Morgunblaðið - 29.11.2000, Blaðsíða 65

Morgunblaðið - 29.11.2000, Blaðsíða 65
MORGUNBLAÐIÐ FOLKI FRETTUM MIÐVIKUDAGUR 29. NÓVEMBER 2000 65 -------------------------------ir MYNDBÖND Sá allra næstbesti Lipur og lævís (Sweet and Lowdown) Gamanmynd ★★★ Leikstjórn og handrit Woody Allen. Aðalhlutverk: Sean Penn, Sam- antha Morton. (92 mín.) Bandaríkin 1999. Ollum leyfð. EMMET Ray (Penn) er besti djassgítaristi í heiminum - fyrir utan þennan franska sígauna þarna - Django Reinhardt. Pað er bölvun Emmets og bless- un. Þessum heill- andi og hæfileika- ríka hrakfallabálki sem í senn er bæði ódannaður og læ- vís. Og maðurinn á sko sína djöfla að draga. Hann er drykkfeldur, kvensamur, sjálfum- glaður, sérvitur, óraunsær, tillitslaus og satt að segja svolítið vitgrannur. En hann er meyr innst inn við beinið og svo skrambi lipur á gítarinn. Hjartablíða hans kemur í ljós þegai’ hann kynnist hinni mállausu Hattie. Emmet veit ekki hvemig hann á að bregðast við þeim framandi tilfinn- ingum sem taka að bærast í brjósti hans - tilfinningar sem aldrei þessu vant eru í garð annarrar manneskju en ekki hans sjálfs og tónlistarinnar. Það er hrein unun að sjá hversu allir virðast hafa notið sín við gerð þessarar grátbroslegu skáldsögu. Penn og Morton, sértaklega þó Penn, nýta einstaklega safarík hlut- verk sín til hins ýtrasta en engin nýt- ur sín þó betur en djassdýrkandinn Allen sem, ef gripið er til gamallar tuggu, virðist eldast eins og gott vín. Skarphéðinn Guðmundsson Broslegur bögubósi Gleðikarlinn Deuce Bigalow (Deuce Bigalow: Male Gigolo) G u in a n in v n d ★★ Leikstjóri Mike Mitchell. Handrit Harry Goldberg, Rob Schneider. Aðalhlutverk: Rob Schneider, Arija Bareikis. (90 mín.) Bandaríkin 2000. Sam-myndbönd. Öllum leyfð. DEUCE Bigalow er góðhjarta en grtmnfærinn einfari sem streðar við uð þrífa fiskabúr. Hann heldur sig hafa dottið í lukku- pottinn þegar mold- ríkur náungi sem stundar vændi, karlhóra eins og kallað er í mynd- inni, biður hann um að passauppávillu- slotið sitt í nokkra daga en auðvitað þarf okkar maður að setja allt á annan endann. Til að bæta skaðann sér Deuce sér eigi ann- an kost vænni en að feta í fótspor hús- eigandans og selja blíðu sína. I fyrstu beldur hann það hina bestu vinnu - fá borgað fyrir að komast í brækumar á hinu kyninu - nokkuð sem hann hefur hingað til átt í mesta basli með. En þegar hann kynnist skrautlegum við- skiptavinum renna á hann tvær grím- ui' og ærslin taka völdin. Rob Schneider hefur hingað til veynst erfitt að feta sig í bíóheiminum enda oftast leikið miður fyndin auka- hlutverk. Með stuðningi vinar síns Adams Sandler fékk hann síðan þetta tekifæri ferils síns og nýtir sér vel. Vissulega er þetta mesta vitleysa, brandaramir þunnir og sumir þreytt- h- en eftir stendur að maður brosti all- oft út í annað, flissaði nokkrum sinn- ujn og skellti upp úr alla vega einu sinni. Skarphéðinn Guðmundsson ÁSTIN VEX í THX Tónlist Geislaplata JÓHANNA GUÐRÚN Fyrsta sólóplata Jóhönnu Guðrúnar Utgefandi: Hljóðsmiðjan. Aðrir flyljendur: Amþór Jónsson, Ásgeir Oskarsson, Björn Thorodd- sen, Guðmundur Pétursson, Gunn- ar Þór Jónsson, Gunnlaugur Briem, Hafþór Guðmundsson, Haraldur Þorsteinsson, Hera Björk Þórhalls- dóttir, Jóhann Ásmundsson, Jón Elvar Guðmundsson, Jón Ómar Erl- ingsson, Margrét Eir Hjartardóttir, Páll Rósinkranz, Pétur Hjaltested, Máni Svavarsson, Regína Ósk Ósk- arsdóttir, Sigurður Flosason, Sig- urður Rúnar Jónsson, Stefán Örn Gunnlaugsson, Þorsteinn Magnús- son, Þórður Guðmundsson. Islenskir textar eftir: Karl Ágúst Ulfsson, Eggert Þorleifsson, Frið- rik Sturluson og Kristján Hreins- son. Umsjón með söng og fram- kvæmdasljóm: María Björk. Stafræn hljóðblöndun og master- ing: Gunnar Smári Helgason 11 lög, lengd 43:29 mín. ÍSLAND hefur eignast nokkrar barnastjörnur í gegnum tíðina sem hafa heillað unga sem aldna. Það er þó aðallega unga kynslóðin sem hef- ur látið hrífast og ófáar stelpur vildu vera í sporum Rutar Reginalds á sín- um tíma að syngja um hana Önnu eftirsóttu og Línu ballerínu. Enn bætist í hóp barnastjarnanna því nýverið kom út plata með hinni 9 ára gömlu Jóhönnu Guðrúnu þar sem hún syngur ýmis vinsæl dægurlög. Lögin eru öll erlend en með íslensk- um textum eftir valinkunna menn á borð við Karl Ágúst Úlfsson og Egg- ert Þorleifsson. Jóhanna Guðrún býr yfir hreint ótrúlega góðri rödd af svo ungri manneskju að vera og fer jafn- létt með að syngja popplög og ballöð- ur. Platan byrjar á laginu „Bíó- stjaman mín“ (eitt af betri popplögum síðustu ára, ,,Tom“) með skemmtilegum texta eftir Karl Ágúst: „.. .við hverja bíóferð, í brjósti ástin vex, ég bráðna við að heyra þína rödd í THX...“ „Mundu mig“ („I’ll be there“) er frábærlega sungið af Jóhönnu Guðrúnu og sjálfum Páli Rósinkranz og ekki syngur hún síður vel í laginu „Hvers vegna?“ („End of the world“). Lagavalið á plötunni er ágætt. Þarna em nokkur af sykur- húðuðustu dægurlögum síðustu missera, eins og lag Christinu Agui- lera, „Genie in a Bottle" (,ÁHadís í kletti") og All Saints lagið „Never Ever“ (,Aldrei aftur“) í bland við eldri perlur, eins og fyrmefnd „End of the world“ og „I’ll be there“ og hið fallega „Stop“ („Strax") sem Sam Brown söng af innlifun hér um árið og Jóhanna Guðrún gerir ekki síður nú. Það er gott lið á bakvið söngkon- una ungu á þessari plötu. Bakradd- irnar era í þaulvönum höndum Mar- grétar Eirar, Hera Bjarkar og Regínu Óskar sem allar teljast í hópi bestu söngkvenna okkar og hljóð- færaleikur er í höndum ekki minni manna en Ásgeirs Óskarssonar, Jó- hanns Ásmundssonar, Sigurðar Flosasonar og Gunnlaugs Briem svo einhverjir séu nefndir. Það er því ljóst að mikið er í plötuna lagt. Það sem mér þykir helst ámælis- vert er efni einstaka texta. Mér þykir t.d. ótrúlegt að svona ung manneskja eigi við þær fullorðinslegu vina- og ástarflækjur að stríða sem sumir textanna fjalla um eins og t.d. í lag- inu „Strax“: „... Síðan ég frétti að þú fórst á bakvið mig, finnst mér eins og einhver hafi kramið hjarta mitt...“, Ljóðavefurinn Ijod.is Að vefa ljóð SUMUM hefur þótt ljóðformið og menningunni sem því fylgir vera ríg- bundið við litlar, hæverskar bækur eða þá reykmettaðar samkomur á kaffihúsum. Davíð Stefánsson, ljóð- skáld, netverji og hugsjónamaður, er ekki á því málinu, en í næstu viku ætlar hann að opna vefsetur sem ber heitið ljod.is. Þar verður hægt að finna ljóð dagsins, skoða hvað er væntanlegt í heimi bókmenntanna, skoða lærðar greinar varðandi ljóð- listina og taka þátt í netborðsum- ræðum varðandi allt sem viðkemur þessari mætu list. Davíð hvetur alla, skúffuskáld sem rithöfunda, að koma sér í samband við síðuna því þar muni þeir eiga víst skjól í framtíðinni. n&pp oq lllUUf Öll eigum við okkar góðu og slæmu daga. LGG-gerlar skapa jafnvægi í meltingunni og stuðla að vellíðan. «í» í áa§ fjrrir fMto nfrfmff „Þetta er fín popplata sem vinnur á við hverja hlustun og verður spennandi að fylgjast með þessari ungu og efnilegu söngkonu í fram- tíðinni," segir fris um fyrstu plötu Jóhönnu Guðrúnar. undirrituð man allavega ekki eftir þessu frá sínum æskuárum! Mark- hópurinn fyrir þessa plötu er að öll- um líkindum ungar stelpur, 5-10 ára, og ég bara vona að líf þeirra sé ekki svona flókið. Eins telst textinn í „Gúmmístígvél“ („Boots are made for walking") ekkert sérlega uppeld- islegur og ætti það að vera umhugs- unarefni fyrir útgefendur bamaefnis að vanda ávallt til verka þegar ungir og áhrifagjarnir hlustendur era ann- ars vegar. Það má þó segja til hróss að textarnir era á íslensku en það er alltaf gaman að heyra nýleg popplög sungin á ástkæra, ylhýra, en eins og margir muna eftir var mikið um það hér á áram áður að vinsælum erlend- um dægurlögum var snarað yfir á ís- lensku og þau hljóðrituð. Plötuum- slagið er vel gert, glaðlegt og upplífgandi í skammdeginu. Þetta er fín poppplata sem vinnur á við hverja hlustun og verður spennandi að fylgjast með þessari ungu og efnP'*> legu söngkonu í framtíðinni. Og mömmur og pabbar; ekki láta ykkur koma á óvart þó að dætur ykkar (og eflaust synir líka, því þetta er ekkert endilega stelpuplata þó svo þær verði öragglega í miklum meirihluta hlustenda) eigi eftir að standa fyrir framan spegilinn á næstunni með hárburstann eða pískarann úr eld- húsinu á lofti, syngja með af innlifun og láta sig dreyma um að vera í spor- um Jóhönnu Guðrúnar. íris Stefánsdóttif u Leikstjorn: Hilmar Oddssnn Leikarar: Þórey SigþórsdóHir og Valdiinar Örn Flygenring ATHUGIÐ • A8EINS ÞESSAR sÝmmm Miðvikudaginn 29. nóvember Fimmtudaginn 30. nóvember Sunnudaginn 3. desember nokkur sæti laus (allra siðasta sýning) Úr dómum um sýninguna: „Leikgerðpn]... á pessu magnþrungna verki erbæði vel heppnuð og athyalisverð. Kvikmynd, tónlist, Ijós og lifandi leikur mynda sterka og sannfærandi heild og hvert einasta smáatriði I útfaarslunni er þaulhugsað." Dv „Hér er á ferðinni mjög óvenjuleg sýning á islenskan mælikvarða... alger samruni hinna ymsu iistgreina... Það er mikiö nýmæli að þessarisýningu... “ Srl. SÝNT í IÐNÓ - MIDASÖLUSÍMI 530 3030 Sýnlngartími er 1 klst. og 30 min. ¥4 HTT MAGNÞRUNGINN FJOLSKYLDUHARMLEIKUR UM BLINDA ÁST, BOTNLAUST HATUR, SVIK, AFBRÝÐI, HEFND OG MORD
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.