Skírnir - 01.04.1909, Blaðsíða 83
Grikkir og Páll postnli.
Kafli úr tölu eftir enskan ræðuskörung, W. J. Fox, 1864, frænda
stjórnvitringsins fræga með sama nafni f 1806. Fyrirsögn tölunnar var
„Grikkland og Páll postuli á Aresarhæð11.
Frá því er lýsa tók af degi mannvits og menningar
í álfu vorri, hefir hróður Grikklands farið með him-
inskautum. A fjöllum þess settu frelsisins guðir há-
sæti sín, helguðu sér hafsins öldur og hlésu yflr þær ógn
og storkun móti harðstjóranna óvígu herfylkingum. Þar
léku við lýðinn listir og íþróttir, er fyltu hús og heim-
kynni hverskyns prýði, stráðu lífsveginn rósum, bundu
um brár manna ljósgrænum laufsveigum, smíðuðu líi'ræn
líkneski, skreyttu torg og tún mjallhvítum marmarahofuin,
fyltu skynfæri manna fegurðarunaði og breiddu loks blæju
friðar og indælis á látinna leiði. Þar kom fram óðsnildin
ífærð algervum skrúða úr gróðurþrungnum andans akri —
eins og Mínerva í sögunni kom úr höfði Seifs íklædd al-
væpni og búin til að hnekkja tímans táli og hertaka hjört-
un. Þar stóðu á þingi ræðuskörungarnir, er aldrei sáu
sína líka, og gáfu heiminum fyrirmyndir málsnildarinnar
— strengleik sálar, hörpu hvers hugskots og geðbreytinga,
tón eftir tón. Hér undu heimspekingarnir frægu í græn-
um lundum og gangsvölum skínandi sala, hér kendu þeir
orðspekina, lífsspekina, djúpspekina, er ala skyldi og efla
andans innri öfl og þroska og fylla þá fósturjörð frægð
og vegsemd, sem sjálf var vegsemd allrar veraldar.----------------
Líklegt er að engin endanleg listasmiði hafi til verið
eins töfrandi eins og blasti við auganu, er gengið var gegn
um Aþenuborg í almætti hennar. Frá hennar hernumdu,
12*