Morgunblaðið - 29.10.2000, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 29.10.2000, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. OKTÓBER 2000 B 13 Málþing Þroskaþjálfafélags íslands um þjónustu við fatlaða Bætt þjónusta með flutningi frá ríki til sveitarfélaga VERÐI unnið að flutningi mála- flokks fatlaðra frá ríki til sveitarfé- laga leiðir það tii bættrar þjónustu við fólk með fötlun og jafnframt verði tryggt að áunnin réttindi starfsmanna haldist, segir meðal annars í ályktun frá málþingi Þroskaþjálfafélags íslands, sem haldið var nýverið. Sólveig Steins- son, formaður félagsins, segir í sam- tali við Morgunblaðið að eyða verði þeirri óvissu sem málaflokkurinn hefur verið í vegna hugmynda um flutning og hafi það þýtt stöðnun á meðan. Sólveig Steinsson segir að tilefni þingsins, sem fjallaði um framtíðar- sýn og stefnumótun í þjónustu við fólk með fötlun, hafi verið hugsan- legur flutningur á málefnum fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga en búist er við að frumvarp þar að lútandi verði tekið til umfjöllunar á Alþingi í vet- ur. Sólveig segir að á þinginu hafi komið fram í máli fyrirlesara nauð- syn þess að auka fjármagn í þjónustu við fatlaða og hækka laun þeirra sem þar starfa. Nútíminn krefjist sveigj- anlegrar þjónustu sem miðist við einstaklingsbundnar þarfir. A þing- inu flutti Þór Garðar Sverrisson, framkvæmdastjóri Svæðisskrifstofu Reykjaness, erindi um hvort einka- væðing væri lausn á vanda þjón- ustunnar. Lára Björnsdóttir, félagsmálastjóri Reykjavíkur, ræddi framtíðarsýn og sagði að sveigjan- leiki og snerpa muni einkenna fé- lagsþjónustu framtíðarinnar. Karó- lína Gunnarsdóttir, þroskaþjálfi og verkefnisstjóri, ræddi um reynslu Akureyrarbæj ar af flutningi félags- legrar þjónustu frá ríki til sveitarfé- lags. Sagði hún mikla þörf á fólki með ríkan skilning á málefnum fatl- aðra til allrar félagslegrar þjónustu. Krefjandi störf Milli 20 og 25 þroskaþjálfar út- skrifast á ári hverju og telur Sólveig að flestir þeirra skili sér í störf i sínu fagi enda sé sífellt að fjölga atvinnu- tækifærum. Þau sé að finna í félags- þjónustu, skólum, leikskólum, sam- býlum og á vinnustöðum þroska- heftra. Hún segir hins vegar að bæði þroskaþjálfar og aðrir starfsmenn á sambýlum vinni mjög krefjandi störf og oft leiti menn í álagsminni störf þar sem kjör séu jafnvel betri. Því sé oft erfitt að manna þessar stöður. I lok ályktunar málþings Þroska- þjálfafélagsins segir: „Skortur á Davíð Oddsson hjá Sagnfræð- ingafélaginu DAVÍÐ Oddsson heldur fyrirlestur þriðjudaginn 31. október í hádegis- fundaröð Sagnfræðingafélags ís- lands sem hann nefnir „Hvað er stjómmálasaga?“ Fundurinn fer fram í stóra sal Norræna hússins, hann hefst kl. 12.05 og lýkur stund- víslega kl. 13. Fundurinn er opinn öllu áhugafólki og er aðgangur ókeypis. Stjómmál og stjómmálasaga hafa verið mikið til umræðu síðasta ára- tuginn, m.a. vegna óvæntra atburða á sviði heimsmála í kringum 1990, segir í fréttatilkynningu. Fyrirlestrar í há- degisfundaröð Sagnfræðingafélags- ins á þessu hausti fjalla allir um stjórnmálasöguna en félagið hefur fengið átta fræðimenn af ólíkum svið- um og tvo stjómmálamenn til að ræða um þessi mikilvægu mál. Athygli skal vakin á að nú eins og á síðasta starfsári má lesa fyrirlestra í fundaröðinni í Kistunni, vefriti um hugvísindi, á slóðinni www.hi.is/ —mattsam/Kistan. Þar er einnig að finna skoðanaskipti fyrirlesara og fundarmanna. fjármagni sem rekja má til skilnings- leysis stjómvalda gerir það að verk- um að þjónustan er oftar en ekki miðuð út frá hópnum fremur en ein- staklingnum. Á þessu vilja þroska- þjálfar sjá breytingu." Þing Alþj óðaþingmannasambandsins Einar K. Guðfinnsson formaður efnahags- og félagsmálanefndar 104. ÞING Alþjóðaþingmanna- sambandsins (Inter-Parlimentary Union) var haldið í Jakarta, höfuð- borg Indónesíu, 14.-21. október sl. Af hálfu íslandsdeildar Alþjóða- þingmannasambandsins sóttu þingið Einar K. Guðfinnsson, for- maður íslandsdeildarinnar, Ásta Möller og Gísli S. Einarsson. Á þinginu var Einar K. Guðfinn- sson alþingismaður einróma kjör- inn formaður efnhags- og félags- málanefndar Alþjóðaþingmannasambandsins og tók við því starfi í lok þingsins. í almennum umræðum á þinginu flutti Gísli S. Einarsson ræðu þar sem hann ræddi um sjálfbæra þró- un og nýtingu fiskistofna og vék jafnframt að stöðu smærri ríkja í alþjóðlegu samstarfi. í efnahags- og félagsmálanefnd þingsins var fjallað um hvernig haga beri fjár- mögnun þróunaraðstoðar og að- gerðir til að útrýma fátækt. Ásta Möller hélt þar ræðu og benti á að markvissar aðgerðir á heilbrigðis- sviðinu væru ein mikilvægasta leiðin til að vinna gegn almennri fátækt. Hvatti hún ríki heims til að gera átak í heilbrigðismálum fá- tækustu ríkjanna, segir í frétt frá Alþingi. Allsstaöar Allt frá því að Ríkisútvarpið tók til starfa fyrir 70 árum hefur það verið félagi þjóðarinnar í leik og starfi. Frá innstu dölum til ystu nesja hefur fólk notið dagskrár þess og þegar mikilvægir atburðir gerast er Ríkisútvarpið sá fjölmiðill sem þjóðin reiðir sig á. Öflugar svæöisstöðvar og fréttaritarar víða um land tryggja fjölbreytt efni frá öllum landshornum og þétt net endurvarpsstöðva skilar því inn á hvert heimili í landinu. °g fre^' © JFMM RÍKISÚTVARPIÐ Sjónvarpið og Útvarpið - fréttamiðlar sem þjóðin treystir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.