Morgunblaðið - 27.02.2000, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 27.02.2000, Blaðsíða 12
12 SUNNUDAGUR 27. FEBRÚAR 2000 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Landsþingskosningar í Schleswig-Holstein í dag Fyrsta kosningaprófraun CDU eftir fjármálahneykslið VOLKER Riihe, frambjóðandi CDU í Schleswig-Holstein, man þá tíð þegar ekki var talað um leynir- eikninga, milljóna marka ferða- töskur og dularfullt hvarf skjala sem snúa að vopnasölu. Áður en hneykslið varð að dag- legu umfjöllunarefni fjölmiðla var CDU í mikilli uppsveiflu. Flokkur- inn hafði aukið fylgi sitt í öllum sjö landsþingskosningum ársins á sama tíma og Jafnaðarmannaflokk- urinn (SPD) var í mikilli lægð eftir erfiða byijun ríkisstjómar Ger- hards Schröders kanslara. Skoð- anakannanir sýndu að CDU hafði 10% forskot á SPD í Schleswig- Holstein og óhjákvæmilegt virtist að sigurgangan héldi áfram í fyrstu landsþingskosningum hins nýja ár- þúsunds. Víst þótti að hinn 57 ára gamli Ruhe, fyrrverandi vamar- málaráðherra í ríkisstjóm Kohls, yrði næsti forsætisráðherra Schleswig-Holstein. Þótt fjármála- hneykslið hafi skyndilega breytt öllu gerði Ruhe sér vonir um að menn fæm að sjá fyrir endann á því máh í lok síðasta árs. í hverri viku komu þó í ljós nýjar hliðar á hneykslinu og í miðri kosningabar- áttunni í Schleswig-Holstein þurfti Rúhe ávallt að vera tilbúinn að túlka nýjustu uppljóstranir í mál- inu, hvort sem þær snem að Kohl, Scháuble eða CDU í Hessen. Tvöföld kosningabarátta Riihes í kjölfar fjármálahneykslisins vora kristilegir demókratar í Schleswig-Holstein í erfiðri stöðu og skoðanakannanir sýndu að þriðji hver kjósandi sambandslandsins taldi að hneykslið hefði áfrif á val sitt í komandi kosningum. Mörgum kjósendum CDU er ofboðið vegna hneykslisins og Ijóst er að einhverj- ir þeirra, sem kusu flokkinn í lands- þingskosningunum 1996, munu nú refsa CDU með því að veita flokki frjálsra demókrata (FDP) atkvæði sitt. Meðvitaður um að hneykslið í Hessen hafi neikvæð áhrif á flokk- inn í Sehleswig-Holstein reyndi Rúhe að greina sig frá CDU ann- arra sambandslanda með slagorð- inu „Það er Sehleswig-Holstein sem skiptir máli.“ Með þessum orð- um hvatti Rúhe kjósendur til að einblína á sambandslandið í norðri og líta framhjá fjármálahneykslinu sem hefði lítið með CDU í Schleswig-Holstein að gera. Hann reyndi að beina athygli fjölmiðla frá hneykslinu og vekja áhuga þeirra á málefnabaráttu flokksins. Rtihe boðaði niðurskurð í einu skuldugasta sambandslandi Þýska- lands, endurbætur í mennta- og umferðarmálum, lækkun skatta, minni skriffinnsku, öflugri lögreglu í baráttunni gegn glæpum svo og að kvenna- og umhverfisráðuneytin yrðu lögð niður. Hann sagði kjós- endur m.a. þurfa að taka ákvörðun um það hvort þeir vildu frekar refsa CDU vegna fjármálahneyksl- isins eða binda enda á vandamálin í grannskólunum. Þegar stytta tók í kosningar sýndu skoðanakannanir að má- lefnabaráttan ein myndi ekki nægja Ruhe. í kjölfar þess að Wolfgang Scháuble sagði af sér for- mannsembætti CDU í Þýskalandi og fjölmiðlar tóku að fjalla um Rtihe sem mögulegan eftirmann féll slagorðið „Það er Schleswig- Holstein sem skiptir máli“ í gleymsku. Rtihe notaði nú sérhvert tækifæri til að minna á að árangur CDU í Schleswig-Holstein væri af- gerandi fyrir framtíð Rtihes innan stjómar CDU í Þýskalandi. Kjós- endur í Schleswig-Holstein væra þannig ekki aðeins að velja næsta forsætisráðherra sambandslan- I dag, sunnudaginn 27. febrúar, fara fram landsþingskosningar í Schleswig— Holstein, nyrsta sambandslandi Þýska sambands lýðveldisins. Davíð Kristinsson, fréttaritari í Berlín, segir niðurstöðu kosninganna beðið með mikilli eftirvænt- ingu þar sem þetta séu fyrstu kosningarn- ar eftir að fjármálahneyksli kristilegra demókrata (CDU) kom upp á yfírborðið fyrir um þremur mánuðum. dsins heldur einnig að taka ákvörð- un um framtíð Rtihes í Berlín. Komið hefur upp sú gagnrýni að með þessari örvæntingarfullu stefnubreytingu sé boðskapur Rtihes til kjósenda sá að þeir séu síður að taka ákvörðun um framtíð Schleswig-Holstein en að greiða at- kvæði í vinsældakönnun. Niður- staða könnunarinnar muni síðan skera úr um það hvort Rtihe eigi möguleika á formannsembættinu þegar flokksfulltrúar CDU koma saman í maí. SPD hefur gagnrýnt Rtihe fyrir að „hugsa augljóslega aðeins um eigin frama“ og nota kosningarnar í Schleswig-Holstein einungis sem stökkbretti inn í stjómmál á sam- bandsþinginu. Mörgum virðist hug- ur Rtihes staddur í fjögur hundrað kílómetra fjarlægð frá Kiel, þ.e. í Berlín, höfuðsetri sambandsstjóm- málanna. Úrslit kosninganna mun leiða í ljós hvort þessi áhættusama „stefnubreyting" Rtihes hefur auk- ið við eða dregið úr fylgi CDU síð- ustu dagana fyrir kosningar. Fyrsta konan í embætti forsætisráðh erra Þegar Rtihe ákvað fyrir ári að fara í framboð gegn Heide Simonis (SPD) var honum ljóst að hinn vin- sæli forsætisráðherra yrði ekki auðveldur andstæðingur. Sam- kvæfnt nýlegri skoðanakönnun era 74% íbúa sambandslandsins án- ægðir með starf forsætisráðherra Schleswig-Holstein. Hin 56 ára gamla Simonis tók við embættinu 1993 en hún er eina konan sem gegnt hefur stöðu forsætisráðherra innan Þýska sambandslýðveldisins. Jafnaðarmenn stjómuðu einir sam- bandslandinu í norðri frá 1988 en í landsþingskosningun- um 1996 misstu þeir hreinan meirihluta á þinginu í Kiel og Simon- is varð því að bjóða græningjum stjórnarsamstarf. Eitt af slagorðum jafnaðarmanna í kosn- ingabaráttunni að þessu sinni hefur verið „Okk- ar sterki maður er kona“. Simonis hefur forðast að gera fjár- málahneyksli kristi- legra demókrata að um- talsefni í kosningabaráttunni, og á meðan að Rtihe talar um að bjarga verði sam- bandslandinu frá glötun vitnar Simonis £ sænska forsætisráðherrann, Göran Persson, sem nefnt hefur Schleswig- Holstein „perlu Þýska- lands". Auk Schröders kanslara fór nóbels- verðlaunaskáldið nýkrýnda, Gtinter Grass, norður til að styðja við bakið á Si- monis í kosningabaráttunni. Á sama tíma og CDU í Schleswig- Holstein hefur tapað 10% fylgi frá því að fjármálahneykslið kom upp í byrjun nóvembermánuðar hefur SPD aukið fylgi sitt um tæp 10%. Allt bendir nú til að Simonis verði áfram forsætisráðherra Schleswig- Holstein til ársins 2005 og gangi það eftir yrði þetta fyrsti sigur SPD í landsþingskosningum í lengri tíma. Græningjar tæpir Allra helst hefði Simonis viljað halda áfram stjórnarsamstarfinu við græningja og því verða engar breytingar í Schleswig-Holstein nái græningjar þeim 5% sem þarf til að komast inn á landsþingið. Skoðana- kannanir undanfarinna vikna sýna þó að græningjar era alveg á mörk- unum og virðist vikuheimsókn vin- sælasta stjórnmálamanns Þýska- lands, Joschka Fischer, lítið hafa hjálpað flokksfélögunum í norðri í kosningabaráttunni. Græningjar era langt frá því að vera jafn vin- sælir í Schleswig-Holstein og SPD og segja má að umhverfisráðherra græningja sé jafnóvinsæll og Si- monis er vinsæl. Fyrstu tvö árin í samsteypustjórninni vora erfið þar sem græningjar litu í senn á sig sem stjómarflokk og stjómarand- stöðuflokk. Þeir reyndu að koma í veg fyrir iðnaðaráform, byggingu hraðbrauta og sjálfur umhverfis- ráðherrann var með mótmæla- aðgerðir gegn áformum sem flokk- arnir höfðu þegar komið sér saman um við myndun stjórnarinnar. Þegar ljóst varð að fylgi græn- ingja færi dvínandi tók flokkurinn að milda afstöðu sína. Flokkurinn hefur þó fengið bændur og sjómenn upp á móti sér vegna áforma um stækkun þjóðgarðs í héraðinu. Græningjar hafa áhyggjur af því að frjálsir demókratar, FDP, gæti orðið freistandi samstarfskostur fyrir SPD nái græningjar ekki 5% atkvæða og slíkt gæti leitt til auk- ins samstarfs FDP og SPD í öðram sambandslöndum. Ör fylgisaukning FDP Framan af stefndi Wolfgang Ku- bicki, formaður þingflokks FDP í Kiel, á samsteypustjórn með CDU og útilokaði hann stjórnarsamstarf við SPD. Þessar yfirlýsingar komu í haust þegar CDU hafði 10% meira fylgi en nú. I kjölfai’ fjármála- hneykslisins hefur FDP hagnast á slæmu gengi CDU og tekist að tvö- falda fylgi sitt á tveimur mánuðum. Flokknum er nú spáð yfir 8% at- kvæða og mörg ár era síðan að fylgi FDP hefur mælst svo mikið. Þar sem ólíklegt þykir að CDU fái meira en 35% atkvæða virðist meirihlutastjórn flokkanna tveggja útilokuð. í kjölfar þessa hefur Kubicki ný- lega lýst yfir auknum áhuga á sam- starfi við SPD. Hann benti á að þar sem 80% hins svonefnda Schröder- Blair-skjals jafnaðarmanna sé skrifað upp úr stefnuskrá FDP sé fáránlegt að útliloka samvinnu við SPD. A auglýsingaplakötum hefur FDP þó leitast við að niðurlægja Si- monis í kosningabaráttunni og for- sætisráðherrann segist ekki hafa hug á að mynda samsteypustjóm með FDP. Danski minnihlutinn Nái græningjar ekki 5% atkvæða er því líklegra að Simones leiti til SSW (Súdschleswigscher Wahlver- ein), flokks danska minnihlutans i Schleswig-Holstein. SSW, sem er jafnaðarmannaflokkur, er spáð 4% fylgi en SPD um 45% atkvæða. Þar sem SSW er undanskilinn frá 5%- reglunni getur flokkurinn átt von á að ná þriðja manninum inn á lands- þingið í Kiel og gæti það tryggt SSW og SPD hreinan meirihluta á þinginu. Ólíklegt er þó að SSW taki þátt í ríkisstjórn og líklegra þykir að SPD stjórni landinu með stuðn- ingi þingmanna SSW. Hægri öfgaflokkurinn NPD virð- ist hvorki hafa hagnast á fjármála- hneyksli CDU né flugferðamis- notkun SPD-forkólfa og kosn- ingaplaköt með slagðorðinu að Kohl, Schauble og Rau séu „þrjár góðar ástæður til að kjósa NPD“ virðast ekki ætla að skila fylgis- aukningu. Flokkur „hins lýðræðis- lega sósíalisma" (PDS), arftaki austur-þýska kommúnistaflokks- ins, á engan möguleika í Schleswig- Holstein fremur en í öðrum sam- bandslöndum Vestur-Þýskalands. Riihe gegn tveimur vinsælum konum Á sama tíma og Rtihe er í erfiðri baráttu við Simonis um embætti forsætisráðherra Schleswig-Hol- stein er hann jafnframt að keppa við aðra vinsæla konu, Angelu Merkel, framkvæmdastjóra CDU, um það hver verði kjörinn eftir- maður Scháubles á flokksþingi CDU í maí. Sigurmöguleikar Rtihes gegn Merkel velta á því hvaða árangri flokkur hans nær í kosningunum í Schleswig-Holstein. Þegar fyrstu úrslit liggja fyrir þarf Merkel að stilla sér upp fyrir fram- an stjónvarpsmyndavélarnar og meta niðurstöðurnar sem ákvarðað gætu framtíð Rtihes svo og hennar sjálfrar. Merkel getur þó ekki verið viss um hvað bíði hennar þar sem fjórðungur aðspurðra í skoðana- könnun hafði ekki enn gert upp hug sinn. Góðæri í * Uganda Kampala. AP. EKKI era mörg ár síðan Kampala, höfuðborg Úganda, var vígvöllur drakkinna hermanna sem þóttu öt- ulli við að herja á borgarbúana og láta greipar sópa um hús þeirra en að berjast sín á milli. Eftir tveggja áratuga einræði, fátækt og stríð sem lauk 1986 og kostaði allt að milljón manna lífið era Úganda- menn nú yfirleitt ánægð þjóð, njóta ávaxta 7% hagvaxtar og meira frels- is en nokkur dæmi era um í sögu landsins. „Við höfum aldrei haft það svona gott,“ sagði Quinto Ebony, þrítugur læknir, sem leikur á rafmagnsgítar á tónlistarkrá í höfuðborginni. „Áður hugsuðu menn um það eitt að komast héðan. Núna era börn þeirra sem flúðu til Bandaríkjanna, Bretlands og annarra Evrópuríkja að snúa hingað aftur, til að búa hérna, ekki til að koma í heimsókn," sagði Hope Kivengere, talsmaður Yoweri Museveni forseta, sem er sagður eiga mestan heiðurinn af uppganginum í Úganda. Flokkur forsetans, Andspyrn- uhreyfing Úganda, var í fýrstu vinstrisinnuð uppreisnarhreyfing, sem aðhylltist „afrískan sósíalisma“. Liðsmenn . hreyfingarinnar voru þjálfaðir í Norður-Kóreu og Líbýu. Hreyfingin tók hins vegar að hneigjast til kapítalisma þegar hún komst til valda árið 1986 eftir fimm ára baráttu gegn einræði Idi Amins og Miltons Obote. Helmingnr skuldanna afskrifaður Vestrænir lánardrottnar hafa nú dálæti á stjórn Úganda sem hefur lagt kapp á að auka frjálsræðið í efnahagnum, selja ríkisfyrirtæki og stuðla að aukinni fjárfestingu fyrir- tækja. Úganda varð fyrsta ríkið í Afríku sem náði samkomulagi við lánardrottna sína um að þeir af- skrifuðu helming erlendra skulda landsins. Stjómin hyggst nota fjár- magnið, sem annars hefði farið í að greiða skuldir, til að bæta skólana, heilsugæsluna og samgöngurnar. ------UH-------- Norðmenn klofnir í deilu um gasorkuver Ósló. Reutere. NORÐMENN eru klofnir í afstöð- unni til þess hvort þingið eigi að samþykkja tillögu stjómarandstöð- unnar um að reist verði gasorkuver í Noregi og hvort minnihlutastjórnin, sem er andvíg tillögunni, eigi að segja af sér nái hún fram að ganga. Þetta kemur fram í skoðanakönn- un sem Dagbladet birti á föstudag. Hún bendir til þess að 34% Norð- manna séu hlynnt því að gasorkuver verði reist með þeirri tækni sem nú er fyrir hendi en 31% leggist gegn tillögunni. Minnihlutastjórn Kjells Magne Bondeviks forsætisráðhema segir að gasorkuver valdi of mikilli kol- tvísýringsmengun með þeirri tækni sem nú er notuð og það myndi tor- velda Norðmönnun að standa við skuldbindingar sínar í Kyoto-bókun- inni sem miðar að því að stemma stigu við loftslagsbreytingum í heiminum. Bondevik hefur sagt að stjómin kunni að segja af sér 9. mars verði gasorkuverið samþykkt á þinginu. Stjórn Bondeviks er aðeins með 42 þingsæti af 165 og meirihluti er nú fyrir því á þinginu að reisa ga- sorkuver til að mæta aukinni raf- magnseftirspum. 40% aðspurðra í könnuninni sögð- ust andvíg því að stjórnin segði af sér ef tillagan verður samþykkt en 38% voru á öndverðum meiði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.