeim flokki er æskuvinur Eyþórs og frændi, Stefán íslandi, sem meðal annars frumflutti Lindina er samin var 1936 svo og Bikarinn sem Ey- þór tileinkaði honum. Eyþóri var sýndur margháttaður sómi um ævina. Hann var heiðurs- félagi Leikfélags Sauðárkróks, Ungmennafélagsins Tindastóls, Rotarý-klúbbs Sauðárkróks, Tón- skáldafélags íslands og Kirkjukórs Sauðárkróks. Árið 1971 var hann gerður að heiðursborgara Sauðár- króks. Eyþór var kvæntur mætri sóma- konu, Sigríði Stefánsdóttur. Sissa eins og hún var ætíð kölluð, studdi eiginmann sinn í starfi á margvís- legan hátt, enda áttu þau sameigin- leg áhugamál í tónlist og leiklist. Sissa lagði mikla rækt við fjöl- skyldulífið sem einkenndist af hlýju, glaðværð, reglusemi og snyrtimennsku. Sissa sýndi mér mikið traust er ég var níu ára, er hún bað mig að passa Guðrúnu, einkadóttur þeirra hjóna. Það gerði ég í mörg sumur og var það upphaf áralangrar óslitinnar vináttu okk- ar. Guðrún hlaut í arf ýmsa bestu eðlisþætti foreldra sinna. Það var gott að vera í návist hennar. Öþvinguð glaðværð var henni eðlis- læg. Lát Guðrúnar árið 1987 var því öllum harmdauði. Það eru forréttindi að hafa átt langa samleið og vináttu Eyþórs, Sissu og Guðrúnar. Ég þakka allar ljúfu samverustundimar. Bömum Guðrúnar og Einars V. Kristjáns- sonar; Eyþóri, Sigríði, Atla Stefáni og Auðunni og öðrum ættingjum Eyþórs sendi ég innilegar samúð- arkveðjur. Eva Snæbjamardóttir. í dag er til moldar borinn heið- ursborgari Sauðárkróks, Eyþór Stefánsson tónskáld. Eyþór fædd- ist á Sauðárkróki í upphafi aldar og kveður nú þegar öldin er öU. Hann átti því samfylgd með íbúum Sauð- árkróks og Skagafjarðar alls í nær heila öld. Sú samfylgd varð gæfur- ík. Eyþór átti manna stærstan þátt í hverskonar menningarstarfi á Sauðárkróki og í Skagafirði á meg- inhluta tuttugustu aldarinnar. Hann var í fararbroddi og miðlaði samferðamönnum óspart af þeim hæfileikum sem hann var gæddur í svo ríkum mæli. Trúlega munu tónsmíðar Eyþórs halda minningu hans lengst á lofti enda lög hans mörg hver gullfalleg. Fyrir samferðamenn hans á Sauð- árkróki skipti þó ekki síður máli hversu virkur hann var í menning- arlífinu um áratugaskeið. Hann var burðarás í starfi Leikfélags Sauð- árkróks og öllu tónlistarlífi. Þá er ómetanlegt starf hans að því að kenna tónmennt í skólum bæjarins og utan þeirra líka. Eyþór Stefánsson var höfðingi. Hin hægláta ljúfmennska sem einkenndi hann virkaði þannig á samferðamenn að þeir hlutu að sýna honum tilhlýðHega virðingu. Virðuleik sínum og andlegri reisn hélt Eyþór til síðasta dags. Eyþór Stefánsson var kjörinn heiðursborgari Sauðárkróks á al- darafmæli byggðar á Sauðárkróki árið 1971. Með því vildu bæjarbúar sýna í verki hversu mjög þeir mátu margháttuð störf Eyþórs í þágu bæjarfélagsins. Nú að leiðarlokum færir sveitar- stjóm Skagafjarðar Eyþóri Ste- fánssyni dýpstu þakkir fyrir öll hans störf í þágu Sauðkrækinga og Skagfírðinga. Megi hann hvíla í friði þar sem útsýni yfir Skagafjörð er jafnvel enn fegurra en úr gluggunum í Fögruhlíð. Snorri Bjöm Sigurðsson sveitarstjóri. Eyþór Stefánsson, vinur minn og samstarfsmaður til margra ára, er látinn. Aðstæður í núverandi starfi mínu leyfa ekki, að ég fylgi honum hinsta spölinn, þá leið sem við gengum æði oft saman á árum áð- ur, frá Sauðárkrókskirkju og upp í kirkjugarðinn á Nöfunum. Því hlýt ég að skrifa hér fáein kveðjuorð. Við Eyþór sáumst fyrst fyrir 40 árum, á aðventu 1959. Sauðárkrók- sprestakall hafði þá verið auglýst laust til umsóknar, og ég fór norður til að kynna mér aðstæður. Presta- kallið var án þjónustu, og ég var beðinn að messa. Messan varð að ýmsu leyti söguleg, en það sem skipti mig mestu máli voru kynnin af Eyþóri og kirkjukómum. Ég skynjaði, hve mikils virði það var fyrir hið kirkjulega starf að hafa svo vel menntaðan mann sem Ey- þór í starfi organista og söngstjóra, rnann sem þar að auki var þjóð- þekkt tónskáld. Það var líka auð- fundið, að tengsl kórsins og Eyþórs einkenndust bæði af gagnkvæmri virðingu og kærleika. Ég fann, að með þessu fólki yrði gott að starfa. Ég var svo lánsamur að hljóta kosningu og tók til starfa í Sælu- viku Skagfirðinga 1960. Þar sá ég nýja hlið á Eyþóri. Ég sá hann þá sem söngstjóra á konsert, en einnig sem leikarann og leikstjórann á fjölunum í Bifröst. Dymbilvika og páskahátíð vora þarna skammt undan. Þeir dagar, frá pálma- sunnudegi til annars páskadags, bjóða upp á alla breiddina í íslensku helgihaldi. Þetta voru dýrlegir dag- ar fyrir mig. I fyrsta skipti í prests- skap mínum fékk ég tækifæri til að tóna hátíðasöngva sr. Bjama Þor- steinssonar, yndislegasta tónlag sem ég þekki. Eyþór og kórinn komu vel á móti, af listrænni reisn. Þess vegna urðu þetta raunvera- legar hátíðir trúarlegrar upplifun- ar, sem lyfti andanum í hæðir hrifn- ingar, og fagnaðarerindið kom beint í æð. Ég kom til starfa á Sauðárkróki eftir einhverjar hörðustu prest- skosningar, sem um getur. Éyþór kaus mig ekki. en það var ég aldrei látinn finna. Ég var strax orðinn presturinn hans. Þegar á leið fyrsta árið var ég tekinn inn í Rotary- klúbb Sauðárkróks, þar sem Eyþór var fyrir. Þá varð það að lítt frávíkj- anlegri venju, að Eyþór kom heim með mér eftir Rotaryfundi á fimmtudögum til þess að semja með mér sálmaskrá fyrir messu næsta sunnudags. Sjón hans fór mjög hrakandi síðari árin, og þá varð að takmarka sálmavalið við það, sem hann þekkti vel. En hann lét aldrei af þeirri venju sinni að af- henda mér fyrir messu nánast skrautritaðan miða með aðalatrið- um guðsþjónustunnar. Við urðum afar nánir samstarfs- menn. Milli okkar urðu til æ sterk- ari strengir náinnar vináttu. Við þurftum ekki ætíð að segja hlutina. Við vissum báðir nokkuð, hvernig hinum leið. Hólar í Hjaltadal voru okkur helgur staður. Við vildum reisn hins foma helgiseturs sem mesta og studdum, sem við gátum, að endurreisn þess. Eyþór stjómaði gjarnan söng á Hólahátíðum og var einkar kær minning Jóns helga Ög- mundssonar, hins mikla söng- manns. Á 850 ára afmæli Hólastóls varð Eyþór þar fyrir andlegri reynslu, sem hafði djúp áhrif á hann. Éftir prédikun Sigurgeirs biskups átti kórinn að syngja sálm Skagfirðingsins Kolbeins Tuma- sonar Heyr himnasmiður við lag Sigvalda Kaldalóns. Þetta hafði verið vel æft á Sauðárkróki dagana á undan. Þegar Eyþór ætlaði að grípa til nótnanna, meðan biskup var að prédika, þá fann hann þær ekki og gekk alveg úr skugga um, að hann hefði ekki tekið þær með. Þetta var honum áfall, því hann gat ekki leikið þetta nótnalaust. Hann sat því og hugleiddi, hvað hann gæti tekið í staðinn. En, þegar hann ætlaði að setja þær nótur á orgelið, þá sá hann, að nótumar að hinu lag- inu vora óvænt komnar þar. Hann hélt því, að einhver kórfélaginn hefði óvart verið með lagið með sér og lék nú glaður hinn forna skag- firska trúaróð. Þegar sálminum lauk leit hann eitt augnablik af or- gelinu til þess að nálgast messu- söngsbókina, en er hann lét hana á orgelið, þá vora nótumar umræddu horfnar. Nótur Eyþórs fundust þá fyrst, er komið var þangað heim, sem síðasta kóræfingin hafði verið. Þar höfðu þær gleymst. Hinar komu, að hans dómi, öragglega úr öðram heimi, og Eyþór þakkaði það heilögum Jóni. Síðar, þegar ég stóð eitt sinn sem oftar fyrir Hólahátíð, þá bað ég Eyþór með löngum fyrir- vara að semja tónverk til dýrðar Jóni Ögmundssyni og skyldi það flutt á hátíðinni. Hann tók lítt undir það, en svo kom andinn yfir hann, og þá varð tii hið fagra verk Dona nobis pacem - Gef oss frið. Eyþór var einlægur trúmaður og leit á skáldlegan innblástur sem ávöxt heilags anda, himneska gjöf. í samræmi við þetta málaði hann eitt sinn olíumynd. Þar sér inn í
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.