Morgunblaðið - 26.04.2000, Side 2

Morgunblaðið - 26.04.2000, Side 2
2 C MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 2000 KORFUKNATTLEIKUR MORGUNBLAÐIÐ MIKIL breidd í liði KR gerði gæfumuninn þegar það fékk Grindavík í heimsókn í fjórða úrslitaleik íslandsmótsins í KR-húsinu í gærkvöldi. Þrátt fyrir góðan sprett gestanna i byrjun tókst þeim ekki að fylgja honum eftir því Vesturbæingar gátu skipt ört inná óþreyttum leikmönnum, sem allir voru jafn góðir. Útslagið gerði síðan góð byrjun KR-inga eftir hlé þegar þeir sneru taflinu við - skoruðu 14 stig án þess að Grindvíkingar fengju nokkuð að gert og úrslitin voru eftir því, 83:63. Þar með rufu KR- ingar áratugar einokun Suður- nesjaliða á Islandsbikarnum. Tíu sekúndum eftir að leikurinn hófst fiskaði vörn KR boltann af gestunum og Keith Vassell skoraði fyrstu stig leiksins Stefán við mikinn fógnuð Stefánsson áhorfenda jafnt sem skrifar félaga sinna. En bið varð á frekari tilþrif- um því Grindvíkingar áttu í fullu tré við þá í vörninni auk þess að hittni þeirra var afleit á meðan Grindvík- ingar komust í 9:20 um miðjan fyrri hálfleik. Þá fór að rofa til í Vestur- bænum og heimamenn hófu að saxa niður forskotið en hittnin brást Grindvíkingum. Ekki náðu þeir alla leið að jafna því eftir mikinn darrað- ardans síðustu mínútu fyrri hálfleiks náði Alexander Ermonlinski að koma gestunum í 31:34. Ský dró síðan alveg frá sólu í upp- hafi síðari hálfleiks því á fyrstu fimm mínútunum skoraði KR 14 stig sem skilaði 45:34 forystu. Grindvíkingar lögðu samt ekki árar í bát og á meðan Keith Vassell hvíldi með fjórar villur á bakinu tókst þeim að minnka mun- inn í tvö stig, 50:48. Þá kom Keith inná aftur og þegar Ólafur Jón Orms- son tók einnig til sinna ráða áttu gest- imir ekkert svar. Sem íyrr segir var mikil breidd í liði KR og svo til allir leikmenn stóðu rækilega íyrir sínu. Þó Keith virkaði þungur skilaði hann sínu, tók meðal annars 18 fráköst, varði tvö skot og gaf þrjár stoðsendingar. Jónatan var einnig sterkur og kann svo sannar- lega sitt fag - körfuknattleik. Jesper Sörensen var mjög lipur eins og Jón Amór Stefánsson, Jakob Örn Sigurð- arson, Steinar Kaldal og Ólafur Jón fyrirliði. Brenton, sem tók 9 fráköst og gaf 6 stoðsendingar, og Alexander voru allt í öllu hjá Grindavík, stundum var eins og þeir ættu að vinna leikinn uppá sitt einsdæmi en það er til of mikils ætlast. Pétur Guðmundsson og Guðlaugur Eyjólfsson byrjuðu vel. Úrslitakeppnin í körf uknattleik 2000 Fjórði leikurirm i úrslltunum, leikinn i Reykjavik 25. april 2000 KR GRINDAVÍK 83 Skoruðstig 63 14/19 Vítahfttní 7/8 7/21 3ja stiga skot 6/26 24/43 2jastigaskot 19/38 29 Varnarfráköst 20 11 Sóknarfráköst 7 13 Bolta náð 14 19 Bolta tapað 17 12 Stoðsendingar 11 17 Villur 18 Morgunblaðið/Kristinn Ingi Þór Steinþórsson fagnar íslandsmeistaratitli á fyrsta ári sínu sem þjálfari KR. Martin Hauks- son liðsstjóri KR er glaðbeittur við hlið þjálfarans. Jesper hættir hjá KR DANINN Jesper Winter Sor- ensen, sem leikið hefur með KR frá því í fyrra, mun ekki leika með liðinu á næsta tímabili. Jesper, sem er 23 ára á þessu ári, er í háskólanámi í stærð- fræði og hyggst halda því áfram í Danmörku. Hann hefur í vetur sinnt fjamámi en telur sig ekki hafa tök á að halda því áfram næsta vetur. Ólafur samdi á ný við KR Ólafur Jón Ormsson, fyrirliði KR, hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við liðið. Þá hafa KR-ingar framlengt samn- ing sinn við Jónatan James Bow um eitt ár. Hann gerði í fyrra tveggja ára samning við liðið en hefur fallist á að leika eitt ár til viðbótar með því. Þriðji íslandsmeistara- titillinn hjá Bow Jónatan Bow hefur þrívegis unnið Islandsmeistaratitil hér á landi. Hann vann titilinn með Keflavík 1992 og 1993 og nú með KR. Bow kom til landsins árið 1989 á vegum KR en var leigður til Hauka, en KR varð íslands- meistari árið 1990. Hann fór til KR tímabilið 1990-91 og varð þá bikarmeistari með liðinu. Þaðan lá leiðin til Keflavíkur. Ingi með titil á fyrsta ári Ingi Þór Steinþórsson, 27 ára gamall þjálfari KR, vann Islandsmeistaratitil á sínu fyrsta ári sem þjálfari liðsins. Hann tók við liðinu af Keith Vassell í sumar en hafði áður þjálfað yngri flokka hjá félag- inu. Þá unnu KR-ingar sinn fyrsta titil í nýju íþróttahúsi fé- lagsins, en það var tekið í notk- unífyrra. Vissi að við værum með besta liðið Eg vil að sjálfsögðu vinna öll þau mót sem ég tek þátt í, en undir niðri óraði mig ekki fyrir því að okkur tækist að Eftir hampa sjálfum G/s/a Islandsmeistaratitl- Þorsteinsson inum,“ sagði Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari KR, aðspurður hvort hann hefði búist við því í upphafi móts að liðinu tækist að vinna titilinn. „Ég vissi að við myndum gera góða hluti og hafði trú á því sem ég var að gera, enda búinn að þjálfa í ellefu tímabil og vinna marga titla með yngri flokkum. Ég hef tekið þátt í að búa til sterka leikmenn í yngri flokkum félagsins og við erum nú að uppskera eins og við sáðum. Þessi sigur hefur mikla þýðingu fyrir mig, sjálfstraustið er mikið um þessar mundir og stefnan er að vera áfram á toppnum og áfram í KR.“ Vissi að Ingi Þór mundi standa sig „Það er ólýsanleg tilfinning að ná að vinna Islandsmeistaratitilinn. Ég hef einu sinni orðið bikarmeist- ari í Danmörku en aldrei orðið landsmeistari fyrr en nú,“ sagði Jesper Winter Sprensen, leikmaður KR. Jesper, sem lék einnig með KR undir lok síðasta tímabils, sagðist hafa sannfærst um það um leið og hann kom til Iandsins í haust að KR væri með besta liðið í deildinni. „í liðinu eru ungir og efnilegir strákar sem hafa reynst sigursælir með yngri flokkum félagsins. Það sem vantaði upp á hjá KR í fyrra var einn skotbakvörð til viðbótar og því var ég fenginn til félagsins. Þá er mikilvægt að hafa leikmenn eins og Keith Vassell og Jónatan Bow, sem er margreyndur leikmaður og hefur leikið í mörgum úrslitakeppnum." Jesper bar jafnframt lof á Inga Þór Steinþórsson, þjálfara liðsins, sem hann sagði hafa staðið sig veí þrátt fyrir ungan aldur. „Ég kynnt- ist honum [Inga Þór] í fyrra og vissi að hann hafði unnið gott starf með yngri flokka og að hann mundi leggja hart að sér fyrir liðið, eins og hann hefur alltaf gert fyrir KR.“ Bíðum ekki tíu ár eftir næsta titli Ólafur Jón Ormsson, fyrirliði KR, sagði að það sem hefði fært lið- inu íslandsmeistaratitilinn væri sterkur varnarleikur, góð liðsheild og samheldni. „Þessir þrír þættir hafa fleytt okkur Iangt. Við erum með sterkt lið, enda sýndum við það í síðari hálfleik, unnum hann með 25 stigum.“ Ólafur Jón sagði að hann væri í fyrsta skipti íslandsmeistari og að það væri besta tilfinning sem hann hefði upplifað í íþróttum. „Við eig- um þennan titil skilið, enda liðið búið að leggja hart að sér. Nú er tit- illinn loksins kominn á höfuðborg- arsvæðið og ég held að við þurfum ekki að bíða önnur tíu ár eftir þeim næsta, enda mikil gróska í yngri flokkum félagsins,“ sagði Olafur Jón og vísaði til þess að KR hefði orðið íslandsmeistari síðast árið 1990 áður en liðið vann titilinn á ný í gærkvöldi. Líður dásamlega „Það er mér mikilvægt að vinna titil, því ég hef unnið að því hörðum höndum frá því ég kom hingað til lands. Við töpuðum fyrir Njarðvík í úrslitaleikjum fyrir tveimur árum og ég kenndi sjálfum mér um tapið og taldi að ég hefði getað leikið bet- ur. En nú líður mér dásamlega, enda fékk ég tækifæri til þess að vinna titilinn á ný og það tókst,“ sagði Keith Vassell, leikmaður KR. Hann sagði að liðinu hefði vaxið ás- megin með hverjum leik í úrslita- keppninni og leikmenn hefðu verið komnir með gott sjálfstraust fyrir leikina gegn Grindavík. „Ég er dauðuppgefinn eftir þennan leik. Pétur [Guðmundsson] er ákafur leikmaður og var mér erfiður. Mér gekk illa að hitta í upphafi en tók mér tak og lagði meira á mig. Það skilaði árangri." Aðspurður um hvort hann hygðist leika með KR á næsta tímabili sagði Vassell að á því væru góðar líkur. Höfðum leikinn í hendi okkar „Það eru gríðarleg vonbrigði að tapa leiknum og missa af titlinum. Við ætluðum að vinna leikinn, enda þekkjum við ekkert annað, en það tókst ekki að þessu sinni. Þeir léku betur en við og verðskulduðu sig- ur,“ sagði Pétur Guðmundsson, fyr- irliði Grindvíkinga. Hann sagði að Grindavík hefði haft leikinn í hendi sér en afleitur leikur liðsins í upp- hafi síðari hálfleiks hefði breytt hlutskipti liðanna. „Á þeim kafla gekk ekkert í leik okkar en á sama tíma fengu þeir sjálfstraust. KR- ingar hafa í höndunum ungt lið og það spilaði betur en við í dag.“ Gerðum of mikið af mistökum „Við gerðum alltof mikið af mis- tökum og það gengur ekki upp í svona leikjum. Við byrjuðum af krafti en misstum kraft og gáfum leikinn frá okkur,“ sagði Einar Ein- arsson, þjálfari Grindavíkur. Hann sagði að upphaf síðari hálfleiks hefði gert út af við liðið, en þá skor- uðu KR-ingar 14 stig í röð. „Við gerðum mikið af mistökum og rétt- um þeim boltann upp í hendurnar. Okkur tókst að minnka muninn nið- ur í tvö stig en þá fór allt í baklás á ný og KR-ingar náðu yfirhöndinni. Við gerðum einfaldlega of mikið af mistökum."

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.