Þjóðólfur - 21.10.1898, Blaðsíða 3

Þjóðólfur - 21.10.1898, Blaðsíða 3
sögnina, eins og hún var í Þjóðólfi síðast, og eigi haft annað fyrir sér, er undarlega ófróð um bankann, þar sem hún segir, að þetta sé í fyrsta skipti sem hann hafi orðið fyrir beinum fjár- svikum þau 12 ár, er hann hefúr staðið, því að það er skakkt. Vér getum bæði frætt »ísafold« og aðra á því, að fyrir 3—4 árum lánaði ófull- veðja piltur norður í Skagafirði öðrum manni jörð að veði, og fékk sá maður 600 kr. úr bankanum út á þann pappír. Þessum peningum tapaði bankinn alveg, þá er veðleyfið var ólög- legt. En bankastjómin gat auðvitað ekki varað sig á þessum prettum, svo að henni er ekki um það peningatjón að kenna, heldur hinum þáver- andi sýslumanni í Skagafjarðarsýslu, sem ritaði upp á veðleyfið, eins og ekkert væri athugavert við það, og því vottorði varð bankastjómin að treysta. Að líkindum hefði sýslumaður orðið að borga þessar 600 kr. fyrir vangá sína, ef til málssóknar hefði komið, en hann andaðist nokkru síðar, og mun þá bankastjórnin hafa látið þetta niður falla svo búið. En þetta dæmi sýnir, að bankinn hefur orðið fyrir fjársvikum áður en þessi bíræfni náungi, sem fyr er getið, flekaði hann í fyrra haust. Ljósmyndan af himinhvolfinu. Eptir Camille Flammarion. (Frh.) Allir vita, að með beram augum sjást eigi minni stjömur, en af 6. stærð, og að þetta orð «stærð«, er að skilja að eins um hið sýnilega blik stjarnanna, þannig, að stjörnur af fyrstu stærð eru skærastar, af annari stærð óskærari og þannig framvegis, en að stjörnur af 6. stærð era hinar síðustu, er menn geta greint með beram augum. Skulu hér nú taldar eins og sennilegt þykir stjömuraf hverri stærð, allt aðhinni fjórt- ándu. .Stærð. Tala. Hinar síðastnefndu stjörn- x. . . . 20 ur eru sýnilegar í sjón- 2. . 59 aukum þeim, er menn 3- • 182 nú hafa í stjöruuturnum. 4. . • • 530 Eins og sjá má, eru stjörn- 5- • . . 1,600 ur af þessum 14 fyrstu 6. . . . 4,800 flokkum samanlagðar yfir 7- • . . I3,000 40 miljónir. Að reyna 8. . . . 40,000 að skrásetja þessa her- 9. . . . 120,000 fylkingu himnanna, væri 10. . . . 380,000 eigi aðeins meira en 11. . . . 1,000,000 nokkurs manns færi, held- 12. . . . 3,000,000 ur væri það alls ómögu- 13- • . . 9,000,000 legt, því að óumflýjan- 14. . . . 27,000,000 legar villur mundu læð- fjölda, ast inn í slíkan athugana- við útreikning og við þáð, að koma þeim fyrir á uppdrætti. Ár og aptur ár mundi eigi nægja og meðan menn væru að vinna að þessu, mundu stjörnumar færast í geimnum, því að sérhver þeirra á sér hreyfingu, þó mismunandi sé. En ljósmyndanin getur gert allt þetta, svo að segja leikandi, og á mjög óbrotinn hátt, svo fullkomið stig, sem hún nú er komin á. Ogvit- ið þér á hve löngum tíma þetta tröllvirki, þetta ■óafmlanlega minningarmark stjömufræðinnar nú á dögum, mundi verða unnið? k. prettdn minútum! Það er nefnilega svo, að fimm þúsundustu hlutar úr sekúndu nægja til þess að ljósmynda stjörnu af fyrstu stærð; hálf sekúnda nægir til þess, að ljósmynda hinar minnstu stjömur, er sýnilegar era beram augum; þrettán mínútur þarf td að ljósmynda þær, sem eru affjórtándu stærð. Ef menn á sama tilteknu augnabliki gaetu miðað 8000 ljósmyndapípum, er menn hefðu skipað umhverfis alla jörðina, á 8000 sam- anhangandi staði á himinhvolfinu, þá myndu þaer 8000 Ijósmyndir, er fram kæmu, sýna gervallt *9S himinhvolfið og þær hinar fjöratíu miljónir stjama, er nýlega voru nefndar. Ef þessar 8000 mynd- ir, er hver (þeirra) næði yfir fimm gráður, væru settar hver við hliðina á annari, þá mundu þær sýna þær 41,000 ferhymingsgráður, er himin- hvolfið innibindur. Þessi augabragðs-ljósmyndan himinhvolfsins er hagsýnileg, en verður eigi framkvæmd verk- lega; í fyrsta lagi af þvf, að á sérhverju auga- bragði, sem væri, þá er eigi nótt nema á rúm- um helmingi jarðhnattarins; því næst af því, að gufuhvolf jarðarinnar er aldrei gersamlega heið- rfkt; og loks af þvf, að þessi 8000 verkfæriværa tilfinnanlega kostnaðarsöm, svo að það er ein- faldara og viðráðanlegra, að láta þau vera sem fæst að unnt er. Verkinu hefur verið skipt milli hér um bil 20 stjörnuturna, og menn ætla, að á 3 til 4 ár- um muni menn verða búnir að fá ljósmynd af öllum himninum alstirndum. Hér skal skýrt frá, hvernig verkinu lfklega muni skipt milli hinna ýmsu stjömuturna: Stjömuturnar. Tala ljósmyndaplatanna. París Bordeaux Toulouse Algier Greenvich . . . . • 1149 Oxford . 1180 Helsingfors . . . . Potsdam • 1232 Róm Catanía San Fernando . . . . 1260 Taenbaya Santiago . 1260 La Plata • 1360 Rio Janeiro . . . . • 1376 Góðrarvonarhöfði . . • 1512 Sydney Melboume . . . . • 1149 Þannig munu vísindi 19. aldarinnar láta ó- komnum kynslóðum eptir sig órækt og óafmá- anlegt skilrfki um stjörnuheiminn, er á komandi öldum getur verið áreiðanlegur grandvöllur til að byggja á úrlausnma um fyrirkomulag alheimsins. Sannarlega er mannsaugað aðdáanlegt sjón- verkfæri; hvílíkt gagnsæi er eigi í þessum lifandi krystalli, hve yndislegar tilbreytingar í regnboga- himnunni, hvílfk dýpt og hvílík fegurð 1 Það er lífið, það er ástríðan, það er Ijósið. Lokið öll- um þessum augum, hvað mundi þá verða eptir af sköpunarverkinu? Og samt sem áður er það svo, að glerið í Ijósmyndunarverkfærinu má með sanni nefna nýtt auga, er fullkomnar vort eigið, er enn næmara og enn furðulegra. Þetta tröllauga hefur fernt, og það þýðing- armikið, um fram mannsaugað; það sér hraðar, lengra, lengur og — það, sem eigi er minnst um vert, það geymir það, sem það sér. Það sér hraðar; á hálfum þúsundasta hluta úr sekúndu ljósmyndar það sólina, bletti hennar, loga henn- ar og eldmekki á varanlegt skjal. — Það sér lengra, hvert sem því er stýrt á himinhvolfið, og þó að svarlnætti sé, þá skyggnir það í smáögn- um algeimsins stjörnur, hnetti, heima, skapanir, er auga vort aldrei, aldrei fær litið, hvaða kík- ira, sem það notar. Það sér lengur; það, sem vér eigi fáum séð með því að horfa nokkrar sek- úndtir, það eygjum vér aldrei; það, aptur ámóti þarf eigi annað, en horfa nógu lengi; eptir hálfa klukkustund fær það greint það, er það eigi sá [fyrst]; eptir heila kl.stund sér það enn betur, og því lengur sem það starir yfir f hið ókunna, því 'betur nær það því, þreytulaust, nákvæmar og nákvæmar. Og það geymir á sjáaldursplötu sinni allt, sem það hefur séð. Auga vort geymir eigi myndir sínar nema augnablik. ímyndið yður t. d., að þér rotuðuð mann, þar sem hann sæti ró- legur í hægindastól sínum með opin augun gagn- vart vel björtum glugga, (hugmynd þessi getur vel átt sér stað á plánetu, þar sem allir borgar- amir eru hermenn og myrðast á, svo að lágt reiknað nemur ellefu hundraðum daglega); þvf næst að þér rifuð úr honum augun, (við skul- um nfl. setja svo, að hér sé um óvin að ræða), og að þér dýfið þeim í álúnsvatn. Augu þessi mundu þá halda myndinni af glugganum með dimmum þverrákum og ljósum rúðum á milli. En eins og vanal. er ástatt, geyma augu voreigi myndimar. . . Það mundi fá sig fullsatt, ef svo væri. Tröllsaugað, sem vér voram að tala um, geymir allt, sem það hefir séð. Það þarf ekki annað, en skipta um sjáaldur. Þannig sér auga þetta fljótar og skýrar og þreytist ekki. (Meira.) Fornleifafélagsfundur var haldinn hér í bænum 18. þ. m. Forseti (séra Eiríkur Briem) lagði fram reikninga félagsins umliðið ár. Atti það 1 sjóði við árslok (1897) 1391 kr. 56 a. Þá skýrði forseti frá efni »Arbókarinnar«, sem nú er nær fúllbúin, og verður hún með langfjölskrúðugasta móti. Sem fylgirit hennar verður íslenzk þýðing á ritgerð D. Brauns um rannsókn eyðisveita og eyðibýla. Þá skýrði forseti frá rann- sóknum Brynjólfs Jónssonar, er verið hafði f þjónustu félagsins næstliðið sumar, eins og að undanfömu. Hafði hann rannsakað sögustaði og ömefni í Gullþórissögu og víðar þar um slóð- ir, og verið ásamt D. Braun við uppgröpt fom- mannadysa hjá Hymingsstöðum f Reykhólasveit. En þar fannst fátt markvert, og hafði verið graf- ið í dysirnar áður, en sannfærðir þóttust þeir um, að þær mundu vera frá heiðni. Gufubiturlnn »Reykjavík« fór héðan til Noregs 17. þ. m. Hann verðurhafður til strand- ferða þar í vetur, og mátti því eigi lengurdvelja hér, en hann hefði samt eflaust haft nóg að gera til loka þ. m., einkum í ferðum til Akraness og ^Borgarness nú í haustkauptíðinni. Nýtt með Laura. SINGERS stál-SAUMAVÉLARNAR viðurkenndu komnar aptur. LOPTÞYNGDARMÆLAR vandaðir og mjög skrautlegir. Teikniáhöld — Teiknibestikk mjög margar sortir. GULLSTÁSS alls konar, þar á meðal óvenju- lega mikið úrval af GULLHRINGUM með ekta steinum, verð frá 4—40 kr. TRÚLOFUNAR HRINGUNUM má heldur ekki gleyma. Það er þægilegt að geta fengið þá eptir eigin vali án fyrirvara, fyrir lægsta verð. Mesta úrval í bænum, af fínum STOFUÚR- UM — Regulatorum. — VASAÚRUM, ÚRFESTUM o. m. fl. hjá Guðjóni Sigurðssyni. hefur úr vöktun hér í R.vík. brúnn hestur, 6 vetra gamall, al- járnaður, f hapti mark: tvístýft framan hægra. Hver sem hitta kann hest þennan, er vinsamlega beðinn að koma honum til Þorgríms Jónssonar söðla- smiðs f Reykjavfk.

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.