Morgunblaðið - 08.10.2000, Blaðsíða 1
231. TBL. 88. ÁRG.
SUNNUDAGUR 8. OKTÓBER 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Hisbollah-skæruliðar í Líbanon
Israelskir her-
menn í gíslingu
Yarin, Tabríkha í Líbanon, Nablus á Vesturbakkanum. AP, AFP.
SKÆRULIÐAR Hizbollah í Líban-
on skutu í gær Katjúsha-flugskeyt-
um yfir landamærin á þrjár stöðvar
hermanna ísrael og sögðust síðar
hafa tekið „marga ísraelska her-
menn“ í gíslingu. Að sögn líbanskra
fjölmiðla er um að ræða þrjá her-
menn. Þyrlur ísraela gerðu síðdegis
í gær árásir á stöðvar skæruliða við
landamærin og sveimuðu yfir svæð-
inu í leit að hermönnunum.
Aður höfðu tveir palestínskir
flóttamenn í Líbanon beðið bana og
13 særst þegar ísraelskir hermenn
skutu á fólk sem safnast hafði saman
handan landamæranna og kastað
grjóti og molotov-kokkteilum að
herstöðvum í ísrael. Vopnaðir,
grímuklæddir Palestínumenn og
óbreyttir borgarar réðust í gær á
helgistað gyðinga, Grafhýsi Jósefs, í
borginni Nablus á Vesturbakkanum,
rifu í tætlur á trúarrit og kveiktu
loks í staðnum, þrátt fyrir andmæli
bæjarstjórans sem benti á að staður-
inn væri einnig helgur í augum músl-
ima.
Hörð átök hafa verið við helgistað-
inn undanfarna daga. Hafa sex Pal-
estínumenn fallið þar og einn ísra-
elskur lögreglumaður. Samið hafði
verið um að ísraelskir hermenn, sem
áður gættu staðarins, létu palest-
ínska lögreglumenn taka við gæsl-
unni og voru ísraelarnir nýfarnir
þegar fólkið ruddist inn. Talið er að
atburðurinn muni gera enn erfiðara
fyrir Ehud Barak, forsætisráðherra
Israels, að slaka til gagnvart Yasser
Arafat, leiðtoga Palestínumanna
sem sakaði í gær Israela um að beita
ofbeldi til að hræða Palestínumenn.
Reuters
Kostunica tekur við
völdum í Júffóslavíu
Bclgrad, Pristina. Morgunblaðið, AP, AFP, Reuters.
GERT var ráð fyrir að Vojislav
Kostunica myndi síðdegis í gær
sverja embættiseið sem forseti
Júgóslavíu en á föstudag viður-
kenndi forveri hans, Slobodan Milos-
evic, loks kosningaósigur sinn í
sjónvarpsávarpi og herinn hét því að
skipta sér ekki af rás viðburðanna.
Embættistaka Kostunica átti að fara
fram í ráðhúsinu í Belgrad klukkan
fjögur að staðartíma og á mánudag
er gert ráð íyrir að þingið staðfesti
embættistökuna.
Milosevic mun enn vera í Belgrad
og segist ætla að hvíla sig í bili á
stjómmálum en síðan taka að sér
forystu sósíalistaflokksins. Hann hét
því á föstudag að vinna næstu kosn-
ingar „með sannfærandi hætti“.
Flokkur hans hlaut flest þingsæti
allra í þingkosningunum 24. septem-
ber en fréttaskýrendur telja ósenni-
legt að forsetinn fyrrverandi geti
með þessum hætti haslað sér aftur
völl í stjómmálalífi landsins. Bill
Clinton Bandaríkjaforseti sagði að
það væm „hræðileg mistök" ef Mil-
osevic fengi áfram að leika lausum
hala í stjórnmálum og hann og
Jacques Chirac Frakklandsforseti
lögðu áherslu á að Milosevic yrði lát-
inn svara til saka fýrir glæpi sína.
George Papandreou, utanríkisráð-
herra Grikklands, fór til Belgrad í
gær og var ætlunin að hann myndi
hitta Kostunica að máli, íyrstur
ráðamanna í ríkjum Evrópusam-
bandsins. Grísk stjórnvöld sögðu að
verið væri „að semja um“ framtíð
Milosevics en útskýrðu ekki málið
nánar.
Kostunica vann að því í gær að
stofna neyðarnefnd sem takast á á
við vandamál landsins en efnahagur
þess er í rúst vegna styrjalda og við-
skiptabanns Sameinuðu þjóðanna.
Margt flækir þó málin og má nefna
að Kostunica hefur fremur lítil völd
samkvæmt stjórnarskrá. Hann mun
einnig þurfa að semja við annan,
valdamikinn forseta, sá er Milan Mil-
utinovic, forseti Serbíu, en tvö ríki
em í ríkjasambandinu Júgóslavíu,
Serbía og Svartfjallaland. Milutin-
ovic er gamall liðsmaður Milosevics.
Svartfellingar tóku afstöðu gegn
Milosevic í Kosovo-stríðinu. Sam-
skipti sambandsríkjanna tveggja era
enn í mikilli óvissu en undanfama
mánuði hafa margir óttast að Milos-
evic efni til styijaldar til að tryggja
að Svartfellingar gangi ekki úr sam-
bandinu og lýsi yfir sjálfstæði. Skoð-
anir em mjög skiptar meðal Svart-
fellinga, talið að meirihlutinn vilji
sjálfstæði en öflugur minnihluti lítur
á Svartfellinga og Serba sem
bræðraþjóðir er eigi að vera í sama
ríki. Milan Djukanovic, forseti Svart-
fjallalands, segir að allt velti á því
hvort ný stjórn í Belgrad viðurkenni
kröfur Svartfellinga um aukna sjálf-
stjóm.
Sjónvarpsstöðin Sky sagði í gær
að sonur Milosevics, Marko, væri
flúinn til Moskvu en Marko hefur
verið umsvifamikill í viðskiptum og
er meðal annars talinn hafa reynt að
leggja undir sig allt sígarettusmygl í
Júgóslavíu. Einn af vinum forsetans,
kaupsýslumaðurinn Vladimir Bokan,
sem bjó í Aþenu, var skotinn til bana
við heimili sitt í gærmorgun er hann
steig út úr bíl sínum. Grísk yfirvöld
höfðu um hríð rannsakað hvort
Bokan stæði á bak við peningaþvætti
og smygl á bensíni og vopnum.
Marko Milosevic bjó hjá Bokan um
þriggja ára skeið.
Verðir með bros á vör
Andrúmsloftið í Belgrad ein-
kenndist af gleði í gær og greinilegt
að miklu fargi var létt af íbúum
landsins. Serbneskir landamæra-
verðir, sem yfirleitt taka sér góðan
tíma í að grandskoða vegabréf ferða-
manna, hleyptu hópi erlendra blaða-
manna inn í landið með bros á vör þó
svo að enginn þeirra hefði tilskilda
vegabréfsáritun. Leigubílstjóri sem
ók blaðamanni og Ijósmyndara
Morgunblaðsins inn í miðborg
Belgrad var einnig brosmildur og
bauð gesti „velkomna til hinnar
frjálsu Serbíu“.
■ Örvæntingin of mikil/6
Mannréttindi þarf
að samþætta allri
menntun
28
HEILDARLA USNIR
ERU OKKAR STYRKUR
VEDSKIFTIAIVINNULÍF
& SUNNUDEQI
SUNNUDAGUR
RttytuiHiiMb
islenski refurlm hefur verið llla
t»tik»ðurafmðfgum. Aðrir aést
«ð þrautSBieuÞMWi (mmbygaa
somhehirpreyö mar*an
t»rrariri oggðun*. DanM B*r*-
auuin övaltji 6 refaslóöum 6
Homstrðnflum og fytg
IðfufjðtskytUu /«
Sex fórust
í Mexíkó
FARÞEGAÞOTA af gerðinni DC-9 í
eigu Aeromexico-félagsins rann út
af flugbraut í Iendingu í gær og
rakst á tvo bfla og þijú hús með
þeim afleiðingum að sex manns fór-
ust. Slysið varð í Reynosa í norður-
hluta Mexíkó og var mikil rigning á
svæðinu. 88 voru um borð í vélinni
og sluppu lítt meiddir. Flugmaður-
inn mun hafa reynt að nota heml-
ana en þeir virkuðu ekki vegna
vatnsflaums á brautinni.
-----*-+-*----
Trimble
krefst
hollustu
Belfast. AfP, The Daily Telegraph.
DAVID Trimble, forsætisráðherra
N-írlands, ávarpaði landsfund Sam-
bandsflokks Ulster (UUP) sem
hófst í gær. Hann réðst á gagnrýn-
endur sína innan flokksins og sagði
þá grafa undan sér og stefnunni sem
hefði verið samþykkt með lýðræðis-
legum hætti. „Hættið að hlaupa í
fjölmiðla og ráðast á forystumenn
flokksins," sagði forsætisráðherr-
ann. Andstæðingar Trimbles em á
móti friðarsamkomulaginu sem
kennt er við föstudaginn langa.
Staða Trimbles þykir veik og
hugsanlegt að honum verði senn velt
úr sessi. I grein í The Irísh Times á
föstudag er greint frá því að Trimble
hafi leitað stuðnings breskra og
írskra ráðamanna í síðustu viku og
beðið þá m.a. um að koma skriði á af-
vopnun Irska lýðveldishersins, IRA
og endurskoða að einhverju leyti þá
endurskipulagningu sem til stendur
hjá lögreglusveitunum á N-írlandi.
MORGUNBLAÐIÐ 8. OKTÓBER 2000
5
69090
0 090000