Skírnir - 01.01.1910, Blaðsíða 77
Hngsjónir Edisons.
Eitt hinna helztu tímarita Ameríku-manna, »Munsey’s
Magazine«, fiytur i desemberhefti sínu f. á. afarmerka rit-
gerð um »konunginn í heimi uppfundninganna«, Thomas
A. Edison
Tímaritið sendi einn starfsmanna sinna, Allan L. Ben-
son. á fund Edisons, til þess að fræðast um síðustu upp-
fundningu hans, »steinsteypuhúsið«. Að þessu verki hefir
Edison unnið í tvö ár. Þessarar hugmyndar hans hefir
varla verið getið í íslenzkum blöðum og tímaritum, og
viljum vér því geta hennar all-rækilega hér, með því að
flytja Munsey’s-greinina á íslenzku.
Fyrst i greininni er sagt frá viðtali herra Bensons
við Edison um uppfundningar alment. Orð Edisons eru
svo merkileg, að vér viljum taka þau upp, eins og tíma-
ritið segir frá þeim.
Fátæklingarnir hafa ástæðu til að gleðjast. Thomas
Alva Edison, raffræðingurinn, hugvitsmaðurinn, miljóna-
mæringurinn og heimspekingurinn hefir boðskap að flytja
þeim.
Edison sér hversu uppfundningarnar umskapa heim-
inn. Margt stórkostlegt er þegar gert í þessa átt. Fram-
farirnar hafa gert heiminn auðugan.
Alt þetta sér Edison með því að líta aftur í tímann.
En það er einkum þegar hann lítur fram, að hann sér
sýnir, sem eru huggunarríkar fyrir fátæklingana. Hann
sér, að uppfundningarnar munu ekki einasta auðga heim-
inn, heldur líka gera hann farsælli; ekki einasta létta hinni
hörðu stritvinnu af fátækum mönnum, körlum og konum,