Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Įrbók Hins ķslenzka fornleifafélags

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Įrbók Hins ķslenzka fornleifafélags

						Sigurður Vigfiísson hafði sent þetta hvíta efni frá Bergpórshvoli

í fjórum gler-krukkum, sem jeg veitti móttöku. Var sitt númerið

á hverri krukkunni bæði að utan og innan undir lokinu. Rann-

sóknin hófst í árs byrjun 1886 og var að mestu lokið tveim mán-

uðum síðar. J>að sem upplýst varð um hina kemisku samsetningu

efnisins, var samt sem áður eigi nægilegt til þess, að af því einu

yrði ráðið með nokkurri vissu, hvort væri hið upprunalega eðli og

ásigkomulag hins hvíta efnis. Hin kemiska samsetning benti að

vísu á, að efnið hlyti að vera af organiskum uppruna, en þar sem

megnið af efninu, eins og það nú kom fyrir sjónir, var þó óorgan-

iskt, lá næst að ætla, að það væri leifar af organisku efni, þar sem

hinir einkennilegustu og helztu partar, það er að segja, þeir hinir

organisku partar, er sízt halda sjer, hefðu að engu orðið við það,

að liggja lengi í jörðu. I hvíta efninu var þannig tiltölulega lítið

eptir af organiskum efnum, og það lítið, sem eptir var, var auðsjá-

anlega svo breytt og ummyndað, að eigi varð ráðið af hinni núver-

andi kemisku samsetningu þess með neinni vissu, hvernig það efni

hafi verið á sig komið, sem það upprunalega heyrði til. þ>að skipti

því mestu, að finna einhver þau einkenni á samsetningu hinna óorg-

anisku leifa, sem gætu gefið sennilegar líkur um ásigkomulag þess

efnis, sem leifarnar hefðu heyrt til í fyrstu; það segir sig sjálft, að

þær rannsóknir hvíta efnisins, sem að þessu lutu, voru langerfið-

astar viðfangs, og hlutu að taka lengri tíma, en fyrir varð sjeð í

byrjuninni.                                             Khöfn 9. janúar 1887.

V. Storch.

Rannsókn hvíta efnisins.

Eptir því sem Sigurður Vigfússon segir frá í brjefi því, er fyr

var nefnt, fann hann hvíta efnið, er hann Ijet grafa niður á þeim

stað, sem sagt er að skáli Njdls hafi staðið. Nú standa þar gömul

bæjarhús, og var því örðugt að komast þar að. Efst var moldar-

lag þriggja álna þykkt, þar undir var öskulag um tvær álnir á

þykkt. Djúpt niðri í þessu öskulagi var hvíta efnið, og mest allt

á einum stað. f>eir molarnir, sem voru í krukkunum nr. 1, 2 og 4,

voru teknir upp 1883; það sem var í krukkunni nr. 3 var tekið upp

1885. Sigurður Vigfússon gat þess, að stykkið í krukkunni nr. 1

hefði verið þjettara og rakara, þegar það var tekið upp, og ekki

eins holótt og þurt eins og þegar hann sendi það. Molarnir í

krukkunni nr. 2 sýndust líka hafa breyzt nokkuð síðan þeir voru

teknir upp; svo var að sjá, sem molarnir í nr 2 og 3 væru sama

efnis sem molinn í nr.  1.    I krukkunni nr. 4 var dökkleitt efni, og

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18