Skírnir - 01.01.1902, Blaðsíða 1
I.
Heimssjá árið 1902.
Eftir
Jón Ólafsson.
„T>vi betur Bem mcnn skilja sönn tildrög við-
burðanna, þvl skemiilegri verður frásögnin og
frjóeamari leeturinnu.
Skirnir 189S} 29. bls.
„Með því einu nióti getur Skírnir til lengdar
varið tilverurétt sinn, að hann verði jöfnum
höndum fiœðandi skýring og skipulegt yflrlit
samtíðar-8Ögunnaru.
Skirnir 1897, 1. bls.
Áttavísun.
Mikill munur cr á því, livernig monn lesa útlendar fréttir, hvort
heldur fréttasögnr blaðanna eða ársyfirlit Skírnis; mikill munur á, í
hverjum tilgangi og til hverra nota lesið er. Sumir lesa þetta ein-
göngu að gamni sínu, eingöngu til að „drepa tímann“. Slíkum les-
endum leiðist oft að heyra getið t. a. m. um laganýmæli í Englandi,
Þýzkalandi eða Bandaríkjunum, eða um stjórnarskrárbreytingar í Astra-
líu; finnst, það koma sér litið við, einkum það sem gerist hinumcgin á
hnettinum. En hafi stúlka verið myrt á víðavangi á Jótlandi og marg-
ir séu grunaðir um morðið, en enginn verði lengi uppvis að þvi; eða
sé innbrot framið hjá einsetumanni, fénu stolið frá honum og hann
drepinn; cða cf gjaldkorinn við einhvern banka strýkur burtu með
tugi cða lnindruð þúsunda með sér úr fjárhirzlunni, og þá helzt með
einhvern kvennmann mcð sér og skilur eftir konuna, — þá er slikum
lesendum skemt. Og þá auðvitað verða ævinlega einhverjir fregnritar-
ar og einhvcr blöð til þess að herma hclzt þær fréttirnar, sem þeir
þykjast vita að hávaði lesandanna vilji helzt heyra.
1