Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Įrbók Hins ķslenzka fornleifafélags

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Įrbók Hins ķslenzka fornleifafélags

						I því hvít rák, sem var eins og fitukennd þegar hún var núin milli

fingranna á meðan molarnir ekki voru orðnir þurrir.

pegar jeg tók við sendingunni var hún þannig útlítandi:

Molinn í krukkunni nr. i var þur, mjög holóttur og ljettur,

nær því allur hvítur með gulum blæ. Stykkið var allt hjer um bil

jafnholótt, og þunnir veggir greindu holurnar hverja frá annari.

Holurnar voru afiangar og misstórar, fiestar voru þó 7—8 milhmetra

að lengd, en 1,5—2 millimetra að þvermáli. Veggirnir voru að

innan nærri því sljettir. Botninn í holunum var skálmyndaður og

var þar eitt eða fieiri op inn í holur þær er næstar voru. Molinn

var næstum sljettur að neðan, og holurnar þar fiatari en hinar efri.

Á spjaldinu I eru tvær ljósmyndir af þessum mola í náttúrlegri

stærð. Myndin 1. a. sýnir ytra útlit hans og lög-un, en myndin 1.

b. sýnir molann skorinn í sundur með neðri endann upp á við.

Molarnir í krukkunni nr. 2 voru töluvert deigir, mjög holóttir

og gráhvítir að lit og lagði af þeim myglulykt. Hvergi voru skarp-

ar randir á hliðunum og lagið á molunum líkt og í krukkunni nr.

1 ; þó voru holurnar minni, hjer um bil 3 millimetra á lengd en 1

að þvermáli. Utan á molunum var nokkuð af öskunni sem þeir

fundust í, og saman við sjálfa molana hafði jafnvel blandazt dálítið

af sandi og ösku. Myndin 2 á spaldinu I sýnir Ijósmynd af nokkr-

um af molunum í náttúrlegri stærð, eins og þeir voru þegar þeir

höfðu staðið á þurrum stað.

í krukkunni nr. 3 var aðeins einn köggull næstum sljettur að

utan, hann var grár að lit en þó dekkri en molarnir í krukkunni

nr. 2, og með svörtum dílum; hann sýndist í fyrstu ekki vera hol-

óttur, en er jeg braut hann í sundur og gætti vel að, sá jeg að

hann var í öllu svipaður molunum í krukkunni nr. 2, og holóttur

eins og þeir, en holurnar voru fullar af svörtu efni, og lítið eitt

stærri en í krukkunni nr. 2, en aptur minni en í krukkunni nr. 1,

að minnsta kosti voru þær ekki eins langar. Myndin 3 á spjaldinu

I sýnir þrjú brot af þessum köggli. Svörtu blettirnir á myndinni

eru svarta efnið, sem fyllir holurnar og má af þeim sjá hvernig

holurnar eru lagaðar.    Myndin er í náttúrlegri stærð.

Molarnir í krukkunni nr. 4 voru deigir, brúnir að lit og moldar-

kenndir, en í þeim rák af hvítu mjúku og röku efni, sem engar

holur sáust í. Af stykkjunum lagði mikla myglulykt. f>essa mola

Ijet jeg standa á þurrum stað og þorna sumarið 1886, og losnaði

þá moldin frá hvíta efninu. þegar jeg þá skoðaði hvíta efnið í

stækkunargleri, sá jeg að það var eins holótt eins og molinn í

krukkunni nr. 3, en holurnar voru sumar flatar og allar fullar af

sama svarta efni sem i krukkunni nr. 3. Myndin 4. á spjaldinu I

sýnir ljósmynd af nokkrum molum úr fjórðu krukkunni. Sumir af

molum þessum   eru   að   því   leyti   merkilegir,   að í hvíta efninu er

1*

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18