Morgunblaðið - 11.10.2000, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 11.10.2000, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR11. OKTÓBER 2000 27 ERLENT Fyrsta konan í embætti forsætis- ráðherra látin Colombo. AP, Reuters, AFP. SIRIMAVO Bandai-anaike, sem varð forsætisráðherra fyrir 40 árum, lest af völdum hjartaáfalls í gær eftir að hún greiddi atkvæði í þingkosning- um á Sri Lanka. Hún var 84 ára. Bandaranaike var skipuð forsætis- ráðherra í þriðja sinn árið 1994 og lét af embættinu í ágúst, skömmu áður en dóttir hennar, Chandrika Kum- aratunga forseti, boðaði til þingkosn- inganna. Forsetinn hafði þá neyðst til að afnema nýja stjómarskrá, sem sett var með það að markmiði að binda enda á 17 ára stríð stjórnar- hersins við aðskilnaðarhreyfingu Tamíla. Bandaranaike fékk hjartaáfall í bíl sínum á leið til Colombo eftir að hafa kosið í heimabæ sínum, Gampaha, 35 km austan við höfuðborgina. Hún var flutt á sjúkrahús í Colombo og and- aðist þai'. Bandaranaike var haldin syk- ursýki og notaði hjólastól vegna eymsla í hnjám. Pegar hún lét af embætti 10. ágúst kvaðst hún vilja víkja fyrir yngri manni er gæti bund- ið enda á borgarastríðið sem hefur kostað 63.000 manns lífið frá 1983. Tók upp róttæka vinstristefnu Bandaranaike fæddist 17. apríl 1916 í eina af auðugustu fjölskyldum eyjunnar. Hún giftist Solomon Dias Bandaranaike, einum af forystu- mönnum stjómarflokks eyjunnar, sem hét þá Ceylon, árið 1940. Hann --d-A&npái—oÍAqv nírian-jfT^Irlr noKKinn, og var SKipaöur íorsætis1 ráðherra 1956 en búddamunkur myrti hann þremur ámm síðar. Hlédræga húsmóðirin breyttist þá í aðsópsmikinn stjómmálamann. Hún varð fyrst kvenna til að gegna embætti forsætisráðherra þegar hún sigraði í kosningum í júlí 1960, sex árum áður en Indira Gandhi varð forsætisráðherra Indlands. Banar- anaike var við völd til 1965, þegar hún beið ósigur í kosningum, og end- urheimti forsætisráðherraembættið 1970. Hún tók upp róttæka vinstri- stefnu, lokaði ísraelska sendiráðinu og bannaði bandarísku stofnuninni Peace Corps að starfa í landinu, en hún sendir sjálfboðaliða til þróunar- landa til að aðstoða við uppbyggingu og stuðla að friðsamlegum samskipt- um. Bandaranaike þjóðnýtti einnig einkafyrirtæki á öðra kjörtímabili sínu og bannaði vöruinnflutning. Hún beitti hernum til að kveða niður uppreisn marxíski'a skæraliða árið 1971 og talið er að allt að 20.000 manns hafi fallið. Þingið vék henni úr embætti árið 1980, sakaði hana um að hafa misnot- að vald sitt og bannaði henni að gegna opinberam embættum í sjö ár. Hún endurheimti pólitísk réttindi sín árið 1986 og tveimur árum síðar tap- aði hún í kosningum til forsetaemb- ættisins sem var þá nýtt og valda- _meira en forsætisráðherraembætti4_ Dóttirin sigraði einkasoninn Bandaranaike dró úr afskiptum sínum af stjórnmálum vegna heilsu- brests. Dóttir hennar, Kumaratunga, varð leiðtogi flokksins árið 1993 eftir harða valdabaráttu við bróður sinn, Anura Bandaranaike. Hún var kjörin forseti ári síðar og gerði þá móður sína að forsætisráðherra en emb- ættið var þá orðið mjög valdalítið. Anura Bandaranaike hefur troðið illsakir við systur sína frá því hann Reuters Sirimavo Bandaranaike, fyrrverandi forsætisráðherra Sri Lanka, greiðir atkvæði í þingkosningum sem fóru fram í gær. Hún lést af völd- um hjartaáfalls skömmu síðar. beið ósigur fyrir henni í valdabarátt- unni og sagði sig úr Frelsisflokknum. Hann hefur oft líkt erjum fjölskyldu sinnar við illdeilur Bhutto-fjölskyld- unnar í Pakistan og sakar systur sína um að hafa knúið móður þeirra til að segja af sér í ágúst. Hún hafi ætlað að láta af embætti eftir kosningarnar og verið óánægð með að þurfa að draga sig í hlé. Leiðtogi stj órnarandstööunnar í Zimbabwe yfírheyrður Mugabe náðar landtökumenn Harare. Reuters, AFP. LÖGREGLAN í Zimbabwe yfir- heyrði í gær Morgan Tsvangirai, leiðtoga stjórnarandstöðunnar í landinu, en hann var eftirlýstur vegna þess, að hann hafði hvatt til, að Robert Mugabe, forseta lands- ins, yrði bolað burt, vildi hann ekki fara frá með góðu. Honum var þó sleppt að lokinni yfirheyrslu. Muga- be gaf í gær út náðunarbréf vegna hugsanlegra glæpa landtökumanna fyrr á árinu. Lögreglan hugðist handtaka Tsvangirai á mánudag er hann var væntanlegur til Harare frá Suður- Afríku en hann kom ekki til landsins með áætlunarflugvél eins og búist hafði verið við, heldur eftir öðrum leiðum. A fundi með stuðnings- mönnum sínum í gær ítrekaði hann svo, að Mugabe yrði að fara frá en nefndi þó ekki valdbeitingu. A fundi með fréttamönnum í S-Afríku sagði Tsvangirai, að Mugabe væri sekur um þjóðarmorð og hefði gereyðilagt efnahagslífið í Zimbabwe. Líkti hann honum við Slobodan Milosev- ic, fyrrverandi forseta Júgóslavíu, og sagði, að allir yrðu að leggjast á eitt um að reka hann burt. Mugabe forseti náðaði í gær alla þá, sem frömdu glæpi er hvítir menn voru reknir af bújörðum sín- um fyrr á árinu. Tekur náðunin til 1. janúar á þessu ári og fram til 31. júlí sl. en á þessum tíma var a.m.k. 31 maður drepinn, aðallega stuðnings- menn stjórnarandstöðunnar en einnig fjórir hvítir bændur. Mál- gagn stjórnarinnar sagði þó, að morð og nauðganir væru undanskil- in. Nóbelsverðlaunin 1 eðlis- og efnafræði Framfarir í upp- lýsingatækni og leiðandi plast Stokkhdlrai. AP, APP. RUSSI og tveir bandarískir vísinda- menn fengu í gær Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði. Vora þau veitt þeim fyr- ir framlag sitt til upplýsingatækn- innar og tilkomu tækja eins og vasa- reiknisins og farsímans. Efna- fræðiverðlaunin voru veitt tveimur Bandaríkjamönnum og Japana fyrir að sýna fram á, að með ákveðnum breytingum er unnt að gera plast leiðandi. Zhores I. Alferov hjá A.F. Ioffe- eðlis- og tæknifræðistofnuninni í Pétursborg og Herbert Kroemer, sem fæddur er í Þýskalandi en starf- ar nú við Kaliforníuháskóla, skipta með sér hálfu verðlaunafénu fyrir þátt sinn í þróun þeirrar tækni, sem notuð er í fjarskiptahnöttum og far- símum. Hinn helmingurinn rennur til Jaeks Kilbys hjá Texas Instra- ments fyrir uppgötvanii' og starf að þróun rafrása en auk þess er hann meðhöfundur vasareiknisins. Er verðlaunaféð alls um 80 millj. ísl. kr. Ein forsenda einkatölvunnar Hemiann Grimmeiss, sem sæti á í Sænsku vísindaakademíunni, sagði, að rannsóknir verðlaunahafanna þriggja hefðu verið ómetanlegar í þróun nútíma upplýsingatækni. „Án Kilbys hefði smíði einkatölv- unnar ekki verið gerleg og án Al- ferovs væri ekki unnt að flytja gífur- legt upplýsingamagn um fjarskiptahnetti eða hafa jafn marg- ar símalínur milli borga og raun ber vitni,“ sagði Grimmeiss. Alan Heeger við Kaliforníuhá- skóla, Alan MacDiarmid við Penn- sylvaníuháskóla og Hideki Shira- kawa við háskólann í Tsukuba í Japan skipta með sér verðlaununum í efnafræði. Þeir sýndu fram á, að plast getur verið leiðandi. Hefur sú uppgötvun mikið notagildi og leið- andi plast ert.d. notað í Ijósmynda- filmum; til að koma í veg fyrir raf- segulgeislun frá tölvuskjám og einnig í „snotra" glugga, sem geta útilokað sólarljós. Þá er það einnig notað í sólarsellur, í skjám á farsím- um og mjög litlum sjónvarpstækjum. Plast leiðir yfirleitt ekki, enda not- að sem einangrun en þeir uppgötv- uðu og framleiddu leiðandi fjölliðu eða plast, sem endurtekur byggingu sína í löngum keðjum. Varð Shira- kawa fyrstur til að rekast á þennan eiginleika og þá fyrir slysni. Er hann var að búa til ákveðna blöndu varð honum á að nota 1.000 sinnum meira af einu efnanna en hann hafði ætlað sér. Skömmu síðar tóku þeir félag- arnir upp samstarf með sér. ----------------- Olíufimdur í Barentshafi Ósló. Morjnrahtadió. OLÍUFÉLAGIÐ Agip hefur fundið stóra olíulind í Barentshafi. Um er að ræða meðalstóra lind á norskan mælikvarða en stóra á alþjóðlegan mælikvarða. Olían er á svæði 85 km norður af Hammerfest og talið er að þar séu 25-40 milljónir rámmetra af olíu. Góðir möguleikar era taldir á að meiri olía finnist á þessu svæði. ÞlN FRlSTUND - OKKAR FAG VSNTERSPORT Btldshöfða • 110 Reykjavfk • slmi 510 8020 • www.intersport.is FIREFLY HIKER Snjóbrettaúlpa með snjólás sem hrindir vel af sér vatni. Hentar vel fyrir skólann sem fjöllin. Fæst rauð og blá. St. 140-170 Kr. 5.990,- FIREFLY CALGARY Töff og slitsterk úlpa með mörgum vösum. Stroff í ermum og mittisreim. Vönduð og smart úlpa fyrir unga fólkíð. St. 140-170. Kr. 6.690,- FIREFLY OUTBACK Vinsælar og sterkar vetrarbuxur. Góðar f skólann sem fjöllin. St. 120-170. Fást svartar, gráar og sand. Kr. 3.990,-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.