Þjóðólfur - 28.12.1906, Blaðsíða 2
224
ÞJÖÓÐLFUR.
ÞJÓÐÓLFUR
kemur út einu' sinni og stundum tvísvar í viku, 52—60
blöð um árið. Kostar hér á landi 4 kr. árg. Erlendis
5 kr. Gjalddagi 15. júlí ár hvert. Uppsögn skrifleg,
bundín við áramót, verður að vera komin til útgefanda
fyrir 1. október, annars ógild, enda sé kauþandi pá
skuldlaus við blaðið.
um er meðal annars svo háttað, að hann
útheimtir mikið skraut í öllum útbúnaði,
búningum, herbergjaprýði o. fl., er leikfé-
lagið hefur naumast tök á, eu gert gæti
það þó herbergi KAmalíufrúarinnar dálítið
glæsilegra innanstokks en það er, því það
er alveg ótækt sem bústaður slíkrar konu
sem hennar. Annars tekst leikurinn sjálf-
ur vonum framar, og hjá frú Stefaníu
ágætlega, einkum í 3. og 4. þætti. Verð-
ur síðar getið nánar.
Kuklatíð
mikil hefur verið nú um jólin, óvenju-
leg um þetta leyti árs, frostið 11—I2°C.
suma dagana. Nyrðra hafa verið mikil
frost, t. d. á Akureyri 19 stiga frost C.
á jóladaginn.
Taugaveikin
er lítt i rénun enn hér í bænum, því
að smátt og smátt bætast fleiri sjúklingar
við, og eru nú orðnir um 70. Fremur er
veikin væg. Á aðfangadaginn (24. þ. m.)
lézt úr henni einkadóttir Kristjáns járn-
smiðs Kristjánssouar, Sigríður að nafni,
mesta efnisstúlka, 17 ára gömul.
Slysfarir.
Hinn 14. þ. m. rotaðist tilbanamaður
í Bolungarvík vestra, var að setja ofan bát
með vindu, og slóst vindustöngin í höfuð
honurn. Haun hét Þórður Ólafsson frá
Gullhúsum á Snæíjallaströnd.
Hinn 18. s. m, drukknaði maður af
ísafirði, Óskar Sandholt Jensson, var á
leið innan úr Ögursnesi og hrökk útbyrðis
frá stýrinu.
Piltur varð úti frá Sámsstöðum í Lax-
árdal í Dalasýslu seint í f. m. Hann hét
Jón son Kristjáns bóuda á Breiðabólsstað
á Fellsströnd, 15 ára gamall.
„Vestri"
hefur 8. þ. m. tekið þveröfuga afstöðu
gagnvart biaðaávarpinu við það sem ætla
mátti eptir ummælum hans tæpri viku
áður, af hverju sem það stafar. Hann
vill nú ekki láta minnast á rikisráðið í
sambandi við sambandslögin, af því að
það sé íslenzkt sérmál. Meiri lögfræðing-
ar en ritstj. »Vestra«, t. d. í ritnefnd »Lög-
réttu«, hafa þó viðurkennt og gengið út
frá því sem sjálfsögðu, að um ríkisráðs-
atriðið og setu ráðherrans í ríkisráðinu
hljóti að verða rætt i sambandi við þessi
lög, og komizt að einhverri fastri niður-
stöðu um það, enda nær sú fásinna engri
átt, að slíkar umræður skuli útilokaðar í
sambandslaganefndinni.
„Kong ínge strandaður.
Símað er frá Akureyri í dag, að Thore-
félagsskipið >Kong Inge« hafi strand-
að 22. þ. m. nálægt Flatey á Skjálfanda
á útleið frá Akureyri. Menn björguðust
með naumindum á bátum og póstflutn-
ingi varð borgið. Skipið talið gersam-
lega ónýtt.
Eptirmæli.
Kagnheiður Pálsdóttir var fædd 12. jfiní
1820 á Vatnsenda í Mosfellssveit. Foreldr-
ar hennar voru Páll (d. 1. nóv, 1861) er
síðar varð prestur á Kirkjubæjarklaustri og
prófastur í Skaptafellssýslu, Pálsson klaust-
urhaldara á Elliðavatni Jónssonar, og fyrri
kona hans Matthildur Teitsdóttir
bónda á Seli við Reykjavík Þórðarsonar.
— Ragnheiður Pálsdóttir var þegar á fyrsta
ári til fósturs tekin af ömmu sinni og nöfnu
Ragnheiði (s. k. Páls á Elliðavatni) Guð ’
mundsdótiur bónda í Leirvogstungu, Sæ-
mundssonar á Narfeyri, Þórðarsonar pró-
fasts á Staðastað, Jónssonar biskups á Hób
um Vigfússonar. Ólst Ragnheiður upp á
Elliðavatni, þar til amma hennar andaðist
(1840), fór hún þá til Jóns landiæknis Thor-
steinsons og konu hans Elínar Stefánsdóttur
amtmanns Stephensens og dvaldi hjá þeim
um hríð.
Um það leyti gerðist heimiliskennari Jóns
landlæknis Þorkell Eyjólfsson prests
til Miðdalaþinga, Gíslasonar prests á Breiða-
bólsstað, Ólafssonar biskups í Skálholti
Gíslasonar. Hann var þá útskrifaður úr
Bessastaðaskóla með góðum vitnisburði, og
var gott mannsefni. Þar kynntust þau Ragn-
heiður og Þorkell, og dró það til þess, að
þau giptust 19. maí 1844, og var hann sama
dag vígður af Steingrími biskupi prestur að
Ásum í Skaptártungu, síðar (x3/s 1859) fékk
hann Borg á Mýrum, og sfðast (6/ II 1874)
Staðastað á Ölduhrygg. Hann fékk 26.
september 1890 lausn frá embætti, og flutt-
ust þau hjón þá að Búðum til Einars sonar
sfns, og þar andaðist hann 19. desember
1891, og hafði verið prestur í 6 ár hins
5. tugar, en einum vetri lengur f hjónabandi.
Þorkell prestur og Ragnheiður eignuðust
17 börn, dóu 7 í æsku, en 10 komust til
fullorðinsára. sem eru: Matthildur kona
Magnúsar Jóhannessonar bónda á Sveins-
stöðum undir Jökli, Eyjólfur úrsmiður í
Reykjavík, P á 11 gullsmiður í Reykjavík,
Jón (d. »9/9 1894) á ísafirði, Guðbrandur
verzlunarmaður í Ólafsvík, Guðrún ekkja
Holgeirs Clausens kaupmanns í Reykjavík,
Bjarni skipasmiður í Reykjavík, Jón dr.
phil. landsskjalavörður í Reykjavík, Kjart-
a n bóndi á Arnarstapa og E i n a r skrifari
f Reykjavík.
Eptir lát manns síns dvaldi Ragnheiður
hjá börnum sínum, fyrst í Stykkishólmi og
síðar í Reykjavík, og andaðist þar 13. júlí
1905 hálf-níræð að aldri.
Á þeim tímum sem Ragnheiður var að
alast upp hjá ömmu sinni á Elliðavatui, lá
þjóðvegurinn að austan þar hjá, og var þar
opt mannkvæmt, og kunni hún að segja
deili á mörgum nafnkenndum manni. Einu
sinni á ári fór hún ætíð út í Viðey með
ömmu sinni, því mikil vinátta var milli
Elliðavatnsfólks og Viðeyjarfólks. Mundi
hún gerla eptir Magnúsi konferenzráði.
Hafði hann verið henni sem unglingi ein-
staklega góður, og hafði verið að spila á
hljóðfæri fyrir þær nöfnur m. m.
Ragnheiður var hin bezta búkona, og
hafði hún jafnan mestöll búsforráð, því að
Þorkell prestur var ekki mikill búmaður. Sam-
farirþeirrahjóna voru hinar ástúðlegustu, og
segir svo í æfisögu Þorkels prests (Rv. 1900)
„að yndi hafði hann hvergi, hvorki í æsku
né elli, þar er hún var eigi".
Hún var mjög minnug og ættfróð, og
hin mesta rausnar- og atgerviskona, og
mætti þess mörg dæmi telja. Börn
þeirra hjóna urðu og flest einkar vel mennt,
röskleika- og dugnaðarfólk og voru öll vel
gefin. Mátti þar um segja, að þar væri
„kvistir kyngóðir", enda í báðum ættum
ófúinn íslenzkur mergur. Og verður það
löngum drjúgasti arfahlutinn til frambúðar.
Eg hef verið að bíða eptir, að aðrir mér
færari minntust þessarar merkiskonu. En
úr því að það hefur ekki enn orðið, vildi
eg ekki láta lengur dragast að birta þessi
fátj og ófullkomnu minningarorð, því að
„betra er seint en aldrei". S.
Bœjarbúar, sem hafa í hyggju
að gerast meðlimir félagsins, en
eigi bafa skrifað nöfn sín á lista
þá, sem sendir hafa yerið út um
bæinn, geta gefið sig frain yið oss
undirritaða stjórnarmenn í Reykja-
yíkurdeild félagsins.
Steingrímur Mattöiasson,
Miðstræti 8.
Hannes Hafliðason, Einar Árnason,
Smiðjustíg 6. Vesturgötu 45
eða Aðalstræti 14.
AFSLÁTTUR
til NYARS
A F
BAZAR-V0RUM
H JÁ
þlRHl KRI5TJÁN55YNI.
Með s/s ,Vesta‘ eru komnar aptur miliar birgðir.
Par á meðal:
Vetrarföt fyrir unglinga og fullorðna frá 20 kr.
Vetrarjakkar 1° frá 9—15 kr.
Hrokkin sjol alla vega lit kr. 12—17.
Fatatau 21/* al. br., frá 2 kr.
Nœrfatnadur þykkur frá kr. 1,80
Peysur Úr alull frá kr. 3, 75.
Gterið svo vel :ið liLa iim i
Braun’s verzlun „Hamborg"
AÐALSTRJETI ð Telefón 41.
Miklar birgðir
af ágætum Skijatnaði, og ódýrum eptir gæð-
um, í Skóverzlun JS. fi. jlíathiesen.
Bröttugötu 5.
Ilér með gef jeg heiðruðum almenningi til vitundar,
að eg tek að mér að mdla aílsRonar sRiííi með.
hvaða letri sem er.
Reykjavík 17. des. 1906.
ÓLAFUR J0NSS0N, trésmiður. 44 Grettisgötu 44
Kamelíu-frúin
rerður lcikin á laugardag 29. des
kl. 8 síðd. — Tekið á móti pönt-
unum í ísafoldarafgr.
ALFA
MARGARINE
er hið bezta til dag-
legrar neyzlu og
heimilisnotkunar.
Reynið og dæmiö.
Kaupmáli
er þinglesinrt 13. desbr. 1906 milli
hjónanna Emanuel Frederik Saust
bakara í Reykjavík og konu hans
Guðríðar Saust.
4 lierbergja íbúð í Þlngholts-
stræti eru til leigu frá 1. marz n.k,
2 samanliggjandi stofur sömul.
Semja má við S. A. Gíslason,
Þinglioltsstræti 11.
Hið bezta nýjárs-sælgæti er hið
marg-lofaða
Hangikjöt
er fæst i verziun
Ámunda Árnasonar,
(Hverfisgötu).
Tækifæri.
Mikið úrval af afaródýrum út-
lendum frímerkjum hefur
Bjarnbédinu Jónsson,
járnsmiður.
Bújörð.
Ein hezta laxveíðijörðin í Ár-
nessýslu, með nokkurri selveiði,
sléttum túnum og afgirtu landi
rétt lijá þjóðveginura, fæst keypí
og til ábúðar frá fardögum 1907.
Verðið afarlágt og skilmálar góðir.
Semja verður um kaupin sem
fyrst við
Gísla Þorbjarnarson,
Reykjavík.
Eigandi og ábyrgðarm.:
Hannes Þorste i nsson,
Preutsmiðjan Gutenberg,