Þjóðólfur - 28.01.1887, Blaðsíða 3

Þjóðólfur - 28.01.1887, Blaðsíða 3
15 an bæ að konungssetri, en það stóð skamma stund, þvi flmm árum eptir dauða hans var bærinn eyddur af Vind- um, og hefur hann aldrei náð sínum fyrri blóma síðan. Við Kungelf grein- ist Grautelfi í tvær kvíslar, sem falla sin hvorum megin við eyna Hísing. Þar bjuggu þeir Sigtryggur og Hallvarður, er knörrinn góða tóku upp fyrir Þór- ólfi Kveldúlfssyni, bróður Skallagríms, er hann hefndi með því, að ræna bæ þeirra og brenna. en Skallagrímur og Kveldúlfur með því að drepa þá á leið sinni til íslands. Til Gautaborgar kom jeg um kl. 3. Það er stór bær. Hann liggur við mynni Gautelfar. Verzlun erlijermjög mikil, enda er einhvers konar fjárreiðu- bragur á öllum bænum. Jeg var að skoða bæinn í gærkveldi, og fannst mjer ekki sjerlega um neitt þar fram- ur því, er sjá má í liverjum stórbæ. Það helzta eru siki þau sem ganga um þveran bæinn. Skal hjer nú staðar numið, því eptir liálfa stund stíg jeg á skipsfjöl, og fer með eimskipi til Kaup- mannahafnar. Hlakka jeg mjög til að sigla út um Elfarsker, því útsiglingin hjer kvað vera framúrskarandi fögur. , t Arui IljáInisson. Hinn 8. ágúst síðastl. andaðist á Hamri í Borgarlireppi í Mýrasýslu söðlasmiður Árni Hjálmsson, 30 ára að aldri. Hann var sonur hins alkunna merkismanns Hjálms Pjetursson- ar, amtsráðsmanns á Hamri í Þverárhlíð, og honu hans Helgu Árnadóttur frá Kalmanns- Hingu. Heima hjá foreldrum sínum dvaldi hann alla tíð að undanteknum tíma jieim, sem hann varði til að nema handverk sitt, þar til hann fyrir tveim árurn byrjaði búskap. Kvæntist bann jiá og gekk að eiga frændkonu sína ung- hú Guðrúnu Hjálmsdóttir frá Þingnesi. Þeim hjúnum varð tveggja barna auðið, sem bæði eru á lífi. Árni sál. var gæddur góðum gáfum, vandað- höfðinglegur og hreinn i lund. Poreldrum s>num, systkinum og eiginkonu var hann hinn óstúðlegasti, og hinn hugþekkasti öllum, er hon- 11m hynntust, því að hvarvetna kom hann fram fftgurlega og til góðs eptir þvi, sem honum var auð- Ef ytri hagur hans hefði ekki að nokkru leyti tálmað honum að koma fram, eptir því sem bann hafði hæfilegleika til, þá er víst, að al- nrennt hefði verið talið, að þjóð vor hafi, þar 8ein hann var, misst einn af sínum beztu og KJörvulegustu sonum. — J. O. M. Reykjavlk 28. jan. 1887. Skipskaðar urðu stórkostlegir á Skagaströnd 3. þ. m. Um þá er oss skrifað úr Húnavatns- sýslu 11. þ. m.: „3 þ. m. rern 7 skip til fiskj- ar af Skagaströnd, en er menn voru nýrónir, laust á ofsaveðri af austri með sortahríð og snjókomu, svo að af þessum 7 skipum náðu að eins 2 til lands á ströndiuni, en hin 5 fórust, bátur frá Hofi með 3 mönnum (formaður (tuð- mundur að nafni), skip frá Háagerði með 5 mönnum (form. Tómas Tómasson), skip frá Bakka með 4 mönnum (form. Páll Pálsson), skip frá Viðvik með 6 mönnum (form. Árni Sigurðsson) og skip frá Árbakka raeð 6 mönnum (forra. (luðmundur Olafsson), og drukknuðu allir raenn- irnir, 24 að tölu, flestir úrvalsmenn, bændur og vinnuinenn. Urðu við þetta stórkostlega slys 9 ekkjur og að sögn 27 börn föðurlaus. Skipin ráku 1 á Þiugeyrasandi, hináVatnsnesi beggja megin meira og minna brotin, en er siðast frjettist enginn maður fundinn. Sum heimili af þessum, sem misstu menuina, eru sögð bjargarlaus. Vindhælishreppur hefur við þetta beðið mikið tjón, að missa jafnmarga dug- lega menn. Verður erfitt fyrir það sveitarfje- lag, að ráða fram úr þeiin vandræðum, sera leiða af þessu. í haust hefur verið góður afli á Skagaströnd og þar hlutir komnir frá 400 til 1000“. Nauðsynlegt væri að leita samskota til að draga ur bágindum, sem leiða af þessu mikla manntjóni. Þess er þvi fremur þörf, sem hag- ur manna þar, sumra hverra að minnsta kosti, mun eigi hafa verið góður áður, þvi að Vind- hælishreppur fjekk hallærislán siðastliðið ár, enda er það útkjálka- og harðindasveit, sem harðindi nndanfarinna ára hafa lagzt þungt á. Húshruni. Nóttina milli þess 3. og 4. þ. m. brann pakkhús kaupmanns Bærndtsens á Skaga- strönd, en þvi, sem var í húsinu, var bjargað „fyrir dugnað og ráðdeild hinna fáu manna, sem hægt var að ná í til að bjarga úr liúsinu. Sagt er að húsið hafi verið votryggt“. Tíðarfar. Veturinn hefnr verið allgóður fram undir árslok víðast þar, sem til hefur trjetzt. Síðan hefur sunnan lands verið fremur óstöðug tið og mikill snjór kominn, svo að til fjalla er haglaust, en í sumum lágsveitum nokkr- ir hagar. Norðanlands hefur tíðin verið svip- uð, og haglaust þar viðast einkum til dala og fjalla, sömuleiðis vestan lands. Suðra-þref ritstjóra ísafoldar. Hversu mikið lið ritstjóra ísafoldar er að vottorðinu frá L. A. Knudseu í siðasta blaði ísafoldar, sjest á því, að Knudsen sagði 26. þ. m. i votta viðurvist, að liann vissi ekki til þess, að ritstjóri Þjóðólfs hefði falazt eptir kaup- um á Suðra hjá Einari Þórðarsyni, enda sýnir eptirfylgjaudi vottorð, að Einar Þórðarson stað- festir ekki sögusögn ísafoldar um daginn. „Að ritstjóri Þorleifur Jónsson hafi ekki fal- azt hjá mjer eptir kaupum á Suðra síðastliðið ár, votta jeg fúslega eptir beðni, lieldur kom það til orða, að jeg seldi honum Suðra árið áður. Ueykjavík 26. jan. 1887. Einar Þórðarson11. Annars bætir ritstjóri ísafoldar ekkert sinn málstað út af opinberu auglýsingunum með þess- um útúrdúrum frá hinu upphaflega efni, ef sá er tilgangur hans með þessu þrefi. AUGLYSINGAR í samfeldu máli m. smáletri kosta 2 a. (þakkaráv. 3a. hvert orö 15 stafa frekast; m. ööru letri eöa setning 1 kr. fyrir þumlung dálUs-lenj*dar. Borgun útíhönd. Nýtt hús er til sölu og íbúðar með góðum skilmálum frá 1. maí þ. á. nálægt lat- ínuskólannm með 7 herbergjum auk kokkhúss og kjallara ásamt góðnm kálgarði. Ritstj. þessa blaðs vísar á seljandann. 25 Undirskrifaður kaupir velskotnar rjúpur með hæsta verði þangað til póstskip fer hjeðan. Reykjavík 28. jan. 1886. Br. H. Bjarnason. 26 ÍSLENZKI GOOD - TEMPLAR. Árg. 12 blöð (hvert 8 bls., 16 dálkar) kostar að eins 75 au. — Tvö nr. komin út (októb. og nóvemb.). — Rit- stjórn: Jón Ólafsson, Indriði Einarsson, Þórhallur Bjarnarson. — Utanáskrift á pantanir: „Afgi'diðslu- stofa ísl. Good-Templars, Reykjavik. 27 Ágætur reiðhestur fæst næstkomandi vor til kaups. Ritstjórinn visar á seljanda. 28 Nýju fjelagsritin öll í bandi fást til kaups. Ritstjóri vísar á seljandann. 29 Yfirlýsing. Vottorð það, sem jeg hafði gefið alþingis- inanni Jóni Olafssyni, og hanu hefur látið prenta í Þjóðólfi 21. þ. m., er af honum heim- ildarlaust sett, i Þjóðólf eða nokkurt annað blað. Reykjavik 27. janúar 1887. 8. Jónsson, fangavörður. 30 Við undirskrifaðir vorum viðstaddir, er Sig- urður Jónsson fangavörður skrifaði undir vott- orð það, sem birt er i siðasta „Þjóðólfi11, og var það skýrt og skorinort tekið fram, að það væri til þess að það yrði prentað i blöðunum. Reykjavík 28. jau. 1887. Magnús G-unnarsson. Þorlákur Ó. Johnson. 31 Ávarp til safnaðarins í Stokkseyrarsókn. —:o:— Mínir kæru bræður og systur i Stokkseyrar- kirkjusókn! Eins og yður öllum er kunnugt höfuin vjer tekið að oss umsjón og fjárhald kirkju vorrar og sem af prófastinum var út-

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.