Morgunblaðið - 01.08.2000, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 01.08.2000, Blaðsíða 2
2 C ÞRIÐJUDAGUR1. ÁGÚST 2000 MORGUNBLAÐIÐ i Franskir gluggar og drauma- hjónaherbergi HJÁ Fasteignasölunni Höfða er til sölu glæsilegt einbýlishús við Hvassaberg 14 í Hafnarfirði. Húsið er á einni hæð, alls 217 fm, með tvö- földum bílskúr, sem er 47 fm. Húsið teiknaði Kjartan Sveinsson. Það var byggt 1985. Samkvæmt upplýsingum frá Maríu Haraldsdóttur, sölustjóra hjá Höfða, er húsið allt mjög opið og bjart. Forstofan er flísalögð með hita í gólfinu og bogadregna hurð. Inn af forstofunni er gestasnyrting, Úr for- stofunni er gengið inn í glæsilegt hol, þaðan niður fjórar tröppur í stóra stofu. Inn af stofunni er arinstofa með náttúruhita í gólfi og þaðan er gengt út í garðinn. A stofunum er gegnheilt parket. Eldhúsið er mjög rúmgott með vandaðri innréttingu úr kirsu- beijaviði og keramik-helluborði og inn af því eru stórt þvottaherbergi oggeymsla. I húsinu eru fjögur svefnherbergi. Eitt þeirra segir María vera „draumahjónaherbergi". Það sé rúmgott með sér fataherbergi og sér baðherbergi sem bæði eru inn af hjónaherberginu. Frá svefnherberg- isgangi er gengið út í garð þar sem gert er ráð fyrir heitum potti. Baðherbergið er mjög fallegt. Það er flísalagt í hólf og gólf og hefur bæði baðkar og sturtuklefa. „I hús- inu eru gullfallegir franskir gluggar, sumir bogadregnir," segir María. Lóðin er ekki fullfrágengin, en landslagsarkitektinn Stanislas Bohic hefur teiknað einkar skemmtilega útfærslu á henni. Bílskúrinn er tvöfaldur, einangraður með raf- magni, hita og hurðaopnara. Óskað er eftir tilboðum í húsið. Hvassaberg 14 í Hafnarfirði er á einni hæð, alls 217 fm, með tvöföldum bflskúr, sem er 47 fm. Óskað er eftir tilboðum, en húsið er til sölu hjá Höfða. Skuldajöfnun vaxtabóta Markadurinn Skuldajöfnun vaxtabóta á móti g;ialdföllnum afborgunum af lánum Ibúðalánasjóðs var fyrst framkvæmd á síðasta ári. Hallur Mag-nússon, yfirmaður gæða- og mark- aðsmála íbúðalánasjóðs, fjallar hér um skuldajöfnunina og segir, að hún eigi ekki að koma á óvart við álagningu opinberra gjalda á þessu ári. VAXTABÆTUR eru áberandi í umræðunni í kjölfar þess að álagningaseðlar vegna opinberra gjalda berast í byrjun ágústmánaðar ár hvert. Á síðasta ári var tekið upp það nýmæli með reglugerð að vaxta- bótum er ekki einungis skuldajafnað á móti ógreiddum opinberum gjöld- um eins og tíðkast hafði um langt árabil, heldur er þeim einnig skulda- jafnað á móti gjaldföllnum afborgun- um og vöxtum af lánum íbúðalána- sjóðs. Er íbúðalánasjóður í 14. sæti á eftir ýmsum opinberum gjöldum sem ganga fyrir við skuldajöfnun vaxtabóta. Skuldajöfnun vaxtabóta á móti gjaldföllnum afborgunum af lánum Ibúðalánasjóðs var fyrst fram- kvæmd á síðasta ári og kom ýmsum því miður í opna skjöldu. Hins vegar ætti skuldajöfnunin ekki að koma á óvart við álagningu opinberra gjalda á þessu ári. Hjá hverjum verður skuldajafnað? Vegna þess tíma sem það tekur að ganga frá álagningaseðlum verður Ibúðalánasjóður að senda Ríkisbók- haldi upplýsingar um ógreiddar gjaldfallnar afborganir af lánum með nokkrum fyrirvara. Við skulda- jöfnunina er miðað við gjaldfallnar afborganir með gjalddaga 15. júní og eldri sem ekki höfðu verið greiddar 5. júlí. Því mun verða skuldajafnað hjá þeim hópi sem greitt hefur gjald- fallnar afborganir eftir 5. júlí, en þeir munu fá skuldajöfnunina endur- greidda fyrstu daga ágústmánaðar. Þó mun ekki vera skuldajafnað hjá þeim sem eru með samning við íbúðalánasjóð um greiðslu vanskila. Fjöldi lántaka sem ekki höfðu staðið í skilum 5. júlí er 10.302 og fjárhæð sú sem skuldajafnað verður er rúmur einn milljarður. Til saman- burðar má geta þess að heildarfjár- hæð útistandandi lána íbúðalána- sjóðs er um 300 milljarðar. Hvað eru vaxtabætur? Þar sem verið er að fjalla um skuldajöfnun vaxtabóta er ekki úr vegi að gera grein fyrir ýmsu er snertir vaxtabætur. Vaxtabætur eru opinber stuðning- ur við þá sem skulda vegna húsnæð- iskaupa. Réttur til vaxtabóta stofn- ast á því ári þegar íbúð eða eignarhluti er keyptur eða bygging er hafin. Vaxtabætur ákvarðast sam- kvæmt upplýsingum á skattframtali Neðstaberg 18 er hús á tveimur hæðum. Ásett verð er 28 millj. kr., en húsið er til sölu hjá Þingholti. Fallegt hús á tveimur hæðum í Víðidal VIÐ Neðstaberg 18 f Víðidal er gullfallegt hús á tveimur hæðum til sölu. Húsið stendur innst í botn- langa við Elliðaárdalinn, byggt 1983 og teiknað af Valdísi Bjarna- dóttur. Húsið er í sölu hjá Fast- eignasölunni Þingholti. Ásett verð er 28 millj. kr. Aðkoman að húsinu er hellulögð og upphituð. I forstofu eru granít- flísar á gólfi og þaðan er gengið inn í hol með flísum og góðum fataskáp- um. Á jarðhæðinni er þvottaher- bergi með glugga og innréttingum. Þar er líka eldhúsið, með Alno-inn- réttingum úr gegnheilli ljósri eik, flísum á gólfi og borðkrók. Frá opnu rými milli eldhúss og stofu eru dyr út á hellulagða verönd sem er undirstaða sólskála. í þessu rými er gert ráð fyrir nuddpotti sem er niðurfelldur í gólfið. Stofur eru stórar og bjartar, tvær með teppi og ljósu eikarpark- eti, auk þess sem stórt herbergi er á jarðhæðinni, sem tengja má stofu. Samkvæmt upplýsingum frá fast- eignasalanum eru loftin á efri hæð- inni öll panelklædd úr gegnheilli eik. Þar er rúmgott miðrými með parketi, fjögur góð svefnherbergi með parketi og skápum, fallegt bað- herbergi með flísum í hólf og gólf og góðum innréttingum, halogen lýsingu, bæði baðkari og sturtu- klefa - og stórum glugga. Inn af forstofunni er herbergi með sérsnyrtingu og dyrum út á verönd. Þar er einnig steypt niður- fellt baðkar í gólfi. og til að fá vaxtabætur þarf að gera sundurliðaða grein fyrir lánum og vaxtagjöldum vegna íbúðakaupa. Þeir sem eru heimilisfastir hér á landi og kaupa eða byggja húsnæði til eigin nota, eiga rétt á vaxtabótum vegna vaxtagjalda af þeim lánum sem íbúðaröfluninni tengjast. Sama á við um þá sem kaupa búseturétt með almennu láni. Þá falla vaxtagjöld lána íbúða- lánasjóðs vegna verulegra endur- bóta á íbúðarhúsnæði og lána vegna greiðsluerfiðleika, þ.e. lán sem sann- anlega eru tekin til greiðslu á lánum sem notuð voru til öflunar íbúðar- húsnæðis, undir vaxtagjöld sem tek- ið er tillit til við ákvörðun vaxtabóta. Vaxtagjöld vegna lána til skemmri tíma en tveggja ára mynda stofn til vaxtabóta en einungis á næstu fjór- um árum (tekjuárum) talið frá og með kaupári og er þá miðað við dagsetningu kaupsamnings, eða á næstu sjö árum talið frá og með því ári þegar bygging er hafin eða til og með því ári sem húsnæðið er tekið til íbúðar ef það er síðar. Vaxtagjöld vegna fasteignaveð- skulda og skulda með sjálfskuldar- ábyrgð við lánastofnanir sem upp- haflega voru til tveggja ára eða lengri tíma eru ekki háð þessum tímamörkum. Vaxtagjöld teljast gjaldfallnir vextir og gjaldfallnar verðbætur á afborganir og vexti. Einnig afföll af verðbréfum, víxlum og öðrum skuldaviðurkenningum. Afföllin reiknast hlutfallslega miðað við af- borganir á lánstíma. Afföll vegna sölu húsbréfa teljast eingöngu til vaxtagjalda þegar seljandi þeirra er jafnframt skuldari fasteignaveð- bréfs. Þá telst lántökukostnaður til vaxtagjalda. Utreikningur vaxtabóta Vaxtagjöldin mynda stofn til út- reiknings vaxtabóta eftir ákveðnum reglum sem eru að finna í leiðbein- ingum með skattframtali ár hvert. Vaxtagjöld til útreiknings vaxtabóta er sú fjárhæð sem lægst er af eftir- töldum þremur liðum: a) Vaxtagjöld vegna íbúðakaupa samkvæmt skattframtali b) 7% af eftirstöðvum skulda vegna íbúðakaupa á skattframtali. c) Hámark vaxtagjalda. Hámark hjá einhleypingi er 432.026 kr., hjá einstæðu foreldri 567.159 kr. og hjá hjónum, sambúðarfólki eða pari í staðfestri samvist 702.290 kr. Frá vaxtagjöldum samkvæmt framansögðu dragast 6% af tekju- stofni (hjá hjónum, sambúðarfólki eða pari í staðfestri samvist er miðað við samanlagðan tekjustofn beggja). Mismunur er vaxtabætur sem skerðast hlutfallslega fari eignir að frádregnum skuldum fram úr ákveð- inni fjárhæð. Sú fjárhæð er kr. 3.249.517 hjá einhleypingi eða ein- stæðu foreldri. Vaxtabætumar skerðast uns þær falla niður við 60% hærri eignamörk eða kr. 5.199.227. Hjá hjónum, sambúðarfólki eða pari í staðfestri samvist taka vaxta- bæturnar að skerðast við eignamörk að fjárhæð kr. 5.386.635 uns þær falla niður við 60% hærri mörk eða kr. 8.618.616. Hámark vaxtabóta fyrir einhleyp- ing er kr. 148.036, fyrir einstætt for- eldri kr. 190.386 og fyrir hjón, sam- búðarfólk eða par í staðfestri samvist kr. 244.811. Bflskúr er með öllum lögnum til að setja þar upp litla íbúð að sögn seljenda. Við húsið eru stórar sól- ríkar verandir móti suðri og falleg- ur garður í rækt sem tengir eignina við útivistarsvæði Víðidalsins. Fasteignasölur £ blaðinu í dag xAgnar Gústafsson bis. XÁS bls. xÁsbyrgi bis. xBerg bis. xBifröst bis. xBorgir bis. xBrynjólfur Jónsson bis. xEign.is bis. xEignamiðlun bis. xFasteign.is bis. xFasteignamarkaðurinn bis. xFasteignamiðstöðin bis. xFasteignasala íslands bis. xFasteignasala Mosfellsb. bis. xFasteignastofan bis. xFell bis. xFjárfesting bis. XFold bls. XFOSS bls. xFrón bis. xGarður bis. xHíbýli bis. XHolt bls. XHÓII bls. xHraunhamar bis. xHreiðrið bis. xHúsakaup bis. XHÚSÍÖ bls. xHúsvangur bis. XHÖfði bls. xKjöreign bis. xLundur bis. xMiðborg bis. xSéreign bis. xSkeifan bis. xSmárinn bis. xStakfell bis. xValhús bis. 20 7 10 24 26 13 10 19 5 31 11 24 22 9 29 20 28 15 30 25 9 30 27 32 8 6 12 23 21 3 25 14 4 9 22 30 6 17 xValhöll bis. 16-17 xÞingholt bis. 6

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.