Morgunblaðið - 29.10.2000, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 29.10.2000, Blaðsíða 23
MORGUNB LAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. OKTÓBER 2000 B 23 margra áratuga skeið trúnaðar- maður Aiþýðusambands íslands og verkalýðssamtaka. Egill var feng- inn til þess að verja þá sem sóttir voru til saka í dreifibréfsmálinu. Egill: Það var mitt fyrsta próf- mál fyrir Hæstarétti og það var í fyrsta sinn sem opinbert mál svo- kallað eða sakamál var leyft sem fyrsta prófmál manna fyrir Hæsta- rétti, það var þetta mál. Pétur: Var þér ekki mikill vandi á höndum ungum manni að takast þetta á hendur gagnvart setuliðinu annars vegar, skulum við segja, og íslenskum stjórnvöldum og mæla fyrir munn þessara sakamanna sem svo voru kallaðir? Egill: Jú, sjáðu til, ég hafði þekkt Eðvarð Sigurðsson frá barn- æsku. Við vorum fæddir og upp- aldir í Vesturbænum og þá var hann miklu fámennari heldur en hann er núna. Þegar forsætisráð- herra Hermanni Jónassyni hafði tekist að fá fangana lausa á Kirkjusandi og flutta í fangahúsið gamla á Skólavörðustíg 9 þá fékk Eðvarð að hringja til mín. Og hann bað mig um að koma til viðtals við sig upp í tugthús, eins og við köll- uðum það þá. Ég brá strax við og fór til hans í tugthúsið og þegar ég kom í klefann til hans þá sá ég að honum var mjög brugðið, því ég þekkti Eðvarð og ég sá strax að það hafði eitthvað meira en lítið gengið á. Pétur: Var hann þá að koma frá Kirkjusandi? Þar var hann í haldi hjá Bretum. Egill: Hann var í haldi hjá Bret- um. Bretar höfðu tekið sjö eða átta menn og flutt þá inn á Kirkjusand þar sem þeir höfðu fangelsi. Og það gengu þá sögur um það í bæn- um að það væri mjög þjarmað að þessum mönnum sem höfðu verið teknir til fanga. Og allir, bæði opin- berir aðilar og almenningur, óttuð- ust það þá að þessir menn yrðu fluttir beint til Bretlands, eins og seinna varð þegar Einar Olgeirs- son var fluttur til Bretlands og allir þrír ritstjórar Þjóðviljans en það skeði nú seinna. En í þetta sinn þá tókst for- sætisráðherra að fá þá lausa og Eðvarð hringdi í mig og ég brá við og fór til hans. Og þegar ég sá hvernig á stóð hjá Eðvarð þá skellti ég mér upp í rúmið hans, lá í rúminu, og við töluðum þannig saman en Eðvarð gekk um gólf all- an tímann og hann gekk ansi hratt um gólfið. En þarna töluðumst við við allan eftirmiðdaginn, einsog við sögðum nú þá, alveg fram að kvöldmat. Við töluðum saman þarna, ég liggjandi uppi í rúminu hans og hann þrammandi um gólfið fram að kvöldmat. Þá var niðurstaðan af því samtali sú að hann bað mig um að vera verjandi þeirra allra og þeir voru þá átta. En svo komu til í framhaldi af því ritstjórar Þjóðvilj- ans; Einar Olgeirsson og Sigfús Sigurhjartarson. Ég talaði við Ein- ar Olgeirsson og hann bað mig um að vera verjandi þeirra ritstjór- anna líka þannig að í undirrétti var ég verjandi þeirra tíu, þeir voru þá orðnir tíu. Pétur: Þú hefur tekið þetta að þér alveg fúslega? Egill: Já, ég tók þetta að mér. Bæði fannst mér það nú skylt, við Eðvarð vorum vinir frá því að við vorum drengir og mjög góðir kunn- ingjar. Einar Olgeirsson, ég hafði kynnst honum þegar ég var í há- skóla, svoleiðis að þegar þessir góðu menn báðir lögðu að mér og treystu mér til að vera verjandi þeirra þá gat ég ekki skorast und- an því. Pétur: En varðstu ekki var við neina tortryggni frá hendi hernámsyfirvalda eða jafnvel stjórnvalda því að nú skilst mér að lögum hafi verið breytt til þess að hægt yrði nú svona að hafa betra eftirlit með þeim sem kynnu að ýfast eitthvað við hernámsliðinu? Egill: Já lögum var breytt árið ’41, þá var þessari grein hegning- arlaganna breytt og hún var orðuð um og gerð skýrari heldur en hún hafði áður verið. En ég varð nú aldrei var við neitt í minn garð. Mér var sagt seinna meir að ég hefði verið á skrá hjá Bretunum ásamt ýmsum mönnum sem taldir Stökktu til Kanarí 21. nóvember í 26 nætur frá kr. 49.900 Nú seljum við síðustu sætin til Kanarí í nóvember, en eyjarn- ar eru langvinsælasti vetraráfangastaður okkar og þúsundir íslendinga ferðast þangað á hverjum vetri til að njóta eins besta veðurfars heimsins og stytta veturinn hér heima. Þú bókar núna og tryggir þér sæti og 3 dögum fyrir brottfbr látrnn við þig vita hvar þú gistir. Verð frá kr. 49.900 Verðkr. 59.990 21. nóvember, 26 nætur, m.v. hjón með 2 böm. M.v. 2 í ibúð, 21. nóvember, flug og gisting, skattar og ferðir til og frá flugvelli. Heimsferðir Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is _ Gœðavara Gjaíavara — matar oq Allir veröflokkar. . Xrdf/)v-/\\\o\ Heimsfrægir liönnuóir m.a. Gianni Versace. VERSLUNIN Laugavegi 52, s. 562 4244. Topp 10 miðað við ávöxtun síðustu 12 mánaða Sa?u Umsjon Sjoður Avóxtun 1. Frjálsi Frjálsi - Hátækni og heilsa 55,9% 2. B.í. Fras-noæHnl alþjóða hlutabréfasjóöurinn 45.4% ‘ 3. V.I.B. Sjóður lö 45.3% 4. Frjálsl Frjálsi - Norður Amerfka 44,9% 5. L.arídsbrÉf íslerisb.i fjársjoðurinn 42,3% 6. B.í. Aiþjóða hluiabrófasjóðurinn 41,4% 7. Frjálsi Frjálsi - Evrópa 41,1% 8. Hdiupþíncj Lux-Global Equity Class 39,7% 9. Frjálsi Frjálsi - Alþjóðleg hlutabréf 36,4% 10. Frjálsi Frjálsi - Nýir markaðir, ný tækrfæri 35,9% Nafnávöxtun 30.9.80 - 30.9.00. Upplýsingar frt Lénstraustl hf. (www.lt.ls). 5 af 10 bestu hlutabréfasjóðunum eru hjá okkur Samstarf okkar við Edelity Investments, stærsta eignaumsýslu- fýrirtæki heims, er þegar farið að bera rikulegan ávöxt. M.v. 12 mánaða ávöxtunartölur höfum við á okkar snærum 5 af 10 bestu hlutabréfasjóðum landsins. c 1 FRJÁLSl FJÁRFESTINGARBANKINN hinn bankinn þinn Til leigu Nýtt skrifstofuhúsnœði í Bryggjuhverfinu Stœrðir: Jarðhœð: 560 m2 2. hœð: 585 m2 3. hœð: 540 m2 4. h. mitlil. 284 m2 Samtals 1.969m2 L Glœsilegt 1.969m2 skrifstofu- og verslunarhúsnœði til leigu í nýja bryggjuhverfmu, sem ó sí- fellt vaxandi vinsœldum að fagna. Húsið er hannað af Ðirni Ólafs arkítekt og staðsett beint við hafnarbakkan með útsýni yfir smóbótahöfnina. Um er að rœða vandaða byggingu ó 3 hœðum auk millilofts. Engar sútur eru í húsnœðinu. Fjöldi bílastœða uppfyllir nýjustu kröf- ur skv. byggingarreglugerð. Frágangur og afhending: Verið er að leggja síðustu hönd á utanhússklœðningu og sam- eign og hœgt að afhenda húsnœðið fullinnréttað samkvœmt óskum leigjanda t. febrúar 2001 eða Jafnvel fyrr. Petta er húsnœði fyrir framsýna aðila. sem vilja skapa sér sterka ímynd í fallegu og friðsœlu umhverfi. en vera samt innan tíðar í mjög góðum umferðartengslum við miðborg Reykjavíkur. Hafið samband og fáið teikningar og allar nánari upplýsingar á skrifstofu okkar (Guðlaugur sími 896 0747). Verðlð gœtl komlð á óvart! "1 EIGULISTINN LEIGUMIÐLUN SIMI 511 2900

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.