Þjóðólfur - 24.11.1863, Blaðsíða 4

Þjóðólfur - 24.11.1863, Blaðsíða 4
mcnn hafa aldrei verið eins óðir að flytja vestr um haf sem nú, og hræðast þelr ehki manndráp- in, en peníngarnir og þjóðarauðrinn óþrjótandí, þó allt þetta gángi í súginn, og má segja, að mikil- menni þoli mikið harðhnjask, áðren þeir falla á bæði knð. Á fjýzkalandi hefir verið mikil hátíð 18. Okt. og þá dagana í þá minníng, að þá voru 50 ár síðan fólkorustan mikla var við Leipzig. Var þessa daga í Leipzig hátíð, en einknm var það heiðrsdagr þeim, sem enn lifa af þeim, sem þar börðust, og svo minníngu þeirra, sem þar féllu. f>ann 20. Septembermánaðar andaðist í Berlín hinn nafntogaði og ágæti öldúngr Jakob Grimm; hann vantaði vetr á áttræðan; fjórum vetrum áðr hafði andazt bróðir hans Vilhjálmr. f>ess eru fá dæmi, að 2 bræðr hafi á lángri æfi verið svo samrýmdir sem þessir. Jakob var ógiptr, og bjó lengst af æö hjá bróður sínum, sem var giptr. Eins og ein- kenni er ágætra vísindamanna bjó barnslund í huga Jakobs Grimms; og í f>ýzkalandi er varla það barn, sem ekki kunni nafn hans jafnt og lærðir menn; börnin, af æfintýrum hans, sem þar eru í hvers manns húsi. jþjóðsögur sínar eignaði Jón Árnason Jakobi; hann lifði það, að hann sá fyrra bindið, sem honum var mesta skemtun að, en æfintýrin, sögurnar um kóng og drottníng í ríki sínu og karl og kerlíng í garðshorni, vanzt honum ekki aldr til að sjá á íslenzku, en að þeirn sögum hendi hann mest gaman. Aðrir nafnkendir menn hafa ekki dáið, nema einn stjórnaröldúngr Englendínga Lord Lyndhurst, sem dó og hafði vetr um nírætt; hann var fæddr 1772. — í 44. og 45. blaði »f>jóðólfs« þ. á. heíir herra Gísli Brynjúlfsson reynt að hrekja og ve- fengja aðsenda grein í blaði þessu, nr. 40, um próf það er haldið var við háskólann í Kaupmanna- höfn í vor yflr Cand. juris Olivarius. Af því herra Gísli í svari sínu hefir vefengt sannsögli gyeinar þessarar, önnum vér undirskrif- aðir, sem allir vorum viðstaddir og heyrnarvottar að próönu, oss skylt að lýsa yör því, að lýaingin á prófinu og dœmi pau / sern til eru fœrð í nefndri grein, eru í alla staði sönn og rett hermd. Kaupmamiahúfn, 2». dag Oktúbermán. 18IÍ3 Sigurðr Jónsson. Jón Jónsson (Álaborg). Guð- brandr Vigfússon. Theodor Sveinbjörnsson. Júlí- us Havstein. Skúli Nordahl. Þorgrímr Johnsen. Lárus Þ. Blöndal. Skapti Jósepsson. (Aðsent). f>að væri ærs manns æði, að ætla sér að leið- rétta allt, sem skakt er eða ránghermt í grein Gísla Brynjúlfssonar (þjóðólfi Nr 44. 45.). um sýsluveitíngar og próf Dana. Eg skal einúngis leyfa mér að taka fram söguna nm fundinn 22. Febrúar 1862, því mér er það sem þar fór fram því kunnugra en Gísla, sem eg var sjálfr á fundinum og stýrði honum eptir kosníngu fundar- manna — einmitt þessvegna rita eg þessa skýrslu- grein — en Gísli kom þar ekki, og getr því ekk- ert þar frá sagt nema eptir frásögnum annara og ímyndiin sjálfs sín. f>að heör verið ávalt regla meðal Islendínga hér í Iíaupmannahöfn, að láta það sem fram fer á fundum, fara einúngis þeirra á milli, sem fundi sækja, en ekki að auglýsa annað en það, sem samþykt er og opinbert, ef annars nokkuð er auglýst. f>etta er einnig rétt, og samkvæmt að- ferð góðra drengja, því fundir vorir hafa ávalt verið sem fundir bræðra, sem hver þorir að sleppa orði við annan, þó þeim komi ekki saman í öllu, og það heör þaraðauki sjaldnast verið bókað, sem sagt hefir verið, því þess hefir ekki þurft. Menn hafa aldrei þurft að varast gaungukonur Ilallgerðar lángbrókar, hvorki á fundum Íslendínga né utan fundar. Mér þykir það illa fara, að Gísli Brynjúlfsson skyldi verða fyrstr til að breyta út- af þessu og hlaupa með sögur, og enn Iakara;að hann hermir hvorki rétt né drengilega frá, þar sem hann leynir því, að hann var ekki sjálfr við, og tilgreinir þó engan sögumann fyrir ófrægileg- um áburði á fundarmenn. Svo eg nú segi frá aðdraganda fundarins, þá er það eiginlega ekki rétt, að tveir danskir hefði sókt um Múlasýslur, og boðizt til prófs vetrinn 1862, því þeir gátu að réttu lagi ekki sókt fyren að afloknu prófi ; en hitt er satt, að það var al- ment talað, að þeir hefði borið sig fram skriflega eða munnlega við stjórnarherra íslenzku málanna, og fengið ádrátt eða loforð hans sinn fyrir hyerri Múlasýslunni, sjálfsagt að afloknu prófi, svo sem í Maímánuði eptir því sem þá stóð til. Nú vissu Íslendíngar nýtt dœmi um próf Clausens sýsln- manns, og veitíng Gullbríhgusýslu, sem þeim þótti ekki hafa farið að réttu lagi, og vildu því reyna að leita meiri tryggíngar við þessi próf, og halda fund um það. Boðsbréf til fundar hefi eg fyrir mér, með nöfnum 17 Islendínga, og þar á meðal er Gísli Brynjúlfsson (cn ekki eg). Boðsþréfið

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.