Morgunblaðið - 01.09.2000, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 01.09.2000, Blaðsíða 14
14 FÖSTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Steinstöpull þýsks vfsindamanns varðveittur Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Stöpull þýska visindamannsins Alfreds Wegeners stendur við Hegranesið. Atti að sanna landreks- kenning- una Gardabær BÆJARRÁÐ Garðabæjar hefur samþykkt að varðveita steinstöpul á Amarnesi og gera lítinn garð umhverfis hann. Stöpullinn hefur staðið á Amarnesinu í 70 ár eða allt frá því að þýski veðurfræð- ingurinn og vísindamaðurinn Alfred Wegener reisti hann vorið 1930 til þess að sanna hina svokölluðu landreks- kenningu. „Alfred Wegener setti fram landrekskenning- una fyrstur manna. Þar segir að jörðin sé samansett af flekum sem færast til og frá og er stöpullinn sem Wegen- er reisti mælipunktur til þess að mæla landrek, enda er Is- land staðsett á mörkum tveggja fleka, annars vegar Ameríkuflekans og hins veg- ar Evrasíuflekans, sem eru að færast í sundur,“ segir Eirikur Bjarnason, bæjar- verkfræðingur Garðabæjar. Mótaði kenninguna á sjúkrabeði Wegener setti kenningu sína fram á áranum 1908 til 1912 en á þeim tíma var henni fálega tekið af vísinda- mönnum. Það var ekki fyrr en árið 1960, þegar mælitæki voru orðin nógu þróuð til þess að sanna kenningu Wegeners með óyggjandi hætti, að hún fór að njóta al- mennrar viðurkenningar. Eiríkur segir kenningu Wegeners hafa fullmótast þegar hann var þátttakandi í fyrri heimsstyrjöldinni í herliði Þjóðverja. „Hann særðist og þurfti að eyða löngum tima á sjúkrahúsi og hafði þvi nógan tíma til að hugsa. Einmitt á þeim tíma mótaðist þessi kcnning end- anlega í huga hans þótt hann hafi verið búinn að hugsa um hana í langan tíma áður,“ segir Eirfkur. Varð úti á Grænlandsjökli Árið 1915 gaf Wegener út bókina Entstehung der Kont- inente eða Tilurð megin- landanna þar sem kenningin um landrek er sett fram. Wegener átti að minnsta kosti tvisvar sinnum við- komu á Islandi á leið sinni til Grænlands, en þar vann hann að veðurathugunum á Grænlandsjökli. „Eftir að hann hafði sett upp stöpulinn hér fyrri hluta árs 1930 hélt hann til Grænlands. Hann varð úti á Grænlandsjökli í nóvember það sama ár,“ seg- ir Eiríkur. Að sögn Eiríks ákváðu bæjaryfirvöld í Garðabæ að varðveita stöpulinn þar sem í ár er 70 ára dánardægur Wegeners en einnig em 70 ár sfðan hann setti stöpulinn upp. Var það gert til þess að heiðra minningu þessa merka vísindamanns. Vélsmiðjan Normi hefur keypt þetta hús sem löngum hýsti starfsemi RLR. Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Esjuberg senn auglýst til sölu Reykjavík ESJUBERG, hús Borgar- bókasafns Reykjavíkur við Þingholtsstræti, verður auglýst til sölu einhvern næstu daga, að sögn Hjör- leifs B. Kvaran, borgarlög- manns. Borgarráð samþykkti þann 23. júní sl. að setja hús- ið í sölumeðferð. Aðalsafn Borgarbókasafnsins var þar til húsa um áratuga skeið en fluttist í sumar í nýtt hús- næði við Tryggvagötu. Hjörleifur B. Kvaran sagði í samtali við Morgunblaðið að um þessar mundir væri verið að tæma Esjuberg en húsið yrði auglýst til sölu einhvern næstu daga. Hjörleifur sagði að nokkuð hefði verið um að menn hefðu spurst fyrir um húsið og sýnt því áhuga en borgin hefði ekki ljáð máls á því að veita tilboðum viðtöku fyrr en eftir að húsið hefði verið auglýst til sölu með formlegum hætti. A IR-húsið geymt í Örfírisey? Vesturbær REYKJAVÍKURBORG vinnur nú að því að fá íþróttafélag Reykjavíkur til að samþykkja að afsala sér gamla íþróttahúsinu við Túngötu. Að sögn Hjörleifs B. Kvaran er ráðgert að flytja húsið af grunni sínum og vestur í Orfirisey þar sem það verði geymt uns því verður fundinn viðeig- andi staður og hlutverk. Að sögn Hjörleifs hafa ÍR-ingar nú til skoðunar af- sal sem borgin hefur útbúið og kvaðst hann vonast til að gengið yrði frá málinu næstu dag. Borgin hefur fengið afnot af landi á upp- fyllingu í Örfirisey hjá Reykjavíkurhöfn til að geyma húsið meðan framtíð þess er óráðin. Flytja þarf húsið af grunni sínum við Túngötu í kjölfar dóms Hæstaréttar í, deilumáli IR-inga og kaþ- ólska safnaðarins, sem hyggur á húsbyggingar á lóðinni. Menningarmálanefnd borgarinnr hefur ályktað að stór hluti íslenskrar íþrótta- sögu hafi verið skrifaður í húsinu og það hafi verið miðpunktur þess sem kallað hefur verið gullöld íslenskra frjálsíþrótta. Nefndin vildi láta friða húsið og lagði til að því yrði fundin verðug staðsetning og hlutverk með tilliti til sögu þess. Jón á Reykjum heiðursborgari Mosfellsbær BÆJARSTJÓRN Mosfells- bæjar hefur samþykkt að gera Jón M. Guðmundsson á Reykj- um, fyrrverandi oddvita, að heiðursborgara Mosfellsbæjar. I samþykkt sem gerð var á fundi bæjarstjómar á miðviku- dag segir að með þessu móti vilji bæjarstjómin láta í Ijós þakklæti sitt og viðurkenningu á hinu mikilvæga framlagi Jóns til uppbyggingar sveitar- félagsins, en Jón var oddviti Mosfellshrepps frá 1962-1981, á miklum umbrotatíma í sögu sveitarfélagsins, og hrepp- stjóri frá 1984-1990. „Auk þess hefur hann tekið virkan þátt í félagsstarfi innan og utan sveitarfélagsins og lagt þar dijúgt af mörkum. Nafn hans hefur verið samofið sögu sveitarfélagsins um ára- tuga skeið og er við hæfi að Mosfellsbær votti honum virð- ingu sína með þessum hætti nú þegar 80 ára afmæli hans stendur fyrir dymrn þann 19. september nk.,“ segir í álykt- uninni. Vélsmiðja kaupir hús RLR Kópavogur VÉLSMIÐJAN Normi hf. í Garðabæ hefur keypt húsið Auðbrekku 6 þar sem Rannsóknarlögregla ríkis- ins og síðar embætti Ríkis- lögreglustjóra var til húsa. Samkvæmt upplýsingum frá Þórhalli Arasyni í fjár- málaráðuneytinu, bárust sjö tilboð í húsið og þótti tilboð Norma best. Þórhall- ur sagði að kaupverðið hefði verið um 75 m.kr. en Sævar Svararsson, forstjóri Norma, vildi ekki kannast við þá tölu. „Ég hefði verið ánægður að fá húsið fyrir það,“ sagði Sævar. Húsið er um 1.500 fer- metrar, að sögn Sævars, en hann sagði óráðið hvað um það yrði. Verið væri að kanna ýmsa möguleika, þar á meðal hvort það hentaði sem hótel. Hann kvaðst hinsvegar tilbúinn til við- ræðna ef einhver sýndi áhuga á að nýta húsið. Rannsóknarlögregla rík- isins var til húsa í Auð- brekku frá þvi' í lok átt- unda áratugarins og þar til hún var lögð niður við stofnun embættis Ríkis- lögreglustjórans. Ríkislögreglustjóri starfaði í húsinu uns embættið flutti í nýtt hús við Skúlagötu fyrr á þessu ári. Bætt netsamband 1 grunnskólum Hafnarfjarðar Ný loftnet auka flutn- ingsgetu Hafnarfjörður HAFNARFJARÐARBÆR undirbýr nú uppsetningu loftneta frá Skýrr við alla grunnskóla í Hafnarfirði sem tryggja munu háhraðanet- samband fyrir skólana. Skóla- skrifstofa Hafnarfjarðar er um þessar mundir að ganga frá samningum við Skýrr hf. en allur búnaður mun koma frá fyrirtækinu. Er þetta hluti af þróunar- verkefni Hafnarfjarðarbæjar í upplýsingatækni og segir Jó- hann Guðni Reynisson, verk- efnisstjóri, að loftnetin verði sett upp þegar líða tekur á haustið. .Astæðan fyrir því að við setjum þetta upp er fyrst og fremst sú að við viljum bæta þjónustu við nemendur og kennara í grunnskólum bæjar- ins. Við höfum verið að þróa ýmiss konar verkefni í upplýs- ingatækni og viljum að þægi- legra verði fyrir nemendur og starfsmenn skólanna að nota sér nýjungar á fljótlegan og þægilegan hátt,“ segir Jóhann. Jafnframt bættu netsam- bandi munu allir nemendur í grunnskólum Hafnarfjarðar fá eigin netföng og heimasíðu- svæðiívetur. Bætt flutningsgeta auð- veldar notkun skólatorgs Jóhann segir að flutnings- geta tölva í skólunum muni allt að því sextánfaldast með til- komu nýju loftnetanna. „Öll vinnsla verður mun hraðari. Eldri tengingar hafa þá van- kanta að þegar verið er að kenna heilum bekk á tölvur og allir ætla að fara í einu inn á Netið þá gengur allt mjög hægt fyrir sig. Með tilkomu nýju loftnetanna verður miklu þægilegra að nota Netið, ekki þarf að eyða eins miklum tíma í að bíða og þannig er hægt að fara betur með tíma nemenda og kennara,“ segir Jóhann. Hann segir að bætt flutn- ingsgeta muni einnig auðvelda notkun á skólatorgi sem verið er að setja upp í Öldutúnsskóla en sagt var frá því í Morgun- blaðinu í gær. Skólatorg verð- ur að öllum líkindum komið í fleiri hafnfirska skóla áður en langt um líður að sögn Jó- hanns en torgið er vefútgáfu- kerfi sem unnið er af Tækni- vali og er gjöf fyrirtækisins til allra skóla í landinu. „Við vilj- um taka þátt í þessari upplýs- ingatækniþróun og styðja við bakið á þeim sem eru að gera eitthvað gott fyrir nemendur, kennara og foreldra,“ segir Jó- hann. Jóhann segir að með skóla- torginu og bættu netsambandi verði kennarar virkari notend- ur upplýsingatækni í sínu starfi. „Það er forsenda fyrir því að þeir séu virkir í sam- starfi við nemendur og for- eldra. Þeir kennarar sem hafa verið að nota tölvupóst hafa til dæmis verið að fá fyrirspumir frá foreldrum um hvaðeina í sambandi við bekkinn eða nemandann í tölvupósti á hvaða tíma sólarhringsins sem er. Þannig geta foreldrar haft samband þegar þeim hentar. Þessi frábæri kostur tölvu- póstsins nýtist því vel í skóla- starfinu og kennarar sem not- færa sér þetta eru að tileinka sér ný vinnubrögð," segir Jó- hann. Hann segir þróunarverkefni Hafnarfjarðarbæjar engan veginn lokið. „Það er mjög hröð þróun í þessum málum og við viljum halda þessu áfram. Við höfum lagt mikla áherslu á að skólamir séu virkir í þessu verkefni og munum gera það áfram,“ segir Jóhann.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.