Morgunblaðið - 08.10.2000, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 08.10.2000, Blaðsíða 18
18 B SUNNUDAGUR 8. OKTÓBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ EYÞÓR Þorláksson hefur verið atvinnutónlistarmað- ur í rúm fimmtíu ár. Hann er afburðagítarleikari og líklega í fremstu röð klass- ískra gítarleikara. Hann hefur fengist við útsetningar og tónsmíðar jafn- framt því sem hann hefur verið með nemendur í gítarleik um árabil. Gítar- leikarar sem hafa notið kennslu Ey- þórs skipta hundruðum ef ekki þús- undum og hafa sumir þeirra, eins og t.d. Pétur Jónasson, komist í fremstu röð í sinni listgrein. Eyþór gerði sér snemma grein fyr- ir því að útgáfa á prentuðum nótum væri af miklum vanefnum hér á landi miðað við önnur lönd. Hann vissi að smæð markaðarins var hér um að kenna en eigi að síður kynnti hann sér hina tæknilegu hlið nótnaprentunar en fann enga færa leið nema hand- skrift, sem ekki virtist árennileg, og þannig stóðu mál áratugum saman. Þó hélst áhugi Eyþórs vakandi og hann gaf út tvo gítarskóla með þeim aðferðum sem tiltækar voru. Macin- tosh-tölvan sem kom fram 1984 reyndist svo vera svarið sem hann var að leita að. Loksins gat hann farið að sinna þessu áhugamáli sínu og þar sem hann var gæddur hinum sjald- gæfu en verðmætu eiginleikum frum- kvöðulsins lét hann byrjunarörðug- leika ekki aftra sér frá því að ná tökum á þessari tækni og naut góðrar aðstoðar Sveins sonar síns sem sýndi snemma hæffleika á þessu sviði auk tónlistarhæffleikanna. Það má segja að hér sé um að ræða enn einn þátt í merkilegu ævistaifi Eyþórs Þorláks- sonar því hann hefur skrifað, prentað og gefið út óhemju magn af gítamót- um og útsetningum, bæði til kennslu og annarra nota og auk þess sett og brotið um mikið af annars konar tón- list. Utgáfu gítarnótnanna ætlaði Ey- þór fyrst og fremst til afnota fyrir nemendur sína en lengi vel hafði hann nótumar einnig til sölu hverjum sem hafa vildi en því fylgdi að sjálfsögðu töluvert umstang sem ekki hentaði eftir að hann hætti sjálfur kennslu. Þá var það að enn kom tölvutæknin til hjálpar og nú i formi veraldarvefsins. Síðastliðið sumar settu þeh- feðgar allt nótnasafnið á Netið, allri heims- byggðinni til ókeypis afnota. Eg heimsótti Eyþór á heimili hans og Sveins sonar hans í Hafnarfirði í lok septembermánaðar. Eyþór hefur dvalið hér á landi í þrjár vikur. Eftir að hann hætti kennslu hefur hann búið á Spáni, nú í Malága. Sambýlis- kona Eyþórs er Maria Theresa Bell- es, dóttir fornvinar Eyþórs, Juan Jose Bellés og konu hans Junani Bell- és en þau eru bæði látin. Eyþór varð sjötugur íýrr á þessu ári. Hann er rúmlega meðalmaður á hæð, gráhærður með há kollvik og fremur þéttvaxinn. Við sátum í stofu í fjölbýlishúsi við Álfaskeið og Eyþór rifjaði fyrst upp löngu liðna daga, bemskuárin í litlu bæjarfélagi sem hefur tekið miklum breytingum á síð- ustu áratugum. Hafnarfjörður æskuáranna „Eg er fæddur í Hafnarfirði árið 1930. Foreldrar mính- vora María Jakobsdóttir, ættuð frá Aðalvík, og Þorlákur Guðlaugsson úr Biskups- tungunum. Þau hófu búskap í Hafnar- firði árið 1927. Ég er fæddur í húsi við Krosseyrarveginn og var í Hafnar- firði öll mín bernsku- og unglingsár og hef reyndar búið hér í Hafnarfirði þegar ég hef ekki dvalið á Spáni. Við fluttumst að Hlébergi í Setbergslandi og þar bjuggum við í nokkur ár. Þeg- ar ég var fimmtán ára íluttum við í nýtt hús við Öldugötuna sem pabbi byggði. Pabbi var með búskap á Hlé- bergi og fór síðar að vinna hjá Reyk- dal í frystihúsinu og um tíma vann hann í timburverksmiðju og hann vann einnig við bílamálningar. Hann var sjómaður á bátum sem vora gerð- ir út frá Hafnarfirði fyrstu árin hans hér í Firðinum. Við eram þijú systk- inin, ég á tvær systur. Önnur þeirra, Katrín, er nýlega látin, sú yngri, en eldri systirin Sigríður býr í Hafnar- firði.“ Var ekki Hafnarfjörður mikill út- gerðarbær á fjórða áratug tuttugustu aldarinnar? „ Jú, það snerist allt í kringum höfn- ina og þar lágu oft margir bátar við bryggjur. I Hafnarfirði vora miklir athafnamenn, stórútgerðarmenn og verslunarmenn eins og Ásgeir Stef- ánsson, Jón Gíslason, Ingólfur Flyg- enring og fleiri. Við strákamir, leikfé- Guðfaðjr gítars- ins á íslandi Sumirtelja Eyþór Þorláksson guöföö- urgítarsins á íslandi.Hann byrjaöi fer- il sinn sem hljómlistarmaðurfyrir rúm- um fimmtíu árum og spilaöi þá á kontrabassa og harmonikku. Hann er þó fyrst og fremst þekktur sem einn af okkarfremstu gítarleikurum. Hér fyrr á árum spilaöi hann meö öllum helstu danshljómsveitum landsins og var meö eigin hljómsveit. Hann hefur dvaliö langdvölum á Spáni oggerir enn í dag og hefur spilaö þar meö ýmsum tónlistarmönnum og dans- hljómsveitum. Ólafur Ormsson ræddi viö Eyþór um tónlistarferil hans og þaö sem hann er aö fást viö í dag. lagamir, voram mikið að veiða smáfisk með handfæram á bryggjun- um við höfnina og það var ánægjulegt að alast upp í Hafnarfirði á fjórða ára- tug tuttugustu aldarinnar." Varstu í bama-og unglingaskóla í Hafnarfirði ? „Jú, í bamaskóla í Lækjai'skóla og lauk þaðan bamaskólaprófi. Síðar fór ég í gagnfræðaskóla í Reykjavík en lauk aldrei því námi, ég var bytjaður að spila á hljóðfæri." Spilaði upphaflega á harmon- ikku og kontrabassa Hvenær kviknaði áhugi þinn fyrir tónlist? „Ég man að þegar ég strákur í sveitinni í Biskupstungunum kom þessi mikli áhugi á tónlist. Ég fór á sveitadansleikina og fékk að sjá þessa menn sem vora að spila, t.d. Eirík á Bóli sem var þekktur harmonikku- leikari. Ég eignaðist harmonikku sem var mitt fyrsta hljóðfæri. Ég fór í harmonikkutíma hjá Ólafi Péturssyni sem spilaði þá í hljómsveit Aage Lor- ange. Ég spilaði stundum á harmon- ikku í hléum á sveitaböllum í Biskups- tungum, þá var ég fimmtán, sextán ára. Ég hlustaði mikið á tónlist í Rík- isútvarpinu, harmonikkutónlist og alls konar tónlist.“ Þú hefur þá snemma ætlað að gerast atvinnutón- listarmaður? „Já, og ég tók þetta föstum tökum strax í byrjun. Það vora miklir at- vinnumöguleikar fyi-ir hljóðfæraleik- ara um það leyti sem ég var að byrja og það var hægt að hafa ágætar tekjur af að starfa við þetta. Það vora t.d. ágætar tekjur af að spila á sveita- böllum. Það var meiri þörf fyrii' hljómsveitir á þessu áram og þetta var meiri vinna. Við komum fram á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum og skíðaviku á Isafirði og víðar úti á land- byggðinni. Þetta vora að mörgu leyti uppgangstímar ólíkt því sem síðar varð.“ Til er hljómsveitarmynd tekin árið 1946 eða ári síðar. Á myndinni stend- ur þú við kontrabassa. Spilaðir þú á kontrabassa í upphafi ferils þíns sem tónlistarmaður? „Já, við voram að spila saman í hljómsveit í Hafnarfirði á unglingsár- um nokkrir strákar, t.d. Matthías Á. Mathiesen. Matthías hafði lært á pí- anó og átti harmonikku. Við voram að spila mest að gamni okkar. Það var nú lítið opinberlega, mest í heimahúsum. Skömmu síðar byrjuðum við að spila saman ég, Guðmundur Steingrímsson og Bragi á Sjónarhól á dansæfingum í Flensborg. Gunnar Ormslev kom svo

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.